Morgunblaðið - 20.06.1996, Page 2
2 C FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Framleiðsla hefst að nýju hjá Vatnsfélagi Suðurnesja hf.
Stefnt að reglubundnum
útflutningi eftir 3 mánuði
Tilraunaútflutningur til Bandaríkjanna
ÍSLENSKT Marfang hf. hefur tekið öll tæki
og tól Vatnsfélags Suðurnesja hf. á leigu til
nokkurra mánaða. Meðan á leigutímanum
stendur mun leigutakinn standa að markaðs-
setningu og sölu á vatninu í Bandaríkjunum í
samstarfí við þarlenda aðila.
Samstarfsaðilar Islensks Marfangs í Banda-
ríkjunum eru Cooking Exellence, og Red Apple
Group. Cooking Exellence er bandarískt inn-
flutnings- og dreifingarfyrirtæki, en starfrækt
af íslenskum aðilum. Red Apple Group er keðja
matvöruverslana í New York.
Leigutakinn hyggst hefja átöppun á vatni
í verksmiðjunni á næstu vikum. Arni Ragnar
Árnason, alþingismaður og stjórnarformaður
Vatnsfélagsins, segir að þá hefjist reynslu-
tímabil en á því taki leigutakinn að sér á eig-
in ábyrgð að markaðssetja vatnið i Bandaríkj-
unum. Takist sú markaðssetning verður sam-
ið um reglubundna vatnssölu vestur um haf
og mun þá Vatnsfélagið taka aftur við rekstri
verksmiðjunnar. Árni vonast til að af þeim
samningum geti orðið eftir tvo til þrjá mán-
uði.
Vatnsfélag Suðurnesja hf. var stofnað haust-
ið 1993 og eiga Hitaveita Suðurnesja, Eignar-
haldsfélag Suðurnesja og Atvinnuþróunarfélag
Suðurnesja hf. meirihluta í fyrirtækinu. Það
byrjaði fljótiega að selja vatn til dreifingarað-
ila í Ohio í Bandaríkjunum. Dreifingaraðilinn
náði þó ekki þeim árangri við vatnssöluna sem
að var stefnt í upphafi og lögðust því við-
skipti við hann niður. Átöppun í verksmiðjunni
var hætt um áramótin 1994-95 og hefur starf-
semi hennar verið í lágmarki síðan. Stöðugt
hefur þó verið unnið að markaðssetningu og
segir Árni að samningurinn nú sé árangur
þeirrar vinnu.
„í markaðssetningu á vatninu höfum við
lagt áherslu á að fá reynda aðila til liðs við
okkur en hætta sem minnstu fé. Með þessum
samningi tekst okkur að lágmarka fjárframlag
til markaðsstarfsemi og eins fjárfestingu í
verksmiðjunni. íslenskt marfang þekkir vel til
framleiðslu og með samstarfi við Red Apple
er tryggt að vatnið á greiða leið í fjölmargar
verslanir. Cooking Exellence hefur töluverða
reynslu af markaðssetningu vestra og mun
taka að sér frekari markaðssetningu. Ég er
því bjartsýnn á að þetta samstarf leiði til reglu-
bundins útflutnings á íslensku vatni.“
Að sögn Árna Ragnars verða nokkrir starfs-
menn ráðnir til verksmiðju Vatnsfélagsins á
næstu vikum. „Gangi tilraunin að óskum eru
allar líkur á að auka þurfi afköst verksmiðjunn-
ar og þá þarf að sjálfsögðu að fjölga starfs-
fólki enn frekar," segir Árni Ragnar.
Sæmilegt útlit hjá stærstu hótelunum í sumar
Svipuð eða betri
nýting en ífyrra
Áfram-
haldandi
eftirspurn
eftir ríkis-
víxlum
TALSVERÐ spurn var eftir
ríkisvíxlum í útboði Lána-
sýslu ríkisins í gær. Alls bár-
ust tilboð að fjárhæð 2.570
milljónir króna en af því var
tekið tilboðum að fjárhæð
2.090 milljónir. Um þriðj-
ungur tekinna tilboða var frá
Seðlabanka íslands á meðal-
verði samþykktra tiiboða.
Ávöxtunarkrafa ríkisvíxla
breyttist þó lítið i útboðinu.
Ávöxtunarkrafa ríkisvíxla til
þriggja mánaða hækkaði um
2 punkta í 6,54% og ávöxtun-
arkrafa sex mánaða ríkisvíxla
hækkaði um 3 punkta í
6,68%.
Engum tilboðum var hins
vegar tekið í 12 mánaða ríkis-
víxla að þessu sinni, en síðast
var tekið tilboði í þennan
flokk ríkisvíxla í útboði Lána-
sýslunnar um miðjan maí.
