Morgunblaðið - 03.02.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 C 7
Morgunblaðið/Einar Falur
Síðasta sýningarhelgi
DÝRSLEGT
„TÓM herbergi eru í sjálfu sér
áhugaverð, hlutföll, gólf og loft,
skuggspil og litbrigði - andblær
þeirra, auk tengsla við hinn ytri
heim. Ahugi minn beinist að því
að vinna með þessa eiginleika,
að metta rýmið án þess að vinna
Málverka-
uppboð á
Hótel Sögu
GALLERÍ Borg heldur mál-
verkauppboð á Hótel Sögu á
morgun, sunnudag, kl. 20.30.
Boðin verða 80 verk, flest
eftir gömlu meistarana og má
þar nefna Jóhannes S. Kjarv-
al, Ásgrím Jónsson, Gunnlaug
Blöndal, Finn Jónsson, Jón
Stefánsson, Jón Engilberts,
Þorvald Skúlason, Mugg, Þór-
arinn B. Þorláksson, Jón Þor-
leifsson og Kristínu Jónsdótt-
ur.
Uppboðsverkin eru sýnd í
hinum nýju húsakynnum-Gall-
erís Borgar í Aðalstræti 6 í
dag og á morgun kl. 12-18.
gegn því,“ segir Ingólfur Arnars-
son myndlistarmaður en sýningu
hans í Ingólfsstræti 8 lýkur nú á
sunnudag.
Ingólfsstræti 8 er opið alla
daga nema mánudaga frá kl.
14-18.
V atnslita-
myndir í safni
Asgríms
SÝNING á vatnslitamyndum Ás-
gríms Jónssonar verður opnuð í
dag, laugardag, í safni hans á
Bergstaðarstræti 74 í Reykjavík.
Sýndar verða um 25 myndir
frá um fimmtíu ára tímabili á
ferli Iistamannsins, sú elsta frá
1904 og sú yngsta frá 1952, og
sýna þær breiddina í túlkun og
tækni þessa mikla vatnslitamál-
ara.
Sýningin stendur út marsmán-
uð og er opin á opnunartíma
safnsins, laugardaga og sunnu-
daga kl. 13.30 til 16. Aðgangur
er ókeypis.
LEIKLIST
Vcrslunarskóli
I s 1 a n d s
CATS (KISUR)
Söng- og dansleikur eftir Andrew
Lloyd Webber Eftir ljóðum T.S. Eliot
Magnea Matthíasdóttir þýddi Leik-
stjóri: Ari Matthiasson Tónlistar-
stjóri: Þorvaldur B. Þorvaldsson
Danshöfundar: Bima og Selma
Bjömsdætur Aðalleikendur: Kjartan
Sigurðsson, Valgerðm- Guðnadóttir,
Þómnn Egilsdóttir Sigríður Krist-
jánsdóttir, Jóna Valdimarsdóttir, Iris
Stefánsdóttir, Hildur Gunnarsdóttir,
Rún Ingvarsdóttir, Bjartmar Þórðar-
son, Ami Georgsson, Hildur Hall-
grímsdóttir, Georg Haraldsson,
Breki Johnsen Tónlistarflutningur:
Tweety auk blástui'hljóðfæraleikara
Förðun: Ágústa og margar fleiri
Búningan Anna María og fleiri ung-
ar meyjar. Frumsýning 1. febrúar,
Loftkastalanum.
ÞESSI söngleikur hefur geisað í
London lengur en elstu menn muna
og ætlar sér trú-
lega að elta uppi
á mjúkum þófum
Músagildruna
hennar Agöthu
Christie sem er
búin að vera þar
svo lengi á fjölun-
um að hún treyst-
ir sér ekki aftur
upp í hillu. Kisur
eru þriðji söng-
leikurinn sem ég
hef séð hjá Versl-
ingum á undan-
förnum árum, og
svei mér þá, ég
held þeim sé alltaf
að fara fram.
