Morgunblaðið - 01.08.1996, Blaðsíða 4
4 B FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Aukin þörf á atvinnu • Léleg vinnuaðstaða í flestum fangelsum # Brot bætt á táknrænan hátt • Af plánun nýtt til skynsamlegra verka
AANNAÐ hundrað
fangar afplána
refsidóma í íslensk-
um fangelsum allan
ársins hring. Jafn-
framt er töluvert
um það að þeir sem hafa hlotið
dóma afpiáni þá með samfélags-
þjónustu eða hjá félagasamtökun-
um Vernd.
í ársbyrjun 1995 færðust fjár-
mál alls fangelsiskerfisins frá
dómsmálaráðuneyti til Fangelsis-
málastofnunar. Við þessa breyt-
ingu var ráðinn fjármálastjóri til
Fangelsismálastofnunar þannig að
fjármál allra fangelsa landsins eru
á einni hendi ásamt atvinnumálum
fangelsanna. Eftir breytingarnar
hefur verið lögð mikil áhersla á
að leita nýrra verkefna fyrir fanga,
meðal annars vegna þess hversu
mikla íjármuni það sparar ríkinu.
Á síðasta ári var ný fangelsis-
bygging tekin í notkun á Litla-
Hrauni og jókst fangarými við það
úr 52 fangaklefum í 88. Samfara
stækkuninni varð brýnni þörf á
auknum atvinnutækifærum í
fangelsinu.
Á Litla-Hrauni er starfrækt
hellusteypa sem framleiðir gang-
stéttarhellur og kantsteina. Þar
vinna 8 fangar og fer framleiðslan
fram allt árið. I ár hafa starfsmenn
hellusteypunnar einnig steypt und-
irstöður undir girðingu fyrir fang-
elsið.
Þrír fangar vinna við bílnúmera-
gerð og límingar á öskjum fyrir
stofnanir og ráðuneyti.
Á Litla-Hrauni eru starfrækt
trésmíða- og járnsmíðaverkstæði.
Þar starfa um 10 manns við ýmis
verkefni, en vel er hægt að bæta
við verkefnum þar. Á síðasta ári
skapaðist aukin vinna á trésmiða-
verkstæði vegna nýju fangelsis-
byggingarinnar við smíði á rúmum,
hillum og borðum.
Yfir sumartímann vinna 10-15
fangar við viðhald tækja, lóðar og
húsa auk þess sem 10 fangar starfa
við ræstingar. Frá því í maí hafa
fangar á Litla-Hrauni séð um
þvotta fyrir fangelsið en áður var
hann sendur í Kópavogsfangelsið.
Á næstunni verður lokið við
smíði nýs 253 fm vinnuskála sem
gefur möguleika á að skipuleggja
Á Litla-Hrauni er meiri vinna
fyrir fanga en í Kópavogi og fleiri
langtímaverkefni. Samt sem áður
er hluti vinnufærra fanga án at-
vinnu. Að sögn fanga á Litla-
Hrauni fylgja vinnunni ýmis fríð-
indi. Þeir hafa möguleika á að
stunda líkamsrækt í miklu meira
mæli en hinir sem ekki vilja eða
geta unnið og útivistartíminn eykst
einnig. „Ekki spillir fyrir að hafa
meira fé til umráða og því reynum
við að komast í vinnu sem er betur
borguð þrátt fyrir að hún sé mun
erfiðari.“
Þór Hafdal Ágústsson, deildar-
stjóri á Litla-Hrauni, segir að fang-
ar sem eru lausir við vímuefni
gangi fyrir með vinnu. Fangaverðir
skoða fangaklefa reglulega ásamt
því að teknar eru þvagprufur. Þeir
fangar sem verða uppvísir að vímu-
efnanotkun eru sviptir vinnu og
þeim fríðindum sem henni fylgja.
„En það er mjög sjaldgæft að fang-
arnir neyti vímuefna þegar þeir
hafa fengið vinnu því flestir eru
ákafir í að hafa hana því þeir fá
borgað fyrir vinnuna og hún dreif-
ir huganum.“
Sparar ríkinu fjármuni
Frá árslokum 1994 hafa dómþol-
ar getað sótt um vist á áfangaheim-
ili Verndar um stundarsakir eða
allan refsitímann.
