Morgunblaðið - 20.06.1996, Síða 1
rfÁRMÁL
Hagvöxtur, vextir,
hlutabr éfa ver ö/4
Hlúö aö vaxtar-
broddunum /6
kvikmynpir
Jonni og félagar á
nýjum slóðum /8
VIÐSKIPn AIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1996 BLAÐ
Prentun
Miðlun hf. hefur samið við Odda
um prentun á AtilÖ þjónustuskrá
Gulu línunnar næsta haust, en
bókin verður prentuð í 70 þúsund
eintaka upplagi. Reiknað er með
því að dreifingu hennar ljúki í
lok september. I bókinni verða
skráð nöfn, heimilisföng og síma-
númer allra fyrirtækja á höfuð-
borgarsvæðinu.
Bakkavör
Bakkavör hf., sem sérhæfir sig
í hrognavinnslu, hefur falið
Verðbréfamarkaði Islandsbanka
hf. að annast útboð skuldabréfa.
Rekstur fyrirtækisins hefur
gengið vel og eru frekari fjár-
festingar framundan. Skulda-
bréfunum mun fylgja kaupréttur
á hlutabréfum. Fyrirtækið er í
eigu bræðranna Agústs og Lýðs
Guðmundssona ásamt Granda hf.
Hlutabréf
Heldur hefur hægt á hækkunum
á hlutabréfaverði síðustu daga
og í gær lækkaði þingvísitalan
lítillega eða um 0,22%. Mest bar
á viðskiptum með hlutabréf í
hlutabréfasjóðum, en einnig
urðu lítilsháttar viðskipti með
bréf í Flugleiðum og Eimskip.
SÖLUGENGIDOLLARS
Breytingar á vörugjöldum og
áhrif þess á tekjur og verðlag
INNFLUTNINGUR
Kaffi, te ofl. milljónir króna
Aðrar drykkjarvörur og efni til þeirra
Sykur og kandís
Sæigæti
Kökur, kex og nasl
Niðursoðnir ávextir, súpur ofl.
Málningarvömr
Byggingarvörur ofl.
Raflagnaefni, lampar, pemr ofl.
Hreinlætistæki, vaskar ofl.
Gólfefni, veggfóður ofl.
Bílavömr, rafgeymar, jám, gler
Dekk og slöngur
Vélar og hlutar í ökutæki
Heimilistæki
Snyrtivörur
Filmurúllur ofl.
Byssur
Ritföng
Pípur og kveikjarar
Samtals innflutningur
Endurgreidd aðföng, áætlað
Samtals innflutt, nettó
INNLEND FRAMLEIÐSLA
Kaffi
Öl og gosdrykkir
Sælgæti og ís
Kex og nasl
Sultur og grautar
Málning, sápur ofl.
Samtals innlent
Samtals innflutt og innlent
Virðisaukaskattur
Samtals tekjubreyting
Áætl. tekjur
___rikissj^
74
129
375
126
69
28
0
96
261
23
192
46
57
303
483
108 I
16
13
20
0
2.416
-468 i
1.948
23
421
164
15
5
0
628
2.576
Tekju- Áætl. verð-
breyting breyting
13 1,5%
-41 -4,3% j
187 26,6%
2 0,3% j
-4 -0,9% j
5 1,5% :
-31 -7,7%
-10 -1,1% :
-4 -0,2%
2 1,1% i
12 0,8%
-15 -3,3% j
-1 -0,1%
0 0,0% ;
-98 -3,9% :
-5 -0,6%i
-5 -4,2%
-1 -1,0%
-5 -4,0%
-3 -20,0%
-2 0,0%
-88 'Bmm
-90 -0,6%
10 4,3%
-152 -4,0%
-46 -2,8%
-2 -1,7%
2 4,0%
-81 -6,0%
-269 -3,7%
-359 -1,6%
-107
-466
Vörugjaldsbreytingar þann 1. júlí taldar
getaleitttil 1,6% verðlækkunar að meðaltali
Innlendar vör-
ur lækka meira
en innfluttar
BREYTINGAR á vörugjöldum á
innfluttum vörum og innlendum
framleiðsluvörum, sem taka gildi
um næstu mánaðamót, ættu að
hafa í för með sér nokkrar breyting-
ar á smásöluverði ýmissa vara. Að
meðaltali er gert ráð fyrir 1,6%
verðlækkun á þeim vörum sem
hingað til hafa borið vörugjald.
