Morgunblaðið - 29.02.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
2Ror0util>Iaí>iÍ>
1996
FIMMTUDAGUR 29. FEBRÚAR
BLAÐ
KNATTSPYRNA: AJAX BÆTTIENN EINNIRÓS í HNAPPAGATIÐ / D8
Lárus
Orri og
félagar í
toppbar-
áttu 1.
deildar
LÁRUS Orri Sigurðsson og
félagar hans í Stoke City
unnu Watford, sem er í
neðsta sæti, 2:0 i ensku 1.
deildinni í gærkvöldi.
Stoke er nú í 4. sæti deild-
arinnar ásamt Hudders-
field, en tvö efstu liðin
komast beint upp í úrvals-
deildina, en 13 umferðir
eru enn eftir af deildar-
kcppninni. Derby er efst
með 60 stig, en Stoke hefur
49 stig og á tvo leiki til
góða á Derby.
„Leikurinn gegn Wat-
ford var ekki mjög góður,
enda völlurinn eitt drullu-
svað. Þetta var mikil bar-
átta í fyrri liálfleik en við
vorum mun sterkari í þeim
síðari. Við settum á þá
mark í upphafi seinni hálf-
leiks og bættum öðru við
skömmu síðar og þá var
þetta aldrei spurning,"
sagði Lárus Orri við
Morgunblaðið eftir leikinn.
„Þetta hefur gengið mjög
vel hjá okkur að undan-
förnu. Við höfum ekki tap-
að í síðustu fimm deildar-
leikjum og erum komnir í
toppbaráttuna og það er
góð tilfinning.“
Lárus Orri hefur leikið
alla leikina með Stoke á
tímabilinu utan einn, en þá
var hann meiddur. „Já, ég
er búinn að leika 38 leiki
í vetur og get ekki annað
en verið ánægður með að
halda sæti minu í liðinu.
Ég hef þó ekki enn náð að
skora. Það hefur verið
regla hjá mér að skora eitt
mark á hverju keppnis-
tímabili í gegnum árin og
ég á enn möguleika á að
setja mark. Annars fer ég
ekki mikið fram á völlinn
því varnarleikur er mitt
hlutverk,“ sagði Lárus
Orri.
„Var frábærl að sjá á
eftir boltanum í netið“
Patrekur Jóhannesson gerði sigurmark KA gegn Val, með því að vippa
yfirGuðmund Hrafnkelsson úrvítakastifáeinum sekúndumlyrirleikslok
Það orð sem lýsir þessum leik
best er taugatitringur — það
var nóg af honum á báða bóga,
sagði Patrekur Jó-
Reynir B. hannesson, sem
Eiríksson tryggði KA sigur á
skrífarfrá Val, 23:22, er hann
Akureyri skoraði úr víti á
lokasekúndum leiksins í mikilvæg-
um leik liðanna í 1. deildinni í
handknattleik á Akureyri í gær-
kvöldi.
Patrekúr var því aðalhetja KA-
manna í leiknum sem að öllum lík-
indum ræður úrslitum um að Akur-
eyrarliðið verði í efsta sæti deildar-
innar og Valsmenn í öðru sæti.
Bæði lið eiga reyndar eftir tvo leiki
en ættu að vinna þá báða undir
eðlilegum kringumstæðum, miðað
við hvernig deildin hefur verið í
vetur. Leiki KA og Valur til úrslita
um íslandsmeistaratitilinn, eins og
margir spá, snýst dæmið því við
frá því í fyrra; fyrsti og þriðji leik-
ur í þeirri rimmu yrði á heimavelli
KA og einnig sá fimmti og síðasti,
ef með þyrfti.
„Það var erfitt að standa á víta-
línunni en það gekk upp og það
var frábært að sjá á eftir boltanum
í netið. Ætli ég verði ekki að segja
að ég hafi verið að reyna að vinna
tíma með því að vippa yfir Guð-
mund! Það voru leiknar mjög góðar
varnir í leiknum en það sama er
ekki að segja um sóknirnar — þær
voru ekki sem bestar og leikmenn
gerðu fullt af mistökum. En það
gleymist fljótt eftir sigurinn," sagði
Patrekur.
„Allt vitlaust"
„Það var allt vitlaust í kvöld og
leikurinn svo sannarlega eins og
við mátti búast“, sagði Erlingur
Kristjánsson, fyrirliði KA, eftir
leikinn. „Það voru allir að tryllast
úr spenningi, en þetta gekk upp
hjá okkur og við erum því auðvitað
í sjöunda himni. Vörnin hjá okkur
var góð, við náðum að stilla hana
vel saman en það hefur ekki geng-
ið í undanförum leikjum. Það voru
allir vel með á nótunum og sigur-
inn gott ferðanesti fyrir okkur í
síðustu leikina í deildinni."
„Dómararnir guggnuöu"
„Dómararnir guggnuðu í þess-
um leik alveg eins og þegar við
lékum hér á móti KA í bikarnum.
Það virðist svo sem dómararnir
þori ekki að dæma hérna fyrir
norðan, þeir guggna þegar á hólrn-
inn er komið. Það er ekki annað
um þennan leik að segja,“ sagði
Olafur Stefánsson, fyrirliði Vals,
sem var greinilega mjög heitt í
hamsi eftir leikinn.
■ Dýrmætur / D4
Morgunblaðið/Knstján
PATREKUR Jóhannesson og félagar hans í KA vögnuðu sígrinum, 23:22, gegn íslandsmelsturum Vals vel og lengl eftlr leiklnn
og þökkuðu áhorfendum stuðnlnginn. Patrekur gerði sigurmarkið í lelknum, sem að öllum líkindum ræður úrslitum um að Akur-
eyrarliðið verðl í efsta sætl deildarinnar og Valsmenn í öðru sætl.
Andersen til
Rangers
DANSKI knattspyrnumaðurjnn Erik Bo And-
ersen, seni hefur leikið með Álaborg, er að öll-
um líkindum á leið til Glasgow Rangers og mun
þá leika við hlið Brians Laudrups hjá skosku
meisturunum. Danska útvarpið skýrði frá því í
gær að Walter Smith, knattspyrnustjóri Ran-
gers, hafi náð samkomulagi við Álaborg um
kaupverðið á Andersen og hljóðaði það upp á
1,2 milljónir punda (122 milljónir króna). Tals-
maður skoska félagsins vildi í gær ekki stað-
festa fréttina og sagði að það hefði enginn leik-
maður skrifað undir í dag, „en það gætu orðið
einhverjar fréttir frá okkur á morgun [í dag]“.
Andersen er 24 ára sóknarmaður og var
markahæsti leikmaður dönsku deildarinnar á
síðasta tímabili með 24 mörk. Hann var lykil-
maður í liði Álaborgar sem varð danskur meist-
ari í fyrsta sinn í 110 ára sögu félagsins.