Morgunblaðið - 02.03.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. MARZ 1996 C 7
PÁLL Jóhannesson tenórsöngv-
ari heldur tónleika í íslensku
óperunni á morgun kl. 17. Páll
hlaut afar góða dóma fyrir síðustu
tónleika sína hér á landi sl. sumar
og kallaði gagnrýnandi Morgun-
blaðsins hann týnda tenórinn í
gagnrýni um þá tónleika. Ástæða
þess var að sjö ár voru liðin frá
síðustu tónleikum hans hér á landi
en Páll býr og starfar í Svíþjóð þar
sem hann er fastráðinn við Kon-
unglegu óperuna í Stokkhólmi.
Tónleikarnir nú eru að hans sögn
til komnir vegna fjölda áskorana
enda misstu margir af síðustu tón-
leikum hans hér á landi sem voru
haldnir með litlum fyrirvara.
„Tónleikarnir síðasta sumar
voru alveg frábærir, þetta gekk
mjög vel. Eg er í mjög góðu tækni-
legu formi núna og mín bestu ár
eru framundan. Röddin er komin
á mjög góðan stað og það er alltaf
léttara og léttara að syngja. Þetta
situr í mænunni núna og er orðið
miklu náttúrulegra fyrir mig og
þá get ég farið að lifa mig mun
meira inn í sönginn og túlkunina.
Maður getur þróað sönginn alveg
fram í andlátið. Sumir söngvarar
segja: Loksins þegar ég er farinn
að hafa hugmynd um hvernig á
að syngja þá er röddin ekki til stað-
ar og maður er orðinn of gamall,"
sagði Páll í samtali við Morgun-
blaðið.
*
Tónleikar í Islensku óperunni á morgun
Eins og
gott rauðvín
Hann sagði að söngröddin þyrfti
að geta gefið fólki kitlandi áhrif
og gefa frá sér ögn lostafulla
strauma þannig að fólk fengi fiðr-
ing í magann. „Sumir segja að það
sé eins og að drekka gott rauðvín
að heyra góðan söngvara syngja.
Á tónleikunum ætla ég að leggja
áherslu á veikt sungin lög, það er
ekkert of mikið um veikan söng
hjá tenórum.“
Þjóðsöngur
á fótboltaleik
Páll hefur áætlað að taka sér
árs frí frá óperuhúsinu til að freista
gæfunnar á meginlandi Evrópu.
„Ég er að búa mig undir nokkur
hlutverk og er í sambandi við ít-
alskan stjórnanda sem ætlar að
hlusta á mig syngja. Því fleiri sem
vita af því að maður hefur fram-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Páll Jóhannesson tenórsöngvari.
bærilega alþjóðlega rödd, því
betra. Það þýðir ekkert að sitja og
bíða eftir að tækifærin komi til
mín, ég verð að sækja þau, sérstak-
lega þegar mér finnst ég vera kom-
inn á-einhvern topp og er að hlusta
á aðra tenórsöngvara og finnst ég
geta gert ennþá betur,“ sagði Páll.
Aðspurður sagði hann að óperu-
heimurinn væri harður en mýktist
ef maður vissi hvað maður væri
að gera. „Vera réttur maður á rétt-
um tíma,“ sagði hann. Hann sagð-
ist hafa gert þó nokkuð af því að
syngja á einsöngstónleikum með-
fram vinnunni í óperunni. Eins og
einhvetjir hafa sjálfsagt tekið eftir
söng hann einnig þjóðsöng Islend-
inga á landsleik Islands og Svíþjóð-
ar síðastliðið vor. „Ég söng svo vel
að þeir gerðu allt til þess að vinna.
Þeir náðu jafntefli sem var það
næstbesta," sagði Páll og hló.
Á tónleikunum á morgum ætlar
hann að syngja óperettur, ítalska
ástarsöngva, íslensk lög og þekkt-
ar óperuaríur.
Verður þú ekki að hafa einhver
uppklappslög í handraðanum?
„Jú ætli ég verði ekki með tvö,
þtjú lög. Annars er erfitt að syngja
svona langa tónleika, um eina
klukkustund og tuttugu mínútur.
Það hjálpar til að ég stunda líkams-
rækt en það er geysilega mikil-
vægt að vera í góðu formi. Þetta
er íþrótt."
