Morgunblaðið - 23.02.1996, Page 6
6 B FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Samkvæmisförðun og hárgreiðsla
og nýjasta hártískan fyrir herrana
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Fyrirsætur:
T.v. Klara
Karlsdóttir,
t.h. Auður
Stefánsdóttir.
ÞÓRDÍS Helgadóttir, hár-
greiðslumeistari, er að vonum
ánægð með nýju samkvæmishár-
tiskuna, sem gefur tilefni til alls
kyns útfærslna, og notkunar á
skrauti og hártoppum. Þórdís seg-
ist jafnan miða hárgreiðsluna við
aldur kvennanna og
klæðaburð og Jónína
Hallgrímsdóttir, förð-
unarmeistari, tekur í
sama streng. Þær stöll-
ur báru saman bækur
sínar áður en þ'ær tóku
til óspilltra málanna. Yngri fyrir-
sætuna, 15 ára yngismey, gerðu
þær svolítið „ýkta“. Samkvæmt
nýjustu Gucci línunni farðaði Jón-
ína hana með tveimur bláum lita-
tónum á augnlokin og kringum
augun auk þess að nota svartan
„eyeliner", sem Jónína segir nauð-
synlegan til að gera augun áber-
andi. Þórdís litaði tvær hárauðar
strípur í toppinn og notaði síðan
krullaðan gervihártopp ásamt
hári fyrirsætunnar í tíkarspenana.
Þórdís segir rómantík ráða ríkj-
um í hárgreiðslu kvenna sem
komnar eru af unglings-
aldri. í mittissítt hár
fyrirsætunnar setti hún
Carmen rúllur til að fá
léttleikann og mýktina.
Síðan setti hún hárið
upp eftir kúnstarinnar
reglum og skreytti með gylltu
hárskrauti sem hún bjó til sjálf.
Jónína notaði brúna og gyllta tóna
við augnförðúnina. Að undan-
skildu glimmerinu sem hún setti
á augnlokin segir Jónína förð-
unina mjög hefðbundna sam-
kvæmisförðun. ■
„ÝKTUR" ungl-
ingur og róman-
tískdama
Morgunblaðið/Þorkell
ÓMAR Diðriksson, hárskurðar-
meistari, sagði að hárgreiðsla og
klipping piltanna, sem hánn snur-
fusaði, væri nýjasta sumarlínan,
en gæti alveg eins gengið á árshá-
tíðir og í hvers kyns samkvæmi.
Hann sagði mun meiri litagleði
ríkjandi í hártísku karla en áður.
Oft væru strípumar
hafðar mjög ljósar,
rauðar og dökkar og
allt þar á milli.
Hár piltsins á mynd-
inni til vinstri litaði
Ómar í brúnum og ljósum strípum
og skar hárið með hníf. Eins og
sjá má er klippingin í anda bítla-
tískunnar á sjöunda áratugnum,
en Ómar segir slíka klippingu
njóta mikilla vinsælda núna. Ómar
bendir á að miklu máli skipti hvort
hár er skorið með hníf eða skær-
um. Hárið á piltinum á myndinni
til hægri er svokölluð tjásuklipþ-
ing, en til þess að fá viðúnandi
áferð segir Ómar nauðsynlegt að
beita tvennum skærum í einu.
Hárið er mjög snöggt að aftan og
í hliðunum. Aðspurður
hvort ekki væri hent-
ugra að nota rakvél við
hárskurðinn þegar hár-
ið ætti að vera svona
snöggt sagði Ómar að
með skærunum næðist mun fal-
legri áferð
Hárið á piltunum er túberað
og Ómar segir greiðsluna haldast
mun lengur ef hárvax er borið í
hárið. ■
Snöggt hór
og bítlahár í
mörgum litum
Morgunblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/Jón Svavareson
GLÆSILEGUR og oft íburðar-
miklar samkvæmisgreiðslur
eru nú meira í tísku en oft áður.
Árshátíðir eru í algleymingi hjá
skólum og fyrirtækjum og þá
gefst gott tækifæri til að skarta
slíkri greiðslu. Daglegt líf fékk
íslandsmeistarann í hár-
greiðslu, Þórdísi Helgadóttur
hjá Hárgreiðslustofunni
Hárnýju, til að greiða unglings-
stúlku og einni rúmlega tví-
tugri, eins og henni þótti best
viðhæfi. Jónína Hallgrímsdótt-
ir, íslandsmeistari í förðun, hjá
Snyrtistofu Jónu, annaðist förð-
unina og þar sem kvenþjóðin
er ekki ein um að láta sér annt
um útlitið, var Ómar Diðriks-
son, íslandsmeistari í hár-
skurði, hjá Hár-Class, fenginn
til að leggja línurnar fyrir pilt-
ana.
Mikill handagangur var í
öskjunni þegar Islandsmeistar-
arnir þrír komu saman í síðustu
viku og sýndu hvað þeir kunna
fyrir sér. ■
Fyrirsætur:
T.v.Brynjar Már
Bjarnason,
t.h. Haukur
Sigurvinsson.