Morgunblaðið - 05.03.1996, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 B 5
HANDKNATTLEIKUR
4 B ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
BLAK
KA deildarmeistari ífyrsta sinn. Alfreð Gíslason, þjálfari
Stoltur af strákunum
„OLEI, Olei, við erum deildarmeistarar," sungu „gulir og glaðir“
stuðningsmenn KA við raust, að leikslokum í leik KA og Víkings.
Hetjurnar þeirra höfðu lagt gestina að velli, 24:20, og um leið tryggt
sér deildarmeistaratitilinn. „Ég er stoltur af strákunum og mjög
ánægður með að við höfum tryggt okkur deildarmeistaratitilinn
með sigrinum,11 sagði Alfreð Gíslason þjálfari KA. „Mótið er búið
að vera mjög stíft eftir áramótin og það er komin þreyta í liðið
eins og mátti sjá á leiknum. Við þurfum að nota næstu daga vel
til að hvíla okkur fyrir átökin framundan og það er gott að þurfa
ekki að fara í síðasta leikinn undir mikilli pressu. Við stefnum að
sjálfsögðu að þvf að vinna þrefalt, en það er langur vegur eftir
að þvítakmarki.11
Þróttur bikar-
meistari í 11. sinn
Bikarmeistarar ÍS1996
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
EFRI röð frá vlnstri: Zdravko Demirev þjálfari, Sigríður Kjartansdóttir, Vllborg Einarsdóttir, Agnes
Benediktsdóttir, Sesselja Jónsdóttir, Þorbjörg Jónsdóttir og Jóhanna Erla Jóhannesdóttlr. Neðri röð
frá vinstri: Evgenyia Demireva, dóttir Zdravko, Friðrika Marteinsdóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Jóna Harpa Viggósdóttir fyrirliði og Þorbjörg Jónsdóttir.
Bikarmeistarar Þróttar 1996
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
EFRI röð frá vinstri: Ólafur Daði Jóhannesson, Matthías Bjarki Guðmundsson, Áki Thoroddsen
Elnar Hilmarsson, Arngrímur Arngrímsson og Leifur Harðarson þjálfari. Neðrl frá vinstrl: Fanna
Orn Þórðarson, Magnús Helgi Aðalsteinsson, Valur Guðjón Valsson, Ólafur Heimlr Guðjónsson
fyrirliði, og Jón Árnason.
skrifar frá
Akureyri
KA hóf leikinn af miklum krafti
og gerði hvert markið á fætur
öðru án þess að gestirnir næðu að
svara og um miðjan
ReynirB. hálfleikinn var stað-
Eiríksson an orðin 7:1 og
greinilegt í hvað
stefndi. Víkingar
voru þó ekki á þeim buxunum að
gefast upp og náðu að komast inn í
leikinn og munurinn var tvö mörk
þegar gengið var til hálfleiks. í síð-
ari hálfleik hafði KA ávallt forystuna
en Víkingar náðu að minnka muninn
í eitt mark í tvígang. Lengra komust
þeir ekki og þegar upp var staðið var
munurinn fjögur mörk, KA í hag.
KA-liðið hefur oft ieikið betur og
virtust sumir lykilmanna liðsins ekki
spila af fullri getu og er greinilegt
að þreytu er farið að gæta hjá lið-
inu. Guðmundur í markinu varði
ágætlega, Björgvin var sterkur og
Patrekur átti góða spretti.
Víkingar komust seint í gang í
leikum og hafði það vissulega mikið
að segja. Þeir áttu nokkra möguleika
til þess að jafna en þá skorti herslu-
muninn. Þá má segja að lánleysi
Víkinga hafi verið mikið því um
miðjan síðari hálfleik meiddist Reyn-
ir Þór Reynisson, besti maður liðs-
ins, og var borinn af leikvelli og litlu
síðar þurfti Rúnar Sigtryggsson að
yfirgefa völlinn meiddur eftir að
hafa leikið „á annarri" um langa
hríð í seinni hálfleik. Hlutskipti Vík-
inga í þessum leik var líkt og margra
liða sem berjast við fall, lánleysi.
