Morgunblaðið - 13.03.1996, Qupperneq 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
BLAD
Fréttaskýring
3 Fúnandi skipsflök
liggja eins og
hráviði á fjörum
landsins
Aflabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
Markaðsmál
0 Alaskaufsinn
með algera
forystu á mark-
aðnum
ÁIMETUM
MorgunblaSið/Guðíatigur Albertason
Iceland Seafood eykur
sölu sína í upphafi árs
Verðmæti sölunnar
35% meira en á
sama tíma í fyrra
og um 40% í magni. Þetta eru beztu j;
tækisins, en árið í fyrra var í heild hi
PYRSTU tveir mánuðir þessa árs
hafa verið Iceland Seafood Ltd., dótt-
urfyrirtæki ÍS í Bretlandi, mjög hag-
stæðir, þrátt fyrir almenna deyfð á
brezka markaðnum það, sem af er
þessu ári. Heildarsala fyrirtækisins
í Evrópu jókst um 35% í verðmætum
úar- og febrúarmánuðir í sögu fyrir-
bezta frá upphafi.
Salan þessa tvo fyrstu mánuði árins
á markaðssvæði Iceland Seafood í
Hull og söluskrifstofa þess í Þýzka-
landi og Frakklandi nam alls um 1,3
milljörðum króna, en á sama tíma í
fyrra seldi Iceland Seafood fisk og fisk-
afurðir fyrir tæplega einn milljarð
króna. Höskuldur Asgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland ■ Seafood, segir
að ástæða aukinna verðmæta sölu fyr-
irtæksins sé meðal annars sala verð-
meiri afurða. Hlutfall sérpakkninga
hafi aukizt svo og vinnsluvirði ýmissa
annarra afurða, svo sem frá Seaflower
Whitefish í Namibíu. í fyrra var mik-
ill hluti afurðanna þaðan heilfrystur
lýsingur, en nú ér framleiðsla flaka
vaxandi, enda fullkominn frystitogari
kominn í flota fyrirtækisins og nýtt
frystihús hefur verið tekið í notkun.
Þá segir Höskuldur að fyrirtækið leggi
stöðugt meira fé í markaðsstarfið og
það skili sér.
Söluaukning allt að 65%
Þessa tvo fyrstu mánuði ársins var
söluaukningin mest á markaðssvæði
söluskrifstofunnar í Hamborg, um 65%
í verðmætum talið. Skýringin liggur
meðal annars í aukinni síldarsölu þang-
að og auknum hlut sérpakkninga inn
á markaðinn. Salan hjá söluskrifstof-
unni í Frakklandi hefur aukizt um 49%
og munar þar mestu verðmeiri lýsings-
pakkningar frá Namibíu. Loks var
söluaukning í Bretlandi um 8% í verð-
mætum.
Stefnt að aukningu frá síðasta ári
„Sérpakkningarhar hafa gengið vel
á markaðnum, þrátt fyrir að þungt sé
fyrir fæti á markaðnum. Þrýstingur
er á verð á ýsu, þorski, lýsing, alaska-
ufsa og rækju og verð á blokk hefur
almennt lækkað. Karfinn stendur bet-
ur. Við reiknum þó með soluaukningu
þegar á þetta ár í heild er litið. Við
höfum eflt markaðsstarfið og aukið
alþjóðleg viðskipti. Namibia kemur
sterkari inn með dýrari afurðir á þessu
ári og þá kemur alaskaufsinn frá
UTRF á Kamtsjatka einnig inn hjá
okkur í vor. Árið í fyrra var hið bezta
í sögu fyrirtækisins. Þá seldum við
30.600 tonn af afurðum að verðmæti
um 7,2 milljarðar króna. Aukning í
magni var 14% en 18% í verðmætum.
Reynist áætlanir okkar réttar, eru lík-
ur á góðu ári í afurðasölu fyrirtækisins
nú, því við ætlum okkur að gera enn
betur nú en í fyrra,“ segir Höskuldur
Ásgeirsson.