Viðskipti áfram lífleg á
eftirmarkaði
Þrátt fyrir útboð Lánasýsl-
unnar í gær voru viðskipti
með ríkisvíxla áfram lífleg á
Verðbréfaþingi. Alls skiptu
ríkisvíxlar að fjárhæð 1,1
milljarðar króna um hendur
og er það heldur meiri eftir-
spurn en í gær, þegar við-
skipti með þessi bréf voru
einnig með líflegra móti.
Þorsteinn Ólafs, fram-
kvæmdastjóri Handsals, segir
að miðað við núverandi verð-
lagshorfur megi reikna með
að áfram verði mikil eftir-
spurn eftir ríkisvíxlum, enda
hafi bankastofnanir verið að
sækja mikið í þá. Hann segir
hins vegar skilyrði fyrir
vaxtalækkunum á ríkisvíxl-
um ekki fyrir hendi. Raun-
hæfara sé að reikna með því
að ávöxtun þeirra muni
sveiflast til um 10-15
punkta.
NÝTING hjá flestum stærstu hótel-
unum í sumar virðist ætla að vera
svipuð eða jafnvel meiri en í fyrra
sem þó var mjög gott ár. Bókanir
eru ívið fleiri en í fyrra og bjart-
sýni ríkir vegna ráðstefna og sýn-
inga, m.a. alþjóðlegrar sjávarút-
vegssýningar, á haustmánuðum.
Starfsmenn þeirra hótela sem
Morgunblaðið ræddi við sögðust
margir hafa orðið fyrir vonbrigðum
með maí og fyrri hluta júní en
sögðu að mjög vel horfði með júlí,
ágúst og september.
Einar Olgeirsson, hótelstjóri
Scandic hótelanna Loftleiða og
Esju segir að flest stefni í að sumar-
ið nú verði svipað og í fyrra. Gangi
það eftir séu hótelin í góðum málum
enda hafi sumarið í fyrra verið
mjög gott. „Nýtingin allt árið í
fyrra var um 70% á Loftleiðum en
65% á Esju og var það mjög góður
árangur. í júní stefnir í 90% nýt-
ingu og enn meira í júlí. Þá eru
bókanir í ágúst og september vel
viðunandi. Þá er meira um pantan-
ir vegna ráðstefna í júní og ágúst
en oft áður,“ segir Einar.
Nýliðinn maímánuður olli þó
nokkrum vonbrigðum að sögn Ein-
ars. Maí sé orðinn mjög góður
mánuður en nú hafí herbergjanýt-
ing verið minni en undanfarin ár
eða 77%. Ástæðan sé ef til vill sú
að í fyrra voru öll hótel tekin frá
fyrir HM ’95 og það hafi haft áhrif
á eftirspurnina nú.
Allt stefnir í að herbergjanýting
verði ágæt á Hóteli Sögu í sumar
en þó ekki eins góð og í fyrra að
sögn Grétars Erlingssonar, yfír-
manns herbergjabókana. „Bókanir
voru síðar á ferðinni nú en í fyrra
og við náum ekki alveg eins góðri
nýtingu og í fyrra. Óvenju vel lítur
þó út með haustið og er þar jafn
vel eða betur bókað en í fyrra.
Ágúst, september og október líta
einnig vel út.“
Mikil aukning hefur orðið á her-
bergjanýtingu á Grand hóteli
Reykjavík og Hóteli Reykjavík að
sögn Bjarna Ásgeirssonar hótel-
stjóra þeirra. Segir hann að stefni
í metnýtingu í júní, júlí og ágúst,
ekki síst á Hóteli Reykjavík en þar
gildir lægra verð en á Grand Hót-
eli Reykjavík. Hann er ekki viss
um að þýskum ferðamönnum hafi
fækkað en býst við að þeir leiti í
ódýrari gistingu. „Aukið sætafram-
boð frá Þýskalandi með ódýrari
fargjöldum hefur leitt sparsamari
ferðamenn hingað.“
Fleiri bókanir
Kjartan Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu ís-
lands, segir útlitið í ferðaþjónustu
vera svipað og síðasta sumar.
„Bókanir hjá Eddu-hótelunum eru
aðeins fleiri en í fyrra en þó er of
snemmt að fullyrða að aðsókn að
þeim aukist. Við gerum okkur þó
vonir um að íslendingar eigi eftir
að ferðast meira um landið en í
fyrra enda eru ýmsar ytri aðstæður
góðar. Vorið var óvenju fljótt á
ferðinni og blíðviðri hefur verið það
sem af er sumri. Vegir hafa komið
vel undan vetri og það hefur skap-
að aukna möguleika."
