Morgunblaðið - 16.04.1996, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL1996 B 3
KIMATTSPYRNA
Óbreytt
stada
efstu
liða
Manchester United ekki
aftur í gráum treyjum
LEIKMENN Manchester United hafa fimm sinnum leikið í jgráum
treyjum á útivelli og aldrei fagnað sigri í þessum leikjum. A laug-
ardaginn voru þeir 3:0 undir gegn Southampton i hléi og skiptu
um búning, mættu til leiks í bláum og hvítum búningi en það
breytti því ekki að liðið tapaði 3:1. Eftir leikinn gaf Alex Fergu-
son, knattspymustjóri United, til kynna að gráu búningarnir yrðu
ekki notaðir framar. „Málið er einfalt. Leikmennirnir kunna ekki
við þessa búninga. Þeim finnst erfitt að finna hver annan og við
urðum að skipta í hléi.“
Atletico Madrid fékk gullið tæki-
færi til að auka forystu sír.a
í spænsku deildinni en liðið varð
að sætta sig við 1:1 jafntefli heima
gegn Real Betis. Betis lék mjög vel
í fyrri hálfleik og Alfonso Perez
skoraði skömmu fyrir hlé. En gleði
gestanna var skammvinn því vara-
maðurinn Pirri Mori jafnaði innan
mínútu. Betis missti Tomas Olias
út af með rautt spjald 20 mínútum
fyrir leikslok en liðið var samt nær
því að skora en heimamenn sem
eru með þrjú stig framyfir Barcel-
ona.
Carlos Busquets, markvörður
Barcelona, gerði afdrifarík mistök
á síðustu mínútu og Suances jafn-
aði fyrir Racing. Barcelona byijaði
vel og miðjumaðurinn Ivan de la
Pena skoraði á 12. mínútu. Á 40.
mínútu fékk Króatinn Robert Pros-
inecki að sjá rauða spjaídið og 10
leikmenn Barcelona áttu í nokkrum
erfiðleikum þó liðið virtist ætla að
halda fengnum hlut.
Daninn Michael Laudrup tryggði
meisturum Real Madrid 1:0 sigur
gegn Sevilla og er Real í sjöunda
sæti en fimm efstu liðin tryggja sér
rétt til að leika í Evrópukeppni í
haust.
AIKopio
uppágátl
Baráttan um Englandsmeistara-
titilinn tók nýja stefnu um
helgina þegar Manchester United
tapaði í Southampton og Newcastle
fagnaði sigri heima gegn Aston
Villa. United er með þriggja stiga
forystu og með 29 mörk í plús en
Newcastle er með 27 mörk í plús
og á leik til góða.
Les Ferdinand skoraði fyrir
Newcastle með skalla af stuttu
færi um miðjan seinni hálfleik eftir
sendingu frá Peter Beardsley. Þetta
var 28. mark Ferdinands á tímabil-
inu.
„Við lékum ekki sérstaklega
vel,“ sagði Kevin Keegan, knatt-
spyrnustjóri Newcastle. „Aston
Villa stjórnaði ferðinni lengi vel og
við erum ekki vanir slíku á tímabil-
inu. En vörnin var góð hjá okkur
og til að verða meistari verður lið
að sigra í leikjum sem ganga samt
ekki vel. Nú erum við þremur stig-
um á eftir með leik til góða og rit-
un sögu keppninnar er ekki lokið.“
Manchester United var ekki svip-
ur hjá sjón í Southampton og tap-
aði 3:1 en heimamenn voru á kost-
um í fyrri hálfleik. Þá skoruðu Ken
Monkou, Neil Shipperley og Matt-
hew Le Tissier á skemmtilegan
hátt í fyrri hálfleik en Ryan Giggs
minnkaði muninn undir lokin. Le
Tissier hefur ekki leikið sérlega vel
í vetur en hann lék vel um helgina
og lagði m.a. upp fyrsta markið,
„Eg hef aldrei misst trúna á Mattie
og það er mikilvægt,“ sagði Dave
Morrington, knattspyrnustjóri
Southampton.
Manchester United tekur á móti
Leeds á morgun og þá fær New-
castle Southampton í heimsókn.
Síðan á United heimaleik gegn
Nottingham Forest 28. apríl og
útileik gegn Middlesbrough 5. maí.
Newcastle fer til Leeds 29. apríl,
fær Nottingham Forest í heimsókn
2. maí og tekur á móti Tottenham
5. maí.
Mark Hughes var með þrennu
þegar Chelsea vann Leeds 4:1 en
Leeds hefur tapað sex af síðustu
sjö deildar- og bikarleikjum.
Coventry krækti sér í dýrmæt
stig með 1:0 sigri gegn QPR. Jess
kom inn á sem varamaður í seinni
hálfleik og gerði eina mark leiksins
en þetta var fyrsta mark hans fyr-
ir félagið sem keypti hann frá Aber-
deen fyrir um 250 millj. kr. í febr-
úar. Coventry er í 18. sæti fyrir
ofan QPR og Bolton sem tapaði
1:0 gegn West Ham. „Við eigum
möguleika á að halda sæti okkar
en ekkert er öruggt,“ sagði Ron
Atkinson, knattspyrnustjóri Co-
ventry. Ray Wilkins, knattspyrnu-
stjóri QPR, sagðist hins vegar sofa
rólegur. „Tal um fall truflar mig
ekki,“ sagði hann.