Þeir eiga þó ennþá möguleika á að
halda sér í deildinni en þeir eru
tveimur stigum á eftir ÍBV og verða
því að vinna leik sinn gegn Val,
ásamt því að ÍBV tapi á sama tíma
fyrir KA. Verði Víkingur og ÍBV
jöfn að stigum verða liðin að leika
aukaleiki um sætið í deildinni.
Spenna á Hlíðarenda
Afturelding hirti annað stigið af
Valsmönnum, og þar með
möguleika þeirra á deildarmeistara-
titlinum. Leikurinn
var hnífjafn allt frá
fyrstu mínútu og
endaði 23:23 sem
verða að teljast
sanngjörn úrslit.
„Eg er nú bara nokkuð montinn
af strákunum mínum. Þeir stóðu sig
vel og með smá heppni hefði sigur-
inn getað endað okkar megin. Varn-
arleikurinn gekk vel upp og við sýnd-
um að við getum spilað góðan bolta,“
sagði Einar Þorvarðarson, þjálfari
Aftureldingar.
Valsmenn komu ákveðnir til leiks.
Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður
höfðu Valsarar ekki klúðrað sókn
og voru komnir með 9 mörk á móti
5. Sigfús Sigurðsson línumaður
Valsara átti þar stóran þátt. Aftur-
elding me'ð Jóhann Samúelsson í
fararbroddi náði að halda í við Val
og minnka muninn í tvö mörk fyrir
hlé, í 13:11.
Til síðari hálfleiks komu Aftureld-
ingarmenn fílefldir. Með góðri mar-
kvörsiu Sebastians, sem meðal ann-
ars varði fjögur af fyrstu fimm skot-
um Vals, skoruðu þeir 4 mörk í röð
og breyttu stöðunni í 13:15. Þegar
um 10 mín. voru til leiksloka hafði
Afturelding náð þriggja marka mun
18:21. Þá var tveimur leikmönnum
Aftureldingar vikið af leikvelli. Vals-
menn gengu á lagið og náðu að
jafna. Afturelding var síðan á undan
að skora síðustu tvö mörkin. Þegar
Sindri
Bergmann
Eiðsson
skrifar
mínúta var eftir hafði Afturelding
boltann og alla möguleika sín meg-
in. En með slöppu skoti Jóhanns
framhjá gerðu þeir út um þá. Val-
garð Thorodsen átti síðan skot í slá,
úr frekar slöppu færi, þegar 3 sek.
voru eftir, og þar fór möguleiki
Vals á deildarmeistaratitii.
Leikurinn var hinn skemmtileg-
asti á að horfa og spennandi. Aftur-
elding átti einn af sínum betri dög-
um. Hjá Val voru það hins vegar
Sigfús og Ólafur Stefánsson sem
héldu upp heiðrinum.
Stjarnan skaust í þriðja sætið
Stjörnumenn skutust upp í 3.
sæti með sigri á ÍR 17:19.
Stjarnan hóf leikinn á flatri vörn og
spilaði með tvo línu-
Hörður menn í sókninni.
Magnússon Þetta gekk alls ekki
skrifar 0g þegar Filipov kom
inn á um miðjan fyrri
hálfleik fóru hlutirnir að ganga bet-
ur, sérstaklega í vörninni.
Stjömumenn spiluðu_ þá mjög
framarlega í vörninni og ÍR var ráða-
laust gegn þessari vörn og tókst
ekki að skora mark í 15 mínútur í
fyrri hálfleik og upphafi þess síðara.
Samt sem áður tókst Stjörnunni
mjög illa upp í sóknarleiknum og
nýtti sér þetta ekki sem skyldi.
Markverðir liðanna vörðu mjög vel
í fyrri hálfleik en lítið í þeim síðari.
Vendipunkturinn kom í stöðunni
15:15 og 10 mín. eftir. Þá var Sig-
urði Bjarnasyni vikið af leikvelli og
í kjölfarið fékk þjálfari Stjömunnar,
Viggó Sigurðsson, rauða spjaldið
fyrir mótmæli. Við þetta urðu
Stjörnumenn tveimur færri næstu
mínúturnar. Þótt ótrúlegt megi virð-
ast tókst Stjörnumönnum að skora
tvö mörk, þótt þeir væru tveimur
færri, án þess að heimamenn svör-
uðu fyrir sig. Þessi munur hélst til
leiksloka.
