Morgunblaðið - 21.03.1996, Qupperneq 1
t
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
D
1996
FIMMTUDAGUR 21. MARZ
BLAÐ
BLAK
Morgunblaðið/Sverrir
Eiður Smári lék síðari
hálfleik gegn Barcelona
Hefði átt
að skora
EIÐUR Smári Guðjohnsen
kom inn á sem varamaður
og iék allan síðari hálfleik-
inn með PSV Eindhoven
gegn Barcelona í UEFA-
keppninni í fyrrakvöld.
Leiknum lauk með sigri
Barcelona, 3:2, sem vann
því samanlagt 5:4 og
kemst áfram en PSV er
úr leik.
„Ég vissi ekki að ég
ætti að fara inn á fyrr en
við komum út úr búnings-
klefanum í leikhléi. Þá
sagði Diek Advocaat, þjáifari, að ég ætti að fara
inn á. Hann sagðist hafa gleymt því að láta mig
hita upp í hálfleiknum og ég fór því inn á kald-
ur,“ sagði Eiður Smári sem var settur í fremstu
víglínu.
Hann sagði gaman að fá tækifæri í svona stórum
leik. Hann fékk tvö góð marktækifæri, það fyrra
strax á fyrstu mínútu hálfleiksins og aftur fimm
mínútum síðar. „Fyrst átti ég skot úr vítateignum
sem fór rétt yfir og síðara færið var reyndar enn
betra og ég var klaufi að skora ekki. Ég fékk
sendingu inn í teiginn og reyndi að stýra boltanum
með skalla í Qærhornið, en boltinn fór fyi’st í jörð-
ina og markvörðurinn náði til hans í tæka t£ð,“
sagði Eiður Smári við Morgunblaðið í gær.
„Menn voru svakalega svekktir að tapa þessum
leik því við vorum miklu betri, sérstaklega í seinni
hálfleik. Við sóttum mjög stíft og þeir fengu að-
eins eina skyndisókn í lokin sem þeir nýttu vel.
[Johan] Cruyff, þjálfari Barcelona, viðurkenndi
eftir leikinn að þeir hafi verið heppnir að vinna.“
Þetta var sjötti leikurinn sem Eiður Smári kem-
ur inn á sem varamaður í aðalliði PSV. Hann lék
í hálftíma með liðinu i deildinni um síðustu helgi
í markalausu jafntefli gegn Utrecht. PSV leikur
á útivelli gegn Groningen um næstu helgi.
Mörkin verða
ekki stækkuð
KNATTSPYRNUMÖRKIN verða ekki stækkuð,
eins og hugmyndir voru um. Alþjóða knattspyrnu-
sambandið (FIFA) hefur tilkynnt þetta, en eins
og hefur komið fram þá kom upp hugmynd um
að hækka markið um 25 sm, sem nemur einni
boltabreidd, og lengja það um 50 sm. FIFA hefur
einnig ákveðið að heimila sjö varamenn í stað
fimm eins og verið hefur.
Þróttur
vann fyrsta
leikinn
ÞRÓTTUR sigraði í fyrsta úrslita-
leiknum í karlaflokki á Islands-
mótinu í biaki í gærkvöldi. Þrótt-
arar fengu þá Stjörnumenn úr
Garðabæ í heimsókn í íþróttahúsið
við Austurberg í Breiðholti og
sigruðu 3:2. A myndinni hefur
Einar Sigurðsson Sljörnumaður
(8) reynt skell yfir netið, en Þrótt-
ararnir Valur Guðjón Valsson (4)
og Áki Thoroddsen (8) reyna að
forða sér því Einari hefur bersýni-
lega ekki tekist ætlunarverk sitt.
Knötturinn er ekki á leiðinni í
gólfið. Liðin mætast aftur í
Garðabæ annað kvöld en það lið
verður íslandsmeistari sem sigrar
í þremur leikjum.
■ Þróttarar / D5
HANDKNATTLEIKUR
Alfreð Gíslason, þjálfari KA, eftir sfóran sigur á FH-ingum á Akureyri
Lékum mjög vel
Við lékum mjög vel í þessum leik
og ég er mjög ánægður með
strákana," sagði Alfreð Gíslason,
þjálfari KA eftir að
ReynirB. lið hans hafði sigrað
Eiríksson FH-inga úr Hafnar-
skrilar frá firði með átta marka
Akureyri rnun, 34:16, í fyrsta
leik liðanna í undanúrslitum 1. deild-
ar karla í handknattleik á Akureyri
í gærkvöldi.
„Við höfðum fjögurra marka for-
ystu í hálfleik og það skiptir gríðar-
lega miklu máli í leik sem þessum.
FH-ingar náðu sér aldrei á strik í
síðari hálfleik og þegar við vorum
komnir með 6 marka forystu um
miðjan hálfleikinn fannst mér þeir
gefa leikinn og hætta, markatalan
skiptir ekki máli í þessari keppni."
Alfreð sagðist telja muninn á lið-
unum í gærkvöldi ekki vera lýsandi
fyrir getu liðanna „því þau eru mjög
áþekk að mínu mati. FH-ingarnir
mæta örugglega ákveðnir til leiks
gegn okkur á föstudaginn og það
verður hart barist.“
Óðagot á okkur
„Við lékum ágætlega framan af
og jafnt var á með liðunum, en eftir
að við komust yfir um miðjan fyrri
hálfleik, kom óðagot á leikmenn
mína. Þeir fóru að ljúka sóknum
alltof fljótt og þá er ekki að sökum
að spyija þegar leikið er við lið eins
og KA,“ sagði Guðmundur Karlsson,
þjálfari FH. „Við áttum slakan dag
í vörninni og má segja að hvorki
vörnin né markvarslan hafi farið í
gang í leiknum og það gerir auðvit-
að gæfumuninn. Við verðum að taka
okkur saman í andlitinu fyrir næsta
leik og gerum mun betur en að þessu
sinni. KA var mun betra liðið í kvöld
og átti sigurinn fyllilega skilinn."
■ Sterkur / D4
Morgunblaðið/Kristján
JÓHANN G. Jóhannsson
leikmaður KA í skotfæri
gegn FH í gærkvöldi á Akur-
eyri, kominn framhjá Sigur-
jóni Sigurðssyni.
LIVERPOOL OG CHELSEA í UNDANÚRSLIT ENSKU BIKARKEPPNINNAR / D8