Morgunblaðið - 30.03.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.03.1996, Blaðsíða 4
4 C LAUGaRDAGUR 30. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARZ 1996 C 5 afmarkað með járngrindum eins og búr og engir hlutir eru notaðir í sýn- ingunni utan þrír járnstólar, allt annað er táknað með látbragði. Stílfærðar hreyfingar og notkun ljóss og skugga einkenna sýninguna. Og örvæntingin, innilokunin og óhugnaðurinn er skýrt dreginn fram. Berkoff gerði einnig leikgerð upp úr bókinni Réttarhöldin sem er sömu- leiðis eftir Kafka. í þeirri leikgerð notaði hann tveggja metra háa ramma úr járni. Þessir tíu rammar var öll sviðsmyndin. Þeir voru hreyfanlegir, þannig að eina stundina gátu þeir myndað gang eða dyr, þá næstu her- bergi eða fangelsi, allt eftir því sem atriðið þarfnaðist. Annar höfundur sem Berkoff hefur hrifist mjög af er Edgar Allen Poe og hefur hann meðal annars gert leik- gerð úr sögunum The Fall of the House of Usher og Tell Tale Heart. Seinna verkið flutti hann þarna á Edinborgarhátíðinni. Það eina sem var á sviðinu var Berkoff sjálfur og eitt eltiljós sem lýsti hann upp. í vængnum sat hljómborðsleikari sem fyllti inní þau hljóð sem sýningin krafðist, svo sem fótatak niður stiga. Allt annað sá Berkoff um sjálfur. Hann lék allar persónurnar í verkinu, sá um flest leikhljóð eins og ískur í hurð og not- aði látbragð til að sýna hluti og annað sem persónan þarfnaðist. Allar per- sónur, hreyfingar og leikhljóð voru mjög ýkt. Krafturinn sem hann gaf hvetju andartaki fyllti húsið. Þegar líða tók á sýninguna var eins og hann væri nýkominn úr sturtu því svitinn fossaði af honum. Það mátti furðu sæta að þessi tæplega sextugi maður gæti þetta allt. Tæknin var gífurleg en um leið var hann fijáls í öllu því sem hann gerði. Ég sá þessa sýningu þó nokkuð oft og engin sýning var eins. Hann hikaði ekki við að spinna ef svo bar undir og tók inn öll óvænt atvik sem ævinlega koma upp á í leik- húsi og notaði þau til hins ítrasta. Til dæmis ef einhver áhorfendanna fékk hóstakast þá tók hann um bijóstið með vorkunnarsvip og með látbragði gaf hann til kynna að viðkomandi ætti að fá sér hóstamixtúru. Eftir sýningu velti hann sér upp úr smáatr- iðum og spáði í hvað hann gæti gert til að fullkomna sýninguna enn frekar. Með því að bölva og brjótast um næst eins konar hreinsun Berkoff gerir ekki eingöngu leik- gerðir upp úr sögum annarra. Hann Steven Berkoff er einn þekktasti leikhús- maður Breta. Hann hefur samið bæði leik- verk, leikstýrt og leikið, en öll hans verk eru mjög stílfærð. Bergljót Arnalds vann með honum á Edinborgarhátíðinni fyrirtveimur árum og segir hér frá kynnum sínum af þessum einstæða listamann. ÚR HAMSKIPTUNUM eftir Kafka í leikgerð Sevens Berkoffs. Ballett- dansarinn Mikhail Baryshnikov er fyr- ir miðju sem Gregor Samsa. sem þú hatar að el FYRSTU kynni mín af verkum Stevens Berkoffs komu mér næstum til að kasta upp. Einn bekkjarbróðir minn rétti mér bók með verkum hans og sagði mér að ég yrði að lesa þetta frábæra eintal. Lýsingarnar voru væg- ast sagt krassandi. Ég verð samt að viðurkenna að ég var ekki nærri því eins heilluð og bekkjarbróðir minn. Vissulega var eintalið áhrifaríkt og vel skrifað, en ég kunni engan veginn við þær tilfinningar sem það vakti með mér. Smátt og smátt komst