Leikur liðanna var ekkert augna-
yndi, reyndar afspymuleiðinlegur
lengst af. Það sem gladdi augað var
snillingurinn Filipov sem vann leikinn
fyrir Stjömuna. Liðið fær þó hrós
fyrir góðan vamarleik, reyndar gegn
iiði sem vissi ekki hvort það var að
koma eða fara í sóknarleiknum.
IR átti afleitan dag, sérstaklega
sóknarlega, varnarleikurinn ágætur
lengst af og Magnús Sigmundsson
góður í markinu í fyrri hálfleik. Lið-
inu tókst ekki að leysa vörn Garðbæ-
inga og verður það að hluta til að
Skrifast á stjórnendur liðsins. Þá var
furðulegt að sjá þá taka Sigurð
Bjarnason úr umferð í síðari hálf-
leik, en ekki Filipov.
Vinnusígur FH-inga
Það var ekki rismikill handbolti
sem boðið var upp á í Kapla-
krika er FH fékk Gróttu í heimsókn
og var sigur heima-
Sævar nianna öruggur,
Hreiöarsson 27:21, eftir eins
skrifar marks forustu í leik-
hléi, 12:11.
Greinilegt var frá byijun að leik-
menn voru ekki vel upplagðir þetta
kvöld. Þeir virkuðu stirðir og þungla-
malegir og mistökin voru mörg.
Gróttumenn byijuðu þó betur með
markvörðinn Sigtrygg Albertsson í
aðalhlutverki. FH náði aðeins að
skora eitt mark á fyrstu níu mínút-
unum en síðan fór þeim að ganga
betur. Með sterkum varnarleik náðu
þeir að fiska sóknarbrot á gestina
og fengu að launum hraðar sóknir.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
VALGARÐ Thoroddsen stekkur hér inn úr horninu og reynir
að koma boltanum framhjá Bergsveinl Bergsveinssynf í
markinu, en það tókst ekkl að þessu sinni.
Leikurinn leystist upp í hálfgerðan
skrípaleik á tímabili og var vart að
merkja að þarna væru 1. deildarlið
á ferð.
í upphafi síðari hálfleiks gerðu
FH-ingar út um leikinn. Vörnin var
þétt með Hans, Hálfdán og Gunnar
fremsta í flokki og FH skoraði sex
fyrstu mörkin. Eftir það var aldrei
spurning hvar sigurinn lenti og nán-
ast formsatriði að klára leikinn.
Jónas Stefánsson varði vel í marki
FH, sérstaklega í síðari hálfleik, og
Guðjón Árnason og Sigurður Sveins-
son tóku á skarið þegar þurfti í sókn-
arleiknum. Vörnin var þó aðalsmerki
liðsins og náði að loka algjörlega á
Júrí Sadovski, leikstjórnanda Gróttu.
Gestirnir voru því sem höfuðlaus her
og sóknarleikur liðsins tilviljana-
kenndur. Vörnin var slakari en oft-
ast áður en Sigtryggur Albertsson
stóð þó fyrir sínu milli stanganna.
„Þetta var ekki besti handbolti
sem hægt er að sýna en sumir kalla
svona sigra vinnusigra og ég held
að það lýsi þessum leik ágætlega,“
sagði Guðjón Árnason, fyrirliði FH.
„Við erum á réttri leið fyrir úrslita-
keppnina því þó svo að sóknarleik-
urinn hafi hikstað vorum við að spila
ágætis vörn,“ sagði fyrirliðinn.
