Morgunblaðið - 05.03.1996, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.03.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR5. MARZ 1996 B 3 KNATTSPYRNA United varðist af festu og Cantona gerði eina markið Liverpool afgreiddi Aston Villa á fyrstu átta mínútunum á Anfield Fögnudur LIVERPOOL þurfti ekki að bíða lengi eftir fyrsta markinu gegn Aston Villa í fyrradag en Steve McManaman skoraði þegar á annarri mínútu. Hér fagnar hann markinu með Stan Collymore til vlnstri og Jason McAteer í mlðjunni. MANCHESTER United sigraði Newcastle 1:0 ítoppslagnum í ensku úrvalsdeildinni í gær- kvöldi. Það var Frakkinn Eric Cantona sem gerði eina mark leiksins í upphafi síðari hálf- leiks. Þar með munar aðeins einu stigi á liðunum og New- castle á leik til góða, en barátt- an á lokasprettinum virðist ætla að verða spennandi. Leikmenn Newcastle sóttu mikið í fyrri hálfleik og áttu gestirn- ir í vök að veijast. Peter Schmeich- el, markvörður United, varð að taka á honum stóra sínum á upphafs- mínútunum og leikmenn United voru ánægðir með að fara til bún- ingsherbergja í leikhléi án þess að fá á sig mark. Cantona skoraði síð- an snemma í síðari hálfleik og eft- ir það lagðist liðið í vörn og hélt fengnum hlut enda voru sóknarað- gerðir Newcastle vandræðalegar og hugmyndasnauðar. Fyrri hálfleikur var skemmtileg- ur og fjörugur en sá síðari mun síðri enda lék Manchester af mik- illi varkámi og skynsemi og átti í raun aldrei í vandræðum gegn sókn Newcastle. Liverpool fór á kostum fyrstu átta mínúturnar gegn Aston Villa, gerði þá þijú mörk og eftir það var formsatriði að ljúka leiknum. Villa hafði fengið fæst mörk á sig í deild- inni fyrir leikinn en Liverpool, sem hefur leikið 16 leiki í röð án taps, sá til þess að þar varð breyting á, hefur nú gert flest mörk og fengið fæst á sig ásamt Villa. Steve McManaman gerði glæsilegt mark þegar á annarri mínútu eftir gott spil og sendingu frá John Barnes. Robbie Fowler bætti öðru marki við á fimmtu mínútu og var það ekki síður glæsilegt. Hann lék snyrtilega á mótheija með hæl- spyrnu og skoraði af öryggi. Þrem- ur mínútum síðar fékk hann stungusendingu inn fyrir vörn gest- anna og skoraði úr þröngri stöðu. Mark Bosnich var í boltanum en hélt honum ekki og Fowler fagnaði 29. marki sínu á tímabilinu. „Við verðum að halda áfram á þessari braut og vona að liðin tvö fyrir ofan okkur fari út af sporinu,“ sagði Fowler sem var kjörinn mað- ur leiksins á Anfield. Tottenham vann Southampton 1:0. Jason Dozzell skoraði með skalla um miðjan seinni hálfleik og er Spurs í ágætri stöðu en South- ampton er í þriðja neðsta sæti. Everton vann Middlesbrough 2:0. Brasilíski varnarmaður Branco lék síðustu 10 mínúturnar með Boro og átti eitt skot naumlega framhjá í þessum fyrsta leik sínum með liðinu. Arsenal og QPR gerðu 1:1 jafn- tefli og er QPR í næst neðsta sæti. Nottingham Forest hitaði upp fyrir Evrópuleikinn gegn Bayern Múnchen í kvöld og vann Sheffield Wednesday 3:1. Þetta var fyrsti útisigur Forest í deildinni síðan í október. Ian Woan, Andrea Silenzi, Steve Stone og Stuart Pearce léku ekki með Forest vegna meiðsla en verða væntanlega með í Múnchen. Stephen Howe var í byijunarliði Forest í fjórða sinn og opnaði markareikninginn en Paul McGreg- or og Bryan Roy skoruðu einnig fyrir Forest. „Eg var ánægður með ungu mennina," sagði Frank Clarke, knattspyrnústjóri Forest. „Þeir stóðu sig mjög vel.