ég að því hvað þessi maður er dýrkaður í leik- húsheiminum í Bretlandi, en það var ekki fyrr en ég lék í leikriti eftir hann sem ég skildi hvers vegna svo var. Það var leikritið Agamemnon sem byggt er á samnefndum forn-grískum harmleik eftir Aiskýlos. í verkinu lék ég Klýtemnestru, blóðheita eiginkonu Agamemnons, sem í hefndarhug myrðir eiginmann sinn í baði. Klýtem- nestra er miðjan í þessu verki Ber- koffs og þar fær maður að kynnast forsendum hennar fyrir glæpnum og á vissan- hátt verður hann réttlætan- legur. En það var ekki það sem heill- aði mig hvað mest, heldur sú ádeila sem beint er að stríði og öllu ofbeldi almennt og svo tungumálið sem þessi snjalli rithöfundur notar. Það er allt í senn, ástríðufullt, tryllt og blítt, hrátt og ljóðrænt. Öfgar er það sem ein- kennir Steven Berkoff mest og er það því engin furða að sumir gagnrýnend- ur hafa kallað hann „manninn sem þú hatar að elska“ því hann vekur með manni svo öfgafullar og ólíkar tilfinningar. Lifandi goðsögn Ég kynntist Steven Berkoff per- sónulega stuttu seinna á Edinborgar- STEVEN Berkoff sem Heródes í uppsetningu sinni á Salome eftir Oscar Wilde við National Theatre í London 1989. BERGLJÓT Arnalds sem Klýtem- nestra í Agamemnon. hátíðinni þar sem ég var að leika Queen Margaret í samnefndu verki. Berkoff var þarna með sýninguna One Man. Um kvöldið þegar ég hafði séð sýninguna hans ákvað ég að ég yrði að kynnast þessum manni og var að velta því fyrir mér hvernig ég gæti komið því til leiðar. Hvort það væri einhver möguleiki að fá að taka viðtal við hann en hann er ekki auðfenginn í viðtal. Þá gerist allt í einu hið ótrú- lega, síminn hringir og mér er boðið að vinna með honum á meðan á sýn- ipgum hans stendur þarna í Edinborg. Ég tók auðvitað boðinu um leið án þess að gera mér grein fyrir því hvað ég væri að leggja út í. Málið er það að Steven Berkoff er jafn öfgafullur í samskiptum og hann er í verkum sínum. Ég mætti rétt fyrir sýningu daginn eftir og tók strax eftir því hvað starfs- fólkið bar óttablandna virðingu fyrir honum. Menn gengu með veggjum og reyndu að komast hjá því að yrða á hann. Ég komst fljótlega að orsök- inni. Ef Berkoff var í vondu skapi, sem hann var í minnst einu sinni á dag, þá hikaði hann ekki við að öskra og hreyta fúkyrðum í fólk eða jafn- vel henda því út. Það var nóg að þjón- usta á veitingastað væri ekki fyllilega eftir hans þörfum og kröfum þá var allt sett á annan endann. Sama gerð- ist ef hann var glaður þá heltók örlæt- ið hann og þá var dekrað við fólk. Vandamálið var að enginn vissi hve- nær fyki í hann næst og hve lengi það myndi endast. Eftir tíu daga var ég farin að dreypa á viskí áður en ég fór til vinnu svona rétt til að styrkja hjartað og á einhvern undar- legan hátt skiidi ég allt í einu að menn eins og Hitler hafa verið til og finnast enn. Enda er Berkoff haldinn mikilmennskubrjálæði og er sann- færður um að hann sé lifandi goð- sögn. Með fullkomnunaráráttu Af hveiju? Jú, hann hefur gert mörg meistarastykki um dagana. Þá ber fyrst að nefna leikgerð hans á Hamskiptunum eftir Kafka. Þessi leik- gerð var meðal annars sýnd í Ríkis- sjónvarpinu fyrir fjölmörgum árum og ég þori að ábyrgjast að þeir sem hafa séð hana munu aldrei gleyma henni. Allar leikgerðir og leikverk sem Ber- koff hefur skrifað eru