Músin breyttist í kött
KR-ingar hafa í vetur yfirleitt
verið í hlutverki músarinnar
sem lítið erindi hefur átt við köttinn
í viðureignum vetr-
fvar arins. En á sunnu-
Benediktsson dagskvöldið tóku
skrifar mýsnar stakkaskipt-
um þegar þær
mættu Eyjapeyjum í íþróttahúsinu á
Seltjarnarnesi. Segja má að þær
hafi verið í hlutverki kattarins allan
leikinn og leikmenn ÍBV voru mýsn-
ar sem nauðsynlega þurftu á stigi
að halda til að tryggja áframhald-
andi veru í deildinni. KR-ingar, í
sínu nýja hlutverki, tóku strax í
upphafi öll völd á vellinum og léku
sér að hinu unga liði ÍBV eins og
köttur að mús nær allan tímann og
ólíkt því sem gerist í ævintýrunum
um Tomma og Jenna þá tókst mús-
inni ekki að koma fram hefndum
fyrir leikslok heldur hélt kötturinn
sínu striki og fagnaði tíu marka
sigri, 30:20 að leikslokum.
Eyjamenn voru heillum horfnir í
öllum aðgerðum sínum strax í upp-
hafi. Sóknarleikurinn fálmkenndur
og fátt sem gekk sem skyldi. Varn-
arleikurinn var opinn í báða enda
og KR-ingar gátu gert það sem þeim
sýndist í sóknarfærum sínum. Sigur-
páll Aðalsteinsson skoraði er honum
líkaði og Hrafn Margeirsson varði
sem berserkur í marki KR. Staðan
í hálfleik 15:9.
Hafi einhver Eyjamaður vonað að
síðari hálfleikur myndi bera í skauti
sér betri tíð með blóm í haga, þá
skjátlaðist honum. Baráttuglaðir
KR-ingar sem fallnir eru héldu sínu
striki og bættu við forskot jafnt og
þétt. Eyjamönnum tókst að klóra í
bakkann eftir miðjan leikhlutann
fljótt sótti í sama farið og KR fögn-
uðu verðskulduðum stórsigri, þeim
fyrsta í tuttugu og einni viðureign.
Baráttuglaðir Selfyssingar
Haukar máttu þola tap á Selfossi
28:25 í miklum baráttuleik lið-
anna eftir að hafa verið yfir 11:14
í hálfleik.
Sigurður „Þetta var auðvelt
Jónsson hjá okkur í fyrri hálf-
skrifar leik og menn áttuðu
frá Selfossi sjg svo ekki á því að
Selfyssingar voru að beijast fyrir
lífi sínu og voru miklu hungraðri en
við. Það hefði verið gaman að vinna
en við lékum ekki nógu vel,“ sagði
Gústaf Bjarnason fyrirliði Hauka.
Haukar voru mun betri í fyrri
hálfleik og skoruðu í hverri sókninni
eftir aðra og héldu Selfyssingum vel
niðri en hjá þeim mistókst hver sókn-
in eftir aðra. Það var ekki fyrr en
í seinni hálfleik að Selfyssingar réttu
úr kútnum og sýndu snerpu, baráttu-
grimmd og ákveðni sem kom Hauk-
unum greinilega í opna skjöldu.
Heimamenn voru komnir yfir 19:18
áður en hálfleikurinn var hálfhaður.
Það var hreinlega eins og Haukarn-
ir væru heillum horfnir það gekk
ekkert upp og þegar svo Hallgrímur
hrökk í gang og lokaði marki Sel-
fyssinga þá gekk ekkert upp hjá
Haukum og hver sóknin eftir aðra
mistókst.
í liði Selfyssinga voru þeir bestir
Björgvin, Erlingur og Einar Gunnar,
sem átti margar góðar sendingar inn
á línu til Erlings sem skoraði fimm
mörk af línunni. Hjá Haukum var
það Gunnar Gunnarsson sem hélt
uppi baráttuandanum og rak sína
menn áfram og gerði sjálfur gullfal-
leg mörk með gegnumbrotum.
Baumruk mátti líta rauða spjaldið
eftir þriðju brottvísun en hann sýndi
allt of grófan leik, var árásargjam
og olnbogaði sig áfram sem endaði
með þremur brottvísunum. Brot hans
ollu miklu uppnámi og frekjuleg
framkoma hans á vellinum var ekki
í takt við reynslu hans í íþróttinni. '
Selfossliðið náði upp þeim bar-
áttuanda sem nauðsynlegur er til
að komast í hóp hinna átta útvöldu
og víst er að nái liðið inn í úrslita-
keppnina þá verður það erfitt nái
Valdimar þjálfari að kynda baráttu-
eldinn í liðinu. Það var grimmd ljóns-
ins sem kom þeim áfram á sunnu-
dagskvöldið.