Valgerður
Guðnadóttir (sem
áður hefur sungið
með V.í.) sér
áhorfendum
rækilega fyrir
gæsahúð með sín-
um fagra söng í
lokalagi sýningar-
innar, en þó eru
það dansaramir,
förðunar- og bún-
ingahönnuðir sem
gera þessa sýn-
ingu að því
augnakonfekti
sem hún er. Dans-
arar eru vel
samæfðir, þokka-
fullir mjög, og sýna færni sem að-
eins er til sem draumur í hugum
alls þorra fólks. Þar að auki sýna
sumir þeirra ágæta leikræna takta,
ekki síst þær Sigríður Ósk og Jóna
'Ellen. Það vom hvergi dauðir
punktar í þessari sýningu, hún var
þrungin orku, fjöri og kankvísum
húmor, og fyrir það verður að hrósa
þeim sem sýningunni stýra og einn-
ig hljómsveitinni sem spilaði aldeilis
prýðilega.
Búningahönnuðir og förðunar-
meistarar gefa svo sýningunni eink-
anlega frekt og fallega litskrúðugt
yfirbragð. Þessi sýning leið eins og
gleðilegur draumur.
Þá var afar ánægjulegt að heyra
hve Verslingar tóku vel undir tíma-
bær og vel mælt varnaðarorð skóla-
stjórans í setningarávarpi hans
gegn efnafræðilega framkallaðri
falsgleði.
Falsgleði sást hvergi á brá þessa
góðu stund með Verslingum, heldur
sú sanna ánægja sem hlýst af því
að gera góða hluti vel.
Guðbrandur Gíslason
SÝNING á vatnslitamyndum Ásgríms Jónssonar verður
opnuð í dag, laugardag.
Efnilegur
flautuleikari
TÖNLIST
Háskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Sinfóníuhljómsveit Islands. Hljóm-
sveitarstjóri En Shao. Einleikari
Hallfríður Ólafsdóttir. Fimmtudagur
1. febrúar.
RÚN eftir Áskel Másson var
fyrsta viðfangsefni kvöldsins og
jafnframt frumflutningur, en verið
er samið 1993 og 4, segir í efnis-
skrá. Rún er samin fyrir stóra
hljómsveit og tekur 10 mín. í flutn-
ingi. Áhrif fyi-stu sekúndu verksins
minntu undirritaðan strax á „gam-
alt“ verk íslenskt, sem á sínum tíma
veitti höfundi sínum Norðurlanda-
verðlaun. 1 því verki tóku einleiks-
hljóðfærin við, eftir áhrifamikinn
eintóna inngang. í kvöld var þessi
áhrifamikli inngangur styttri og
framhaldið hafði enga eiginleika til
að skreyta sig með, höfundur varð
að stóla á kunnáttu sína og eigið
ágæti, svo og stóra hljómsveit og
ekki er auðvelt á aðeins tíu mínútum
að nýta stóra sinfóníuhljómsveit að
ekki verði yfirborðslegt eða bros-
legt. Áskell slapp við hvoit tveggja.
í kringum einskonar miðpunkt, sem
tónlistin leitaði alltaf öðru hveiju
til, lék hún sér í litlum og temaískum
uppákomum, fór aldrei langt frá
upphafi sínu og, eins og fyrr sagði,
aldrei lengra en svo að hún rataði
aftur heim. Æfing í hljóðfæraritun,
skógarstemmning og japanskt Ijóð
kom upp í huga manns, hvort ein-
hver önnur ætlan var í huga höfund-
ar skýrist með tímanum, en Áskeli
er óskað til hamingju með gott verk
og e.t.v. einskonar vendipunkt í tón-
ritun sinni, en hann er orðinn stór-
virkur í tónsköpun íslenskri.