Lækkun á verðlagi innfluttra vara
yrði þó minni eða 0,6%, en um 3,7%
á innlendri framleiðslu, ef vöru-
gjaldsbreytingin skilar sér til fulls.
í greinargerð með frumvarpi til
laga um breytingar á vörugjöldum
sem alþingi samþykkti í vor var
gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs
vegna breytinganna lækkuðu um
350 milljónir. Þar til viðbótar kæmi
um 110 milljóna lækkun á virðis-
aukaskatti. Tekjutapið í heild yrði
því um 460 milíjónir.
Saumavélar lækka en
eldavélar hækka
Að sögn Kristmanns Magnússon-
ar, stjórnarformanns pfaff, mun
verð á saumavélum og straujárnum
lækka um 10% hjá fyrirtækinu
strax um mánaðamótin þegar
breytingin tekur gildi. Hins vegar
hækkar verð af eldunartækjum um
nálægt 10%, þar sem vörugjöld af
þeim hækka úr 13% í 25%. Ekki
eru lögð vörugjöld á innflutnings-
verð fjölda smærri raftækja þannig
að verð þeirra breytist ekki. Þá
verður engin breyting á vörugjöld-
um á þvottavélar og þurrkara, svo
dæmi séu tekin. Aftur á móti hækk-
ar vörugjald verulega á sykri þann-
ig að verð hækkar um rösklega
fjórðung.
Af innlendum framleiðsluvörum
má nefna að kaffí hækkar í verði
um 4,3% en öl og gosdrykkir lækka
um 4%, ef áhrif breytinganna koma
að fullu fram. Þá má búast við að
málning innlendu framleiðendanna
lækki um nálægt 6% um næstu
mánaðamót.
Neysluverðsvísitala lækkar
í greinargerð sem Hagstofan
vann fyrir Samtök iðnaðarins í apríl
er bent á að áhrif vörugjaldsbreyt-
inganna á vísitölu neysluverðs séu
vandmetin, sérstaklega hvað snertir
innlendar vörur. Samkvæmt laus-
legu mati geti breytingar á vöru-
gjöldum lækkað vísitöluna um 0,1%.
Lækkun á endurgreiðslu virðis-
aukaskatts af vinnu á byggingar-
stað í 60% hefur hins vegar áhrif
til hækkunar á viðhaldi húsnæðis í
húsnæðislið vísitölunnar. Þetta er
talið geta valdið um 0,03% hækkun
neysluverðsvísitölunnar, þannig að
heildaráhrifin af breytingu vöru-
gjaldanna verði um 0,06-0,07%
lækkun vísitölunnar.
Þá má nefna að lækkun á endur-
greiðslu virðisaukaskatts og breyt-
ingar á vörugjöldum er talin leiða
til 3,1% hækkunar byggingarvísi-
tölunnar.
§
y LANDSBREF HF.
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili ad Verðbréfaþingi Islands.
Til fyrirtœkja ojy rekstraraöila:
til ! 25 n vn
• Vextir 6,75% til 8,25%
• Hagkvæm endurfjármögnun styttri og óhagkvæmari lána
• Lægri fjármagnskostnaður
• Lægri greiðslubyrði áhvílandi lána
• Auðveldari fjármögnun nýrra fjárfestinga
• Betri veltufjárstaða
Lán eru veitt gegn fasteignaveði á höfuðborgarsvæðinu. Veðsetningarhlutfall skal ekki fara yfir 55% af söluverði eignar.
Leitaðu upplýsinga hjá ráðgjöfum Landsbréfa og umboðsmönnum í öllum útibúum Landsbanka íslands.
S i V I