Annars vegar er hér um að ræða
vistun dómþola sem hafa afplánað
nokkurn tíma, sýnt af sér fyrir-
myndarhegðun í refsivistinni og
hafa hvorki framið mjög alvarleg
afbrot né verið taldir síbrotamenn.
Hins vegar er um að ræða þá
sem hafa hlotið skemmri dóma, eru
í fastri vinnu eða námi en hafa
ekki afplánað nema skamman tíma.
Helstu skilyrði fyrir vistun eru
þau að dómþoli stundi viðurkennda
atvinnu eða nám á afplánunartím-
anum og eiga atvinnurekendur eða
skólar að skila inn skriflegri stað-
festingu á ástundun. Auk þess má
síðasti dómur fanga ekki vera fyrir
brot sem telst alvarlegt.
í ársskýrslu Fangelsismálastofn-
unar ríkisins fyrir 1995 segir að
kostnaður vegna dómþola á meðan
vistun á áfangaheimili varir sé
greidd af þeim sjálfum. Með því
fyrirkomulagi spari ríkið umtals-
Morgunblaðið/Sverrir
Samkvæmt íslenskum lögum eiga vinnufærír
fangar að stunda atvinnu meðan á afplánun
stendur. Erfitt hefur reynst að framfylgja
lögunum vegna aðstöðuleysis og skorts á
hentugri vinnu í fangelsunum. Guðrún Hálf-
dánardóttir kynnti sér vinnu í fangelsum.
Nýr vinnuskáli
Sólmundur Már Jónsson, fjár-
málastjóri Fangelsismálastofnun-
ar, segir að vinnumál fanga séu
vandamál hér á landi líkt og víða
erlendis. „Hérlendis hefur verið
gert töluvert átak í þessum málum
á síðastliðnu ári. Vinnuaðstaða í
fangelsunum er af skornum
skammti fyrir utan Kvíabryggju
og Litla-Hraun, þar sem verið er
að ljúka byggingu á vinnuskála
sem eykur möguleika á atvinnu-
starfsemi þar. Aftur á móti er enga
vinnu að hafa í Hegningarhúsinu,
enda er lítil aðstaða til vinnu þar,
og sama gildir um fangelsið á
Akureyri. Þar er hægt að vinna við
pökkun á smávöru eða samsetn-
ingu á smávöru ef atvinnutækifæri
skapast."
Samkvæmt 13. gr. laga nr. 48
frá árinu 1988 á að vera aðstaða
og tæki til fjölbreyttrar vinnu í
fangelsum. Ljóst er að þessum lög-
um er ekki hægt að framfylgja í
öllum fangelsum landsins og í raun
einungis á Litla-Hrauni og Kvía-
bryggju.
ný verkefni í samstarfi við fyrir-
tæki þar sem engar innréttingar
eru komnar í húsnæðið, sem gefur
mikla möguleika á fjölbreyttri
framleiðslu.
„Stefna Fangelsismálastofnunar
er að leita eftir samstarfi við fyrir-
tæki um framleiðslu. Því að fyrir-
tækin búa yfir markaðs- og tækni-
þekkingu en fangelsin hafa vinnu-
afl og aðstöðu. Við viljum miklu
frekar samstarf við fyrirtæki held-
ur en samkeppni. Því vonumst við
til að fyrirtæki hafi áhuga á að
nýta sér þá aðstöðu sem skapast
með nýju vinnuaðstöðunni og von-
andi verður hægt að útvega öllum
vinnufærum föngum vinnu. Sam-
starf við ýmis fyrirtæki hefur verið
gott en það má efla og auka. Á
Litla-Hrauni gætu fyrirtæki t.d.
sett upp og átt framleiðslutæki sem
fangar myndu vinna við.