Það er kannske ekki undarlegt
að Danir skuli hafa átt tvo afkasta-
mestu sinfóníkera Norðurlanda, þá
Carl Nielsen og Vagn Holmbo, Sib-
elius væri vitanlega meðtalinn ef
danskur væri. Fyrir Dani, sem voru
sterklega undir þýskum menningar-
straumum, var annaðhvort að láta
risann í suðri gleypa sig eða reyna
að halda sínum stíl og það tókst
þeim, afraksturinn frábærir tónlist-
armenn á flestum sviðum og hár
tónlistar-„standard“. Kannske er
ástæðan í ætt við þá skýringu sem
þekktur orgelsmiður danskur svar-
aði til þegar hann var spurður: „Á
meðan þýskararnir stóðu í styijöld-
um í hinar og þessar áttir gátum
við haldið áfram ótruflaðir við að
þróa orgelsmíðina.“ Flautukonsert
Carls Nielsens er kannski ekki hans
heillegasta tónsmíð, stíltegundir
fyrri hluta aldarinnar virðist flestar
vera komnar upp á borð hjá honum
í konsertinum, kannski viljandi, því
með konsertinum vill hann hræra
upp í dönsku tónlistarlífi. Konsert-
inn ber þó yfirbragð meistara síns
og með fáguðum leik lifnar verkið
og skýrist. Þessa fágun á Hallfríður
Ólafsdóttir í sínum flautuleik, tækni
hennar mjög góð og tónninn falleg-
ur. Þar sem undirritaður sat kæfði
hljómsveitin flautuna á stundum,
(svo mun ekki hafa verið aftar í
salnum) en samleikur hennar og
hljómsveitarinnar var góður og ör-
uggur og ekki er vafi á að hér er
á ferðinni einleikari með mjög góð-
ar tónlistargáfur.
Gaman hefði verið að hafa 16
fyrstu fiðlur í stað tólf og aðra
strengi eftir því, í 5. sinfóníu Sjos-
takovitsj, en á mörkunum var að
strengirnir næðu í gegnum hljóð-
múr blásaranna, að vísu liefðu 16
fyrstu ekki komist fyrir á sviði
Háskólabíós, sem enn sýnir og
sannar að hljómsveitin þarfnast
tónleikasalar í fullri stærð ef hún
á að geta staðið undir því menning-
arhlutverki sem henni er ætlað.
Mörg eru þau hljómsveitarverk sem
hugsuð eru fyrir stærri stroksveitir
en aðeins 12 fyrstu fiðlur. Tólf
fyrstu fiðlurnar, svo að aðrir í
hljómsveitinni, skiluðu sinfóníunni
með glæsibrag. Stroksveitin er orð-
in mjög góð og skilaði leikrænum
fléttum sinfóníunnar nær því óað-
finannlega, yfirleitt, en síðasti þátt-
urinn er, hvað tæknina varðar, mjög
viðkæmur. Hvort um er að ræða
óhreinindi í eyrunum á mér er að
ræða veit ég ekki, en tréð er ekki
alltaf innbyrðis hreint. Mörg orð
mætti hafa um þessa sinfóníu Sjos-
takovitsj, þar sem ótrúlegt hug-
myndarflug höfundar fléttast gegn-
um alla þætti verksins og afmæli
sovésku byltingarinnar minnst í
margskonar myndum, sem víst skil-
uðu sér í flutningi hljómsveitarinnar
undir öruggri og ágætri stjórn
hljómsveitarstjórans En Shao, sem
sýndi í öllum verkefnum kvöídsins
að honum er treystandi. í lok sinfó-
níunnar dettur manni alltaf í hug
hvort höfundur íslenska þjóðsöngs-
ins og Sjostakovitsj hafi setið sam-
an að sumbli, eins og þeir gerðu
forðum Sjostakovitsj og Katscjatur-
ian eina fræga nótt og sömdu.
Ragnar Björnsson
MENNING/
LISTIR
NÆSTUVIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Olivier Debré, Komar og Melamid
og Ingólfur Arnarsson til 18. febr.
og Kjarvalssýning fram á vor.
Listasafn íslands
Ný aðföng III til 25. febr.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sýning á vatnslitamyndum Ásgríms
út.mars.
Listasafn Kópavogs
Blaðaljósmyndir til 11. febr.
Norræna húsið
Grafíksýning í anddyrinu.
Gallerí Sævars Karls
Guðrún Einarsdóttir sýnir.
