Alþýðublaðið - 04.12.1920, Page 3
ALÞÝÐÍUEL AÐIÐ
3
stjórnarráðinu hafa borist, eru
menn aðvaraðir um að fara ekki
til Danmerkur í því skyni að
leita sér atvinnu, án þess að hafa
fyrirfram trygt sér atvinnu þar,
þar eð atvinnuleysi fer þar sívax-
andi, nærri því undantekningar-
laust á öllum sviðum.
Lík Mattliíasar Jochnmssonar
verður jarðað í dag á Akureyri,
á kostnað bæjarins, Frí er í skól-
um hér í tilefni af jarðarförinni.
Sýslnmannsembættið í Ár-
nessýsln. 26. f m. var Guðmundi
Eggeiz veitt »lausn í náð« frá
sýslumannsembættinu í Árnessýslu
frá 1. þ. m , með eftirlaunum. í
stað lians er settur sýslumaður
cand. jur. Steindór Gunníaugsson
frá 1. þ. m.
Sögnprófessorinn. Um það
embætti hafa sótt: Árni Pálsson,
dr. Páll E. Ólafsson og mag.
Hallgr. Hallgrímsson.
Hámarksrerð er nú á eftir-
töldum vörum, og eru menn á-
mintir um að kæra viðstöðulaust
til lögreglustjóra ef út af er brugð
ið, eða ef hlutaðeigendur neita að
selja þessar vörur, þó þeir hafi
þær: Rúgmél í heilum sekkjum
€0 au. kg., í smávigt 66 au. kg.
ísa, óslægð 50 au. kg, slægð,
ekki afhöfðuð, 56 au. og slægð
og afhöfðuð 62 au. kg. Þorskur og
smáfiskur, óslægður, 46 au. kg.,
slægður, ekki afhöfðaður 56 au.
kg. Heilagfiski, smálúða 80 au. kg.,
lúða yfir 15 kg. í heilu lagi 110
au. kg. og lúða yfir 15 kg. í smá-
sölu 130 au. kg. Steinolía í heild-
sölu, Sólarljós kr. 92,00 pr. 100
kg., Óðinn kr. 90,00 pr. 100 kg.,
auk umbúða, heimekið eða frítt
um borð í Rvík. Smásöluverð
steinolíu: Sólarljós 86 aurar lítr-
inn og Óðinn 85 aurar lítrinn.
Heiidsöluverð á sylcri: steyttur kr.
3,30 kg,, höggvinn kr. 3,50 kg.
Smásöluverð, þegar seldur er
minni þungi en sekkur eða kassi,
steyttur kr, 3,70 kg, höggvinn
kr. 3 90 kg.
Fjölbreytni gáfnanna. Krón-
borgarvitringurinn ritar grein í
Morgunblaðið í gær um „Einstak-
lingseðlið og jafnaðarstefnuna".
Þar stendur: „Hjá mönnunum
Gummi gólfmottur.
Höfum íyrirliggjandi hinar óviðjafnanlegu gummi-
gólfmottur, sem nauðsyalegar eru hverju heimili.
Stærð 30X18". Verð kr. 15,00
Komið — skoðið — reynið,
Jon Hjartarson & Co.
verður vart hinnar sömu fjölbreytni
og annarsstaðar í náttúrunni." Ojá,
satt er nú það. Það er bara leið-
inlegt hvað maður verður þeirrar
fjölbreytni lítið var bjá „vitring-
um“ þeim sem Morgunblaðseig-
endurnir hafa til þess að skrifa í
blað sittl
Yeðrið í morgan.
Stöð Loítvog m. m. Vindur Loft Hitastíg
Átt Magn
Vm. 7630 ssv 4 4 7.1
Rv. 7646 iogn 4 5 S 9
ísf. 7591 S 4 4 4,2
Ak. 7560 logn 1 4 5.3
Gst. 7589 S 1 3 8,0
Sf. 7624 S 0 3 3.0
Þ F 7606 S S 4 3,8
Stm 7<5 43 logn 3 1 2.2
Rh. 7676 NV 1 0 38
Magn vindsins í tölum frá o—12
þýðir: logn, andvari, kul, gola, kaldi,
stinnings gola, stinnings kaldi,
snarpur vindur, hvassviðri, rok-
stormur, fárviðri. — Loít í tölura
frá o—8 þýðir: Heiðskýrt, létt-
skýjað, hálfheiðskýrt, skýjað, al-
skýjað, regn, snjór, móða, þoka.
-r- þýðir frost.
Loftvægislægð fyrir norðvestan
land, loftvog hægt stígandi, hæg
suðlæg átt. Útlit fyrir suðlæga átt.
í berjamó 2. des.S Símað var
hingað til bæjarins norðan af
Fjöllum, 2. des., að þar hefðu
börn verið að koma úr berjamó.
Síðan suðlæga áttin byrjaði muu
ekki hafa komið þar deigur dropi
úr lofti.
Skipaferðir. Botnia kom í gær
eftir óvenju langa útivist og voru
að eins 6 farþegar með henni.
Enigheden sneri aftur vegna ó-
veðurs og koiaskorts i fyrrinótt.
K aupid
Alþ ýöublaðið!
Stúlka óskast í vist nú
þegar. Uppi. á Rauðarárst. 3 uppi.
I> rengir,
sem vilja selja wPrótttc
á götunni, komi kl. 10 á
morgun til afgreiðslum.
Alþýðublaðid
er ódýrasta, Ijölbreyttasta og
beztaAlagblað landsinsT" Kaup-
ið það og lesið, þá getið
þið aldrei án þess verið.
^ýður nokkur betur!
Verkamannaskór, brúnir, 42;kr.
parið, fást í verzlun Gunnars Jóns-
sonar, Grundarstíg 12.
VA. Vitið þið hvað leggja má
á skófatnað? 35%. — Vitið þið
hvað veizlun G. Jónssonar, legg-
ur á skófatnað? Tæp 11%. —-
Eftir hámarksáiagningu verðlags-
nefndar ættu nýir skór því að
kosta 51,30 kr.
Verzlun G. Jónssonar.
Sími 247.
Alþbl. er blað allrar alþýðu!
Egili Guðjónsson á Lvg. 76
B hefir fengið staðfestingu fyrir
ættarnafninu „Marberg" fyrir sig
og konu.