Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 4

Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 MQRGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR „Lífiðer línudans" ÞAÐ má með sanni segja að „lífið sé línudans" hjá leik- mönnum Víkings og Fram. Þeirra sterkustu vopn eru línumennimir Birgir Sig- urðsson og Rússinn Oleg Titov, sem háðu harða rimmu — bæði í sókn og vörn. Birgir hafði gætur á Titov og öfugt. Leikmenn lið- anna byggja leik sinn mikið upp á því að senda knöttinn inn á línuna til þessara snjöllu leikmanna og þá má segja að þeir hafi gert „stór- meistarajafntefli" — báðir skomðu þeir fimm mörk, báðir þijú af línu og tvö úr vítaköstum. Stöðva þarf „lendinga- leyfi“ SVOKÖLLUÐ „lendinga- Ieyfi“ handknattleiksmanna em orðin óþolandi — I leik Fram og Víkings vom fjögur mörk skoruð, eftir að leik- menn höfðu stigið á gólfið innan vítateigs, áður en þeir losuðu sig við knöttinn og sex sinnum vom menn lentir, án þess að þeir náðu að skora. Þetta er orðin lenska í handknattleiknum á Is- landi, hjá hornamönnum, línumönnum og jafnvel úti- spilurum — þegar þeir ná gegnumbrotum. Dómarar em ekki nægilega vakandi fyrir þessum ósóma — þeir geta eins tekið á honum og þeir taka á of mörgum skref- um leikmanna. Þá þarf einn- ig að taka á brotum, þegar leikmenn fara út gegn mót- heijum með knöttinn og hanga á þeim — Jeiðinlegur ávani, sem þarf að uppræta. Víkingar fagna Morgunblaðið/Kristinn FOGNUÐUR Víklnga var mikill í Framhúsinu, eftir að þeir voru búnir að tryggja sér rétt til að leika bikarúrslitaleiklnn. Fyrir miðri mynd fagna Friðleifur Friðleifsson og Hjörtur Örn Arnarson — veifa til stuðningsmanna. Ólrúlegar sveiflur „Nádum að brjóta leik okkar upp“ Mm FOLK ■ DAVOR Kovcevic hjá Víkingi kom aðeins þrisvar við sögu í leik liðsins gegn Fram, í öll skiptin til að taka vítaköst. Hann skoraði úr tveimur fyrstu, Þór Björnsson varði það þriðja. ■ LEIKMENN Víkinga virtust vera að missa trúna á að þeir gætu skorað, þegar þeir höfðu ekki skor- að mark í 15,13 mín. gegn Fram. Þá fengu þeir vítakast og var það hinn reyndi Birgir Sigurðsson, sem gekk þá fram til að taka það og skoraði. Áður höfðu þeir látið verja frá sér tvö vítaköst í leiknum. ■ HLYNUR Morthens, vara- markvörður Víkinga, kom þrisvar inn á til að veija vítaköst — hann varði tvö fyrstu; frá Oleg Titov og Jóni Þ. Jónssyni. ■ GUÐMUNDUR Guðmunds- son, þjálfari Fram, kom inn á und- ir lok leiksins — og lék að sjálf- sögðu í vinstra hominu. Hann lék stutt og náði ekki að breyta gangi leiksins. - þegar Víkingar lögðu Fram að velli 19:16 ÉG HEF oft orðið vitni að mikl- um sveiflum í handknattleik, en þó aldrei eins og í bikarleik Fram og Víkings, þar sem Vík- ingar voru sterkari á loka- sprettinum og náðu að tryggja sér sigur, 16:19, og þar með rétt til að leika úrslitaleikinn gegn bikarmeisturum KA f Laugardalshöllinni. Víkingar höfðu yfir 9:11 í leik- hléi og þeir skoruðu tvö fyrstu mörkin í seinni hálfleik, 9:13, þann- ig að staða þeirra var örðin vænleg. Framarar, sem vora oft á tíðum mjög ráðvilltir í sóknar- leik sínum, náðu ekki að skora mark fyrr en 8,32 mín. vora liðnar af seinni hálfleiknum. Það var þá sem Framarar sögðu lok, lok og læs — skorðuðu sex mörk í röð, komust yfir 15:13 á 20 mín. Á þessum tíma léku þeir mjög hreyfanlegan og sterkan vamarleik og Þór Björnsson fór á kostum í marki þeirra, varði níu skot. Víkingar virtust ekki eiga neitt svar til, sóknarleikur þeirra var vægast sagt vandræðalegur. Þeir Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar Tíundi úrslitaleikur Víkings VÍKINGAR leika sinn tíunda bikarúrslitaleik, þegar þeir mæta KA. Víkingar, sem urðu bikarmeistarar 1978 og 1979, unnu bikarinn síðan fjórum sinnum í röð — 1983-1986. Þeir hafa þrisvar tapað úrslitaleikjum, fyrst 1978 og í tvö síðustu skiptin sem þeir hafa leik- ið— 19:20 fyrir Val 1990 og 22:26 fyrir Eyjamönnum í sögulegum leik 1991. KA leikur þriðja bikarúrslitaleik sinn í röð. skoruðu ekki mark í 15,13 mín., það var ekki fyrr en á 21,11 mín. að fyrirliði þeirra, Birgir Sigurðs- son, skoraði úr vítakasti, að þeir náðu að bijóta ísinn. Framarar náðu ekki að fylgja leik sínum eftir, Birg- ir jafnaði, 15:15, úr vítakasti þegar átta mín. vora til leiksloka og í kjöl- farið skoraði Hjörtur Örn Arnarsson úr horni, Knútur Sigurðsson með gegnumbroti og Hjörtur Örn eftir gegnumbroti, auk