Gallerí Ingólfsstræti 8
Ingólfur Arnarsson sýnir til 4. febr.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Portrettsýning til 19. maí.
Gallerí Sólon Islandus
Birgir Andrésson sýnir.
Mokka
Komar og Melamid sýna Eftirsótt-
asta málverk bandarísku þjóðarinnar
til 11. febr.
Gallerí Úmbra
Anna María Siguijónsdóttir sýnir
ljósmyndir til 21. febr.
Gallerí Fold
Jónas Guðvarðsson sýnir og János
Probstner í kynningarhorni til 18.
febr.
Nýlistasafnið
Hlynur Helgason, Sigríður Hrafn-
kelsdóttir og Lothar Pöbberl sýna til
18. febr. Gestur í setustofu, Gallerí
Gúlp!
Gallerí Greip
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson sýnir
til 18. febr.
Gallerí Önnur hæð
Lesley Foxcroft sýnir til 14. febr.
Vincent Shine til 6. mars.
Myndás
Ljósmyndasýning Páls Guðjónssonar
til 2. mars.
Slunkaríki
Verk Romans Signers til 11. febr.
Listasetrið Akranesi
Sossa sýnir á árs afmæli Listaseturs
til 11. febrúar.
TONLIST
Laugardagur 3. febrúar
Sönghópurinn Smávinir í Digranes-
kirkju kl. 17. Kristján Helgason barit-
onsöngvari og Iwona Jagla píanóleik-
ari halda einsöngstónleika í Norræna
húsinu kl. 17. Hádegistónieikar í
Akureyrarkirkju; Bjöm S. Sólbergs-
son organisti kl. 12. kvintett Coretto
heldur tónleika í sal FÍH kl. 17.
Sunnudagur 4. febrúar
Natalia Chow sópransöngkona og
Helgi Pétursson orgelleikari í Há-
teigskirkju kl. 17. Ljóðatónleikar
Gerðubergs; Anna Sigríður Helga-
dóttir og Gerrit Schuil kl. 17.
Þriðjudagur 6. febrúar
Kabaretthljómsveit Péturs í tónleika-
röð Leikfélags Reykjavíkur kl. 20.30.
Ljóðatónleikar í sal grunnskólans á
Sauðárkróki kl. 21.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Þrek og tár lau. 3. febr., fim., lau.
Kardemommubærinn lau. 3. febr., sun.,
lau. Don Juan fös. 9. febr. Glerbrot
sun. 4. febr.
Kirkjugarðsklúbburinn sun. 4. febr.,
núð., fös. Leigjandinn sun. 4. febr., fös.
Ástarbréf sun. 4. febr.
Borgarleikhúsið
íslenska mafían lau 3. febr., fös., lau.
IJna Langsokkur sun. 4. febr., lau.
BarPar lau. 3. febr., fim., lau.
Konur skelfa lau. 3. febr., fös., lau.
Við boigum ekki, við borgum ekki fim.
8. febr.
Höfundasmiðja LR; þtjú verk eftir Ben-
óný Ægisson lau. 3. febr.
Leikfélag Akureyrar
Sporvagninn Gimd lau. 3. febr., fós. lau.
Lslenska óperan
Madama Butterfly lau. 3. febr., fös.
Hans og Gréta lau. 3. febr.
HafnarQarðarleikhúsið
Hennóður og Háðvör lau. 3. febr., fós.
Loftkastalimi
Rocky Horror lau. 10. febr.
Kaffilciklnisið
Sápa þijú og hálft lau. 3. febr., lau.
Kennslustundin fim. 8. febr.
Grískt kvöld. Uppselt á allar sýn. til og
með 11. febr.
Möguleikhúsið
Ævintýrabókin lau. 3. febr., lau.
Lcikfélag HafnarQai-ðar
„Hinn eini sanni seppi“ sun. 3. febr.
KVIKMYNDIR
MÍR „Tap herdeildarinnar" sun. 4
febr. kl. 16.
LISTAKLÚBBUR
Leikhúskjallarin Reykjavík eða
Bjartur og borgarmyndin mán. 5.
febr. kl. 20.30.