LIÐ Þróttar R. tryggði sér
bikarmeistaratitilinn í elléfta
sinn þegar félagið lagði HK
úr Kópavogi fþremur hrinum
gegn engri, 15:11,16:14 og
15:3, á aðeins 75 mínútum.
að var aldrei nein spurning
hvar sigurinn myndi hafna.
Leikmenn Þróttar léku við hvem
sinn fingur í leiknum og liðið var
mun sprækara en Kópavogsliðið,
sem sýnilega hefur dalað verulega
í vetur. Fyrsta hrinan fór rólega
af stað en það kom fljótt í ljós að
slagkrafturinn var mun meiri hjá
leikmönnum Þróttar, sem af-
greiddu fyrstu hrinuna sannfær-
andi þrátt fyrir að sjö uppgjafir
hafi farið forgörðum.
í annarri hrinunni fengu leik-
menn HK tækifæri til þess að setja
mark sitt á leikinn en liðið komst
yfir á lokakafla hrinunnar, 14:13.
Vonarneistinn slokknaði hins veg-
ar fljótt í framhaldinu þegar sókn-
in hjá HK brást tvívegis í lok hrin-
unnar, fyrst þegar Jóhann Sig-
urðsson skellti út og svo aftur
þegar hann skellti beint í hávörn-
ina og Þróttur fékk sextánda stig-
ið.
Þriðja hrinan var hvorki fugl
né fiskur. Leikmenn HK voru
greinilega búnir að missa viljann
og það var eins og við manninn
mælt að Þróttarar voru ekki lengi
að nýta sér það. Hver glæsisóknin
gekk rakleitt í gólfið hjá Kópa-
vogsliðinu og Ólafur Heimir Guð-
TÚDÍNUR byijuðu bikarúrslita-
leikinn mun betur en stöllur
þeirra úr Þrótti í Neskaupstað sem
voru að mæta í bikarúrslitaleik í fyrsta
sinn. Stúdínur leiddu leikinn 2:0 þegar
Þróttarastúlkur náðu sínum besta
kafla og vom hárbreidd frá því að
■ tryggja sér oddahrinu. Heilladísirnar
vom hins vegar með Stúdínum í lok
fjórðu hrinu og þær tryggðu sér sætan
sigur, 3:1.
Stúdínur komu vel stemmdar til
leiksins og skelltu andstæðingunum
sannfærandi í fyrstu tveim hrinunum
15:12 og 15:8 og léku virkilega vel.
Eftir slaka byijun leit út fyrir að
Þróttarastúlkur væru að missa af lest-
inni, en annað kom á daginn. Búlg-
arski leikmaðurinn Miglena Apo-
stolova kom inn í staðinn fyrir hina
rússnesku Svetlönu Mohroskinu sem
hafði sýnt misjafna takta. Innkoma
Miglenu hafði góð áhrif og Þróttara-
stúlkur unnu þriðju hrinuna 15:9 og
leikurinn tók nýja stefnu.
Fjórða hrinan var sannkölluð bar-
áttuhrina og hún var jafnframt sú
lengsta í leiknum, en Þróttarastúlkur
voru yfir allan tímann allt þar til í
lokin að allt hrökk í baklás.
Stúdínur skoruðu hvert stigið af
fætur öðru og jöfnuðu 12:12 en Þrótt-
arastúlkur komust aftur yfir, 14:12
og hefðu tryggt sér oddahrinu þegar
hávörn þeirra varði sóknarskell Stúd-
ína beint í gólfíð en hún snerti jafn-
framt netið í leiðinni og í staðinn fyrir
að krækja í úrslitahrinu sátu þær eft-
ir með sárt ennið því Stúdínur skoruðu
næstu fjögur stig og tryggðu sér bikar-
meistaratitilinn í ár. Þetta var jafn-
framt áttundi bikarmeistaratitill ÍS í
kvennaflokki.