“ Roy hef- ur átt í erfíðleikum að undanförnu en hefur verið að sækja í sig veðr- ið. „Bryan Roy lék mjög vel gegn Tottenham og frammistaða hans bendir til að hann sé aftur að ná sér á strik,“ sagði Clarke. Reuter George Weah var allt í öllu hjá Milan George Weah var allt í öllu þeg- ar AC Milan vann Vicenza 4:0 í ítölsku deildinni um helgina. Hann lagði upp þijú mörk á stund- aríjórðungi. Fyrst fyrir Dejan Savicevic í byijun seinni hálfleiks. Fimm mínútum síðar hristi hann af sér tvo mótheija áður en hann gaf á Marco Simone sem þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að skora. Á 58. mínútu var brotið á Weah, víti dæmt og Simone skoraði úr vítaspyrnunni. Paolo Di Canio innsiglaði síðan sigurinn eftir ein- leik. AC Milan hefur oft átt í erfiðleik- um með lakari lið á San Siro leik- vanginum og var lengi í gang. Giamiero Maini skaut í stöng heimamanna þegar á fyrstu mínútu og Vicenza stóð í heimamönnum í hálfleiknum en sá ekki til sólar þegar Weah tók til sinna ráða eftir’ hlé. Luca Bucci tryggði Parma 1:1 jafntefli á heimavelli gegn Roma en hann varði vítaspyrnu á síðustu mínútu. Daniel Fonseca frá Urugu- ay skoraði fyrir gestina á þriðju mínútu en Nestor Sensini frá Arg- entínu jafnaði á 45. mínútu. Mass- imo Crippa hjá Parma og Fonseca lenti saman og var vikið af velli. Alessandro Del Piero gerði tvö mörk þegar Juventus vann Padova 5:0 á útivelli. Hann gerði fyrsta mark leiksins úr aukaspyrnu um miðjan fyrri hálfleik, Attilio Lomb- ardo bætti öðru marki við og Del Piero gerði í raun út um leikinn með þriðja marki liðsins. Michele Padovano gerði síðan tvö mörk undir lokin. Fiorentina og Sampdoria gerðu 2:2 jafntefli og er Fiorentina sjö stigum á eftir AC Milan. Sampdor- ia komst í 2:0 með mörkum frá Roberto Mancini um miðjan fyrri hálfleik og Christian Kerembeu í lok hálfleiksins en Rui Costa minnkaði muninn á 48. mínútu og Anselmo Robbiati jafnaði stundarfjórðungi fyrir leikslok. Tveggja mínútna töf varð í seinni hálfleik á meðan gert var að sárum annars línuvarðarins eftir að áhorfandi hafði kastað ein- hverju í höfuð hans. Bayemerá góðri siglingu Bayern Múnchen sigraði 1860 Múnchen með glæsibrag um helgina og er í efsta sæti þýsku deildarinnar. Júrgen Klinsmann og Alexander Zickler gerðu sín tvö mörkin hvor á fyrsta hálftímanum í 4:2 sigri. Klinsmann braut ísinn á sjöundu mínútu, Zickler bætti öðru marki við tveimur mínútum síðar og var aftur á ferðinni á 20. mínún- útu en Klinsmann átti síðasta orðið sex mínútum síðar. Eftir þetta tók Bayem lífínu með ró og Olaf Bodd- en minnkaði muninn fyrir gestina. Mínútu síðar lenti hann í átökum við Oliver Kahn, markvörð heima- manna, og var báðum vikið af velli. Bemhard Winkler bætti öðm marki við fyrir Múnchen eftir hlé en liðið komst ekki nær heimamönnum. Meistarar Dortmund gerðu 2:2 jafntefli við Gladbach á útivelli og em í öðm sæti. Svo virtist sem leik- menn Dortmund væru með hugann við Evrópuleikinn gegn Ajax á morgun en varnarmaðurinn Júrgen Kohler tryggði stigið á 89. mínútu. Svíinn Martin Dahlin skoraði fyr- ir Gladbach um miðjan fyrri hálfleik en Karlheinz Riedle, sem