Sumarið lítur vel út hjá Hóteli
KEA á Akureyri. Elías Bjami Gísla-
son, hótelstjóri, segir að hótelið
hafi verið þokkalega nýtt í maí en
júní hafi ekki verið nógu góður.
„Júlí og ágúst líta þó mjög vel út
og er ljóst að þetta sumar mun
koma betur út en síðasta sumar."
Ráðstefnuárið 1997
Á undanförnum árum hefur í
auknum mæli verið reynt að kynna
ísland sem ráðstefnuland og er ljóst
að ráðstefnur skipta verulegu máli
í hótelrekstri. Hótelstjórarnir í
Reykjavík og Akureyri vænta allir
góðs af nokkrum ráðstefnum, sem
haldnar verða hér á landi í haust
og ber þar hæst alþjóðlega sjáv-
arútvegssýningu, sem haldin verð-
ur í Reykjavík um miðjan septem-
ber. Hótelstjórarnir eru sammála
um að óvenju vel líti út með ráð-
stefnuhald á næsta ári ogtalajafn-
vel um ráðstefnuárið 1997.
Stokkað
upp í stjórn
Fords í
Evrópu
Köln. Reuter.
ALEX TROTMAN, yfirmaður
Ford Motor Co, hefur skýrt frá
víðtækum breytingum á yfir-
stjórn fyrirtækisins í Evrópu og
kveðst telja að þær muni auð-
velda Ford að auka markaðs-
hlutdeild sína í álfunni.
Albert Caspers lætur af
störfum yfirmanns þýzku deild-
arinnar Ford-Werke AG og
Ford of Europe og tveir arftak-
ar taka við störfum hans 30.
júlí.
William Boddie, fram-
kvæmdastjóri miðstöðvar Fords
fyrir litla og meðalstóra bíla í
Köln, verður stjórnarformaður
Ford-Werke.
Ed Hagenlocker, forstjóri bif-
véladeildar Forda, verður
stjórnarformaður Ford of
Europe og aðalfulltrúi Fords hjá
Evrópusambandinu.
Trotman sagði að Caspers
ætti heiðurinn af mikilli sölu
Fords í Evrópu að undanförnu,
meðal annars mestu mánaðar-
sölu í Þýzkalandi í fimm ár í
maí.
Caspers hefur hlotið lof fyrir
að tryggja jákvæða afkomu
Ford-Werke með kröfum um
aukin gæði og fyrir að auka
fyrirtækið í áliti í Þýzkalandi,
meðal annars með kostun
íþróttaviðburða.
Trotman gerir sér vonir um
að markaðshlutdeild Fords í
Evrópu aukist í 15%, en vill
ekkert um það segja hvenær
hann vilji að því marki verði
náð.
Hann hyggst auka hlutdeild-
ina með auknu úrvali, meðal
annars bíla sem höfða til sér-
stakra markaðshópa. Ford kann
einnig að auka innflutning til
Evrópu.
í Þýzkalandi, stærsta bíla-
markaði Evrópu, hefur Ford
aukið markaðshlutdeild sína í
11,3% úr 9,3% 1993.
B A ætlar að
selja farseðla
um alnetið
FLUGFÉLAGIÐ British Air-
ways tekur upp sölu farseðla
um alnetið fyrir næstu áramót
að sögn Davids Scowsill for-
stjóra í danska viðskiptablaðinu
Börsen.
Sala um alnetið mun veita
umboðsmönnum og ferðaskrif-
stofum harða samkeppni, en
þeir aðilar annast 80 af hund-
raði farmiðasölunnar. „Spurn-
ingin er, hve lengi verða þessir
aðilar að taka við sér?“ sagði
Scowsill.
Scowsill telur að sala um al-
netið muni þrýsta upp verði, en
er ekki trúaður á að umboðs-
menn og ferðaskrifstofur muni
hverfa. „Eftir tíu ár munu sum-
ir viðskiptavinir heldur vilja per-
sónulega þjónustu," sagði hann.
Samkvæmt bandarískum
spám mun markaðshlutdeild
umboðsaðila minnka í 40-45%
á nokkrum árum.
Scowsill segir að BA vilji
ekki aðeins draga úr kostnaði
með þjónustunni á alnetinu -
félagið vilji einnig mæta óskum
og þörfum neytenda, sem kunni
að telja þægilegra að panta
farmiða heima í stofu.
Alaska-flugfélagið varð fyrst
til að bjóða upp á beinar pantan-
ir á alnetinu. Southwest flugfé-
lagið fylgdi fast á eftir.
SAS og fleiri flugfélög veita
upplýsingar um flugáætlanir og
þess háttar á heimasíðum sínum
á alnetinu, en ekki er hægt að
kaupa farseðla.