Morgunblaðið - 30.03.1996, Blaðsíða 6
6 C LAUGARDAGUR 30. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ARIÐ 1995 var á margan
hátt merkilegt frá
sjónarhóli bókaútgáfu og
bókasölu því í jólabóka-
vertíðinni kom upp geysimikið
kapphlaup um kaupendur. Markað-
urinn krafðist þess að bækur væru
í boði á lægra verði en því sem
bókaútgefendur höfðu tilgreint í
verðlistum sínum. Verslanir á borð
við Bónus og Hagkaup gerðu kröfu
á útgefendur um að þeir gæfu
aukna afslætti og síðan fylgdu aðr-
ar bókaverslanir í kjölfarið. Þegar
upp var staðið virtust bókaútgef-
endur nokkuð ánægðir með sinn
hlut, að minnsta kosti þeir stærstu.
Þeir smærri, sem ef til vill voru
aðeins með eina bók, voru illa í
stakk búnir til að taka á sig þessar
lækkanir eins og fram kemur í pistli
sem birtist í Mprgunblaðinu 12.12.
en þar fjallar Ólafur M. Jóhannes-
son um vanda þeirra sem gefa út
fáar en vandaðar íslenskar bækur
sem eru að sjálfsögðu dýrar í fram-
leiðslu. Að hans mati eru bæði litlir
útgefendur og litlar bókabúðir í
hættu fyrir óheftum markaðsöflum
á bókamarkaði. Hver áhrif þessi
breyting hefur á bókamarkaðinn
þegár til lengri tíma er litið er ekki
hægt að meta á þessari stundu en
þó má telja öruggt að bamabóka-
höfundar hafi notið góðs af þessu,
a.m.k. fyrir þessi jól. Einnig tel ég
að fleiri bækur hafi lent í pakka
bama fyrir jólin einmitt vegna þess
að með lækkuninni urðu bækur
viðráðanlegri í verði.
Eins og á undanförnum ámm
hefur bókaútgáfa fyrir börn og
unglinga verið metnaðarfull og á
árinu 1995 komu út bækur fyrir
alla aldurshópa, vandaðar bækur,
fallega útgefnar og fjölbreyttar
miðað við hvað markaðurinn er þó
takmarkaður. Árið 1994 fækkaði
talsvert bókum fyrir börn og ungl-
inga frá fyrra ári. Á árinu 1995
var fjöldinn svipaður og árið áður,
þ.e. um 40 frumsamdar bækur og
um 60 þýddar og er þá allt talið,
smábækur í ritröðum, endurútgáfur
og ýmislegt smælki. Hér hefur orð-
ið fækkun um þriðjung frá þeim
tíma er mest var gefið út fyrir börn.
Fyrir yngstu börnin
Nokkrar fallegar og vandaðar
íslenskar myndabækur komu út á
árinu og er það aðdáunarvert að
bókaútgefendur skuii leggja í slíka
útgáfu því það hlýtur að vera mikið
vafamál að hún standi undir kostn-
aði. Af þessum bókum má nefna
Einu sinni var raunamæddur risi
eftir Áslaugu Jónsdóttur sem er
STRÁKUR eftir Halldór Baldursson úr Sögunni
af húfunni fínu eftir hann og Sjón
Lestrarefni ungu kynslóðarinnar
Kapphlaupið
ogkjarninn
í fyrra kom upp kapphlaup um kaupendur
á jólabókamarkaði. Sigrún Klara Hannes-
dóttir telur að fleiri bækur hafí lent í pakka
bama fyrir jólin vegna verðlækkunar.
Tjú. Þetta er ævintýri um Tótu litlu
sem finnur stein í fjörunni sem
geymir furðuveruna Tjú Tjú. Veran
stækkar og síðan ijölgar hún sér
þar til málið virðist komið úr öllum
böndum. Kaninusaga Illuga Jökuls-
sonar sem Margrét E. Laxness
myndskreytir í svart-hvítu er snjöll
ádeila sem einnig er hægt að lesa
sem skemmtilegt ævintýri.