Það hlýtur að vera skynsamlegra
að fangar nýti afplánunartíma til
nytsamlegra verka, læri að vinna
og afli sér tekna og séu þar með
betur í stakk búnir að takast á við
lífið þegar afplánun lýkur. Ásamt
því að með vinnu fanga aukast
tekjur fangelsa sem lækkar kostn-
að ríkisins,“ segir Sólmundur.
Tíminn Iíður hraðar
í Kópavogsfangelsi, sem er eina
fangelsið sem vistar bæði kven- og
karlfanga, er vinnuaðstaða af
skomum skammti þrátt fyrir 12
fangapláss. Þar er lítið þvottahús
þar sem 2 fangar hafa vinnu 3-4
daga í viku við að þvo þvotta fyrir
fangelsin á Reykjavíkursvæðinu.
Auk þess eru þar þvegin teppi fyr-
ir lögregluna. Að sögn fangavarðar
er vel hægt að bæta við verkefnum
enda er þvottahúsið hvergi nærri
fullnýtt.
Ýmis smáverkefni fyrir fyrirtæki
hafa einnig verið unnin í Kópavog-
inum, s.s. barmmerkjagerð, pökkun
og flokkun á fatnaði.
Kvenfangi, sem blaðamaður
ræddi við, sagði að flestir fanganna
í Kópavoginum vildu vinna meira
en boðið væri upp á. „Ég er búin
að vera hér í rúmlega hálft ár, þar
af var ég án vinnu í 1-2 mánuði.
Undanfarið hef ég unnið 3 daga í
viku í þvottahúsinu, en ég vil gjarn-
an vinna meira því að þá líður
tíminn hraðar og andrúmsloftið
verður allt annað meðal fanga í
fangelsinu. Þegar engin vinna er í
gangi, verður iítið um umræðuefni
annað en að rifja upp gamlar sögur
úr fíkniefnaheiminum og afbrotum.
Fangaverðirnir eru fínir hér og
gera sitt til að við höfum eitthvað
að gera þegar enga vinnu er að fá,
t.d. kaupa þær fyrir okkur handa-
vinnu og föndurvörur.“
Lögum samkvæmt fá fangar
greitt fyrir vinnu sína og reglu-
bundið nám kemur í stað vinnu-
skyldu.
í stærsta fangelsi landsins, Litla-
Hrauni, er rekinn skóli þar sem
fangar geta lokið prófum í náms-
greinum sem kenndar eru í Fjöl-
brautarskóla Suðurlands. Auk þess
hafa verið haldin vinnuvélanám-
skeið þar og fangar lokið minni
skipstjórnarprófum.
Fríðindi fylgja vinnu
Tímakaup fanga er á bilinu
175-250 krónur. Tekið er mið af
vinnuhæfni fanga og arðsemi vinn-
unnar við ákvörðun launa. Dagpen-
ingar greiðast þeim föngum sem
ekki er hægt að útvega vinnu eða
eru óvinnufærir að mati fangelsis-
lækna. Dagpeningar nema 300
krónum á dag samkvæmt reglu-
gerð dómsmálaráðuneytis.
Að sögn Sólmundar eru um 90%
fanga í afplánun í eitt ár eða skem-
ur og jafnvel einungis í nokkrar
vikur. „Því er yfirleitt ekki tími til
að þjálfa menn upp í sérhæfð störf.
Störfin þurfa því að vera frekar
einföld. Aðrir eru í lengri tíma og
því er æskilegt að þeir geti unnið
fjölbreyttari störf.“
Sérstaða Kvíabryggju
Eitt fangelsi á íslandi hefur sér-
stöðu þegar kemur að atvinnumál-
um fanga. Á Kvíabryggju eru vist-
aðir 14 fangar sem allir eru í vinnu.
Þar er einkum unnið í akkorði við
beitingu og netafellingar fyrir út-
gerðir í nágrannabæjum. Nýlega
er hafin framleiðsla á vörubrettum
á Kvíabryggju auk þess sem við-
hald eigna og lóðar er að mestu í
höndum fanga. Einungis afplána
vinnufærir karlmenn dóma á Kvía-
bryggju. „Þegar dómþolar eru
sendir í afplánun er reynt eftir
megni að senda vinnufæra fanga
í fangelsi þar sem vinnuaðstaða og
-tækifæri eru fyrir hendi. Aftur á
móti eru óvinnufærir fangar frekar
sendir í fangelsi með litla atvinnu-
möguleika," segir Sólmundur.
verðar fjárhæðir en árið 1995 var
kostnaður við afplánun hvers fanga
í fangelsi í heilt ár um 3 milljónir
króna.