Barnakóra-
mót Kjalar-
nesspróf-
astsdæmis
KÓRAMÓT barnakóra í Kjal-
arnesprófastsdæmi verður
haldið í dag, laugardag, í
Vídalínskirkju í Garðabæ.
Það hefst með æfingum um
morguninn og eftir hádegi.
En kl. 17 verða tónleikar í
kirkjunni og eru allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyf-
ir.
í þriðja sinn
Þetta er í þriðja sinn sem
slíkt kóramót er haldið. Það
fyrsta var í Grindavík 1992,
annað var í Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði 1994 og svo nú
í Vídalínskirkju í Garðabæ.
Það eru fimm kórar sem
taka þátt í mótinu að þessu
sinni, Barnakór Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði, Barnakór
Grindavíkurkirkju, Barna- og
unglingakór Hafnarfjarðar-
kirkju, Barna- og unglinga-
kór Víðistaðakirkju og Skóla-
kór Garðabæjar.
Guðmundur
Oddur sýnir
í Ganginum
í GALLERÍ Gangi á Reka-
granda 8 sýnir um þessar
mundir Guðmundur Oddur
Magnússon. Sýningin saman-
stendur af safni svart/hvítra
„órólegra Ijósmynda" sem
allflestar eru teknar sumarið
1995.
Guðmundur Oddur nam
myndlist við Myndlista- og
handíðaskóla Islands frá
1976-1980 og grafíska hönn-
um og ljósmyndun við Emily
Carr Institute of Art & De-
sign í Vancouver, Kanada á
árunum frá 1986-1990. Guð-
mundur Oddur er núverandi
skorastjóri í grafískri hönnun
við Myndlista- og handíða-
skóla Islands.
Opnun sýningarinnar er
milli kl. 17 og 19 miðvikudag-
inn 28. febrúar.
Sýningin stendur út mars-
mánuð.
Píanótónleikar
í íþróttahúsi
Bessastaðahrepps
PETER Máté heldur
píanótónleika á vegum
Menningarfélagsins
Dægradvalar sunnu-
daginn 3. mars kl.
20.30. Tónleikarnir
verða í samkomusal
íþróttahúss Bessa-
staðahrepps.
Peter Máté er fædd-
ur árið 1962 í Tékkó-
slóvakíu. Hann lærði
hjá Ludmila Kojanová
í fimm ár og útskrifað-
ist frá Tónmennta-
skólanum í Kosice árið
1982. ÁjDessum árum
vann hann til nokkurra
verðlauna í landi sínu, má þar nefna
verðlaun tónmenntaskólanna í
Slóvakíu 1979 og 1981 og Smetana
píanókeppnina 1978 og 1980. í
kynningu segir:
„Hann vakti þó fyrst þó fyrst
verulega athygli, þegar hann vann
verðlaun gagnrýnenda á Listahátíð
ungmenna í Trencianske Teplice
árið 1982. Pétur fékk inngöngu í
Tónlistarháskólann í Prag þetta
sama ár og lærði hjá prófessor
Valentinu Kameníková, virtum
tékkneskum listamanni, en hélt þó
áfram þátttöku í
píanókeppnum innan-
lands sem utan. Árið
1985 vann hann fyrstu
verðlaun í píanókeppni
menntamálaráðuneyt-
isins í Slóvakíu, árið
1986 önnur verðlaun í
alþjóðlegu píanó-
keppninni í Vercelli á
Ítalíu og árið 1989
þriðju verðlaun í al-
þjóðlegu píanókeppn-
inni í Enna á Italíu.“
Pétur Máté hefur
komið fram sem ein-
leikari með mörgum
hljómsveitum. Má þar
nefna Ríkishljómsveitina í Kosice,
Fílharmóníuhljómsveitirnar í Sló-
vakíu og Móraviu, Sinfóníuhljóm-
sveitina í Prag, Útvarpshljómsveit-
ina í Berlín og Sinfóníuhljómsveit
íslands. Hann hefur haldið einleiks-
tónleika víða um Evrópu. Einnig
hafa verið gerðar margar útvarps-
og sjónvarpsupptökur með leik
hans. Hann hefur starfað á íslandi
síðan 1990.
Á efnisskrá tónleikanna eru'verk
eftir Mozart, Liszt, Debussy, Bart-
ók, Martinu og Speight.
Peter Máté
Listamaður mánað-
arins hjá Dægra-
dvöl á Alftanesi
LISTA- og menningarfélagið
Dægradvöl stendur fyrir myndlist-
arkynningu í Haukshúsum á Álfta-
nesi sunnudaginn 3. mars frá kl.
