Morgunblaðið - 13.03.1996, Page 8
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
RÚSSAFISKINUM LANDAÐ
Morgvnblaðið/RAX
• TÖLUVERÐU af svokölluðum
rússafiski hefur verið landað
hérlendis að undanförnu. Miklar
vonir eru bundnar við að löndun
róssafisks til frekari vinnslu hér,
geti skapað mikil umsvif og at-
vinnu í nánustu framtíð, verði
Smugudeilan ekki til að hefta
þessi viðskipti.
Seyðisfjarðarbær vill selja
hlut sinn í Dvergasteini
Reynt að fá nýja
aðila í fyrirtækið
Á VETTVANGI bæjarstjórnar Seyðis-
fjarðar er um það rætt að reyna að selja
hlutabréf bæjarins í Fiskiðjunni Dverga-
steini hf. en bærinn á tæplega 70% hlut-
afjár. Stjórnendur fyrirtækisins eru að
reyna að fá nýtt fjármagn inn í fyrirtækið. Jónas Hallgrímsson bæjarfulltrúi
segir að það hafi verið nauðvörn í atvinnumálum þegar bærinn lagði peninga
í Fiskiðjuna Dvergastein í kjölfar gjaldþrots Fiskvinnslunnar hf. Alltaf hafi
verið um það nokkur umræða að bærinn ætti ekki að hafa svo mikið fé bundið
í atvinnurekstri en hann telur að bærinn hafí lagt um 60 milljónir kr. í fyrir-
tækið. Segir hann að bærinn hafi ekki efni á því liggja með þessa peninga
í fyrirtækinu þegar önnur verkefni bíði.
Samið um smíði
ánýjum
rækjutogara
• GENGIÐ hefur verrið frá
samningum milli Péturs Stef-
ánssonar, útgerðarmanns, og
Aukra Industrier, skipasmíða-
stöðvar í Noregi, um smíði nýs
rækjufrystitogara. Kaupverð
fékkst ekki uppgefið. Aætiað
er að skipið verði afhent 19.
september 1997 og komi í stað
Péturs Jónssonar RE.
Um er að ræða rúmlega 63
meti-a skip að lengd og þrettán
metra breitt. Nýja skipið verð-
ur fjórum og hálfum metra
lengra en Pétur Jónsson, með
500 hestöflum stærri vél eða
4500 hestöfl, útbúið til flot-
vörpuveiða, frystigetan fer úr
50 tonnum í áttatíu tonn og
rafmagnsframleiðslan eykst
úr 1800 kilóvöttum í tvö þús-
und kílóvött.
Ekki hefur verið ákveðið
ennþá hvað gert verður við
Pétur Jónsson, að sögn Péturs
Stefánssonar. Hann segir að
það geti komið til greina að
skipið verði selt. Hann segir
ýmsar ástæður hafa verið fyr-
ir því að ráðist hafi verið í
þessar breytingar, en vill ekki
gefa neitt upp um þær.
Jónas segist hafa vakið máls á því
á vettvangi bæjarstjórnar að hluta-
bréfin yrðu gefin föl og segist ekki
hafa orðið var við neina andstöðu við
þá hugmynd.
Sama hvaðan gott kemur
Jónas segir eðlilegt að heimaaðilum
gefist fyrst kostur á að kaupa hluta-
bréfin. Gullberg hf., sem gerir út togar-
ann Gullver og sér Fiskiðjunni Dverga-
steini fyrir meirihluta hráefnis, er næst
stærsti einstaki hluthafinn í félaginu.
Adolf Guðmundsson framkvæmdastjóri
Gullbergs sem jafnframt er stjómar-
formaður Dvergasteins hf. segir að það
hafi ekki komið sérstaklega til tals að
Gullberg keypti hlut bæjarins. Hann
segir að hlutabréf bæjarins hafi verið
til sölu allt frá því fyrirtækið var stofn-
að svo það væri ekki nýtt, núna væri
rætt um sölu þess í tengslum við bygg-
ingu íþróttahúss.
Adolf segir að stjórnendur Dverga-
steins hafi verið í viðræðum við aðila
um að koma inn í fyrirtækið með
nýtt fjármagn. Það hafi enn ekki
gengið og segist hann vilja fá niður-
stöðu í það mál áður en hann ræði
við aðra aðiia. „Okkur er alveg sama
hvaðan gott kemur,“ segir Adolf þeg-
ar hann er spurður að því hvort þátt-
taka nýrra aðila eða sala á eignarhlut
bæjarins gæti þýtt breytingar á sölu-
málum. Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna selur fyrir Dvergastein eins og
Fiskvinnsluna áður. Adolf tekur það
fram að sölusamtökunum verði ekki
att saman til að þrýsta á þau um
þátttöku, hann sé á móti þannig
vinnubrögðum.
Tap á síðasta ári
Flest árin hefur verið tap á Fiskiðj-
unni Dvergasteini. Ekki liggur fyrir
uppgjör síðasta árs en Adolf á von á
allt að 10 milljóna kr. tapi. Vel gekk
að frysta loðnu á þessari vertíð og
býst hann við að reksturinn verði í
járnum í ár.
FÓLK
Ásta Guðný
formaður STÚA
• ÁSTA Guðný Kristjáns-
dóttir var kjörin formaður
Starfsmannafélags Útgerð-
arfélags Akureyringa,
STÚA, á aðalfundi þess sem
haldinn var í janúar sl. Hlutur
kvenna í stjóminni er góður,
því auk Ástu Guðnýjar eru
tvær konur í aðalstjórn og
tvær í varastjórn. Oskar
Ægir Benediktsson, sem
gegnt hefur formennsku í fé-
laginu síðastliðin fjögur
starfsár, gaf ekki kost á sér
til endurkjörs í embættið.