1. júlí 1995 tóku gildi löjg um
samfélagsþjónustu dómþola. I sam-
félagsþjónustu felst að dómþola er
gefinn kostur á að sækja um að
ljúka óskilorðsbundnum refsivistar-
dómi með því að vinna launalaust
verkefni sem koma þjóðfélaginu að
gagni og bæta þannig fyrir brot á
táknrænan hátt.
Miklar væntingar eru bundnar
við samfélagsþjónustuna, en um
er að ræða aðstoðarstörf hjá opin-
berum stofnunum og félagasam-
tökum, sem eru unnin í frítíma
dómþola og aldrei á skemmri tíma
en tveimur mánuðum.
I viðtölum blaðamanns við fanga
og fangaverði á Litla-Hrauni og í
Kópavogsfangelsi lýstu allir yfir
þörf fyrir aukin atvinnutækifæri
innan veggja fangelsanna. Með því
að veita vinnufærum föngum at-
vinnu er bæði verið að framfylgja
lögum íslenska ríkisins og gera
fanga betur í stakk búna til að
takast á við lífið eftir afplánun.
_________________________________FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1996 B 5
VIÐSKIPTI
USAir í mál gegn tengsl-
um BA/American
London. Reuter.
RÁÐGERÐ samvinna flugfélag-
anna British Airways og American
Airlines hefur hlotið mikilvægan
stuðning áhrifamikillar brezkrar
þingnefndar, en núverandi sam-
starfsaðili BA í Bandaríkjunum,
USAir, hefur höfðað mál gegn sam-
vinnunni af því að hún geti leitt til
hringamyndunar.
BA á óvart og andstæðingum
félagsins til ánægju tilkynnti USAir
að það félag hefði höfðað mál í New
York á þeirri forsendu að hin nýju
tengsl BA og American mundu
grafa undan samkepnni á Banda-
ríkja- og Bretlandsmarkaði.
Virgin-flugfélag Richards Bran-
sons fagnaði málshöfðuninni. „Ef
samstarfsaðili BA tekur þessa af-
stöðu geta eftirlitsyfirvöld í Evrópu
og Bandaríkjunum aðeins dregið
þá ályktun að samruni BA og Amer-
ican bijóti í bága við eðlilega sam-
keppni og leiði til einokunar," sagði
Branson í yfirlýsingu..
Stuðningur þingnefndar
Áður hafði samgöngumálanefnd
Neðri málstofu brezka þingsins lát-
ið í ljós skilningi á áhyggjum af
óeðlilegri samkeppni, en sagt að
draga mætti úr þeirri hættu og
nefndin teldi ekki að hindra ætti
samningin með því að vísa málinu
til brezku einokunar- og samruna-
nefdarinnar (MMC).
Nefndin sagði að flugfélög um
allan heim væru að stofna til svip-
aðrar samvinnu vegna harðnandi
samkeppni á markaði, sem yrði
stöðugt alþjóðlegri, og Bretar
mættu ekki dragast aftur úr öðrum.
„Við teljum að samvinna BA og
AA geti tryggt að Bretar haldi
áfram að gegna meiriháttar hlut-
verki í flugmálum heimsins, Bret-
landi til mikils gagns,“ sagði í
skýrslu frá nefndinni.
Time Warner
sammála FTC um
Turner- samruna
New York. Reuter.
TIME WARNER kveðst hafa komizt
að samkomulagi í aðalatriðum við
alríkisráð viðskiptamála, FTC (Fed-
eral Trade Commission), Turner Bro-
adcasting System og Tele-Com-
munications Inc. um að halda áfram
kaupum á Turner.
