Morgunblaðið - 13.03.1996, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR13. MARZ 1996 C 7
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
STARFSMENN Póls við nýju sjálfvirku samvalsvélina.
Póls hf. framleiðir nýjar
sjálfvirkar samvalsvélar
PÓLS rafeindavörur hf. á
ísafirði hafa aukið sölu sína
mjög mikið að undanförnu og
eru horfur á að áframhald
verði á þeirri uppsveiflu, að
sögn Harðar Ingólfssonar, markaðsstjóra fyrirtækisins. Hafin hefur
verið framleiðsla á nýrri gerð sjálfvirkra samvalsvéla, sem nefnist „Sam-
val-7L“, hjá Póls á Isafirði. Hörður segir að þetta skipi Póls á fremsta
bekk á sviði sjálfvirkrar vigtunar í hvers kyns pakkningar.
Yfirvigt pakkninga
orðin hverfandi
„Sjálfvirkt samval nýtist þeim
sérstaklega vel sem pakka í neyt-
endapakkningar, hvort sem er
frystum bitum eða ferskum,“ segir
Hörður.
Raunhæfur kostur
„Samvalsvélin er fyrirferðarlitil
og er því raunhæfur kostur fyrir
flesta fiskverkendur. Vélin er t.d.
sett inn í vinnslulínu á eftir skurði
eða lausfrysti. Hún tekur við bitun-
um og matar sjálfvirkt sjö vogir
sem eru innbyggðar í vélina. Sam-
valsvélin velur síðan þá bita sem
best passa í tiltekna pakkningu og
skilar þeim á færiband.“
Hörður segir að samvalið velji
alltaf úr fjórtán bita í senn og með
því móti verði yfirvigt pakkninga
hverfandi. Samanborið við aðrar
aðferðir við vigtun í pakkningar
lækki samvalið yfirvigt oft um
helming eða meira. Það sé auðvelt
að tengja t.d. pokunarvél við sam-
valið og fá þannig sjálfvirka pökk-
unarlínu.
Sannkölluð hörkutól
í haust voru tíu ár frá því að fyrsta
Póls-skipavogin var seld og sett í
rækjuveiðiskipið Sólrúnu frá Bol-
ungarvík. „Þetta var fyrsta ís-
lenska skipavogin og er ekki of-
sagt að með þessari vog hafi orðið
bylting í vinnslu sjávarfangs um
borð í fiskiskipum," segir Hörður.
„Skipavogirnar hjá okkur hafa
reynst ótrúlega sterkbyggðar og
endingargóðar, sannkölluð hörku-
tól. Undanfarin þrjú ár hefur sala
skipavoga frá okkur nærri þrefald-
ast og ekkert lát virðist á eftir-
spurninni. Skipavogirnar hafa ver-
ið seldar til yfir þijátíu landa og
eru nú notaðar á öllum heimsins
höfum.“
24 milljónír í Þyrlusjóði
A KYNNIN G ARDEGI Stýri-
Tnannaskólans, sem verður nk.
laugardag, 16. mars, kynna nem-
endur Stýrimannaskólann og
kennslutæki, ennfremur hefur á
kynningardegi skólans verið brydd-
að upp á nýmælum og lögð áhersla
á að sýna björgunartæki með því
að Slysavarnafélag íslands og hin
nýja og fullkomnajiyrla Landhelg-
isgæslunnar TF-LÍF lendir á skóla-
lóðinni.
Með því er einnig minnst stofnun-
ar Þyrlusjóðs - Björgunarsjóðs nem-
enda Stýrimannaskólans, sem var
stofnaður 16. apríl árið 1988 með
100.000 króna framlagi nemenda
og öðrum 100.000 krónum frá frú
Rannveigu Tryggvadóttur, sem síð-
ar á því ári hækkaði framlag sitt í
krónur 500.000. Síðan hafa sjóðn-
um borist gjafír og áheit á hvetju
ári.
Árið 1994 var keypt hjartastuð-
tæki (hjartamonitor) sem er haft
með í öllum útköllum þyrlunnar og
kostaði um kr. 900.000.
í samráði við forstjóra Landhelg-
isgæslunnar og áhöfn TF-LÍF var
ákveðið, að Þyrlusjóðurinn yrði
notaður til að kaupa siglinga- og
leitartæki í nýju þyrluna þannig
að TF-LÍF verði ætíð búin nýjustu
og fullkomnustu tækjum til leitar
og loftsiglinga á hverri tíð.
