Morgunblaðið - 03.05.1996, Síða 1
■ ÞJÓNUSTA HEILSUGÆSLUSTÖÐVA/2 ■ HJÁLPARTÆKI FYRIR
FÖTLUÐ BÖRN/2 ■ TURNHÚS Á AKUREYRI/3 ■ TÍSKULJÓSMYNDIR
OG LISTAVERK/4 ■ KAFFI OG KAFFIHÚS/6 ■ CHRISTIAN DIOR/8
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SYSTKININ Hugrún og Hilmar.
T íska
og listin
SYSTKININ Hugrún og Hilm-
ar hafa haslað
sér völl, sitt á
hvoru sviði.
Hún er tísku-
ljósmyndari,
búsett í Lond-
on og tekur
myndir af of-
urfyrirsætum
og öðru frægu
fólki fyrir víð-
lesin timarit,
sem seld eru í
milljónaupp-
lagi. Hann býr
í Los Angeles,
þar sem hann
fæst við innan-
hússhönnun og
EITT af verk-
um Hilmars.
FORSÍÐUMYND ástralska
tímaritsins Elle af Lindu
Evangelista eftir Hugrúnu.
híbýlaprýði af ýmsu tagi.
í vinnustofu sinni býr hann til
Iistmuni og hyggst senn opna
listmunaverslanir í Hollywood
og New York.
Orkuna fyrir sköpunargáfu
sína og athafnasemi segjast
þau sækja til íslands, en hér
voru þau nýverið og sögðu
Daglegu lífi undan og ofan af
lífshlaupi sínu. ■
4
V el lyktandi
börn með angan
úr ilmvatnsflöskum frá París
Snyrtivöruiðnaðurinn virðist
gera í æ ríkara mæli út á' börn ef
marka má framboðið á barnailm-
vötnum og ýmiss konar barnasnyr-
tivörum. Þótt trúlega finnist flest-
um foreldrum
ungviðið sitt oft-
ast nær ilma ynd-
islega, hefur sala
slíks varnings
aukist jafnt og
þétt síðastliðin ár.
Ingibjörg Ey-
jólfsdóttir í snyrti-
vörudeildinni í
Fríhöfninni
Keflavík segir að
smástelpur séu
mjög ginnkeyptar
fyrir Oilily ilm-
vötnum, sem
komu á markað-
inn fyrir tveimur
árum. „Salan hef-
ur aukist um
30-40% miðað við
í fyrra. Litlu
stelpunum finnst þetta voðalega
fínt og kaupa bæði handa sjálfum
sér og til að gefa vinkonum sínum.
Annars virðist mér fullorðnir engu
að síður hrifnir en stelpurnar og
„viðskiptapabbarnir" kaupa barna-
ilmvötn í stórum stíl.“
llmvatnsflöskur eins og
barnapelar
Ingibjörg segir að fyrstu barna-
ilmvötnin hafi komið í Fríhöfnina
fyrir sex árum og selst ágætlega
til að byija með, en síðan hafi salan
dottið niður. „Umvatnið hét Poupon
og var ætlað ungbörnum. Umbúð-
irnar líktust barnapela, og lítill
bangsi fylgdi með. Auk Oilily seljum
við líka þó nokkuð af barnailmvötn-
um frá Versace. Stelpuilmvatnið
heitir Baby Rose
og strákailmvatn-
ið Baby Blue Je-
ans. “ Af þvi síðar-
nefnda er mild
rakspíralykt, en
stelpuilmvatnið er
með mildri blóma-
angan, eins og
Oilily og Petit
Guerlain barna-
ilmvatnið, sem
hefur verið á
markaðnum í
nokkur ár.
Ilmvatn og
freyðibaðssápur í
glösum, sem
skarta Mikka
Mús, Aladdin,
Fríðu og dýrinu
og öðrum álíka
fígúrum í dúkkulíki, segir Ingibjörg
alltaf vinsæl, enda höfði umbúðirnar
trúlega oft meira til krakkanna en
innihaldið.
Starfsstúlkur í ýmsum snyrti-
vöruverslunum í Reykjavík tóku í
sama streng og Ingibjörg varðandi
aukna eftirspurn eftir barnailmvötn-
um og barnasnyrtivörum af ýmsu
tagi. Þær sögðu að eldri konur, sem
ekki kærðu sig um sterka ilmvatns-
lykt, keyptu slík ilmvötn oft og því
væru ilmvötnin í rauninni fyrir alla
frá þriggja mánaða aldri. ■