í Washington staðfesti FTC að
starfsmenn ráðsins væru í aðalatrið-
um sammála tillögu um að leyfa
kaup Time Warner á Turner Broadc-
asting, sem kaplarisinn Tele-Com-
munications á 21% í.
Grundvallarsamkomulagið er háð
framkvæmd endanlegs samkomu-
lags allra aðila og formlegu sam-
þykki FTC, að sögn málsaðila.
Málsvari FTC sagði að samkomu-
lag starfsmanna FTC, Time Warn-
ers, Turners og TCI yrði kynnt yfir-
mönnum ráðsins innan skamms.
Aðalframkvæmdastjórar Time
Warner og Turner Broadcasting Sy-
stem, Gerald Levin og Ted Turner,
hafa verið í Washington og rætt við
starfsmenn FTC. Fleiri fundir eru
fyrirhugaðir.
Time Warner stakk upp á því að
fá Turner í skiptum fyrir hlutafé, sem
var áætlað um 7,5 milljarðar dollara
þegar frá þessu var skýrt í septem-
ber. Eftirlitsvöld hafa farið rækilega
í saumana á málinu vegna uggs um
ESBfrestar
fjölmiðlafundi
FUNDI framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins um hugmyndir um
lagasetningu í því skyni að hefta
yfirgnæfandi áhrif fjölmiðlajöfra á
borð við Silvio Berlusconi og Rupert
Murdoch hefur verið frestað.
Höfundur áætlunar þar að lút-
andi, stjórnarfulltrúinn Mario Monti,
gerði grein fyrir henni á síðasta
stjórnarfundi fyrir sumarfrí, en um-
ræðum var frestað vegna tímaskorts.
Áætlunin miðar að því að sam-
ræma lög ESB um fjölmiðlafjölræði
til að leyfa fjárfestingar þvert yfir
landamæri í fjölmiðlaþjónustu. Nú
er gert ráð fyrir að málið verði rætt
4. september.
Búizt er við að lengri bið verði
eftir endanlegri ákvörðun um áætl-
unina.
JAPANAR hafa kært Brasilíumenn
fyrir Alþjóðaviðskiptastofnuninni,
WTO, vegna innflutningstolla á bíl-
um og fara fram á formlegar ráðfær-
ingar um málið að sögn japanskra
embættismanna.
Áður hafa farið fram árangurs-
lausar viðræður um málið í Genf og
Rio de Janeiro utan ramma WTO.
Brasilíumenn hækkuðu tolla á inn-
að nýtt, sameinað fyrirtæki muni
ráða lögum og lofum í kaplasjón-
varpsgeiranum.
Time Warner á nokkur kaplasjón-
varpsnetkerfi auk Warner kvik-
myndaversins og tímaritanna Time,
People, Sports IUustrated og Fort-
une.Fyrirtækið segir að handbært fé
frá rekstri kaplanetsins hafi numið
494 milljónum dollara á öðrum árs-
fjórðungi, sem sé met.
Flest kaplakerfi Time Warners,
þar á meðal Home Box Offíce, til-
heyra Time Warner Entertainment,
sem Time Warner á ásamt lands-
hlutasímaféiaginu US West.
Time Warner sigraði nýlega í
málaferlum við US West, sem hélt
því fram að fyrirhuguð kaup Time
Wamers á Turner Broadcasting
stríddu gegn samningi um sameign-
arfélag þeirra.
FTC hefur einnig áhyggjur af fyr-
irhuguðum. samruna vegna þess að
kaplarisinn Tele-Communications á
21% í Turner, sem á Cable News
Network (CNN).
Eftirlitsyfirvöld hafa áhyggjur af
hlutverki því sem TCI og áhrifamik-
ill yfirmaður fyrirtækisins, Johns
Maiones, kunna að hafa í hinu sam-
eiginlega fyrirtæki.
Verkföll í þýzk-
um verzlunum
Frankfurt. Reuter.
ÞÝZKIR verzlanaeigendur, sem
reyna að auka veltu með sumarútsöl-
um, standa frammi fyrir nýjum verk-
fallsaðgerðum verzlunarfólks, sem
er orðið þreytt á seinagangi í launa-
viðræðum.