Frækornið - bókaforlag aðvent-
ista hefur sent frá sér sex bækur
um Matta og ævintýri hans þýdd
úr frönsku. Sögurnar eru ætlaðar
yngstu börnunum og eru sambland
ævintýra og fræðslu. Á ferðalögum
sínum kynnist Matti ýmsum þáttum
sem snerta heilsufar, hreinlæti,
mengun, náttúruvernd, óhollustu
reykinga og ofnotkunar áfengis, og
nauðsyn þess að neyta hollrar og
góðrar fæðu. Bækumar sameina á
skemmtilegan hátt fróðleik og
skemmtun en draga má í efa að
yngstu bömin geti áttað sig á öllum
þeim fróðleik sem í bókunum er en
það gerir ekki svo mikið til því sög-
urnar geta staðið fyrir sínu sem
skemmtibækur.
Sérstök ástæða er til að vekja
athygli á bók Guðrúnar Hannes-
dóttur sem hún kallar Fleiri vísur
handa nýjum börnum. Hér er á ferð-
inni menningarsögulegur viðburður
sem lítill gaumur hefur verið gef-
inn. í þessari bók hefur höfundur
valið gamlar þulur og klætt þær í
ákaflega smekklegan búning með
fallegum myndun og skreytingum.
Margar þessar þulur eru löngu
fallnar í gleymsku en einstaka hafa
birst í bamaljóðabókum og ljóða-
söfnum. Hér má nefna þulur eins
og „Bokki sat í brunni", „Karl fór
yfrum á“, og „Rífðu fyrir mig kinn,
kinn“ auk þess sem þarna eru
nokkrar gamlar barnastökur. Þulur
eru sérstakar fyrir það hversu rím
og rytmi falla vel saman og marg-
sannað er að þessi tegund skáld-
skapar fellur litlum börnum einkar
vel í geð. Böm hafa yfirleitt yndi
af að hlusta á romsur af þessu tagi
og ekki skemmir fyrir að efnið sé
öfgakennt eða meiningarlaust -
hálfgert bull! Þessi bók hlýtur að
vera fengur fyrir alla þá sem hafa
gaman af að lesa fyrir lítil börn.
Leikjabækur
Nokkrar bækur hafa komið út
með leikjum og gríni. Sumar þess-
ara bóka eru vinsælar meðal barna
og unglinga enda er þetta aldurinn
ævintýri fyrir yngstu börnin. Þar
segir frá risa sem leitar að gleð-
inni. Hann hittir fyrir dýr og heyrir
hljóð þeirra en enginn kann að
hlæja. Risinn og dýrin er mjög fal-
lega dregin og bókin öll vönduð og
falleg. Vaka-Helgafell og Verð-
launasjóður íslenskra bamabóka
veitti á árinu aukaverðlaun fyrir
bestu myndabókina og fékk þau
Veislan í barnavagninum, bók sem
er samvinnuverkefni Herdísar Eg-
ilsdóttur og Erlu Sigurðardóttur.
Sagan er bráðsmellin hversdags-
saga og myndimar fullar af lífi og
glettni. Sagan af húfunni fínu er
einnig samvinnuverkefni og þar
eiga hlut að máli Sjón sem semur
textann og Halldór Baldursson sem
á myndirnar. Sagan er ævintýraleg
og textinn sambland af rími og
óbundnu máli. Sigrún Eldjám hefur
skapað sér fastan sess í barnabóka-
útgáfunni með sérstökum myndstíl
sínum. Skordýraþjónusta Málfríðar
er í svipuðum stíl og fyrri verk
Sigrúnar þar sem myndimar
leiftra af sérstakri kímni höf-
undar. Margt býr í sjónum
er myndskreytt saga eftir Gerði
Berndsen þar sem lítil stúlka
dettur í sjóinn og upplifir
ævintýri neðansjávar.
Brian Pilkington mynd-
skreytir nú sögu eftir
Kate Harrison sem
kallast Tóta og Tjú
EINU sinni var
raunamæddur risi.
Mynd eftir Áslaugu
Jónsdóttur úr sam-
nefndri bók hennar
sem þrífst á gríni og bröndumm. Á
síðastliðnu ári kom út bókin Þjóð-
arspaug, sem er væntanlega nýtt
afbrigði af íslenskri fyndni og
geymir 170 íslenska brandara, og
Skemmtileg spumingakeppni sem
ætluð er þeim sem gaman hafa af
því að kanna þekkingu sína. Tvær
aðrar bækur má nefna hér þótt
nokkuð öðruvísi séu en það er bók-
in Áfram Latibær eftir Magnús
Scheving og Siggi hrekkjusvín eftir
Oddnýju Thorsteinsson. Báðar
þessar bækur geyma lýsingar á
gömlum barnaleikjum enda þótt
leikimir séu settir inn í söguþráð
og hægt að lesa sögumar sem
skemmtisögur jafnframt.
