Morgunblaðið - 24.07.1996, Síða 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ1996
BLAÐ
SÍF tekur saltfisksölu
á Spání í eigin hendur
Slítur samstarfinu
við Copesco Sefrisa
SÍF hefur slitið samstarfi sínu við
Copesco Sefrisa á Spáni, en félögin
ráku saman saltfisksölufyrirtækið
Copesco SÍF frá því haustið 1994.
SÍF hefur ákveðið að stofna eigin
sölufyrirtæki á Spáni undir nafninu Union Islandia og mun það hefja starfsemi
í eigin húsnæði í september. íslenzkur framkvæmdastjóri verður ráðinn að fyrir-
tækinu. Gunnar Örn Kristjánsson, framkvæmdastjóri SÍF, segir að hagsmunir
SÍF og spænsku samstarfsaðiljanna hafi ekki farið nógu vel saman. „Hagsmun-
um okkar er bezt borgið með því að reka eigin starfsemi á Spáni. Með því næst
það markmið okkar, að skila framleiðendum hér heima sem hæstu skilaverði
fyrir fiskinn," segir Gunnar Örn.
Gunnar Örn segir, að þar sem það
sé markmið SIF að skila framleiðend-
um eins miklu heim og unnt sé, sé það
bezt að félagið starfi sjálfstætt á hin-
um erlendu mörkuðum. Reynslan af
slíkri starfsemi á Ítalíu, í Frakklandi
og Portúgal sé góð og því full ástæða
til að fara sömu leið á Spáni. „í raun
hefði SÍF átt að stíga slík skref miklu
fyrr en gert var,“ segir Gunnar Örn.
SÍF á 1.500 fermetra nýlegt hús-
næði í Mercabana í Barcelona, en þar
er miðstöð matvæladreifingar í Kata-
lóníu. Húsið er talið henta mjög vel
3 LárusÆgir
Guðmundsson
formaður Félags
rækju- og hörpu-
diskframleiðenda
Aflabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
Bátasmíði
5 Bátasmiðja
Guðmundar með
nýjan og stærri
Sóma
Markaðsmál
0 Beitarfiskur tal-
inn fiskur næstu
aldar í fiskeldinu
til þessarar starfsemi og mun hún
hefjast þar í haust undir stjórn ís-
lenzks framkvæmdastjóra.
Mikilvægt að Íslendíngur
stjórni fyrirtækinu
„Við vildum í upphafi samstarfs
okkar við Spánveijana ráða íslenzkan
framkvæmdastjóra, en þeir gátu ekki
sætt sig við það. Niðurstaðan varð svo
sú að áherzlurnar við reksturinn urðu
aðrar en þær, sem þjónuðu
hagsmunum framleiðenda heima bezt.
Það gátum við auðvitað ekki sætt okk-
ur við, því ein af forsendum þess að
ná markmiðum okkar er að íslendingur
stjórni fyrirtækinu.
Spánn er einn af mikilvægustu salt-
fiskmörkuðum okkar og verður svo
áfram. Öll sala Nord Morue, dótturfyr-
irtækis okkar í Frakklandi, mun fara
í gegn um hið nýja fyrirtæki okkar.
Það mun svo markaðssetja fiskinn
undir vörumerkinu Bacalao Islandia,
sem er mjög þekkt á Spáni.
Eiga ekki von á eftirköstum
Við eigum ekki von á neinum sér-
stökum eftirköstum vegna þessa máls.
Það er þó ljóst að fyrrum samstarfs-
aðilar okkar munu nú keppa við okkur
og aðra útflytjendur um hylli framleið-
enda hér heima. Þeir munu vafalaust
reyna að yfirbjóða okkur og ná ein-
hveijum yfir til sín, en reynslan hefur
sýnt að hag framleiðenda á íslandi er
bezt borgið í viðskiptum við SÍF. Við
teljum okkur því ekki hafa neitt að
óttast," segir Gunnar Örn Kristjáns-
son.
Á SJÓSTÖNG MEÐ PABBA
• VALGEIR Guðmundsson bra
sér nýlega á sjóstangaveiðar með
föður sínum Friðrik Guðmunds-
syni. Þeir feðgar skruppu út á
Vopnafjörð til að sækja ýsu í soð-
Morgunblaðið/HG
ið. Það var hins vegar bara sá
guli sem gaf sig, svo minna varð
úr veiðum en ætlað var. Kannski
að kvótinn hafi verið búinn.