Fréttir Markaðir
Lítið utan af
ísuðum þorski
• VERÐ á ferskum þorski
er enn lágt í Bretlandi og
eftirspurn Iítil. Meðalverð í
febrúar var aðeins 120
krónur á kíló og hafði þá
lækkað um 6% miðað við
sama mánuð í fyrra. Fyrstu
tvo mánuði ársins hefur
verðið að meðaltali verið
128 krónur, sem er 24%
lægra en á sama tíma í
fyrra. Aðeins rúmlega 359
tonn af þorski hafa farið
út þetta tímabil, sem reynd-
ar er nánast sama magn og
í fyrra./2 '
Hagnaður hjá
Snæfellingi
• REKSTRARAFGANGUR
rækjudeildar Snæfellings
var 13,7 milljónir króna í
fyrra. Rekstrarafkoma út-
gerðarinnar var hinsvegar
jákvæð upp á rúmar 44
milljónir króna. Stefán
Garðarsson, framkvæmda-
stjóri Snæfellings, segir að
þessar tölur, sem séu fyrir
fjármagnskostnað og af-
skriftir, séu þó ekki mark-
tækar vegna þess að eftir
sameiningu Norðurgarðs
og Snæfellings í fyrrasum-
ar haf i tekið tíma að vinna
upp taprekstur Norður-
garðs./5
Póls með nýja
samvalsvél
• PÓLS rafeindavörur hf.
á ísafirði hafa aukið sölu
sína mjög mikið að undan-
förnu og eru horfur á að
áframhald verði á þeirri
uppsveiflu, að sögn Harðar
Ingólfssonar, markaðs-
stjóra fyrirtækisins. Hafin
hefur verið framleiðsla á
nýrri gerð sjálfvirkra
samvalsvéla, sem nefnist
ySamval-7L“, hjá Póls á
Isafirði. Hörður segir að
þetta skipi Póls á fremsta
bekk á sviði sjálfvirkrar
vigtunar í hvers kyns
pakkningar./7
Bærinn vill selja
Dvergastein hf.
• Á VETTVANGI bæjar-
stjórnar Seyðisfjarðar er
um það rætt að reyna að
selja hlutabréf bæjarins í
Fiskiðjunni Dvergasteini
hf. en bærinn á tæplega
70% hlutafjár. Stjórnendur
fyrirtækisins eru að reyna
að fá nýtt fjármagn inn í
fyrirtækið./8
Mest frá ÚA til
Bandaríkjanna
• ÚTGERÐARFÉLAG Ak-
ureyringa seldi alls 11.076
tonn af freðfiski á síðasta
ári fyrir tæpa 2,65 milljarða
króna. Af þessu magni voru
um 6.600 tonn fryst í landi
en 4.480 tonn á sjó. Um
tveir þriðju hlutar afurð-
anna fóru á þijú stærstu
markaðssvæðin, Bandarík-
in, Japan og Þýzkaland.
Hlutur Þýzkalands hefur
aukizt mikið á undaförnum
árum og er það nú komið
upp fyrir Bretland, sem
lengst af var í þriðja sæt-
inu, en fellur nú í það
fjórða. I fimmta sæti er
Tævan, þá Frakkland og
loks Grikkland.
Framleiðsla
árið1995
26,24%
skiptingeftir
markaðslöndum
13,26%
.. Tævan5,55%
-Frakkland 5,32%
-Grikkland3,24%
Önnur lönd 5,36%
Fiskafli ÚA
jókst í fyrra
• AFLI skipa ÚA jókst um
tæp 1.100 tonn milli ára, eða
5,1%. Á síðasta ári fiskuðu
skipin alls 22.782 tonn. Mest
veiddist af karfa, 7,871 tonn,
5.321 tonn af þorski, 3.183
af ýsu, 2.194 tonn af grá-
lúðu, 1.288 af úthafskarfa,
1.145 af ufsa og rúm 1.000
tonn af rækju. Karfaaflinn
jókst, um 17% milli ára, en
27% samdráttur varð á grá-
lúðuveiðum. Úthafskarfa-
afli minnkaði einnig frá
fyrra ári, en þorsk- og ýsu-
afli var nánast óbreyttur./6