Á Kynningardegi Stýrimanna-
skólans mun stjórn sjóðsins af-
henda Landhelgisgæslunni mjög
fullkominn sjónauka með infra-
rauðri linsu, sem er ætlaður til leit-
ar í myrkri og er sérstaklega góður
við leit að gúmmíbjörgunarbátum
í ólgusjó. Tveir þannig sjónaukar
hafa verið keyptir til þyrlunnar og
kosta um 540 þúsund krónur. Þá
verður bráðlega sett sérstök sigl-
ingatölva í TF-SIF, svonefnd
INFO-NAV, sem er tengd við stað-
setningarkerfið GPS, einnig full-
komið fjarskiptakerfi um gervi-
hnetti, INMARSAT-C kerfi.
„Öll þessi fullkomnu tæki í björg-
unarþyrluna TF-SIF verða keypt
fyrir fé úr Þyrlusjóði og munu kosta
nærri 3 milljónir króna.
Þyrlusjóðurinn kemur því að
góðum notum, þegar gengið er frá
endahnúti í sambandi við hið mikla
átak sem kaup á björgunarþyrlunni
voru og alltaf verður hægt að end-
urnýja og bæta tækjakostinn með
aðstoð Þyrlusjóðs.
Með þessum línum fylgir listi
yfir gefendur í Þyrlusjóð árið 1995,
en samtals var gefið í sjóðinn fé,
sem er nærri því sú upphæð sem
fyrrnefnd 'tæki kosta eða kr.
2.863.252.
Stjórn sjóðsins og óhætt er að
fullyrða allir landsmenn þakka gef-
endum hinn góða hug þeirra og
fórnarlund.
Söfnunarfé Þyrlusjóðs og gjafir
hafa verið ávaxtaðar í öruggum
verðbréfum og spariskírteinum rík-
issjóðs,“ segir í frétt frá stjórn
sjóðsins.
Hinn 31. desember s.l. var Þyrlu-
sjóður gerður upp af Olafi G. Sig-
urðssyni, löggiltum endurskoð-
anda, og var eigið fé sjóðsins þá
kr. 24.406.860. Eignaaukning á
árinu 1995 var með ávöxtun og
gjöfum rúmar fjórar milljónir
króna.
Stjórn Þyrlusjóðs skipa forseti
Slysavarnafélags Islands, Einar
Siguijónsson, Einar Örn Jónsson
sem er fulltrúi nemenda og Guðjón
Ármann Eyjólfsson, skólameistari
Stýrimannaskólans, sem er gjald-
keri sjóðsins.
Gjafir í Þyrlusjóð, -
Björgunarsjóð
stýrimannaskólans í Reykjavík
Gefendur árið 1995:
Anna Arngrímsdóttir, Dalvík,
til minningar um eiginmann sinn,
Kristján Jóhannesson og son þeirra
Þórarin Kristjánsson kr. 125.000.
Finnur M. Finnsson, Kópavogi og
nem. 3. stigs Stýrimannaskólans
9.890. Gréta Halldórsdóttir,
Reykjavík 14.400. Kvenfélagasam-
band Suður Þingeyinga 500.000.
Magnús Guðmundsson og fleiri frá
Stykkishólmi (safnað 1991)
45.198. SigurgeirG. Sigurgeirsson,
Bolungai'vík í sínu nafni og eigin-
konu sinnar heitinnar Margrétar
Guðfinnsdóttur 2.000.000. S.V.D.
Hjálp, Bolungarvík 156.750.
S.V.D. Helga Bárðardóttir, Hellis-
sand 12.014.
Samtals gjafir á árinu 1995
kr.2.863.252.
Þijátíu sahfískréttír
kynntir á Hótel Sögu
VINNSLUSTOÐIN hf. í Vestmanna-
eyjum hefur staðið fyrir kynningu á
saltfíski að undanförnu í samstarfi
við Sigurð L. Hall, matreiðslumeist-
ara. Sigurður hefur verið með kynn-
ingu á saltfiskréttum í Hagkaups-
búðum um allt land og á morgun
tekur við kynning á þijátíu saltfisk-
réttum á Hótel Sögu. Kynningin
stendur í viku.
