Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 B 7
FRÉTTIR
Loðnufrystingin farin
að líkjast „gullæðinu“
LOÐNUFRYSTING stendur
Mun meira fryst en "4»»rmá
á sama tíma í
meira hefur verið fryst en á sama tíma í fyrra, fleiri eru um hituna,
frystigeta hefur víðast verið aukin og fjölmargir frystitogarar taka þátt
í „gullæðinu“, eins og loðnufrystingin er kölluð. Markaðurinn fyrir frysta
loðnu hefur aldrei verið meiri, og auk Japans hafa ýmis ný markaðslönd
bætzt í hópinn.
fyrra
Austfjörðum, suður og vestur
um og inn á Faxaflóa. Mum
SIÐASTIKROKABATURINN?
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
GARÐAR Björgvinsson bátasmiður og trillukarl og Jón Vil-
hjálmsson þjá Smiðjum KÁ framan við nýja b&tinn.
Frystitogarinn Heinaste, sem
Sjólaskip hafa verið með á leigu,
liggur nú í Hafnarfjarðarhöfn og
frystir loðnu. Heinaste var lengst
af á erlendri skráningu en er nú
skráður á Islandi, en án veiðileyf-
is. Sú skráning var forsenda þess
að hann fengi
leyfi til löðnu-
frystingar.
Loðnufrysting-
in er í samvinnu
við Sjólastöðina
í Hafnarfirði og
er loðnan flokk-
uð í húsakynn-
um hennar við
Óseyrarbraut.
Fyrirtækin eru
með þijú loðnu-
skip í föstum
viðskiptum,
Súluna EA,
Guðmund Ólaf
ÓF og Arney
KE og er afla
þeirra landað á
Suðurnesjum
og ekið . til
flokkunar
Hafnarfirði.
Frystigetan um
borð í Heinaste
er allt að 60
tonnum á
klukkustund,
en þar hefur
verið lögð áherzla á frystingu á
loðnu fyrir markað í Rússlandi og
á Tæwan.
Loðnan kom tll Þorlákshafnar
fyrir helgi
Loðnan kom til Þorlákshafnar
rétt fyrir siðustu helgi og margir
voru orðnir órólegir að bíða eftir
henni en hún kom með tlheyrandi
lífi á bryggjunni og í vinnsluhúsun-
um. Á laugardag lágu þijú drekk-
hlaðin loðnuskip við bryggju og
önnur voru væntanleg, þijár dælur
gengu stanslaust og dældu loðn-
unni á bíla. Ein dælan dældi fyrir
Sjólastöðina í Hafnafirði, önnur
fyrir Granda og sú þriðja fyrir
heimastöðvarnar í Þorlákshöfn.
Vörubílstjórar vöppuðu glaðbeittir
um hafnarbakkann og spjölluðu
saman, tilbúnir að keyra dag og
nótt. Japanskir eftirlitsmenn
fylgdust með, glettust við stráka-
peyja á bryggjunni og hoppuðu um
borð hinir ánægðustu, einum Jap-
ananum var boðið í nefið af herða-
breiðum og sterklegum sjómanni
en afþakkaði brosandi. Inni í
vinnslustöðvunum tóku þeir prufur
og fylgdust vel með.
Það var loðnulykt í loftinu og
strákar sem voru á fótboltamóti í
Þorlákshöfn sögðu að lyktin minnti
þá á Shellmótið í Vestmannaeyjum
og víst var það að andrúmsloftið
lyktaði af vinnu. Ungur piltur frá
Selfossi var nýkominn í vinnu,
dauðfeginn eftir atvinnuleysistíma
og allstaðar voru vinnufúsar hend-
ur á lofti. Strákarnir á Þorláks-
hafnardælunni brostu út undir
eyru, ánægðir með að eiga í vænd-
um væna launasummu. Þeir biðu
borubrattir eftir að Gullbergið VE
legðist að og þeir gætu byijað
næstu töm við að dæla.
