Morgunblaðið - 03.08.1996, Blaðsíða 7
6 C LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1996 C 7
Q99 ATLANTA ’96 Q9P ATLANTA ’96
Boldon hneigði sig
FÖGNUÐUR Michaels Johnsons var að vonum mikill þegar hann
kom í mark á nýju heimsmeti. Hann lyfti höndunum hátt á loft,
brosti út að eyrum og bæði áhorfendur á Ólympíuleikvanginum
og keppinautar Johnsons fögnuðu honum. Sá fyrsti sem Johnson
faðmaði var Frankie Fredericks, sem varð f öðru sæti og síðan
kom Ato Boldon, hinn ungi og fjörugi hlaupagarpur frá Trinidad,
sem varð þriðji og hneigði sig fyrir Johnson á hlaupabrautinni.
Boldon varð í 3. sæti á 19,80 sekúndum sem er sjöundi besti timi
sem náðst hefur í 200 metra hlaupi frá upphafi.
Þríðji besti tíminn
hein'®
Sumtnrt
FRANKIE Fredericks frá Namibíu hljóp einnig é frábærum tíma, 19,68
sek. Þetta er raunar þriðji besti tími sögunnar í 200 metra hlaupi, aðeins
Michael Johnson hefur náð betri tíma á vegalengdinni. Johnson bætti heims-
met sitt um 0,34 sekúndur og hefur heimsmetið í greininni aldrei verið
bætt eins mikið í einu. Hann varð 0,36 sekúndum á undan
Fredericks og er þetta stærsti sigur
sem unnist hefur á Ólympíuleikum
í greininni síðan Jesse Owens vann
landa sinn Marck Robinson í Berlín
1936, en þá hljóp Owens á 20,7
sekúndum en Robinson á 21,1.
Rétt er að geta þess að þá var
ekki rafmagnstímataka.
Get bætt
metið!
„EF ÉG tryði því ekki að ég gæti bætt
heimsmetið myndi ég ákveða að hætta að
keppa í 200 metra hlaupi strax í dag. Það
sem þarf er bara að hafa nógu mikla trú
á því að þetta sé hægt,“ sagði Ato Bolden
við Morgunblaðið á
fimmtudagskvöldið á
Ólympíuleikvangin-
um. Bolden varð
þriðji í 200 m hlaup-
inu og sagðist viss
um að hann gæti
bætt þennan frábæra
tíma eftir tvö til þijú
ár. „Ég er ennþá
mjög óreyndur,
hef ekki æft lengi
og fyrir aðeins sex
árum vissi ég ekki hvað frjáls-
íþróttir voru,“ sagði hann.
.DROTTNING og kóngur spretthlaupanna
Morgunblaðið/Kristinn
Marie Josee Perec frá Frakklandi og Bandaríkjamaðurinn Michael Johnson eftir glæsilega sigra í 200 m hlaupi.
Hefoi veojað aleigunni
Johnson sá
fótfráasti
„ÉG HEF sagt áður að sá sem sigrar
í 100 metra hlaupi karla á Ólympíu-
leikum sé fótfráasti maður jarðarinn-
ar. Með fullri virðingu fyrir Donovan
Bailey, vini mínum, verð ég þó að
segja að ég heid að sá fótfráasti í
dag sitji mér á vinstri hönd,“ sagði
Ato Bolden.
Nítjánda gull-
ið í 200 m
GLÆSILEGUR sigur Michael
Johnson f 200 metra hlaupinu
undirstrikaði frábæran árang-
ur bandarískra spretthlaupara
í greininni. Þeir hafa unnið 200
metra hlaupið I nítján skipti af
tuttugu og fjórum mögulegum.
í þau nítján skipti sem þeir
hafa ekki farið með sigur af
hólmi hafa þeir í þrigang orðið
í öðru sæti og aðeins tvisvar
ekki náð f veðrlaunapening.