skipti við Heiko Herrlich í hléinu, jafnaði snemma í seinni hálfleik. Stefan Effenberg stjómaði spili Gladbachs sem herforingi og Dahlin skoraði öðm sinni um miðjan hálfleikinn. Stuttgart vann Kaiserslautem 2:0 og fór í þriðja sæti. Giovane Elber og Marco Haber gerðu mörkin. Atletico færist nær titlinum ATLETICO Madrid náði aðeins jafntefli gegn Deportivo Cor- una en helstu keppinautarnir í toppbaráttunni töpuðu stigi eða stigum og er liðið með átta stiga forystu í spænsku deildinni. Búlgarinn Lyuboslav Penev kom Atletico yfír skömmu fyrir hlé þegar hann skoraði með skalla eftir homspymu frá Serbanum Milinko Pantic. Varamaðurinn David jafnaði snemma í seinni hálfleik en Pantic náði aftur for- ystunni fyrir gestina með marki úr vítaspyrnu um miðjan hálfleik- inn. Skömmu síðar var vamar- manninum Miroslav Eljukic þjá heimamönnum vikið af velli en þegar fimm mínútur vora eftir jafnaði Rússinn Dimitry Radt- chenko eftir undirbúning Davids. Barcelona náði aðeins marka- lausu jafntefli gegn Athletic Bilbao. Gestirnir réðu ferðinni en heimamenn áttu hættulegar gagn- sóknir og fengu betri marktæki- færi. Real Madrid vann Salamanca 5:0. Raul Gonzalez, Michael Laudrup og Luis Enrique Martinez gerðu sitt markið hver en Ivan Zamorano skoraði tvisvar. Raul tókst ekki að skora úr vítaspymu í seinni hálfleik. Sevilla vann Espanyol óvænt 1:0 á útivelli. Arteaga Moises skaut í slá hjá gestunum sem sneru vöm í sókn og Pepelu Paimundo skoraði í byijun seinni hálfleiks. í næstu sókn fékk Espanyol dæmda vítaspymu en Monchi Rodriguez varði frá Javi Garcia. FOLK ANDREI Kanchclskis hjá Ever- ton þykir hafa kynnt Rússland er- lendis betur en nokkur annar knatt- spyrnumaður og verður sérstaklega verðlaunaður þess vegna í Moskvu í vikunni. Viktor Chernomyrdin, forsætisráðherra, afhendir honum verðlaunin. ■ HOWARD Kendall, stjóri Sheffield United, var kjörinn knatt- spyrnustjóri 1. deildar i febrúar. Ray Clemence hjá Barnet fékk sömu viðurkenningu í 3. deild. ■ IGOR Protti skoraði úr víta- spyrnu fyrir Bari í 4:2 tapleik gegn Cagliari og er markahæstur í ít- ölsku deildinni með 17 mörk. Hins vegar er Bari í botnsætinu. ■ INTER vann Lazio 1:0 í Róm og er aðeins stigi frá fimmta sætinu sem veitir þátttökurétt í Evrópu- keppni félagsliða í haust. ■ GIANLUCA Vialli, fyrirliði Ju- ventus, fór meiddur af velli um miðj- an fyrri hálfleik í leik Juve og Padova og er óvíst hvor hann verð- ur með í fyrri leiknum gegn Real Madrid í átta liða úrslitum Meistara- deildar Evrópu á morgun. ■ WALTER Smith stjómaði Rangers í 200. sinn í skosku deild- inni og fagnaði 2:0 sigri gegn Hi- bernian. Rangers er með þriggja stiga forystu á Celtic sem hefur leikið 25 leiki í röð án taps. ■ ERIK Bo Andersen frá Dan- mörku lék fyrsta leik sinn með Rangers. ■ RAI frá Brasilíu tryggði PSG 1:0 sigur gegn Rennes í frönsku deildinni og er liðið með fímm stiga forystu á Auxerre. ■ CORENTIN Martins, leikstjóm- andi Auxerre, var með þrennu þeg- ar liðið vann Martigues 5:0. ■ PSV Eindhoven vann Roda JC Kerkrade 3:0 og er efst í hollensku deildinni, stigi á undan Ajax sem tapaði óvænt 2:1 fyrir Vitesse Arn- hem en á tvo leiki til góða. PSV mætir Barcelona í Evrópukeppni félagsliða í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.