Fréttir Markaðir
Spá fækkun
sóknardaga
• SÓKN ARDÖGUM króka-
báta fækkar verulega á fisk-
veiðiárinu 1997-8 sam-
kvæmt spá sjávarútvegs-
ráðuneytisins en spáin er
miðuð við þorskveiði sókn-
ardagabáta á þessu fiskveið-
iári fram að 9. júlí. Sóknar-
dagabátar hafa veitt mun
meira á þessu fiskveiðiári
en væntanlegar heimildir
þeirra verða á því næsta.
Þorskaflahámarksbátar eru
í miklum meirihluta þeirra
sem sótt hafa um úrelding-
arstyrki til Þróunarsjóðs
sjávarútvegsins./2
Gjöfult
fiskveiðiár
• YFIRSTANDANDI fisk-
veiðiár stefnir í að verða hið
gjöfulasta í sögunni. Þegar
tveir mánuðir voru eftir af
því, var heildaraflinn orðinn
rúmlega 1,4 milljónir tonna.
Það er um 80.000 tonnum
meira en á sama tíma í fyrra
og 50.000 tonnum meira en
fiskveiðiárið þar á undan.
Síid og loðna eru uppistaða
aflans, eða um 920.000 tonn.
Botnfiskafli er nú um
408.000 tonn, sem er nokkru
meira en í fyrra en mun
minna en undanfarin fisk-
veiðiár.
Héðinn byggir
mjölgeymana
• HÉÐINN Smiðja hf. hefur
frá áramótum hannað og
byggt þrjú mjölblöndunar-
og lagergeymakerfi hér á
landi, en þessi kerfi þykja
bylting í meðferð og fram-
leiðslu mjöls. Þegar hafa
verið sett upp mjölblöndun-
ar- og lagergeymakerfi við
verksmiðjur Loðnuvinnsl-
unnar hf. á Fáskrúðsfirði
og Hraðfrystihús Eskifjarð-
ar, en einnig eru í smíðum
lagergeymar við verksmiðju
Haralds Böðvarssonar hf. á
Akranesi./3
Aflinn fimm fiskveiðiár,
1991/92-1995/96
Krabbi
og skel
Loðna
og
síld
Annar
botnf.
Þorskur
91/2 92/3 93/4 94/5 95/6
Aflaverðmæti
fer vaxandi
lÁUpus. ionn-
Verðmæti aflans
jan.-júní 1994-96
3,0 milljarðar kr.---
0............
Krabbi
og skel
Loðna
og síld
Annar
botnf.
Þorskur
í „víking“
til Suður-Kóreu
• I TENGSLUM við opin-
bera heimsókn utanríkisráð-
herra til Suður-Kóreu 27.
ágúst til 1. september hefur
verið skipuð viðskiptasendi-
nefnd íslenskra fyrirtækja
sem munu kynna sér við-
skiptalíf þar í landi, kyniia
íslensk fyrirtæki og fjárfest-
ingartækifæri á Islandi.
Halldór Asgrímsson, utan-
ríkisráðherra, segir ótal
tækifæri fyrir íslensk sjáv-
arútvegsfyrirtæki til að
hasla sér völi í Kóreu./5
Mjöl fyrir um
milljarð króna
• MIÐAÐ VIÐ um 200 þús-
und tonna loðnuveiði á yfir-
standandi sumarvertíð má
ætla að heildarverðmæti
loðnunar sé um 2 milljarðar
króna sé tekið mið af af-
urðaverði hráefnistonnsins.
Þegar hefur verið framleitt
rnjöl fyrir rúmlega einn
milljarð króna og verðmæti
lýsisframleiðslunnar eru
orðin um 713 milljónir
króna./7
• VERÐMÆTI fiskaflans
er nú meira en á sama t íma
í fyrra, en undanfarin ár
hefur verðmæti aflans
minnkað milli t ímabila.
Verðmætið eftir fyrstu 6
mánuði ársins er rúmlega
27 miUjarðar króna, en var
26,8 milljarðar á sama í
fyrra. Þorskurinn gefur
mest af sér, eða um 6,5 millj-
arða, en verðmæti rækjuaf-
lans eykst stöðugt og er nú
komið í 4,4 inilljarða í öðru
sætinu. Karfi er svo í þriðja
sæti með 4,3 miUjarða, bæði
úthafskarfi og aðrar teg-
undir. Loðnan er í því fjórða
með um 4 milljarða
króna./6