Eitt félag þeirra, DAG, hótar að
herða á verkfallsaðgerðum á nokkr-
um stórmörkuðum í Baden-Wiirttem-
berg og Nordrhein-Westfalen. DAG
og HBV, félag afgreiðslu- og banka-
fólks, krefjast 5% launahækkunar og
starfsöryggis rúmlega 2 milij. starfs-
manna smásöluverzlana. Vinnuveit-
endur hafa boðið 1,85% launahækk-
un, sem DAG hefur hafnað.
Fjögurra mánaða viðræður hafa
strandað á kröfum um aukagreiðslur
fyrir lengri vinnutíma vegna nýrra
laga um lengri afgreiðslutíma.
fluttum bílum um 70% í júní í fyrra
og í desember tóku gildi nýjar regl-
ur, sem heimila að framleiðendur
með bækistöð í Brasilíu geti flutt inn
bíla með 35% forgangstollum.
Japanar selja mikið af bifreiðum
til Brasilíu. Þeir kvarta yfir mismun-
un og segja Brasilíumenn brjóta regl-
ur WTO um opin viðskipti.
Viðskipta-
og þjónustu-
skrá Hafn-
arfjarðar
komin út
KOMIN er út Viðskipta- og
þjónustuskrá Hafnarfjarðar,
sem er dreift frítt í öll hús og
fyrirtæki í Hafnarfirði. Bókin
er gefin út af Aflamiðlun ehf.
í samvinnu við Hafnarfjarð-
arbæ og Afivaka hf. Skráin
verður leiðrétt reglulega og
verður endurútgefin árlega
með áorðnum breytingum.
Umsjón með útgáfunni
hafði Steinunn Hansdóttir, en
alls unnu 15 manns að henni.
Nú éru allar upplýsingar til
um fyrirtækin á tölvutæku
formi og er hægt að fá þær
keyptar, allar eða einstaka
hluta þeirra, í tölvutæku formi
eða á límmiðum.
Bókinni er skipt niður í
nokkra meginkafla þ.e. saga
Hafnarfjarðar, fyrirtækjaskrá,
kennitölu- og faxnúmeraskrá,
húsfélagaskrá, þjónustuskrá
og stjórnsýsla Hafnarfjarðar.
Aflamiðlun ehf. er alhliða fjöl-
miðlafyrirtæki í Hafnarfirði
sem gefur út Fjarðarpóstinn í
6.300 eintökum og er dreift
frítt inn á hvert heimili og
fyrirtæki í Hafnarfirði. Félagið
gefur ennfremur út Kópavogs-
póstinn sem kemur út tvisvar
í mánuði í Kópavogi og starf-
rækir Útvarp Hafnarfjörður,
sem sendir út ýmislegt hafn-
firskt efni. Loks starfrækið
félagið Sjónvarp Hafnarfjörð-
ur, sem sendir út staðbundnar
fréttir og viðtöl í 30 mínútur
tvisvar á dag fimm daga vik-
unnar.
Margir enn án
atvinnu íJapan
Tókýó. Reuter.
FLEIRI voru enn án atvinnu í Japan
í júní en nokkru sinni fyrr, en at-
vinnutækifærum heldur áfram að
fjölga.
Atvinnuleysi var 3,5% í júní, annan
mánuðinn í röð, og hefur ekki verið
meira síðan mælingar með núverandi
aðferðum hófust 1953.
Þótt um met sé að ræða er lítið
atvinnuleysi í Japan samanborið við
önnur helztu iðnríki heims, en í sum-
um þeirra eru atvinnuleysi meira en
10 af hundraði.
Þótt atvinnuleysi sé enn mikið
bendir margt til þess að áhrifa efna-
hagsbata í Japan sé farið að gæta á
vinnumarkaði þar vegna þess að at-
vinnutækifærum fjölgar.
Tölur vinnumálaráðuneytisins í
Tókýó sýna að um 71 atvinnumögu-
leika var að ræða fyrir hveija 100
Japana, sem sóttu um atvinnu í júní,
samanborið við 69 í maí.
Brasilía kærð fyrir bílatolla
Genf. Reuter.