Morgunblaðið - 26.06.1996, Side 2
2 D MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
A SILDINNI
MorgunbJaðið/Þorateinn Kristjánsson
Fiskvinnslan stefnir að
hreinni framleiðslutækni
Samstarf Rf og íslenzkra
og norrænna fyrirtækja
HREINNI fram-
leiðslutækni er yfir-
skrift verkefnis sem
Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins og
Iðntæknistofnun hafa unnið í samstarfi við nokkrar íslenskar fisk-
vinnslur síðan árið 1994. Verkefnið sem unnið er í samstarfi Norð-
manna, Dana, Svía og íslendinga er styrkt af Nordfood og Rannís
en eitt af höfuðmarkmiðum Nordfood hefur verið að gera matvæla-
vinnslu á Norðurlöndum samkeppnishæfa við matvælavinnslu í öðrum
löndum. Hreinni framleiðlutækni er ætlað að bæta meðferð sorps
og úrgangs, þar sem kaupendur horfa ekki aðeins á heilnæmi vörunn-
ar heldur einnig á að framleiðsla hennar skaði ekki umhverfið. Verk-
efninu lýkur á þessu ári.
Lélegt í
Smugnnni
• NORÐMENN segja að
þorskveiðar í Smugunni hafi
gengið mjög illa í ár. Aðeins
um 1.200 tonn af þorski hafi
veiðzt, en mest hafi átta tog-
arar verið í Smugunni í einu.
Togarinn Porto Santo, sem
er í eigu Portúgala, var að
ljúka 46 daga túr og afiinn
reyndist 3 tonn af þorski og
42 tonn af lúðu.
1.200 tonn
• Norska blaðið Fiskeri-
bladet skýrir frá þessu nú í
júní. Þar kemur fram að
fyrsti togarinn kom í Smug-
una 8. janúar og síðan hafa
verið þar milli fjórir og 8
togarar í einu, enginn frá
íslandi. Landhelgisgæzlan í
Noregi teluur að þorskaflinn
þetta timabil hafi aðeins náð
1.200 tonnum, en það sé mun
minna en verið hefur á sama
tima undanfarin ár.
• Fiskifræðingar telja
hugsanlegt að kaldir haf-
straumar hafi hrakið þorsk-
inn til vesturs, út úr Smug-
unni. Aflabrögð í Smugunni
hafa yfirleitt verið slök þar
til komið er fram á sumar,
en skipin hafa svo stundað
veiðar langt fram eftir
hausti og allttil jóla.
• íslenzku togararnir eru
nú að undirbúa veiðar í
Smugunni og er reiknað
með að iqjög mörg skip fari
þangað, enda litið annað að
fást við fyrir þá, sem ekki
eru á rækju á Flæmska hatt-
inum. Ljóst er að þeir togar-
ar, sem ekki frysta um borð,
munu i auknum mæli leggja
áherzlu á söltun aflans.
Veiðar í ís eru háðar því að
afli sé mjög mikiU og náist
að fylla skipin á fáum dög-
um.
• Afli okkar í Smugunni
hefur verið um 35.000 tonn
að meðaltali undan farin ár.
Engir samningar hafa náðst
um veiðiheimildir okkar i
Smugunni, en rætt hefur
verið um kvóta allt niður í
13.000 tonn.
Kínverjar
veiða mikið
• FISKVEIÐAR og Fiskeldi
Kínveija skilaði þeim hvorki
meira né minna en 25,4
miiyónum tonna á síðasta
ári. Það er aukning um 22%
frá árinu áður, en þá var
sjávarfang og eldisafurðir
samtals 20.7 milljónir tonna.
Af þessu magni skilaði hafið
13,8 milfjónum tonna, en
eldið hvorki meira né minna
en 11,6 milijónum, sem var
aukning um 29%
í verkefninu vinnur Rf með 6
fiskvinnslufyrirtækjum, ÚA hf. á
Akureyri, HB hf. á Akranesi, Faxa-
mjöli hf., Krossanesi hf. á Akur-
eyri, Síldarvinnslunni hf. á Nes-
kaupsstað og Vinnslustöðinni hf. í
Vestmannaeyjum. Auk þess koma
að verkefninu Kjötumboðið hf. og
Mjólkursamsalan hf.
Ráðgjafar í íslenska hluta verk-
efnisins eru frá Iðntæknistofnun og
Rf. Gerð er umhverfisúttekt á mat-
vælafyrirtækjunum átta og er til-
gangurinn m.a. sá að minnka losun
á úrgangi frá matvælavinnslu út í
umhverfið. Einnig er unnið að því
að minnka vatns- og orkunotkun
og bæta hráefnisnýtingu. Þá er
unnið að gerð handbókar um að-
ferðafræði hreinnar framleiðslu-
tækni við lausn á vandamálum
tengdum umhverfis- og gæðamál-
um. Gengið var til samstarfs við
fyrirtækin 1994 og var myndaður
umhverfishópur í hveiju fyrirtæki
sem samanstóð af 2-6 starfsmönn-
um. Með hópunum voru búnir til
verkefnalistar yfir þau verkefni þar
sem hægt væri að lámarka sóun
eða nota vistvænni aðferðir eða
aðföng.
Úrbætur í meðferð sorps
oft ódýrari kostur
Eva Yngvadóttir efnaverkfræð-
ingur hjá Rf segir Hreinni fram-
leiðslutækni ganga út á það að lá-
marka úrgangsefni og benda á fyr-
byggjandi aðgerðir í meðferð sorps
og úrgangs. Með því að greina or-
sök mengunar í stað þess að horfa
eingöngu í afleiðingar hennar, megi
gera útbætur sem séu oftast ódýr-
asta lausnin og minnki losun og tap
frá vinnslunni. Eva segir að til þess
að gera úrbætur á rót vandans
geti reynst nauðsynlegt að skoða
hvaða vöru sé verið að framleiða
og hvort framleiðsluaðferðirnar séu
þær heppilegustu, hvort auka megi
endurnotkun eða hvort hægt sé að
framleiða afurðir úr því sem falli
til við hefðbundna vinnslu.