Gullgrafarablær í Grindavík
Loðnufrysting hófst í Grindavík
á laugardaginn en þá barst fryst-
ingarhæf loðna þangað. Búið var
að reyna frystingu en þar sem
loðnan þoldi ekki flutninginn hafði
það ekki gengið. Það var því mik-
ill handagangur í öskjunni þegar
skip streymdu inn til hafnar og
vörubílar óku í löngum röðum nið-
ur að höfn því loðnunni er landað
á vörubílapalla þegar frystingin
hefst. Bæði skip Fiskimjöls og lýs-
is, Háberg og Sunnuberg, komu
með fullfermi. Þá landaði Keflvík-
ingur og Grindvíkingur landaði á
sunndegi. Háberg og Sunnuberg
komu síðan aftur á mánudag inn
til löndunar þannig að útiveran er
ekki löng.
Mikil breyting verður í manna-
haldi hjá fyrirtækjum meðan
loðnufrystingin stendur yfir og út
á vinnumarkaðinn streymir fólk
sem að öðru jöfnu er ekki úti á
vinnumarkaðnum, heimavinnandi
húsmæður og skólakrakkar. Þá
má segja að vinna við loðnufryst-
ingu hafi margfeldisáhrif því áður
eru nendir vörubifreiðastórar sem
aka loðnunni um öll Suðurnes en
einnig hefur verið unnið langt fram
á kvöld við smíðar á brettum sem
notuð eru undir frystar loðnu-
pakkningar og á viktinni er ekki
mikill tími til pásu.
Dalborg frystir á Höfn
Dalborg EA 317 tekur virkan
þátt í gullæðinu í loðnufrysting-
unni. Borgey hf. á Hornafirði tók
skipið á leigu yfir
loðnufrystingar-
tímann og fékk
þannig 30 tonna
frystigetu á sól-
arhring ásamt
900 m3 frysti-
geymslu sem
rúmar 600 tonn
af afurðum.
Helmingur
starfsmanna er
skipveijar en 12
menn ganga
vaktir við fryst-
inguna. Meðan
skipið er í leigu
er verið að bæta
þriðju togvind-
unni á trolldekk
svo hægt sé að
hafa tvö troll við
veiðarnar, en
Dalborg hefur
verið gerð út á
rækju á Flæm-
ingjagrunni og
aflað vel þegar
veður hefur leyft.
Áætlað er að
skipið fari til Akureyrar að lokinni
loðnufrystingu þar sem verður sett
rækjulína á vinnsludekk.
Dönsk skfp leigð til
loðnuflutninga
Nótaskipin ísafold og Geysir
hafa verið leigð til landsins frá
útgerð í Hirtshals og verða notuð
til loðnuflutninga. „Þau eru ekki
leigð hingað sem nótaskip heldur
fraktskip,“ segir Friðrik G. Hall-
dórsson, sem hafði milligöngu um
kaupin.
Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað
leigir Geysi til að flytja loðnu frá
Beiti, að sögn Friðriks. Isafold er
aftur á móti leigð af Sjólastöðinni
í Hafnarfirði til að flytja loðnu-
hrat. „Það er til að dreifa loðnunni
betur,“ segir Friðrik. „Þegar
bræðslurnar fyllast hér á Suðvest-
urlandi þarf að koma loðnunni
norður fyrir land.“
„Skipin verða leigð eins, lengi
og þörf krefur, en reiknað er með
að það verði þijár til fjórar vikur.
I fyrra var reynt að flytja hratið
með fraktskipum og prömmum
með slæmum árangri. Þess vegna
var sú leið reynd í ár að fá nóta-
skip sem eru vel útbúin til að flytja
loðnu.“
Selfossi.
• „ÞETTA er síðasti króka-
báturinn sem er I smíðum á
íslandi þvi það eru ekki til
krókaleyfi fyrir fleiri báta,“
sagði Garðar Björgvinsson
bátasmiður og trillukarl frá
Hveragerði sem er að smíða
5,7 tonna bát i húsnæði Smiðja
KÁ á Selfossi. Garðar er nyög
ósáttur við það að Þróunar-
sjóður sjávarútvegsins skuli
kaupa upp nýlega báta. Hann
ætlar á sjó á sínum eigin bát,
Rakkanesi, og róa eftir eigin
hugmyndum, segist ekki þola
það að það megi draga troll
upp að tveimur mílum en ekki
dýfa krók i sjó. „Ég ætla að
róa alla daga nema sunnudaga
og auðvitað verð ég tekinn
fastur en þá bið ég um aðstoð
Grænfriðungaþví krókaveiðar
eru vistvænar,“ sagði Garðar.