Stúdínur léku flestar hveijar vel og
miðjan var sterk með þær Jónu Hörpu
Viggósdóttur og Ingibjörgu Gunnars-
dóttur fremstar í flokki. Sesselja Jóns-
dóttir, uppspilari Stúdína, lék einnig
vel en hún setti móttökuna oft úr
skorðum hjá Þróttarastúlkum með
góðum uppgjöfum. í liði Þróttar lék
Miglena vel eftir að hún kom inn á
og Unnur Ása Atladóttir átti ágætar
rispur inn á milli en Dagbjört Víg-
lundsdóttir náði sér hins vegar aldrei
almennilega á strik og það'hafði sitt
að segja.
„Ég er mjög ánægður að stelpurnar
skyldu klára leikinn en ég reiknaði þó
alltaf með því. Sérstaklega er ég
ánægður með lokakaflann þar sem lið-
ið lék mjög háum gæðaflokki en eins
og staðan var í lokin þá þurftu þær
að gera það til að vinna og það er
ekki hægt að biðja um meira,“ sagði
Búlgarinn Zdravko Demirev, þjálfari
Stúdína, eftir leikinn.
Ólafur Heimir Guðmundsson
mundsson, „ofurbombarinn“ sem
allt snýst um í liði Þróttar, bauð
til sýningar á lokakaflanum þegar
hann skemmti áhorfendum með
stórglæsilegum afturlínuskellum
og undirstrikaði að þegar hann
nær sér á strik þá er hann besti
smassari landsins um þessar
mundir.
Sterkir Þróttarar
Lið Þróttar hafði allnokkra yfir-
burði í leiknum, ekki bara á leik-
vellinum heldur hafði liðið mikla
hæðaryfírburði með hávaxnari
menn. Hávörnin var gífurlega
öflug hjá Þrótti og kantskellar HK
áttu í erfiðleikum með að skila
sóknunum og það fékk Stefán Þ.
Sigurðsson, HK, að reyna en há-
vörn Þróttar kaffærði hann hvað
eftir annað. Skellir Þróttara voru
kraftmiklir og munaði mestu að
leikmenn liðsins vissu greinilega
að hávörnin var ekki upp á marga
fiska hjá HK. Guðbergur Egill
Eyjólfsson, uppspilari HK, náði sér
aldrei vel á strik í leiknum en
hann hefur átt við meiðsli að
stríða, en það gerði andstæðingur
hans Valur Guðjón Valsson hjá
Þrótti hins vegar og útfærði góðar
sóknir fyrir sitt lið.
.. . Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
ÞORBJORG Ólöf Jónsdóttir IS smassar á móti hávörn Þróttarastúlknanna Miglenu Apostolovu og Petrún-
ar Jónsdóttur í bikarúrslitaleiknum á laugardaginn.
„Þetta var
of auðvelt“
„ÞEIR áttu möguleika á að
vinna aðra hrinuna en við
náðum að snúa henni okkur í
hag og þeir áttu síðan ekkert
svar,“ sagði hinn 20 ára fyrir-
liði bikarmeistara Þróttar,
Olafur Heimir Guðmundsson,
sem er jafnframt sonur hins
kunna blakmanns Guðmundar
EIís Pálssonar sem gerði
garðinn frægan í liði Þróttar
á árum áður. „Ég bjóst við
þeim sterkari. Þeir hafa spilað
lélega deildarleiki en síðan
náð að rífa sig upp í mikil-
vægum leikjum. Ég hlakka til
að sjá framhaldið en við selj-
um stefnuna núna á að vinna
tvöfalt og ef við spilum eins
og við höfum gert undanfarið
þá getur það orðið. Ég býst
nú við meiri mótstöðu í úrs
litakeppninni og eins og
málin líta út í dag þá mætum
við ÍS.“
ÓLAFUR Heimfr Guðmunds-
son, fyrirliðí Þróttar R. kampa-
kátur með bikarinn í leikslok.
Reynsla Stúdína vó þungt