Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 B 9
KNATTSPYRNA
Reuter
Mætast
United
ogCity?
Ef Manchester City nær aðJeggja
Coventry að velli í 4. umferð
ensku bikarkeppninnar, mætir liðið
nágrönnum sínum Manchester Un-
ited á Old Trafford. Liðin hafa að-
eins fjórum sinnum leikið saman í
214 ára sögu bikarkeppninnar —
það var 1926 og 1955, árin sem
City fagnaði sigri og 1970 og 1987,
árin sem United fagnaði. Ef
Coventry vinnur, mun Ron Atkin-
son stjórna liðinu gegn United, sem
undir hans stjórn varð bikarmeist-
ari 1983 og 1985.
Liðin sem mætast í 16-liða úrslit-
um, eru:
Shrewsbury eða Liverpool - Charl-
ton eða Brentford
Nottingham Forest eða Oxford -
Tottenham eða Wolves
Bolton eða Leeds - Everton eða
Port Vale
Ipswich eða Walsall - Aston Villa
Swindon eða Oldham - Southamp-
ton eða Crewe
Manchester United - Coventry eða
Manchester City.
Huddersfield eða Peterborough -
Middlesbrough eða Wimbledon
West Ham eða Grimsby - QPR eða
Chelsea
Leikirnir fara fram um miðjan
febrúar.
TERRY Sheringham, markaskorarinn mikli hjá Tottenham, átti í erfiðleikum með varnarleik-
menn Úlfanna og náði ekki að skora. Hér sækir hann að Eric Young.
Everlon enn í
kröppum dansi
Bikarmeistararnir gerðu jafntefli við Port Vale. Tottenham
náði ekki að leggja Úlfana að velli á White Hart Lane
BIKARMEISTARAR Everton
lentu enn einu sinni í kröppum
dansi á Goodison Park, þar
sem þeir urðu að sætta sig við
jafntefli, 2:2, gegn 1. deildarliði
Port Vale, eftir að varamaður-
inn lan Bogie skoraði jöfnunar-
markið. Everton gerði einnig
jafntefli á heimavelli í 3. umferð
— 2:2, gegn Stockport, en náði
síðan sigri á ævintýralegan
hátt á útivelli, 3:2. Tottenham
varð einnig að sætta sig við
jafntefli heima, 1:1, gegn Úlfun-
um á laugardaginn, en þá varð
að fresta ellefu bikarleikjum
þar sem „Síberíuveður" var á
Bretlandseyjum - snjóstormur
gekk yfir aðfaranótt laugar-
dagsins.
Það voru 33.168 áhorfendur
komnir saman í kuldanum á
Goodison Park og sáu þeir hreint
ótrúlegan lokakafla leiksins. Allt
leit út fyrir að Skotinn Duncan
Tveir leikmenn Rang-
ers með þrennu
TVEIR leikmenn Glasgow Rangers, Ian Ferguson og Alec Cle-
land, skoruðu þrjú mörk þegar Rangers vann stórsigur, 10:1, á
utandeildarliðinu Keith frá Hálöndunum, sem lék heimaleik sinn
fyrir framan 14.000 áhorfendur á heimavelli Aberdeen. Brian
Laudrup var allt í öllu í leik Rangers, sem lék án Pauls Gascoigne,
í leikbanni, og Ally McCoist, sem er meiddur. Leikmenn Rangers
náðu ekki að selja nýtt liðsmet, eða vinna með tólf marka mun,
eins og Rangers gerði 1934, er liðið vann Blairgowrie 14:2!
Línuvörður
fékk smápen-
ing í andlitið
STÖÐVA þurfti leik Reading
og Manchester United um
tíma, eða eftir að áhorfandi
kastaði smápeningi sem hafn-
aði í andliti annars línuvarð-
arins. Peningurinn lenti rétt
við vinstra auga línuvarðar-
ins. Eftir að búið var að gera
að sárum hans hélt leikurinn
áfram. Enska knattspyrnu-
sambandið mun taka málið
fyrir og er reiknað með að
Reading fái harða refsingu.
Ferguson væri búinn að tryggja
Everton sigur tveimur mín. fyrir
leikslok — þegar hann skoraði eftir
mistök markvarðarins Paul Muss-
elwlúte, sem sofnaði á verðinum
þegar Andreas Limpar sendi knött-
inn fyrir markið. Stuðningsmenn
Everton voru enn að fagna þegar
Ian Bogie þrumaði knettinum af
35 m færi að marki Everton, knött-
urinn fór yfir Neville Southall og f
netið. Áður hafði Nígeríumaðurinn
Daniel Amokachi skorað fyrir Ever-
ton rétt fyrir leikhlé og Martin Fo-
yle jáfnaði fyrir Port Vale með
skalla í seinni hálfleik.