mjög stílfærð og er svo með þetta verk. I sögunni vaknar Gregor Samsa við það einn morguninn að hann hefur breyst í bjöllu. A sviðinu er herbergið hans Maðurinn ÞÓTT Norræna kvikmyndahá- tíðin í Rúðuborg sé ekki alþekkt í Frakklandi nýtur hún virðingar alls konar fólks og vinsælda sem vaxa smám saman án þess sð stíga nokkrum til höfuðs. Vingjarnlegt andrúmsloft ein- kennir hátíðina, bjartsýnt og létt hvað sem hver segir um norrænan drunga. Húmor, sennilega sérstakur fyrir Norðurlönd, var líka aðal margra nýju myndanna. Verðlaunamyndirnar Síð- asta brúðkaupið (finnsk) og Egg (norsk) eru ágæt dæmi um þetta, lymskulega grámyglukímni undir lö- berum og kommóðum. Dramatísk frásögn og fallegar myndir eru eins og margir vita rauði þráðurinn í Agnesi, einu íslensku kvik- myndinni á hátíðinni. „Þetta er eflaust amerískari mynd en hinar,“ segir leik- stjórinn Egill Eðvarðsson, sem kom ásamt Maríu Ellingsen leikkonu til Rouen. „Frásagnarmátinn er hefð- bundinn með miklum sviptingum fyrir breiðtjald,“ bætir hann við og mér verður hugsað til þess sem ítalskur áhorfandi sagði eftir myndina: Þetta er almennilegur íslenskur vestri - stórkostlegt landslag, blóð, ást og hatur. Fullur salur áhorfenda var á öllum sýningum Agnesar og aðsókn almennt mjög góð á hátíðinni. Til að fá sæti var eins gott að vera mætt í biðröð hálftíma fyrir sýningu. Áhorfendum gáfst kostur á að kjósa bestu myndina og lágstemmd norsk landsbyggðar- saga varð fyrir valinu. Egg heitir rriyndin og fjallar um tvo roskna bræð- ur, Moe og Per, sem hafa fastmótað daglega siði og ósiði í áratuga sam- búð. Hljóðlátt líf þeirra með graut og lýsi, pípu og útvarpi tekur nokkrum breytingum með komu frændans Konráðs, tröllaukins í hjólastól með eggjakassa í fanginu. Myndin verður frumsýnd í frönsk- um kvikmyndahúsum í byrjun apríl og á eftir að skemmta Frökkum ef dæma má af hátíðinni í Rúðuborg. ÚR NÚLL gráður á Kelvin SÍÐASTA brúðkaupið fékk aðalverðlaunin Sálarstríð var háð í lúmsku gríni, fallegu landslagi, vel hönnuðum sófum og glösum í norrænum kvikmyndum í Rúðuborg á dögunum. Þór- unn Þórsdóttir segir frá Norrænni kvikmyndahátíð sem haldin var í níunda sinn nú fyrir skömmu á franskri víkingaströnd. Endirinn var erfiðastur eins og svo oft, fólk fann það helst að myndinni að hann hefði ekki gengið upp, en leikstjórinn Bent Hamer segist einmitt hafa viljað skilja lausa enda eftir. Landi hans, Hans Petter Moland, hlaut verðlaun ungra áhorfenda sem hafa frá upphafi verið margir og sprækir á hátíðinni. Mynd Molands, Núll gráður Kelvin (Kjærlighetens kjöt- ere), gerist árið 1925 á Grænlandi. Ungur rithöfundur er hryggbrotinn „í bili“ í Noregi og heldur til Grænlands til að herða sig á veiðum með öðrum sönnum karlmönnum. Raunir hans þar blandnar draumum um meinta unnustu eru efni myndarinnar og umgjörðin alveg rétt, Grænland virðist nefnilega vera í tísku meðal listamanna af öllu tagi og eldra efni þaðan líka dregið fram í dagsljósið. Grænland er einmitt uppáhaldsland danska heimildagúrúsins Jörgens Ro- os, en yfirlit verka hans var sýnt á hátíðinni. Tveir kvikmyndagerðar- menn aðrir voru teknir fyrir á þennan hátt: Norski brautryðjandinn Tancred Ibsen (1893-1978) og Svíinn Bo Wid- erberg (f. 1930) sem er þekktastur fyrir Elvira Madigan (1967), Ádalen 31 (1969) og