Ásta Guðný var kjörin í hans
stað, án mótframboðs. Aðrir
í stjórn eru Óskar Ægir
Benediktsson, Andrés Aðal-
bergsson (fulltrúi sjómanna),
Ósk Óskarsdóttir og Erna
Friðriks-
dóttir. Vara-
stjóm skipa
þau Halldór
Ottarsson
(fulltrúi sjó-
manna),
Harpa Jör-
undardóttir,
Elvar Thor-
arensen, Védís Pétursdóttir
og Viðar Marinósson. Kona
gegndi síðast formennsku í
STÚA starfsárið 1988-89.
Ásta Guðný segir það vel við
hæfi að kona taki við for-
mennskunni að nýju, enda
hafi konur ávallt verið í meiri-
hluta í félaginu. „Ég hlakka
til að takast á við þau verk-
efni sem framundan em. Það
hefur verið mikill kraftur í
félaginu undanfarin ár og við
sem skipum nýju stjórnina
stefnum að því að halda áfram
kraftmiklu ogfjölbreyttu
starfi,“ segir Ásta Guðný. Til
marks um hve umfangsmikil
starfsemi félagsins er, nam
velta þess á liðnu starfsári
tæpum 5 milljónum króna.
Ásta Guðný
Kristjáns-
dóttir
Hermann Stefánsson
útgerðarstjóri Borgeyjar
• Hermann Stefánsson hef-
ur verið ráðinn útgerðarstjóri
hjá Borgey hf. frá 6. des. 1995.
Starfssvið hans er að hafa
umsjón með allri hráefnisöflun
fyrirtækisins hvort sem er um
eigin skip að ræða, fasta lönd-
unarsamninga eða kaup á
mörkuðum. Hermann er 25
ára borinn og barnfæddur
Hornfirðingur. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð 1990 og lauk
B.s. prófi í sjávarútvegsfræð-
um frá Háskólanum á Akur-
eyri vorið 1995 og hefur unn-
ið að ýmsum sérverkefnum á
vegum Borgeyjar á síðasta
ári. Ólafur Magnússon sem
áður gegndi stöðu útgerðar-
stjóra hvarf til starfa á Kamt-
sjatka á vegum íslenzkra
sjávarafurða.
Ölafur sér um vinnslu
upplýsinga hjá Granda hf
• ÓLAFUR Friðriksson iðn-
rekstrarfræðingur hefur verið
ráðinn til þess að hafa umsjón
með upplýsingavinnslu
Granda hf. í Norðurgarði.
Olafur lauk námi í iðnrekstrar-
fræði frá Tækniskóla íslands
um áramótin 1994 og 1995.
Hann hefur starfað hjá Granda
síðastliðin fimm ár, bæði á
sumrin og veturna samhliða
námi, fyrst sem verkamaður
og síðan sem verkstjóri.„Þetta
er nýtt starf sem felur í sér
söfnun og framsetningu upp-
lýsinga er
varða rekstur
Norðurgarðs,
svo sem um
framlegð,
framleiðslu,
afskipanir,
starfsmanna-
hald og fleira.
Ég held utan
um þessa þætti og skila um
þá skýrslu til vinnslustjóra.
Einnig starfa ég áfram sem
verkstjóri í afleysingum sam-
fara nýja starfinu,“ segir Ólaf-
ur.
Meiri humar til Tævan
Ólafur
Friðriksson
• INNFLUTNINGUR á humri
til Tæwan hefur fjórfaldazt frá
árinu 1989 til ársinsn 1994,
eða vaxið úr 1.400 tonnum í
5.900. 82% af humrinum
kaupa Tæwanir frá Ástralíu,
9% frá Nýja Sjálandi og 7%
frá Bandaríkjunum. Ofveiði
samfara slakri veiðistjórnun
hefur leitt til þess að 99% af
humraneyzlu þjóðarinnar er
mætt með innflutningi
Reykt loðna í portvínssósu
ÁFRAM er haldið nieð loðnuuppskriftir fyrir þá sem
langar til að bragða á þessu gulli hafsins. Um er að
ræða reykta loðnu í rjómalagðri port-
vínssósu og er þetta forréttur fyrir fjóra.
Það er Stefán Úlfarsson, matreiðslumeistari hjá Þremur
frökkum, sem leggur uppskriftina til að þessu sinni. í
réttinn þarf:
25 reyktar loðnur (hrygnur)
50 gr lauk
50 gr sveppi
50 gr papriku
100 ml fiskisoð
1 msk smjör
150 ml rjóma
‘Atsk paprikuduft
1 hvítlauksrif
Skerið grænmetið í smáa strimla. Skerið hausinn af
loðnunni og veltið henni upp úr hveiti. Setjið grænmet-
ið og loðnuna á heita pönnu með smjöri og látið krauma
í stutta stund. Snúið síðan við og kryddið með papriku-
dufti og hvítlauk. Hellið vininu á pönnuna og svo fiski-
soðinu. Látið sjóða í Vi til 1 minútu. Takið fiskinn var-
lega af pönnunni og leggið hann á fat.
Hellið rjómanum út á pönnuna og sjóðið þar til sósan
þykknar. Bragðbætið með salti og portvíni eftir smekk.
Hellið sósunni yfir fiskinn og berið fram með hrísOT'ón-
um.