14-18. Kynntur verður listamaður
mánaðarins, Magnús Guðjónsson.
Magnús lauk námi frá Hótel- og
veitingaskóla íslands, þar sem meðal
annars var lögð áhersla á teikningu,
blóma- og borðskreytingar. Magnús
vann við iðn sína um árabil og hefur
síðan stundað ýmis störf.
I kynningu segir: „Hann fékk til-
sögn í teikningu hjá Éinari Hákonar-
syni myndlistarmanni og hafði þá
lagt stund á myndlist í tómstundum
í nokkur ár. Úr grjóti og járni byrj-
aði hann að smíða fyrir um það bil
tveimur árum og hefur hann lagt
áherslu á að gijótið haldi sér sem
mest eins og náttúran hefur smíðað
það, en myndi form með járni og
kertaljós gefi því líf, þar sem það á
við.“
Lista- og menningarfélagið
Dægradvöl var stofnað 17. október
1994 og hefur staðið fyrir margvís-
legri menningarstarfsemi frá upp-
hafi. Meðal þess sem félagið hefur
bryddað upp á eru vísnatónleikar,
djasskvöld, bókmenntakynningar
og flutningur sígildrar tónlistar.
Félagið stendur fyrir opnu húsi í
Haukshúsum í hverjum mánuði og
kynnir listamann mánaðarins fyrsta
sunnudag í hveijum mánuði.
ValurFreyr
í íslensku
mafíuna
VALUR Freyr Einarsson mun
hlaupa inn í hlutverk Ásláks
barnastjörnu í íslensku maf-
íunni, sem sýnd er hjá Leikfélagi
Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu,
laugardaginn
2. mars.
Hlutverk Ás-
láks hefur ver-
ið í höndum
Felix Bergsson-
ar en liann er
nú staddur
ásamt leik-
hópnum
Bandamönnum
á alþjóðlegri
leiklistarhátíð í
Krónborgarkastala við Hels-
ingjaeyri í Danmörku en Amlóða-
saga, samstarfsverkefni Banda-
manna og Leikfélags Reykjavík-
ur, verður frumsýnd á þessari
hátíð nú í byrjun mars.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Valur Freyr æfir upp hlutverk
með skömmum fyrirvara.
Skemmst er að minnast þess að
hann tók við hlutverki Gunnars
Helgasonar í Himnaríki fyrr í
vetur með aðeins fjögurra daga
fyrirvara.
Valur Freyr lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1989, 5. stigs prófi í
söng við Tónlistarskóla Garða-
bæjar 1991 og stundaði leiklist-
arnám í Manchester Metropolit-
an University School of Theatre
1992-1995. Hann hefur leikið
með leiksmiðju Reykjavíkur í
Stúdentaleikhúsinu og auk þess
í nokkrum leikritum fyrir Stund-
ina okkar. Auk þess lék Valur
Freyr í kvikmynd Einars Heimis-
sonar, Hvíta dauða.
Síðustu dagar
bókamarkaðs
NÚ LIÐUR að lokum bókamarkaðs
Félags íslenskra bókaútgefenda, því
honum lýkur sunnudaginn 3. mars.
Opið verður laugardag og sunnudag
í Perlunni til kl. 19. Bókamarkaður-
inn hefur fengið góðar undirtektir
og sjaldan eða aldrei hafa jafn
margir komið á bókamarkaðinn.
Markaðurinn verður opinn alla
daga kl. 10-19 fram til sunnudags-
ins 3. mars.
MENNING/LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Kjartan Ólason, Philippe Richard og
Guðrún Hrönn Ragnarsd. - Kjarvais-
sýning fram á vor.
Listasafn íslands
Norræn framtíðarsýn til 17. mars.
Safn Asgríms Jónssonar
Sýn. á vatnslitam. Ásgríms út mars.
Listasafn Sigurjóns Olafssonar
Portrettsýning til 19. maí.
Norræna húsið
Sams. myndlistarm. frá Færeyjum,
Grænlandi og Islandi til 10. mars.
Gerðarsafn
Thomas Huber sýnir til 10. mars.
Ingólfsstræti 8
Hrafnkell Sigurðsson sýnir til 3. mars.
Gallerí Sævars Karls
Kristján Guðmundss. sýnir til 13.
mars.