Það var í Amsterdam árið 1928
sem fjjótasti Bandaríkjamaður-
inn, Jackson Scholz, varð að
gera sér fjórða sætið að góðu
á 21,9 sekúndum. Hitt skiptið
sem Bandarfkjamenn náðu ekki
í verðlaun var í Moskvu árið
1980 er sljórnvöld í Bandaríkj-
unum meinuðu fþróttamönnum
sínum þátttöku.
í þau nífján skipti sem banda-
rfskir hlauparar hafa farið með
sigur af hólmi hafa þeir bætt
ólympiumetið í sjö skipti og
heimsmetið þrisvar sinnum.
llt:
litanna í 200 metra hlaupi
karla hafði verið beðið lengi.
Eiginlega allt frá því að Michael
Johnson, þessi hnarreisti hlaupari frá
Dallas f Texas, ákvað að taka þátt
bæði í 400 og 200 metrunum fyrir
mörgum mánuðum. Hann ætlaði sér
að komast á spjöld sögunnar með
því að verða fyrsti karlmaðurinn til
að sigra í báðum greinum á Ólympíu-
leikum. Honum tókst það á heims-
meistaramótinu í Gautaborg í fyrra
og undirstrikaði yfirburði sína í þess-
um greinum með því að endurtaka
leikinn í fyrrakvöld.
Johnson er ótrúlegur íþróttamað-
ur. Krafturinn er með ólíkindum og
þó hann þyki ekki fara sérlega vel
af stað upp úr startblokkunum er
hann nánast búinn að stinga mótheij-
ana af eftir fáeina metra, hvort sem
það er í 200 eða 400 metra hlaupi.
Fyrir úrslitahlaupið í fyrrakvöld
var heimsmet Johnsons 19,66 - sett
fyrr í sumar á úrtökumóti Banda-
ríkjamanna fyrir Ólympíuieikana, og
þótti sá tími hreint með ólíkindum.
Johnson sigraði með yfirburðum í
úrslitum 400 metra hlaupsins á dög-
unum og því var andrúmsloftið raf-
magnað áður en hleypt var af byss-
unni nú. Næði hann að afreka það
sem engum karlmanni hafði áður
tekist? Einhver undarlegur kliður fór
um áhorfendur en eftir að vallarþul-
urinn hafði beðið fólk vinsamlega um
að hafa hljóð meðan hlaupið hæfist
datt allt í dúnalogn. Söguleg stund
var í vændum; skotinu var hleypt
af og síðan leið varla nema augna-
blik er Johnson flaug yfir marklín-
una. Um leið og hann kom í mark
leit Johnson til vinstri, á klukkuna,
sá hvað hann hafði afrekað og fagn-
aðarlætin voru eftir því. Hann var
ekki lengi að skrifa nafn sitt í
sögubækurnar; var eiginlega búinn
að því áður en andstæðingarnir voru
búnir að lyfta pennanum í sama til-
gangi. Fredericks hljóp réyndar frá-
bærlega og Ato Boldon, hinn ungi
og líflegi hlaupari frá Trinidad varð
þriðji. Þessir þrír hlupu undir 20 sek-
úndum en hinna fimm verður varla
minnst þetta kvöld - nema sem
mannanna sem hlupu í sama úrslita-
hlupi og Michael Johnson, þegar
hann setti heimsmetið.
„Þetta var miklu meira en ég hefði
getað ímyndað mér. Ég hefði tapað
öllu mínu fé ef ég hefði veðjað. 19,32
- gegn því að mértækist að hlaupa á
þessum tíma, sagði Michael Johnson, eft-
ir stórkostlegt 200 m hlaup, er hann setti
heimsmet- 19,32sek.