Manchester City er stigi ofar
eftir 1:0 sigur gegn Sheffield
Wednesday. „Ég leik ekki fyrir
Alan Ball heldur fyrir félagið og
samherja mína. Ég elska Manc-
hester City,“ sagði þýski miðherj-
inn Uwe Rösler sem skoraði um
miðjan seinni hálfleik en hann hef-
ur lent upp á kant við knattspyrnu-
stjórann.
Meistarar Blackburn unnu Nott-
ingham Forest 7:0 fyrr á tímabilinu
en úrslit urðu 5:1 í seinni leik lið-
anna í Nottingham um helgina.
Jason Wilcox skoraði tvívegis, Alan
Shearer gerði 35. mark sitt á tíma-
bilinu, Billy McKinley var með eitt
mark og varamaðurinn Graham
Fenton skoraði einnig en Ian Woan
minnkaði muninn fyrir heimamenn.
Klinsmann var enn
bjargvættur Bayem
Skoraði.sigurmarkið gegn Stuttgart. Dortmund gerði jafntefli heima
Júrgen Klinsmann hefur öðrum
fremur séð til þess að Bayern
Múnchen er í baráttunni um meist-
aratitilinn í Þýskalandi. Þessi frá-
bæri knattspyrnumaður hefur oft
tekið af skarið og gert útslagið
og um helgina var hann enn bjarg-
vættur liðsins en hann gerði eina
markið í 1:0 sigri gegn Stuttgart.
Dortmund náði aðeins markalausu
jafntefli á heimavelli gegn Schalke
og er Bayern með þriggja stiga
forystu á toppnum en meistarar
Dortmund eiga leik til góða auk
þess sem þeir eru með betri
markatölu.
Dieter Hamann, sem lék í fyrsta
sinn eftir að hafa verið frá í átta
vikur vegna meiðsla, fékk að sjá
rauða spjaldið eftir brot á Giovane
Elber eftir hálftíma leik og var
Bayern því einum færri það sem
eftir var. Klinsmann skoraði rétt
eftir hlé og þar við sat.
verið komið á beinu brautina um
miðjan fyrri hálfleik og hefði átt
að ná forystunni. Úrslit dagsins
gerðu það að verkum að Schalke
fór upp fyrir Stuttgart sem þarf
að gera betur til að tryggja sér
Evrópusæti.
Dortmund hefur ekki sigrað í
fjórum leikjum í röð og komst aldr-
ei alla leið gegn Schalke. „Barátt-
an var í lagi en sóknarleikurinn
er umhugsunarverður og ég get
ekki verið ánægður með hann,“
sagði Ottmar Hitzfeld, þjálfari
Dortmund.
Gladbach vann Köln 2:1 og er
í þriðja sæti en liðið missti Rico
Steinmann út af með rautt spjald
um miðjan seinni hálfleik. Þar með
hafa leikmenn deildarinnar fengið
að sjá rautt 26 sinnum i vetur.
Kaiserslautern tapaði 2:1 heima
fyrir Hamburg og stendur illa að
vígi við botninn.
JURGEN Klinsmann
Necastle eygir von
BARÁTTA Manchester United og Newcastle um Englands-
meistaratltilinn stendur sem hæst. Unlted stendur betur að
vígl en Newcastle hefur ekki sagt sitt síðasta orð. Á mynd-
innl reynlr lan Taylor hjá Aston Vllla að nð boltanum af Les
Ferdlnand sem gerði elna mark lelksins.
AC Milan er med níu
stiga forystu á Juventus
„Við áttum skilið að sigra,“
sagði Otto Rehagel, þjálfari Bay-
ern, Rolf Fringer, starfsbróðir
hans hjá Stuttgart, sagði að leik-
menn sínir hefðu farið illa með
færin. „Við ætluðum að vera þolin-
móðir í seinni hálfleik en við nýtt-
um ekki færin.“ Hann bætti við
að tíma hefði tekið að aðlagast
leik mótherjanna en liðið hefði
Christian Panucci tryggði AC
Milan 1:0 sigur gegn Napólí
í ítölsku deildinni og þegar fjórar
umferðir eru eftir er AC Milan með
níu stiga forystu á Juventus sem
tapaði 3:0 fyrir Sampdoria. Varnar-
maðurinn Panucci skoraði með
skalla eftir hornspyrnu frá Roberto
Baggio á 13. mínútu.
George Weah lék með AC Milan
á ný og liðið var mjög öruggt gegn
Napólí. Roberto Donadoni átti skot
í stöng á 72. mínútu en gestirnir
fengu varla önnur tækifæri til að
bæta við.
Enrico Chiesa braut ísinn eftir
25 sekúndur fyrir Sampdoria með
19. marki sínu á tímabilinu og lagði
síðan upp tvö mörk í seinni hálf-
leik. Gianluca Vialli, Alessandro Del
Piero og Fabrizio Ravanelli fengu
allir tækifæri til að jafna fyrir Juve
en Walter Zenga i marki Sampdor-
ia sá við þeim.
Fiorentina sem er í þriðja sæti
tapaði 1:0 fyrir Udinese en Inter í
fjórða sæti vann botnlið Padova
8:2. Marco Branca var með þrennu
og hefur gert 20 mörk á tímabilinu.
Lazio vann Parma 2:1 og er í
fimmta sæti en Roma tapaði 2:1
fyrir Vicenza og fór niður í sjöunda
sæti.
Bari vann Cremonese 2:1 og
heldur í vonina um að halda sér í
deildinni. Igor Protti gerði bæði
mörk Bari og er markahæstur í
deildinni með 22 mörk.
Tórínó tapaði 1:0 fyrir Piacenza
og er í fallsæti.