Joe Hill (1971). Wider- berg var manna frægastur á Rúðu- borgarhátíðinni í ár og hann mátti vera ánægður með sinn hlut. Eftir tíu ára sjónvarpsvinnu sýnir hann nýja mynd sem á frummálinu heitir Lust og fágring stor. Hún var sýnd í Rúðu- borg til viðbótar eldri verkum hans og sonur Widerbergs, Johan, hlaut fyrir vikið viðurkenningu dómnefndar fyrir bestan leik karlmanns. Bestu leikkonurnar voru að mati dómnefndar Sofie Gráböl og Anneke von der Lippe í norsku myndinni Pan eftir Henning Carlsen. Hilmar Örn Hilmarsson samdi tón- listina við þessa sögu Knuts Hamsun um vonlausar ást- ir veiðimanns og kaup- mannsdóttur í Norður- Noregi um miðja síðustu öld. Býsna ólík mynd, Tveir menn í sófa, þótti besta byijendaverkið. Myndin er dönsk og leikstjórinn Amir Rezazadeh sýnir vin- ina Pierre og Sören sem leigja saman íbúð og halda það út þótt þeir séu eins FURÐUFUGLAR í Eggjum og svart og hvítt. Annar kvennamaður á sífelldum veiðum og hinn gruflandi listamaður með annan fótinn á geð- deild. Eftir eina vistina þar fær hann þá frétt að kærastan hafi gefist upp á honum. Kvennamaðurinn reynir að grípa til sinna ráða. Aðalverðlaun dómnefndar fóru til Finnans Markku Pölönen sem sagði af ófinnskum innileik þar sem hann velti verðlaunagripnum milli hand- anna uppi á sviði, að á þessu augna- bliki elskaði hann alla viðstadda. Meira fékkst ekki upp úr honum, menn urðu að sjá myndina um sorgleg afdrif smábæjar og gagnslausan svita feðra og mæðra sem unga fólkið skil- ur eftir í gráma. Það vill heldur slegin tún og smjörstrá í Svíþjóð en gleymir samt ekki alveg lítilli æskuást heima í þorpinu. Svo er þar haldið síðasta brúðkaupið og sýnd veislan einn góðan ágústdag. Enn eru ónefndar tvær myndanna sem dómnefnd skoðaði: Lostinn eld- ingu eftir Litháann Algimantas Puipa og Bella mín Bella eftir Astrid Henn- hefur sjálfur skrifað mörg frumsamin verk. Langar mig þá helst að nefna East, West og Decadence. East er byggt á uppvaxtarárum Berkoffs en hann ólst upp í austur- hluta London. Um æsku sína segir hann meðal annars. „Það þekktist ekki að halda aftur af sér heldur var lifað fyrir andartakið og meiningin sögð umbúðalaust. Ef eitthvað var að angra mann var því hleypt út á eins öfgafullan hátt og mögulegt var. Þetta var gert í þeirri trú að með því að bölva og bijótast um næðist eins kon- ar hreinsun. Þannig væri hægt að losna við það sem íþyngdi manni.“ West íjallar aftur á móti um hug- rekki. Kjarkinn til að vera trúr sjálfum sér og hegða sér ekki samkvæmt vilja annarra. Það getur kostað fjarðlægð frá öðrum en er um leið þess virði þar sem það undirstrikar mikilvægi sjálfs- ins. Einsemd og nöturleiki er eitthvað sem einkennir mörg verka Berkoffs. Decadence ijallar um hástéttina í Bretlandi. Fólkið sem er hálfkyrkt í eigin sérhljóðum þar sem röddin situr föst aftast í hálsinum, klemmd til að sýna eins litlar tilfinningar og hægt er. Samhljóðarnir eru aftur á móti harðir og bítandi eins og til að klippa á sérhljóðana þar sem tjáning líðan og tilfinninga gæti heyrst. Berkoff hefur gert bráðfyndna bíómynd upp úr þessu verki og leikur hann annað aðalhlut- verkið á móti Joan Collins. Að auki hefur Berkoff leikið í íjölmörgum am- erískum bíómyndum þar sem hann leik- ur (auðvitað) vonda kallinn. Ósnertanlegur og einn Steven Berkoff er einn af þeim fáu listamönnum sem hefur tekist á við ólík verkefni, þ. e. leikið, skrifað og leikstýrt og verið afreksmaður á öllum sviðum. Hann hefur þróað einstakan leikhússtíl með látbragði, skáldlegum texta og ýktum leik. Allt hefur í sjálfu sér verið gert áður, en það hefur aldr- ei áður verið gert á þennan hátt. Stundum þegar við gengum um götur Edinborgar þá var hrópað á eftir hon- um „genius“ eða snillingur. Á vissan hátt er hann það. Fólk virtist annað- hvort hata hann eða dýrka og þannig vildi hann hafa það. Að vera ósnertan- legur er erfitt því þá stendur maður um leið einn. Kannski var það engin tilviljun að þessi sýning hans í Edin- borg hét One Man. Þar stóð hann einn á sviðinu með eitiljósið í augum, svita- pollinn við tærnar og endalausar sæt- araðir af fólki fyrir framan sig. ing-Jansen frá Danmörku. Sú fyrri er draumkennd og ruglingsleg og eiginlega gamaldags að því leyti. Danskennari nokkur er miðpunktur myndarinnar, mikill listamaður og þrúgaður af þeirri trú að hann sé fugl. Ást hans á lítilli stúlku sem sér það líka og verður dansandi fuglkona, endar með ósköpum. Þarna eru gull- falleg myndskeið en heildin of laus til að halda þeirri sem þetta skrifar. Danska myndin um skólastúlkuna Bellu sem reykir hass og skrópar og mömmu hennar sem er falleg fræði- kona hefði kannski alveg eins hentað sjónvarpi. Mjög vel gerð og sérlega dönsk, með fallegum litúm og hlutum og raunsæislegum vandamálum. Huggulegar konur með áhyggjubauga undir augunum og klaufalegir elsk- hugar þeirra. Óneitanlega lítil elli- merki á leikstjóranum sem kominn er yfir áttrætt. Myndir Eystrasaltsríkjanna eru líka með á hátíðinni í Rúðuborg og gaf að líta sýnishorn nýrrar framleiðslu. Þá hafði sænsk erótík sjötta áratugar- ins orðið fyrir valinu og nokkrar mynd- ir sýndar í þeim flokki og Ioks voru áberandi bræðurnir Kaurismaki eða öllu heldur leikarinn Matti Pellonpáá. Hann lést nýlega og var minnst með sýningu tíu mynda sem hann lék í. Stuttmyndir frá Noregi, Finnlandi og Danmörku voru ennfremur á hátíð- inni. í heildina var hún fjölbreytt, með ólíkum myndum, alveg nýjum og svo sígildum, sveittum og örvæntingar- fullum leikurum og síðan hlæjandi og fallegum. María Ellingsen segir frá- bært að fá að sýna Agnesi áhorfendum sem ekki séu að spekúlera í hvar lús sé eða skalli - dæmi aðeins eftir myndinni en ekki fyrirfram mótuðum hugmyndum. Þeim Maríu og Agli finnst Agnes ekkert sérstaklega nor- ræn og vilja kannski ekki endilega njörva myndir niður eftir þjóðerni. Þess vegna líkaði þeim flóran í Rúðu- borg, orkan og breytileikinn. Morgunblaðið/Ásdís VERK eftir Andreu S. Hjálmsdóttur. Gull og gersemar Hönnunar- og handverksfólk vill leggja áherslu á íslensk séreinkenni. Þóroddur Bjarnason leit inn á sýningu í Hafnarhúsinu. GULL og íslenskar gersemar er heiti sýningar sem stendur yfir í Hafnarhús- inu við Tryggvagötu. Sýn- ingin er samstarfsverkefni Hand- verks, sem er þriggja ára reynslu- verkefni á vegum forsætisráðuneytis- ins, og félags íslenskra gullsmiða. Sýningin hefur það að markmiði að vera hvati fyrir nýjar hugmyndir í efnisnotkun gullsmiða og miðað var við að nota efnivið sem væri einkenn- andi fyrir ísland og íslendinga. Á sýningunni má sjá bæði skart og nytjahluti. Þátttakendur í sýningunni eru 20 talsins, á öllum