Einhver ótrúlegasta stund frjálsíþróttasögunnar
rann upp á Ólympíuleikvanginum í Atlanta á
fímmtudagskvöldið, Skapti Hallgrímsson sat
agndofa eins og hinir rúmlega 80 þúsund áhorf-
endur er Michael Johnson geystist í mark í 200
m hlaupinu á nýju heimsmeti - 19,32 sek. Hann
og Marie-Jose Perec höfðu áður sigrað í 400 m
hlaupi og franska gasellan bætti einnig gulli í
safn sitt þetta kvöld, með sigri í 200 m hlaupi.
MICHAEL Johnson fagnar heimsmeti sínu, sem sést á Ijósatöflunni fyrir aftan hann.
Reuter
sekúndur er ótrúlegur tími,“ sagði
Johnson á eftir - og vildi meina að
hann hefði verið tilbúinn að veðja
aleigunni gegn því að hann næði að
hlaupa svona hratt.
„Þrátt fyrir þetta hrasaði ég eigin-
lega út úr startblokkunum eins og
svo oft áður. Ég veit varia hvað ég
gæti gert ef ég byijaði almenni-
lega.“ Mikið hefur verið fjallað um
Johnson vegna þessa hlaups og
beggja gullverðlaunanna og talsvert
hefur líka verið fjallað um að Fred-
ericks væri sá eini sem gæti veitt
honum keppni. „Þegar ég var kominn
að startblokkunum sagði ég við sjálf-
an mig að þetta væri sá verðlauna-
peningur sem ég virkilega vildi. Ég
missti af þessu í Barcelona og varð
á ná honum núna.“ A Ólympíuleikun-
um fyrir fjórum árum fékk Johnson
matareitrun og því fór sem fór.
Johnson sagði að það kostaði sig
líkega einhver brot úr sekúndu að
byija ekki betur en raun ber vitni.
„Viðbragð mitt er reyndar ágætt en
samt er eins og ég hrasi, líklega í
fjórða skrefi. En ég var mjög afslapp-
aður og leið afar vel. Þegar 80 til
90 metrar voru að baki fannst mér
ég vera með fulla stjóm á hlutunum
og spretti þá úr spori eins og ég gat.“
Hlauparinn sagðist ekki hafa
kynnst jafn miklu andlegu álagi í líf-
inu og fyrir þetta hlaup. „Það var
alveg sama hvaða blað eða tímarit
ég opnaði, hvort ég labbaði úti á
götu eða einhver hringdi í mig. Allt-
af bar þessa tvennu, sem ég ætlaði
að reyna við á Ólympíuleikunum, á
góma. Fólk hringdi talsvert í mig til
að minnka spennuna en það gerði
sér ekki grein fyrir því að það hafði
þveröfug áhrif - jók spennuna. Ég
vil reyndar hafa mikla pressu á mér,
þegar ég er komin í startblokkimar
en ekki stanslaust“
Johnson sagðist strax eftir Ólymp-
íuleikana 1992 hafa ákveðið að reyna
að vinna tvenn gullverðlaun, í 200
og 400 m hlaupi, á leikunum nú, fjór-
um árum síðar. „Ég var ákveðinn í
því að vinna hvort tveggja hér og
komast þannig á spjöld sögunnar. Það
hefur kostað geysilegar æfíngar;
sársauka, áföll og meiðsli og einnig
minntist hann á matareitrunina í
Barcelona. „Allt þetta rak mig áfram
til að gera sem best nú,“ sagði John-
son. Annars held ég að þetta sé allt
ætlað okkur. Ég hef ekki stjórn á því
sem gerist. Ég fer bara út og geri
mitt besta. Það sem eftir er, er undir
Guði komið.“
Perec fagnaði
glæstum sigri
hálf hrygg
MARIE-Jose Perecfrá Frakk-
landi sigraði með glæsibrag í
200 m hlaupi kvenna í Atlanta á
fimmtudagskvöld. Hún hafði
áður sigrað í 400 hlaupinu,
þannig að afrek hennar er hið
sama og Michaels Johnsons,
nema hvað hann setti heims-
met.