Kjarninn
Eins og undanfarin ár er kiami
bamabókaútgáfunnar ritverk
þeirra höfunda sem afkastamestir
eru og markaðurinn er tilbúinn að
taka við nýju verki úr smiðju þeirra
á hveiju ári. Þar er fremstur í flokki
Þorgrímur Þráinsson sem nú sendir
frá sér bókina Sex augnablik. Sögu-
hetjan er sextán ára og í sögunni
rekur hann ævi sina allt til nútím-
ans. Bækur Þorgríms eru geysivin-
sælar og prýða metsölulista á
hveiju ári. Andrés Indriðason á sinn
sess á þessum lista með bók sína
Gallagripir um hrakfallabálkinn
Ása. Guðrún Helgadóttir hefur nú
fært sig til forlagsins Vöku-Helga-
fells og skemmtir sínum lesendum
með sögunni Ekkert að þakka! þar
sem krakkar miðla fullorðna fólkinu
úr fjársjóði sem þeir fínna. Kristín
Steinsdóttir heldur áfram á braut
grínsagna og í sögu hennar
Abrakadabra! er söguhetjan ekki
draugur eins og í fyrri tveim sögum
heldur Argur töframaður sem villist
inn á íslenskt heimili með ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum. Sögur
Kristínar geisla af frásagnargleði
og engum þarf að leiðast að lesa
bækurnar hennar. Systir hennar
Iðunn hefur samið sögu um lítinn
íslenskan dreng í útlöndum í bók-
inni Ævar á grænni grein. Gunn-
hildur Hrólfsdóttir á mjög góða
sögu sem hún kallar Svarta nöglin
þar sem fjallað er um samskipti
barna og fullorðinna á spennandi
en mjög nærfærinn hátt. Gunnhild-
ur er vaxandi höfundur og þetta
er hennar besta bók hingað til.
Goggi og Gijóni vel í sveit settir
er framhald frásagnar um þá kump-
ána og ríkulagt hugmyndaflug
þeirra eftir Gunnar Helgason. Elías
Snæland Jónsson hefur samið nýja
sögu um sínar söguhetjur, Krókódíl-
ar gráta ekki, sem lýsir spennandi
lífi unglings sem hefur lent öfugum
megin við lögin. Loks má nefna
Eyvind P. Eiríksson sem heldur
áfram að skrifa um siglingar á
Eystrasalti I sögunni Meðan skútan
skríður og Guðrúnu Eiríksdóttur
sem lætur Röndótta spóa fljúga
aftur. Guðrún fékk íslensku barna-
bókaverðlaunin árið 1994 fyrir
fyrstu bókina um Röndóttu spóana.
Magnea frá Kleifum hefur samið
annað bindi um Sossu sólskinsbarn
og kallast nýja sagan Sossa litla
skessa. Sagan um Sossu er mjög
gott bókmenntaverk og má segja
að persónusköpun þessarar litlu
stúlku sé eitt af því besta sem sést
hefur í barnabókum.
Verðlaunahafi íslensku barna-
bókaverðlaunanna árið 1995 er
Þórdís Friðbjörnsdóttir og bók
hennar Eplasneplar er bráðsmellin
saga eða öllu heldur bréf sem Breki
sendir afa sínum og lýsir daglegu
amstri og hugsunum sínum. Þórdís
hefur áður sent frá sér nokkrar
sögur fyrir börn og unglinga og á
því heima í þeim flokki höfunda sem
ég vil kalla kjamann.
Olga Guðrún Árnadóttir sendir
nú frá sér nýja bók eftir nokkurt
hlé, Peð á plánetunni jörð. Það er
mikill fengur að Olga Guðrún skuli
á ný vera farin að skrifa um ungl-
inga og fyrir unglinga því fáir hafa
kafað jafndjúpt í sálarlíf unglinga
og hún. Texti Olgu Guðrúnar er
hreint sælgæti, sagan full af húmor
en samt svo alvarleg þar sem tekið
er á vandamálum úr samfélaginu
ekki síður en persónulegum vanda-
málum unglingsáranna.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Steina Vasulka og Haraldur Jónsson
sýna. - Kjarvalssýning fram á vor.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sýn. á vatnslitam. Ásgríms út mars.