Hugmyndir Garðars ganga
út á það að hver bátur megi
veiða tiu tonn fyrir hvert
stærðartonn upp að 12 tonnum
en aldrei meira en 60 tonn.
Engir banndagar eru í hug-
myndum hans og hætt að veiða
þegar toppnum er náð. Hann
segir að í heildina gerði þetta
40-50 þúsund tonn á triUuflot-
ann og með því að veiða teg-
undir sem eru fijálsar gætu
bátamir náð 100 þúsund tonn-
um. „Það væri gæfuspor að
reyna þetta i eitt ár. Ovissan
ýtir mönnum út í úreldingu
með rétt nýja báta,“ sagði
Garðar.
Báturinn er sunnlenskt
handverk
Þennan siðasta krókabát
sem Garðar er með i smíðum
er hann búinn að selja til ftauf-
arhafnar en þetta er 7. bátur-
inn sem hann hefur smiðað frá
1990. Hann byijaði á bátnum
í desember og fékk þá bátsske-
lina og yfirbygginguna frá
Helga Val Erlingssyni á
Stokkseyri og hefur verið að
vinna við hann í Smiðjum KÁ,
en járnsmiðirair þar taka að
sér einstaka þætti smíðinnar
og raflagnir i bátnum eru frá
Rafseli hf. á Selfossi. „Okkar
hlutverk er að smíða rekk-
verk, mastur, tanka og seija í
hann röralagnir. Þetta er unn-
ið eftir hendinni og hentar vel
hérna því húsið er stórt og
hátt til lofts og ég mundi feg-
inn vilja halda svona verkefni
áfram. Þetta er sunnlenskt
handverk,“ sagði Jón Vil-
þjálmsson yfirmaður í Smiðj-
um KÁ á Selfossi.
I)
Örugg festing fyrir net og línu
Framleiösla
og sala:
Söluaðili
á Suður-
nesjum:
Söluaðili
á Suöur-
landi:
Söluaðili í
Vestmanna-
eyjum:
DREGG.
Ari Jónsson, Strandgötu 25, Akureyri.
Sími 461 1025, Farsími 853 2556
ÁSGEIR HJÁLMARSSON
Bakkastíg 16, Njarðvík, Sími: 421 1830
SKIPAÞJÓNUSTA SUDURLANDS
Unubk 10-12, Þorlákshöfn, Sími 483 3930
Nethamar hf.
Flötum 21, Vestmannaeyjum, Sími 481 3236
Vid algjöra festu gefa
splittin sig og skóflan slær
rr og Dreggid er laust.
^ V\7 7? WIaáJ
10 kg. 15 kg. 20 kg. 22 kg. 25 kg. 30 kg. jj
Útaerðarmenn oa fiskverkendur ath
ri við fiskkör og ki
Kém á staðinn hver
land sem er.
Fljót og góð þjónusta.
Upplýsingar veitir Gunnar Jónsson i síma 462 5270
BATAR — SKIP
—í i—
KVÉÍÉTABANKINN
Til leigu þorskur, ýsa, ufsi og
skarkoli.
Sími 565 6412, fax565 6372, Jón Karlsson.
Kvóti
Kvótamiðlun og markaður alla daga
Látið skrá kvótann hjá okkur. Höfum ávallt
kaupendur og leigjendur að öllum tegundum
kvóta. Áralöng reynsla, þekking og þjónusta.
Skipasalan Bátar og búnaður,
Kvótamiðlun, sími 562-2554
og símbréf 552-6726.
Morgunblaðið/Albert Kemp
LOÐNAN unnin hjá Hraðfrystihúsi Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga.