Morgunblaðið - 27.06.1996, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996 C 5
Morgunblaðið/Kristján
ÞEIR Jón og Björgólfur binda miklar vonir við hina nýju pökkunarsamstæðu ÚA
sem sést hér á myndinni.
kvæmda varðandi pökkun því fyr-
irtækið hefur fest kaup á nýrri
pökkunarvél. Þá er fyrirhugað að
fjárfesta í nýjum búnaði til laus-
frystingar og flokkunar. „Síðan
fáum við tvær nýjar vinnslulínur
í stað þeirra fjögurra lína sem nú
eru í gangi. Framleiðsla á laus-
frystum afurðum er stöðugt að
aukast og t.d. karfinn fer að lang-
mestu leyti í eins kílós poka.“
Sífellt stærri hluti afurðanna
til endanlegra neytenda
Jón Þórðarson bætir því við að
stefnt sé að því að stækka sífellt
þann hluta framleiðslunnar sem
fari beint til neytenda, hvcrt sem
það er í smásöluverslanir eða til
veitingahúsa. „Framleiðslan fer
núna á fjóra markaði, þ.e. til
Bandaríkjanna, Bretlands, ann-
arra Evrópulanda og Austurlanda.
Fimmti markaðurinn, Austur-Evr-
ópa og Rússland, var mjög stór
hér áður. Við þurfum að sinna
honum vel og búa okkur undir að
taka þátt í efnahagsuppbygging-
unni þar.“
En hversu miklu munar á af-
komu í framleiðslu í hefðbundnar
pappningar og neytendapakkning-
ar?
þannig að tapið verði um 1-2 millj-
ónir. Væntanlega verður þó góður
afgangur á árinu vegna söluhagn-
aðar af skipi.
Meginmálið í sambandi við
þennan rekstur er þó það að búið
er að skipta kvótanum á Reykja-
neshrygg. Kvóti Þýskalands lendir
væntanlega að langmestu leyti hjá
þessu félagi. Við erum því bjart-
sýnir á að reksturinn komi til með
að ganga.“
En stjórnendur ÚA ætla ekki
að láta staðar numið í fjárfesting-
um erlendis. Þeir hafa að undan-
förnu leitað að samstarfsaðila í
Noregi með hugsanlegar fjárfest-
ingar fyrir augum.
Það kemur fram hjá Jóni að
nauðsynlegt sé að draga úr sveifl-
um í hráefnisframboði til að
tryggja stöðugt framboð unninna
afurða á mörkuðum. „Við viljum
gjarnan eiga frekara samstarf við
Norðmenn til að ná þessu mark-
miði. Þegar til lengri tíma er litið
erum við sjaldan í beinni sam-
keppni við þá t.d. í frystingu loðnu-
afurða. Þá er afar sjaldgæft að
þorskur sé í uppsveiflu á sama
tíma í báðum löndunum. Núna er
þorskstofninn að vaxa hjá okkur
en er á niðurleið hjá þeim. Við
erum byijaðir að kaupa hráefni
af Norðmönnum, en gætum einnig
hugsað okkur að vinna frekar með
þeim í framleiðslu í Noregi.“
Bjartsýni
um framtíðinni
Á síðasta ári varð um 20 millj-
óna tap á reglulegri starfsemi ÚÁ,
en um 141 milljónar heildarhagn-
aður vegna söluhagnaðar af skipi.
Á árinu 1996 gera áætlanir ráð
fyrir nokkrum bata í rekstrinum,
en hagræðingin í landvinnslunni
komi að mestu fram á árinu 1997
með verulega bættri afkomu.
ÚA mun þá njóta eins og flest
önnur sjávarútvegsfyrirtæki góðs
af fyrirhugaðri aukningu á þorsk-
kvóta á næsta fiskveiðiári, þar sem
félagið á ríflega 4% af heildar-
þorskkvótanum. Á móti kemur
mikil skerðing á grálúðukvóta fé-
lagsins, en félagið á_ 10% heild-
argrálúðukvótanum. Áætlað er að
kvótaaukningin skili yfir 100 millj-
óna aukningu framjeiðsluverð-
mæta. Forráðamenn ÚA eru því
bjartsýnir á það að í náinni fram-
tíð verði afkoma félagsins með því
besta sem gerist í sjávarútvegi.
Útskrift frá Tækniskólanum
Utflutningsráð verð-
launar lokaverkefni
GUNNAR Gíslason, nemandi í
útflutningsmarkaðsfræði í
Tækniskóla Islands hlaut viður-
kenningu Útflutningsráðs fyrir
lokaverkefni sitt, markaðsáætlun
fyrir unnar fiskafurðir á Þýska-
landsmarkað, en verkefnið var
unnið fyrir Sölumiðstöð Hrað-
frystihúsanna.
Viðurkenningin var afhent
laugardaginn 25. maí sl., þegar
útflutningsmarkaðsfræðingar
sem Iokið höfðu BS prófi voru
útskrifaðir frá Tækniskólanum.
Við það tækifæri afhenti Haukur
Björnsson, forstöðumaður hjá
Útflutningsráði skólanum til eign-
ar bikar sem á verða grafin nöfn
þeirra nemenda sem vinna bestu
markaðsrannsóknina hverju
sinni.
Nemendur í útflutningsmark-
aðsfræði vinna lokaverkefni sín á
þremur önnum og eru það mark-
aðsáætlanir fyrir fyrirtæki eða
stofnanir.
Tækniskólinn mun frá og með
næstu áramótum bjóða upp á eins
árs sérhæfingu í vörustjórnun
(logistics) ofan á tveggja ára nám
í iðnrekstrarfræði eða rekstrar-
fræði. Nemendur með fyrrgreind-
an bakgrunn útskrifast því með
BS gráðu eftir þriggja ára nám.
Eurocard með minnislykla
EUROCARD á íslandi býður nú
korthöfum sínum svonefnda minn-
islykla sem eiga að auðvelda þeim
að muna leyninúmer sem fylgja
debet- og kreditkortum.
í frétt frá fyrirtækinu segir að
með aukinni tækni muni notkun
leyninúmera verða algengari í
sjálfsölum, hraðbönkum og jafnvel
í einstökum verslunum. Með minn-
islyklinum vilji Eurocard stuðla að
auknu öryggi í þessum viðskiptum
og auðvelda korthöfum að muna
leyninúmerin.
Að sögn Bergsveins Sampsted,
forstöðumanns markaðs- og þjón-
ustusviðs Eurocard á íslandi, varð
mikil aukning á síðasta ári í út-
gáfu debet- og kreditkorta á Is-
landi líkt og annars staðar í Evr-
ópu. Samfara aukinni notkun
greiðslukorta hafi hraðbönkum og
móttökustöðum kortanna fjölgað
og í árslok 1995 voru hraðbankar,
sem veita Eurocard-Maestro við-
töku, orðnir 257.000 talsins í
heiminum. Á sama tíma eru mót-
tökustaðir greiðslukorta frá sömu
aðilum orðnir u.þ.b. 13 milljónir í
heiminum.
„Það var ekki nægilega mikill
munur á framleiðsluverði þessara
afurða. Okkar svar við því er að
auka tæknivæðinguna t.d. með
pökkunarlínunni. Hér áður voru
20-30 manns starfandi við pökk-
un, en eftir að við fengum nýju
samstæðuna nægir að hafa 4-6
við pökkun.“
Rekstur MHF
á uppleið
Verulega hefur rofað til í rekstri
Mecklenburger Hochseefischerei
GmbH, dótturfyrirtækis ÚA í
Þýskalandi, eftir mikið tap á árinu
1994. Félagið gerir út fimm skip,
en sjötta skipið hefur nýlega verið
selt. „Eftir á að hyggja má segja
að við höfum verið of bjartsýnir í
upphafi,“ segir Björgólfur. Að vísu
urðum við fyrir áföllum því verðið
á afurðunum lækkaði að meðaltali
úr 5 þýskum mörkum í 2,50 mörk.
Núna höfum við náð verðinu upp
aftur. Það er ekki aðeins markað-
urinn sem hefur lagast heldur
höfum við breytt framleiðslusam-
setningunni og vinnufyrirkomu-
lagi um borð í skipunum. Vinnslu-
afköstin hafa því verið að aukast.
Það varð 14,7 milljóna marka
tap árið 1994. Árið 1995 var af-
koman neikvæð um 2,5 milljónir,
en þá féll til 1,4 milljóna marka
söluhagnaður þannig að rekstur-
inn sjálfur skilaði 3,9 milljóna tapi.
Við reiknuðum með því að síðasta
ár yrði betra en raun bar vitni.
Afkoman hrundi hins vegar í sept-
ember og október. Við teljum að
afkoman batni enn á árinu 1996,
Þættir sem fyrirtæki kunna vel áb meta í fjármálaþjónustu Lýsingar hf.
Kynntu þér þá margvíslegu möguleika sem fjármögnunarleiga hefur umfram aSra kosti á
lánamarkaðinum. Fáðu ítarlegan upplýsingabækling í næsta útibúi Búnaðarbankans, Landsbankans
eða hafðu beint samband við okkur.
FUOTLEGRI FJARMOGNUN
SUÐURIANDSBRAUT 22, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1500, FAX 533 1505, 800 6515-
'QtfeHkRCt
>//W-------
Eigendur:
(ífiB
WÍ
BUNAÐARBANKI
SLANDS
0 Landsbankl
BA Islands
^ brHikilnlmin
A
sj qváLSPalm e n har vAnncci vartMG Islaads hi