Listasafn Sigurjóns Olafssonar
Portrettsýning til 19. maí.
Við Hamarinn
List í símbréfaformi til 3. apríl.
Norræna húsið
Sýning á norrænum heimilisiðnaði til
7. apríl. Sýning á steinþrykki eftir
Sven Havsteen-Mikkelsen í anddyrinu
til 31. mars.
Hafnarborg
Beatriz Ezban og Helgi Ásmundsson
sýna til 1. apríl.
Ingólfsstræti 8
Kristinn E. Hrafnsson sýnir til 31.
mars.
Onnur hæð
Hamish Fulton sýnir út maí.
Gallerí Fold
Soffía Sæmundsd. sýnir til 31. mars.
Gallerí Stöðlakot
Anna Guðrún Torfadóttir sýnir til 4.
apríl.
Gallerí Greip
Kristín Blöndal sýnir til 31. mars.
Listhús 39
Sigríður Erla sýnir til 1. apríl.
Gallerí Sævars Karls
Kristín Arngrímsd. sýnir til 10. apr.
Listasafn Kópavogs
Jón Óskar sýnir í vestursal og í
austursal landslags- og portrettmynd-
ir Sigurðar Sigurðssonar til 8. apríl.
Nýlistasafnið
Nana Petzet og Ólafur S. Gíslason
sýna til 31. mars.
Gallerí Hornið
ívar Török og Magdalena M. Her-
manns sýna tii 31. mars.
Mokka
Ósk Vilhjálmsdóttir og Hjálmar
Sveinsson sýna til 16. apríl.
Gallerí Úmbra
Anna Snædís Sigmarsd. sýnir til 3.
apr.
Smíðar & skart
Ólöf Oddgeirsdóttir sýnir til 19. apríl.
AIlraHanda - Akureyri
Margrét Birgisdóttir sýnir til 13.
apríi.
TONLIST
Laugardagur 30. mars
Einsöngvarapróf í Langholtskirkju kl.
20.30; Helga Rós Indriðadóttir
mezzósópran og Margrét Sigurlaug
Stefánsdóttir sópran. Selkórinn og
Lúðrasveit Seltjamarness halda tón-
leika í Blönduósskirkju kl. 16. Fær-
eyski kórinn Aurora Borealis í Nor-*
ræna húsinu kl. 16. Karlakórinn
Hreimur í Ýdölum kl. 21. Gítartón-
leikar f sýningarsal Tolla í Kvosinni
í gamla Álafosshúsinu í Mosf. kl. 16.
Sunnudagur 31. mars
Kór og hljómsveitartónleikar í ísa-
fjarðarkirkju kl. 14. Skólahljómsveit
Grafarvogs með fjöiskyldutónleika í
Ráðhúsinu kl. 16.
Þriðjudagur 2. apríl
Sönghóp. Sólarmegin í Hveragerðis-
kirkju kl. 20.30. Caput-hóp. flytur
Sögur af dátanum í Borgarleikhúsinu.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Tröllakirkja sun. 31. mars, fös.
Þrek og tár lau. 30. mars., fim., lau.
Kardemommub. lau. 30. mars, sun.,
lau.
Leigjandinn sun. 31. mars.
Kirkjugarðskl.sun. 31. mars, fös.
Borgarleikhúsið
Hið ljósa man sun. 24. mars, fim., lau.
íslenska mafían lau. 30. mars.
Amlóða saga lau. 30. mars, sun.
BarPar sun. 31. mars, fös.
Konur skelfa lau. 30. mars, sun.
Við borgum ekki, við borgum ekki sun.
31. mars.
Iina langsokkur sun. 31. mars.
Höfundasmiðja LR; Bragi Ólafsson -
Spuming um orðalag lau. 30. mars.
Hafnarfjarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör lau. 30. mars, mið.
Kaffileikhúsið
Grískt kvöld lau. 30. mars, mið.
Engillinn og hóran fím. 4. apríl
Möguleikhúsið
Ævintýrabókin lau. 30. mars.
Bétveir sun. 31. mars.
íslenska óperan
Oklahoma lau. 30. mars.
Loftkastaiinn
Rocky Horror lau. 30. mars.
Lcikfélag Akureyrar
Nanna systir lau. 30. mars, mið., fim.
fós.
Tjamabió
Páskahret sun. 31. mars, mið., fös.
KVIKMYNDIR
MÍR
„Orrustan um Stalingrad“ sun. kl. 16,