14.780 áhorfendur fylltu heima-
völl Reading, Elm Park, fyrir vestan
London, þegar Manchester United
kom þangað í heimsókn. Heima-
menn veittu United harða keppni í
byrjun, en Ryan Giggs braut ísinn
á 36. mín. og síðan skoraði bakvörð-
urinn Paul Parker annað markið á
56. mín., aðeins þremur mín. eftir
að hann kom inn á sem varamaður
— hans fyrsta mark í þrjú ár. Eric
Cantona gulltryggði síðan sigurinn,
3:0, á síðustu mín. leiksins.
Tottenham varð að sætta sig við
jafntefli, 1:1, gegn Úlfunum, þar
sem gestirnir náðu að halda 33
marka miðheijadúettinum Teddy
Sheringham og Chris Armstrong
niðri. Það var varnarleikmaðurinn
Clive Wilson sem skoraði mark
heimamanna á 13. mín. Úlfarnir
náðu að jafna fimmtán mín. síðar
þegar Gary Mabbutt náði ekki hárri
fyrirgjöf sem kom fyrir mark Tott-
enham, þar sem Steve Bull, 30 ára,
sem lék sinn fyrsta leik White Hart
Lane, náði knettinum og sendi hann
til Don Goodman, sem skoraði sitt
sextána mark á keppnistímabilinu.
Tottenham þurfti einnig tvo leiki
gegn Hereford í 3. umferð — gerði
jafntefli, 1:1, úti, en vann síðan
stórsigur heima, 5:1.
Dwight Yorke tryggði Aston
Villa sigur á Sheff. Utd. með marki
úr vítaspyrnu á 63. mín. 0:1. Yorke,
sem skoraði sigurmark Villa gegn
Tottenham 2:1 í sl. viku, sendi
markvörðuinn Alan Kelly til hliðar
og vippaði knettinum síðan i mitt
markið, rétt fyrir neðan þverslá.
Vítaspyrnan var dæmd þegar Serb-
inn hjá Villa, Savo Milosevic, var
felldur. Leikmenn Sheff. Utd., sem
lögðu Arsenal að velli í 3. umferð,
sitja eftir með sárt ennið — þeir
fengu mörg gullin tækifæri til að
tryggja sér sigur.
Urslit / BIO
Charlton er
tilbúinn í
slaginn
JACK Charlton, fyrrum
landsliðsþjálfari Irlands,
sagði á sunnudaginn að hann
væri tilbúinn að taka við starfi
landsliðsþjálfara Englands, ef
enska knattspyrnusambandið
mundi óska þess. Charlton,
sem er sextíu ára, lék með
heimsmeistaraliði Englend-
inga á HM í Englandi 1966.
„Ef þeir koma og óska eftir
því að ég taki við starfinu,
gæti ég ekki sem Englending-
ur sagt nei,“ sagði Charlton,
sem lék 35 landsleiki fyrir
England.
Þess má geta að Charlton
sótti um þjálfarastarfið 1980,
en þá var honum ekki svarað.
Hann hefur náð frábærum
árangri með írska landsliðið
— kom því í Evrópukeppnina
í Þýskalandi 1988, HM á Ítalíu
1990 og Bandaríkjunum 1994.
Zubizarreta
frá vegna
meiðsla
ANDONI Zubizarreta, lands-
liðsmarkvörður Spánverja,
missti af sínum fyrsta leik í
fimmtán ár vegna meiðsla,
þegar Valencia vann stórsig-
ur á Merida, 4:1. Zubizarreta
hefur leikið 534 deildarleiki
með Athletic Bilbao, Barcel-
ona og Valencia. Zubizarreta
meiddist á hásin og mun hann
líklega missa af vináttulands-
leik Spánveija gegn Norð-
mönnum 7. febrúar, þannig
að Jose Canizares, markvörð-
ur Real Madrid, fær tækifær-
ið sem hann hefur lengi beðið
eftir.
Mandela
segirWeah
stolt Afríku
NELSON Mandela, forseti
Suður-Afríku, sagði á laugar-
daginn að Knattspyrnumaður
heims 1995, George Weah frá
Líberíu, væri stolt Afríku.
„Það er mikill heiður fyrir
mig að bjóða George velkom-
inn, hann er stolt Afríku í
íþróttum," sagði Mandela
þegar hann tók á móti lands-
liðsmönnum Líberíu, sem eru
úr leik í Afríkukeppninni.
Weah sagði að það værí
draumur hans að leika með
Líberíu í HM í Frakklandi
1998.
Weah
borgar
sektina
LÍBERÍUMENN voru sektað-
ir um 455 þús. ísl. kr. í Afríku-
keppninni, fyrir að George
Weah lék bæði í peysu númer
9 og 14, en leikmenn verða
að leika með það númer á
bakinu, sem þeir voru til-
kynntir með fyrir keppnina.
Weah mun borga sjálfur sekt-
ina, en það er einmitt hann
sem sér um að fjármagna
landslið Liberíu, sér um bún-
inga- og skókaup á leikmenn,
ásamt. því að sjá um að fjár-
magna ýmsan annan kostnað
liðsins.