Réttimir verða matreiddir af Sig-
urði og verður hann á staðnum til
að kynna þá og veita frekari upplýs-
ingar. Saltfiskréttirnir þrjátíu verða
hluti af hlaðborðinu í Skrúð á Hótel
Sögu og verða í boði í hádeginu og
á kvöldin. Bæði er um heita og kalda
rétti að ræða.
„Þetta kom til af því að ég var
að vinna að sjónvarpsþætti í Barce-
lona, þar sem ég fylgdi eftir íslenska
saltfísknum," segir Sigurður. „Þá
komst ég að því að þetta er ein verð-
mætasta afurð sem við seljum úr
landi og fékk mikinn áhuga á salt-
fiskmatreiðslu."
Matreiða saltfisk á nýjan hátt
Hann segir að sér finnist íslend-
ingar verða að læra að matreiða salt-
fisk á nýjan hátt, en ekki festast í
því að sjóða hann og bera hann fram
með í'ófum og kartöflum. Hann tekur
sem dæmi að áður hafi aðeins verið
borðuð soðin ýsa og soðið lambakjöt.
Nú séu í boði fleiri hundruð ýsu- og
lambakjötsréttir. „Það er líka hægt
að elda fleiri hundruð saltfiskrétti,"
segir hann.
„Þorbergur Aðalsteinsson, mark-
aðsstjóri Vinnslustöðvarinnar hf.
innanlands, var sama sinnis og vildi
fara að framleiða saltfisk ofan í Is-
lendinga eins og Spánveija. Þá þarf
fólk ekki að standa í neinu brölti við
að útvatna saltfiskinn í sólarhring
áður en hann er borðaður. Sam-
kvæmt spænsku aðferðinni er hann
útvatnaður mikið og vel, í upp undir
þijá sólarhringa í rennandi vatni, og
þannig er hann í 200 mílna pakkn-
ingunum.“
Sigurður segir að saltfiskurinn
verði hvítari, fallegri og betri þegar
búið sé að útvatna hann svona vel
og þoli meiri matreiðsiu. Það sé
hægt að krydda hann vel og nota
bragðmiklar sósur. Þannig henti
hann mjög vel hinni vinsælu Miðjarð-
arhafsmatreiðslu.
Tilbúinn úr pakkningunum
„Fiskurinn kemur alveg tilbúinn
úr pakkningunum," segir hann. „Þú
nærð bara í þína uppáhaldsuppskrift
og matreiðir hann. Þá erum við
komnir að mínu framlagi. Ég er bú-
inn að vera með kynningu í Hag-
kaupsverslunum um allt land undan-
farið á steiktum saltfisk og verð
núna með Ragnari Vestmann, mat-
reiðslumeistara, á Hótel Sögu. Einn-
ig verður reynt að skapa katalónska
stemmningu með gítarleik.
Til sölu 36 brl. fiskiskip
(eik) með nýlegri aðalvél og tog- og dragnóta-
vindum. Skipið er í mjög góðu ástandi. Selst
án aflahlutdeildar.
Óskum eftir endurnýjunarrétti fiskiskips allt
að 330 rúmmetrum.
MAR skipamiðlun,
sími 565 8584 eða 565 1 700.
Fax 565 8542.
Tll SÖLU
Til sölu
Volvo Penta TMD 102 bátavél, 238 hestöfl,
ásamt gíröxli og skrúfu, árg. 1992, keyrð
6.000 tíma. Er í 40 tonna bát.
Upplýsingar ísíma 421 1351 eða 852 2319.
KENNSLA
Verkstjórar - verkstjórar
Næsta námskeið fyrir fiskvinnsluverkstjóra
verður haldið í Norræna skólasetrinu í Hval-
firði 27.-30. mars nk.
Leiðbeinendur: Þórður Óskarsson, vinnusál-
fræðingur, og Magnús Pálsson, ráðgjafi.
Skráið ykkur sem fyrst!
Starfsfræðslunefnd
fiskvinnslunnar,
símar 560 9670, 897 2727.
Skipstjórnarmenn
Upprifjunarnámskeið í meðferð slasaðra og
notkun lyfjakistu verður haldið 1 .-3. apríl nk.
Skráningar í símum 562 4884 og 852 0028.
Slysavarnaskóli sjómanna.