Morgunblaðið - 11.04.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
C
1996
FIMMTUDAGUR 11. APRIL
BLAD
KNATTSPYRNA
Atletico Madrid bikarmeistari
FÖGNUÐUR leikmanna Atletico Madrid var mikill eftir 1:0 sigur á Barcelona í framlengdum úrslitaleik spænsku
bikarkeppninnar sem fram fór í Zaragoza í gærkvöldi.
Tyson sakaður
um líkamsárás
LÖGREGLAN í Chieago
rannsakar nú ásakanir 25
ára dansara í næturklúbbi
í borginni um að Mike
Tyson, heimsmeistari í
þungavigt í hnefaleikum,
hafi ráðist á hana á mánu-
dag og ætlað að koma
fram vilja sínum. Tyson
hefur ekki verið ákærður.
Menn eru ekki á eitt sátt-
ir um það hvað gerðist í
næturklúbbnum. Músl- MIKE Tyson
imskur ráðgjafi Tysons sagði að ásakanirnar
væru ekki trúverðugar og Moody Andrews, að-
stoðai-stjórnandi klúbbsins, kvað ólíklegt að Ty-
son hefði getað ráðist að konunni vegna þess að
hann hefði verið í fylgd öryggisvarða og innan
um gesti allan þann tíma, sem hann hefði verið
á staðnum. JeiTy Peteet, lögfræðingur konunn-
ar, sagði að Tyson hefði viljað Iiitta konuna eft-
ir að hann kom auga á hana á dansgólfinu.
Starfsmenn skemmtistaðarins hefðu sótt hana.
Tyson hefði veist kynferðislega að henni í lokuðu
herbergi. Andrews sagði að Tyson hefði ekki
farið afsíðis meðan hann var á staðnum og kon-
an hefði krafist þess að hitta hnefaleikarann.
Tyson var látinn laus úr fangelsi á skilorði
fyrir ári eftir að hafa setið inni í þijú ár fyrir
að hafa nauðgað Desiree Washington fegurðar-
drottningu árið 1992. Skilorðið er til fjögurra
ára og má lítið út af bera til að honum verði
stungið inn aftur.
Tyson hefur tekið múslimska trú og fékk leyfi
yfirvalda til að fara tál Chicago til að vera við
trúarathöfn.
Sherry eini
áhugamaðurinn
SKOTINN Gordon Sherry er eini áhugamaðurinn
sem keppir á Mastersmótinu bandariska í golfi
sem hefst í dag. Hann er talinn nyög efnilegur
og Greg Normann sagði um hann í fyrra þegar
þeir léku saman í riðli á móti: „Sherry er ekki
aðeins nrýög efnilegur, hann er líka vel gefinn
og rajög einbeittur I leik sínum. Ég er nyög
spenntur að fylgjast með honum í framtíðinni
og það eru ekki margir ungir kylfingar sem ég
get sagt það sama um þó svo ég hafi leikið með
nýög mörgum ungum kylfingum víða um heim.
Hann minnir mig dálítið á Ernie Els. Golfíþrótt-
in þarf á ferskum kylfingi að halda og Sherry
er einmitt sá sem getur veitt íþróttinni þann
ferskleika sem hún þarf.'1
Sherry hefur ákveðið að gerast atvinnumaður
eftir Masters. Hann segist staðráðinn í að verða
samt ekki atvinnumaður fyrr en á sunnudags-
kvöldið þegar mótinu lýkur. Það verður síðan
að koma í Ijós hvort hann verður orðinn atvinnu-
maður á fóstudaginn þegar keppendum verður
fækkað.
Pantic hetja
Atletico Madrid
MILINKO Pantic hefur átt stór-
an þátt í velgengni Atletico
Madrid í vetur og í gærkvöldi
tryggði aukaspyrnusérfræðing-
urinn liði sínu bikarmeistaratitil-
inn þegar hann gerði glæsilegt
mark með skalla í lok fyrri hálf-
leiks framlengingar gegn Barc-
elona. Þetta reyndist eina mark
leiksins og Atletico fagnaði titlin-
um í þriðja sinn á fimm árum,
varð einnig meistari 1991 og
1992.
„Þetta er fyrsti meistaratitill
minn og nú fylgjum við þessu
eftir með því að verða deildar-
meistarar," sagði Pantic sem er
ekki þekktur fyrir að skora með
skalla.
Rúmeninn Gheorghe Hagi og
Jordi Cruyff voru ekki sjálfum
sér líkir og fóru illa með mark-
tækifærin. Hagi var á auðum sjó
eftir hálftíma leik en skaut fram-
hjá og Cruyff eyðilagði tækifæri
um miðjan seinni hálfleik auk
þess sem hann átti skalla í slá
hjá Atletico.
Jose Luis Caminero hefði get-
að gert tvö mörk eftir mistök
Carlos Busquets, markvarðar
Barcelona, en það átti ekki fyrir
honum að liggja að þessu sinni.
Hagi var nálægt því að skora
í byijun framlengingarinnar en
Pantic var eini maðurinn sem
fann réttu leiðina.
Atletico er með þriggja stiga
forystu á Barcelona í deildinni
en liðin mætast um aðra helgi
og getur leikurinn ráðið úrslitum
um deildarmeistaratitilinn.
BADMINTON
Elsa Nielsen
fyrsti varamaður
Elsa Nielsen, badmintonkona úr
TBR, er einu sæti frá því að
tryggja sér þátttökurétt í einliða-
leik kvenna í badminton á Ólymp-
íuleikunum í Atlanta í sumar. Eins
og fram kom í Morgunblaðinu í
gær var Elsa í 7. sæti varamanna-
listans en hún hefur færst upp á
listanum og er nú 1. varamaður.
„Ég get ekki staðfest neitt á þess-
ari stundu en það er mjög líklegt
að hún öðlist keppnisrétt á Ólymp-
íuleikunum," sagði talsmaður Al-
þjóða badmintonssambandsins við
Morgunblaðið í gær.
Öllum úrtökumótum fyrir
Ólympíuleikana er lokið en fyrr-
nefndur talsmaður sagði að beðið
væri staðfestinga frá viðkomandi
badmintonsamböndum varðandi
keppendur og endanlegur listi
keppenda lægi ekki fyrir fyrr en
öll samböndin hefðu sent inn um-
beðin gögn en gera mætti ráð fyr-
ir að hann yrði tilbúinn innan
skamms.
ELSA Nielsen á enn von um
aó komast á Ólympíulelk-
ana í Atlanta í sumar.
HANDKNATTLEIKUR: STJARNAN HEFUR TITILVÖRNINA GEGN HAUKUM / C8