Breyting á afstöðu
fyrirtækjanna
Að sögn Evu hefur tekist að ná
fram bættri nýtingu aðfanga, dreg-
ið hefur úr vatns- og orkunotkun,
meðferð á föstum úrgangi hefur
verið breytt og endurnotkun og
endurvinnsla aukin. Hún segir að
breyting hafi orðið á afstöðu fyrir-
tækjanna til umhverfismála og að
stjórnendur horfi ekki aðeins á
umhverfisvernd til að viðhalda lí-
fríkinu heldur sem markaðstæki-
færi fyrir íslensk útflutningsfyrir-
tæki.
Kynning á verkefninu hefur verið
sett upp á Internetinu og er netslóð-
in http://info.rfisk.is/verk-
efni/1077/
UA sendir
ýsuna heim
MIKIl eftirspurn hefur verið eftir
sjófrystri ýsu á Akureyri undan-
farnar vikur, en ÚA býður upp á
heimsendingu á soðningunni. Úm
er að ræða tilraunaverkefni, en
undirtektir hafa verið það góðar,
að til greina kemur að bjóða fleiri
fisktegundir með þessum hætti.
Þjónustan er enn sem komið er
einskorðuð við Akureyri og allra
næsta nágrenni.
Björgólfur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, segir að með
þessu verkefni hafi verið rennt
blint í sjóinn en undirtektir hafi
verið það góðar að ákveðið hafi
verið að halda þessu áfram og jafn-
vel sé íhugað að hafa fleir vörur
á boðstólum í framtíðinni. Hann
segir að Akureyringar hafi þó
nokkuð nýtt sér þjónustuna en
einnig hafi þeir verið í viðskiptum
við mötuneyti á Akureyri og þá
sé vissulega um meira magn að
ræða, en lámarksmagn fyrir ein-
staklinga sé ein níu kílóa askja.
Björgólfur segir að þeir reyni að
fá sama verð fyrir ýsuna og þeir
myndu fá fyrir hana í útflutningi.
Hluthöfum og starfsmönnum UA
sé þó boðinn afsláttur á ýsunni.
Pantað tll Egilsstaða
Ráðinn hefur verið maður í verk-
efnið og sér hann um að koma
pöntunum í hús á Akureyri. Auk
þess fer hann í söluferðir um land-
ið og býður landsmönnum sjófrysta
ýsu. Björgólfur segir að komið
hafi upp hnökrar í pöntunarkerfi
í byijun en það virtist í lagi núna.
„Þetta eru nokkuð snúnari við-
skipti en útflutningur og við höfum
lent í ýmsum vandamálum varð-
andi þau. Til dæmis barst okkur
pöntun frá Egilsstöðum en við
getum eðlilega aðeins sinnt Akur-
eyrarsvæðinu. En pöntunin var
afgreidd. Viðkomandi þurfti reynd-
ar að greiða flutningskostnaðinn
sjálfur,“ segir Björgólfur.
250 hrefnur
þegar veiddar
HVALVEIÐAR Norðmanna ganga
nú þokkalega á ný, eftir nokkra
erfiðleika fyrr í sumar. Fyrir
skömmu höfðu 250 hrefnur veiðzt,
en Norðmenn hafa ákveðið að
hrefnukvótinn verði 425 dýr á
þessu ári. Erfiðlega gekk á tíma-
bili að selja hvalkjötið á því lág-
marksverði sem verðlagsráð sjáv-
arútvegsins í Noregi setti, um 265
krónur íslenzkar á kíló til sjó-
manna. Það var ekki fyrr en verð-
lagsráðið tryggði sölu á birgðum
hvalkjöts frá síðasta ári, að kjöt-
vinnslan í landi fór að taka hval-
kjöt á ný.
Nýjungar í
fiskréttum kynntar
Vestmannaeyjum - Aðalfundur
Rannsóknarstofnunar fiskiðn-
aðarins í Vestmannaeyjum var
haldinn fyrir skömmu og sátu
um 50 manns fundinn. Utibúið í
Eyjum er með sjálfstæðan rekst-
ur og er rekið á ábyrgð fisk-
vinnslustöðvanna í Eyjum. A
fundinum kom fram að örlítill
halli hefði verið á rekstrinum á
síðasta ári en hagnaður var árið
þar undan þannig að reksturinn
er í jafnvægi.
Á fundinn komu tveir gestir
sem fluttu ávörp og svöruðu
fyrirspurnum. Grímur Valdi-
marsson, forstjóri Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins í
Reykjavík, skýrði frá nýjungum
í fiskréttum sem kynntir voru á
sjávarútvegssýningu sem haldin
var í Brussel og sýndi myndir
frá sýningunni. Þá flutti Gunnar
Stefánsson, formaður ráðgjafar-
nefndar Hafrannsóknastofnun-
ar, erindi þar sem hann gerði
grein fyrir á hverju ráðgjöfin
fyrir heistu botnfisktegundir
byggðist og síðan svaraði hann
fjölda fyrirspurna eftir erindi
sitt.
Rannsóknarstofnun fiskiðn-
aðarins í Eyjum er með starf-
semi sína í húsnæði Rannsóknar-
seturs Háskólans og þar starfa
þrír starfsmenn í fullu starfi.
■ dtfik.. jMk. arfllfrij
, Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
FRÁ aðalfundi Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins í Eyjum.