Alþýðublaðið - 04.12.1920, Qupperneq 2
2
ÁLÞYÐDBLAÐIÐ
Sjómannaféh Rvíkur
heldur fund sunnudaginn 5. desember klukkan 2 e. h. í Bárunni. —
Mörg mál á dagskrá. — Ingimar Jónsson cand. theol talar á fund-
inum. — Fjölmennið félagar. — Stjórnin^
I íbúðum, sem hver einasti lækn-
ir segir, að séu heilsuspillandi.
Unga íslands þjóðí Er landið
ekki nógu ríkt til þess að fæða
okkur öll? Eru auðæfin sem þjóð
in framleiðir ekki nóg til þess að
hér þurfi ekkert barn, engan tíma
ársins að vera hungrað, nóg til
þess að hver einasta fjölskylda
geti búið í ibúð sem þó að minsta
kosti er ekki heilsuspillandi ?
Enginn segir það að þjóðin
framleiði ekki nóg. Engum lætur
sér detta í hug að segja það,
ekki einu sinni auðvaldsblöðunum,
sem kostuð eru dýrum dómum
til þess að verja hið ómögulega
fyrirkomulag, sem nú er, láta str
detta í hug að segja það.
En hvers vegna eigum við að
halda við gömlu úreltu fyrirkomu-
lagi, sem miðar niður á við fyrir
þjóðina þegar við eigum kost á
öðru. A svokallaður „réttur“ fárra
manna til þess að láta meiri hlut-
ann af ársarði þjóðarinnar renna
i sinn vasa, að metast meira en
réttur sjálfrar þjóðarinnar (almenn-
ings)?
Nei, vissulega neil
Þessvegna: Burt úr öllura opin-
berum, og öllum öðrum áhrifa-
miklum stöðum, með alla þá sem
berjast á móti því að jafnaðar-
stefnan sigri!
Niður með þá, sem vilja á þing
til þess að mæla bót auðvaldinu,
sem lætur börnin hungra. Burt
með þá sem á alþingi eru tals-
menn auðvaldsins sem lætur börn-
in ganga klæðlítil.
Út með þá úr bæjarstjórnum,
út með þá úr öllum opinberura
stöðum, sem berjast fyrir að halda
uppi auðvaldsfyrirkomulaginu, sem
lætur þúsundir Islendinga búa í
hættulegum íbúðum.
Niður með þá! Burt með þál
Út með þá!
Pað er fóltcið, sem stritar og
starfar, sem framleiðir auðinn, og
það er það sem á að njóta hans.
D’Annunzio yaitur.
Símað er frá Róm, að d'Annun-
zio muni brátt neyðast til að yfir*
gefa Fiume vegna þess, að and*
stæðingar hans umkringi borgina.
1. deseÉer á Seyöisfirði.
Seyðfirðingar efndu til hátíðar
mikillar á „fullveldisdaginn" og
stóð bæjarsrjórnin fyrir hátíðahöld-
unum, er fóru fram í barnaskóla-
húsinu.
Mér var símað frá Seyðisfirði,
að meðal annars hafi þar ræður
verið haidnar: Eina hélt fyrverandi
íslandsbankastjóri þar á staðnum,
og snerist hún mestmegnis um það,
að ef svo færi, að verkamenn
fengju alment vinnu sína borgaða
með kr 1,25 á tímann, þá væri
úti um kaupmenn og landið þar
með komið á höluðiðl Aðra ræðu
hélt núverandi bankastjóri íslands-
banka, og átti hún að vera fyrir
minni íslands, en snerist aðallega
um íslandsbanka. Nokkurskonar
minni hans! Þriðju ræðuna hélt
ritstjóri Austurlands, og átti hún
að fjalla um heilbrigði stjórnmála,
en varð nokkurskonar eftirmæli
Jóns frá Hvanná, sem þingmanns.
Á eftir þessum mönnum tók Karl
Finnbogason til máls og benti
fyrirrennurum sfnum á ýmislegt,
er þeir hefðu betur mátt láta ósagt.
Að ræðuhöldunum Ioknum var
dands stiginn og annar gleðskapur
um hönd hafður, til kl. 5 að
morgni, og þótti ekki af veita
eftir glamrið í skósveinum íslands-
banka.
Svipull.
Di dðpn 09 veginD.
Kveikja ber á hjólreiða- og
bifreiðaljóskerura eigi siðar en kl.
3z/4 í kvöld.
Prentvilla var í blaðinu ígær,
1. sfðu 2. dálki 10. línu stendur
„ófyrirleitnir bannmenn< en á að
vera „ófyrirleitnir andbanningar*.
blaðsias er í Alþýðuhúsinu við
íngólfsstræti og Hverfisgötu.
Sími 088.
Anglýsingum sé skilað þangað'
eða í Gutenberg í síðasta lagi kl.
10 árdegis, þann dag, sem þær
eiga að koma f blaðið.
Áskriftargjald ein lir-. á
mánuði.
Auglýsingaverð kr. 1,50 cm..
eindálkuð.
Utsölumenn beðnir að gera skiL
til afgreiðslunnar, að minsta kosti
ársfjórðungsiega.
Sjómannafélagsfundnr er á>
morgun kl. 2 e. h. í Bárunni.
Formaður fulltrúaráðs verklýðs-
félaganna í Reykjavík, cand. theoL
Ingimar Jónsson talar á fundinum..
Náttúrugripasafnið er opið á.
morgun frá i1/* til 2V2 e. h.
Breytimiðskenningin. í gær
er ritdómur í Mgbl. um „Jóla-
gjöfina" og síendur þar þettat
»Þá er næst kvæði eftir einhvern
Svein Gunnlaugsson; ekki ólög-
iegt en heldur sviplítið".
Sagt er áð ritdómaranum (Jóni
Björnssyni) hafi þótt kvæðið svona
sviplítið af því að hann hafi ver-
ið nýbúinn að lesa kvæði eftirt
Jón Björnsson.
I’róttur er nýútkominn, með
mynd af leikvellinum í Antwerpen,
„Ólympíuleikar nútímansc. Undra-
barnið Rzechewski með mynd,
Vetrarlíf knattspyrnuraanna. Um
tennurnar, víðavangshlaup í sveit
og fleiri fróðleik.
Aðvörun. Samkvæmt beiðni
Stjórnarráðsias flytur blaðið þessa
aðvörun:
Samkvæmt upplýsingum, sem