Merlene Ottey frá Jamaíka var
að keppa til úrslita í 200
metrum á fímmtu Ólympíuleikunum
í röð. Ottey byrjaði geysilega vel og
framan af leit allt út fyrir að hún
myndi Ioks næla í gull í einstaklings-
grein á Ólympíuleikum. En svo fór
ekki.
Ottey hljóp fyrri hundrað metrana
á 11,28 sek. skv. millitímamælingu
vallarins, Mary Onyali frá Nígeríu
var í 2. sæti á 11,37 en Marie-Jose
Perec þriðja, kom eftir 11,38 sek.
að 100 m línunni. En franska stúlkan
hljóp síðari hluta vegalendarinnar
hreint stórkostlega og fékk tímann
22,12, Ottey var á 22,24 og Onyali
á 22,38.
„Ég beið bara eftir rétta augna-
blikinu til að
spretta úr spori
fram úr þeim. Ég
vissi að þær yrðu
á undan mér
fyrstu 100 til 120
metrana. Vissi að
ég gæti ekki
haldið í við þær
því þær æfa 100 metra hlaup, en
ég var viss um að eftir það gæti
ýmislegt gerst. Þá er nóg eftir og
ég ætti að endast lengur en þær á
sprettinum, því ég æfí 400 metra
hlaup." Þetta voru orð að sönnu;
Ottey hafði forystu og Onialy varð
önnur allt þar til um það bil 60-70
metrar voru eftir en þá brunaði
Perec eins og eldflaug fram úr þeim
og sigraði örugglega. Tilfinningar
hennar voru þó blendndar eftir sig-
urinn, þrátt fyrir allt. „Ég var auðvit-
að mjög hamingjusöm þegar ég fór
yfír endalínuna en samt fann ég að
ég var hálf miður mín. Sorgmædd.
Astæða þess er að ég dáist mjög
að Merlene Ottey og ber mikla virð-
ingu fyrir henni og hefði því þótt
við hæfí að hún hefði unnið gullverð-
laun,“ sagði
Perec.
Perec er mjög
dáð í heimalandi
sínu, Frakklandi,
en fannst nóg um
eftir frábæran
árangur á
Ólympíuleikun-
um í Barcelona 1992. Hún sagðist
hafa verið svo þekkt að alveg hefði
verið sama hvar hún hefði komið, í
verslanir eða verið á gangi úti á
götu, allir hefðu þekkt hana og hún
hefði ekki kunnað við að geta aldrei
verið í friði. Þess segist hún hafa
til flust til Los Angeles. „Ég er jafn
vinsæl í Frakklandi og Michal Jordan
er hér í Bandaríkjunum. Ætli fólkið
heima í Frakklandi verði ekki alveg
sturlað núna,“ eftir að ég vann þessi
tvö gull til viðbótar.
Perec er vel stemmd og segist stað-
ráðin í að slá heimsmetið í 200 metra
hlaupi áður en langt um líður. „Ég
ætla mér það fyrir lok keppnistíma-
bilsins, veit auðvitað ekki hvenær og
hugsanlega fellur það ekki fyrr en á
HM í Aþenu á næsta ári.
200 M HLAUP KVEIMNA
Enn sér Merlene
Ottey á eftir gull-
verðlaunum
FRANSKA stúlkan Marle-Jose Perec kemur sigrihrósandl í mark.
Bretar misstu keflið í 4x100 m hlaupi
ÞÁTTTAKA Linford Christie á Ólympíuleikun-
um í Atlanta fékk nyög snöggan endi í gær er
breska sveitin 14x100 metra hlaupi missti kefl-
ið í riðlakeppni boðhlaupsins og lauk því ekki
keppni. Þess má geta að Bretar höfnuðu í fjórða
sæti á síðustu leikum í 4x100 metra boðhlaupi.
Christie hvfldi í gær og ætlaði sér að koma inn
í sveitina í dag þegar í úrslit kæmi. Af því verð-
ur ekki og Jjóst að hann hleypur ekki oftar á
Ólympíuleikum.