Nýlistasafnið
Alda Sigurðard., Hlynur Hallsson,
Steinunn Helga Sigurðard. og Örn
Karlsson sýna til 10. mars.
Hafnarborg
Guðrún H. Jónsd., Guðrún Ragnhildur
Eiríksd. sýna til 11. mars og Ian
Hobson til 5. mars.
Gallerí Stöðlakot
Árdís Olgeirsdóttir sýnir til 3. mars.
Listhús 39
Ásrún Tryggvadóttir sýnir til 10.
mars.
Gallerí Greip
Jón B. Kjartanss. sýnir til 10. mars.
Gallerí Fold
Siguijón Jóhannsson sýnir til 10.
mars og Sveinbjörg Hallgiámsd. sýnir
í kynningarhorni.
Listhús Ófeigs
Erna G. Sigurðard., og Eva G. Sigurð-
ard. sýna til 9._mars.
Gallerí Sólon íslandus
Anna María Siguijónsd. sýnir ljós-
myndir til 17. mars.
Mokka
Hlynur Hallsson sýnir til 9. mars.
Gallerí Umbra
14 Langbrækur sýna til 13. mars.
Gallerí Önnur hæð
Vincent Shine til 6. mars.
Myndás
Einar Óli sýnir ljósm. til 22. mars.
Listasafn Ákureyrar
Guðmundur P. Ólafsson sýnir ljósm.
og sýn. á verki Komar og Melamid.
Galleri Plús - Akureyri
Hlynur Hallsson sýnir til 10. mars.
TONLIST
Laugardagur 2. mars
Lúðrasveitarstónl. í Ráðh. Reykjav.
kl. 16. Diddú og Anna Guðný í Loga-
landi kl. 21. Barnakóramót í Vídalíns-
kirkju Garðabæ, tónleikar kl. 17.
Sunnudagur 3. mars
Léttsveit Tónmenntask. Reykjavíkur
í sal Tónlistarsk. Fél. ísl. hljómlist-
arm., Rauðagerði 27 kl. 15. Afmælis-
tónl. Tónlistarsk. Ak. í Gierárkirkju
kl. 17. Peter Máté heldur píanótónl.
á vegum Menningarfél. Dægradvalar
kl. 20.30. í samkomusal íþr.húss Bess-
ast.hrepps. Sunnudagstónl. í óper-
unni; Páll Jóhannesson kl. 17.
Mánudagur 4. mars
„Eg trúi á ljós“ í Loftkastalanum kl.
20 og 22.
Þriðjudagur 5. mars
Söngtónleikar í Borgarleikhúsinu kl.
20.30.
Miðvikudagur 6. mars
„Ég trúi á ljós“ í Loftkastalanum kl.
21.
Leikhúskjallarinn
Jazz-kvintett Ragnheiðar Ólafsdóttur
mán. 4. mars kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Tröllakirkja sun. 3. mars, fös.
Þrek og tár lau. 2. mars, fim., lau.
Kardemommub. lau. 2. mars, sun.,
lau.
Leigjandinn sun. 3. mars, fös.
Ástarbréf sun. 3. mars.
Borgarleikhúsið
íslenska rnafían lau 2. mars, fös.
BarPar lau. 2. mars, fös.
Konur skelfa lau., sun., mið., fim., fös.
Höfundasmiðja LR; Uppgerðarasi með
dugnaðarfasi eflir Svölu Amardóttur lau.
Leikfélag Akureyrar
Sporvagninn Gimd lau. 2. mars
Hafnaríjarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör lau. 2. mars., fös.,
lau.
Kaffileikhúsið
Sápa þijú og hálft lau. 9. mars. Kennslu-
st. lau. 9. mars. Grískt kvöld lau. 2. mars.
Gerðuberg
Dagur leikbrúðunnar; Bamasýn. Brúður,
tónlist og hið óvænta... kl .14. og 16.
sun. 3. mars.
Möguleikhúsið
Ekki svona! mið. 6. mars.
Astarsaga lau. 2. mars.
Leikfélagið Snúðiu- og Snælda
Veðrið klukkan 18 og Háttatími. Sýn. í
Risinu, lau., sun., þri., fim. kl. 16.
KVIKMYNDIR
MÍR
Fjórar heim.kvikm. sun. kl. 16.
Norræna húsið
Sænsk teiknim. fyrir böm, sun. kl. 14,