þess sem Reynir Þór Reynisson varði vítakast og Víkingar voru komnir yfir 15:18 þegar ein mín. var til leiksloka og sigur þeirra kominn í örugga höfn. Þegar Hilmar Bjarnason skoraði sextánda mark Framara, höfðu þeir ekki skorað í 9 mín., þannig að sveiflurnar í leiknum voru ótrúleg- ar. Birgir Sigurðsson gulltryggði sigur Víkinga, 16:19, með marki af línu. Sóknarleikur beggja liða ein- kenndist af því að leikmenn liðanna reyndu hvað sem þeir gátu til að koma knettinum inn á línu — Fram- arar knettinum til Oleg Titov og Víkingar til Birgis Sigurðssonar. Bæði liðin eru skyttulaus, sem sést best á því að aðeins þrjú mörk voru skoruð með langskotum — Hilmar Bjarnason skoraði tvö mörk fyrir Fram og Árni Friðleifsson eitt fyrir Víking. Titov og Þór Björnsson vora bestu leikmenn Fram — Þór varði mjög vel. Bestir hjá Víkingi voru Birgir, Iljörtur Óm Arnarson, Reynir Þór Reynisson og Knútur Sigurðsson. „SVEIFLURNAR voru miklar í leiknum, sem gerðu hann skemmtilegan á að horfa. Það komu upp kringustæður, sem maður varð að bregðast við, breyta og útfæra leikinn öðruvísi. Við skoraðum tvö fyrstu mörkin í seinni hálfleik, en síðan tók við löng bið eftir marki. Það er alltaf svo að lið detta niður þegar þau ná góðri forustu, eins og við gerðum — náðum fjögurra marka forustu. Þá var eins og mínir menn héldu að þeir gætu leyft sér þann munað að slappa af, en Framarar eru með lið sem getur refsað fyrir kæraleysi, eins og þeir refsuðu okkur,“ sagði Árni Indriða- son, þjálfari Víkinga. „Varnarleikur Framara var mjög góður á þessum leikhluta — þeir stöðv- uðu sóknarleik okkar og þegar við komumst í gegn, reyndist markvörður þeirra okkur erfiður," sagði Árni, sem bað um leikhlé í stöðunni 12:13, en þá höfðu Víkingar ekki skorað mark í átta mínútur og rúmar þrettán mín. til leiksloka. „Eg óskaði eftir leikhléi til að koma nýrri hugsun í leik okk- ar. Það var greinilegt að við urðum að bijóta leik okkar upp — og þá var spurningin hvort það myndi duga, því að það dugar ekki alltaf að bijóta leik liðsins upp á viðkvæmum augnablikum. Ég er mjög ánægður með að við náðum að rífa okkur aftur upp, þó að lítið hafi verið eftir af leiknum — ég er virkilega ánægður,“ sagði Árni Indriðason. Samstaða Hauka gerði gæfumuninn jjaráttan var í algleymi er Haukar Ivar Benediktsson skrifar tóku á móti Aftureldingu Hafnarfirði. Leikmenn tóku rösklega hver á öðrum og markvarslan var í góðu lagi lengst af. Að sama skapi var sóknarleikurinn oft á tíðum brokkgengur. Eftir að Mosfell- ingar höfðu náð frumkvæðinu um miðjan síðari hálfleik og leitt með tveimur mörkum í leikhléi, 9:11, þá gengu Haukar rösklega til verks í upphafi þess síðari. Þeir náðu forystu og létu hana aldrei af hendi og upp- skáru sigur, 24:21, og þriðja sæti deildarinnar, stigi á undan Stjörn- unni. Sterk vörn og afbragðsmark- varsla einkenndi leikinn framan af og reyndar svo mjög að leikmönnum gekk mjög illa að setja mark sitt á leikinn. Eftir sextán mínútur leiddu Haukar með einu marki 4:3. Heldur losnaði um er á leið og baráttuglaðir Mosfellingar sigu fram úr og náðu á tíma þriggja marka forystu. Messuhald Gunnars Gunnarsson- ar, þjálfara Hauka, í leikhléi bar ti- lætlaðan árangur því hans menn komu mun yfirvegaðri til sóknar í síðari hálfleik. Þeir voru búnir að jafna leikinn að loknum tveimur mín- útur og náðu fímm mínútum síðar frumkvæði, 14:13, er Mosfellingar voru einum leikmanni færri. En leik- menn UMFA voru ekki tilbúnir að gefa eftir og voru í seilingarfjar- lægð. Þeim tókst þó aldrei að jafna þrátt fyrir að nokkrum sinnum hafi lítið vantað upp á en eins og nokkru áður var það sóknin sem ekki skilaði sínu. Bjarni Frostason var dijúgur í marki Hauka í leiknum og Áron Kristjánsson átti einnig góðan leik. Þá var Baumruck sterkur í síðari hálfleik. Annars var það samstæður hópur sem óx eftir því sem á leikinn leið sem var aðal Hauka. Það veikir óneitanlega lið UMFA mikið um þessar mundir að Gunnar Andrésson á við meiðsli að stríða í hné og í nára og getur ekkert tekið þátt í sóknarleiknum. Þá er Ingi- mundur Helgason einnig meiddur í hné og getur lítið beitt sér. Berg- sveinn var góður í fyrri hálfleik en datt niður í þeim síðari, Vörnin var sterk og Páll Þórólfsson, Bjarki Sig- urðsson og Þorkell Guðbrandsson léku ágætlega og Róbert Sighvatsson stóð fyrir sínu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.