aldri. Að sögn Guðrúnar Hannele Henttinen verk- stjóra Handverks reynsluverkefnis tókst mörgum vel upp með nýsköpun og notkun íslenskra efna en öðrum lakar að hennar mati. „Fólk tók sér ýmislegt fyrir hendur og hannaði skart, verðlaunagripi, höggmyndir og bókapressur svo eitt- hvað sé nefnt. Sumir virtust mis- skilja þemað og notuðuð efni sem eru búin til hér á landi en eru kannski ekki einkennandi fyrir land og þjóð. Hér er eitt dæmi um velheppnað verk,“ segir hún og bendir á högg- mynd úr málmi eftir Hauk Valdi- marsson en hann notar lundanef í sín verk sem verður að teljast nokkuð frumlegt. „Þetta finnst mér stórgóð hugmynd," segir Guðrún, „Hann er ungur og óheftur og leyfir sér að fást við óhefðbundin efni.“ Fljótlega verður blaðamaður var við nýstárlegt efni sem er sútað og litað fískroð sem gjarnan er sett með gulli og silfri inn í gripi og nokkrir sýnendur nota. Efnið er frá fyrirtæk- inu Sjávarleðri sem hefur stillt upp nokkrum sýnishornum af framleiðslu sinni í öðrum sal. Snittuspaði Guðrún sagði handverk vera blóm- legan iðnað í nágrannalöndunum og í Bandaríkjunum velti hann miklum fjárhaiðum ár hvert. „Þetta er um- hverfisvænn iðnaður öfugt við marg- an annan iðnað auk þess sem hand- verksfóik nýtir mikið hluti sem ann- ars er hent. Það þarf að styðja við bakið á þessum iðnaði því við missum svo mikið ef við hættum að vinna með höndunum." Salurinn er svartmálaður og nokkrir gripir eru settir upp á gólfinu en flestir eru undir glerhöttum sem Félag íslenskra gullsmiða á og eru nauðsynlegir á svona sýningu til áð vernda gripina að sögn Guðrúnar. Sérstakur hönnuður sá um útlit sýn- ingarinnar. Andrea Sigrún Hjálmsdóttir er ein þeirra sem eiga verk á sýningunni HAUKUR Valdimarsson not- ar lundanef í verk sitt. og er hún jafnframt sú eina sem ekki hefur lokið námi en hún lýkur námi nú í vor. Hún sýnir hálsmen, sem jafnframt er sveinsstykki henn- ar, tertuspaða og snittuspaða sem klæddur er fiskroði. Aðspurð hvort roðið þyldi majones og slíkt sem fylgdi snittum sagði hún að svo væri, þó lítil reynsla væri komin á það. „Mér fannst það of dæmigert að setja roðið á handfangið svo ég setti það frekar á spaðann sjálfan. Það er nauðsynlegt að bera reglulega silicon á hann til að vernda „sjávarleðrið", sagði Andrea. Aðspurð hvort gullsmiðir hefðu mikið samband sín á milli sagði hún að stéttin væri frekar fámenn og því þekktust flestir og samstaða væri á milli þeirra þó auðvitað ættu þeir alltaf líka í samkeppni. Hún sagði að gullsmiðir væru dálítið fastir í hefðinni og notkun steina ýmiskonar væri algengust, það væri skiljanlegt því gullsmiðir stjórnuðust að ein- hveiju leyti af markaðnum sem vill gull, silfur og demanta. „Þú kaupir ekki gullnælu með innfelldu timbri í handa konunni í morgungjöf. Þú kaupir demant,“ sagði Andrea. Áður en blaðamaður yfirgaf salinn leit hann yfir verkin og vakti verk Sigurðar G. Steinþórssonar athygli fyrir hnyttni en hann hefur mótað Perluna agnarsmáa á stein auk þess sem hann hefur gert litlar hörpuskelj- ar og Iaxaflugu. Harpa Kristjánsdótt- ir er líklega ein þeirra sem eru á mörkum þess að teljast vera að nota íslenskan efnivið því hún notar gúmmí og ryðgaða bolta í bland við gull og silfur en er óneitanlega frum- leg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.