Morgunblaðið - 29.08.1996, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1996 C 3
Barcelona og Real Madrid hafa
sankað að sérfrábærum leikmönn-
um og tjalda bæði nýjum þjálfara
Stórlið Barcelona og Real
Madrid hafa eytt miklum pen-
ingnm í sumar í þeim tilgangi að
velta Atletico Madrid úr sessi. At-
letico varð spænskur meistari í vor
en ellefu ár þar á undan voru það
aðeins stórliðin tvö sem nefnd voru
í upphafi sem fögnuðu meistaratitl-
inum, og hvorugt sættir sig við það
- að minnsta kosti ekki lengi - að
vera ekki best.
Spænska deildarkeppnin hefst
um helgina og knattspyrnuunnend-
ur bíða spenntir. Bæði „stóru“ liðin
hafa losað sig við nokkra leikmenn
og eytt gífurlegum fjárhæðum í
nýja. í kjölfar Bosman málsins hafa
Spánveijar nánast gefið fjölda út-
lendinga hjá hveiju félagi fijálsan
og liðin tvö hafa sýnt fjárhagsstyrk
sinn í verki með því að sanka að
sér miklum fjölda landsliðsmanna
héðan og þaðan úr heiminum og í
ljósi þess ættu þau að verða í því
’gamalkunna hlutverki að beijast
um meistaratitilinn í vetur.
Ekki dró úr kaupæðinu að félög
á Spáni hafa fengið mikla peninga
vegna nýrra sjónvarpssamninga, en
í vetur verður í fyrsta skipti alltaf
einn leikur á dagskrá á mánudags-
kvöldi og hann sýndur í beinni sjón-
varpsútsendingu.
Nýir menn í brúnni
Breytingar urðu ekki einungis á
leikmannahópnum, því nýr þjálfari
er við vöid bæði á Bernabeu leik-
vanginum í Madrid og Nou Camp
í Barcelona og hvorugur Spánveiji.
ítalinn Fabio Capelío, fyrrum
þjálfari AC Milan, kom til Real og
fyrrum landsliðsþjálfari Englands,
Bobby Robson, kom til Barcelona
frá Porto í Portúgal.
Capellos bíður stærra verkefni
en Englendingsins. Real, sem oftast
allra liða hefur orðið Evrópumeist-
ari - sex sinnum - varð í sjötta
sæti spænsku deildarkeppninnar í
fyrravetur og komst þar með ekki
í Evrópukeppni. Það er einungis í
annað skipti í sögu félagsins sem
Real er ekki með í Evrópukeppni.
Forseti Real, Lorenzo Sanz, lá
ekki á fé til að fjárfesta í nýjum
leikmönnum til að lið hans mætti
rétta úr kútnum. Brasilíski bak-
vörðurinn Roberto Carlos, hollenski
miðjumaðurinn Clarence Seedorf,
og Portúgalinn Carlos Secretario,
sem er mjög sókndjarfur bakvörð-
ur, skrifuðu allir undir samning við
Real í sumar. Félagið hefur einnig
tryggt sér tvo frábæra framheija
sem jafnvel er reiknað með að geti
myndað hættulegasta sóknardúett
Evrópu. Það eru Júgóslavinn Pre-
drag Mijatovic, sem kjörinn var
besti leikmaður Spánar á síðasta
keppnisímabili er hann lék með
Valencia, og Króatinn Davor Suker
sem kom frá Sevilla, en margir eft-
ir honum vegna frábærrar frammi-
stöðu í Evrópukeppninni á Englandi
í sumar.
Alfonso Perez, sem lék landsliði
Spánar á EM í sumar, er horfinn
úr framlínu Real frá því í fyrra -
var seldur til Betis - og táningurinn
Raul Gonzales gæti orðið í erfiðleik-
um með að komast í liðið í vetur,
en hann sló rækilegaí gegn í fyrra-
vetur.
McManaman og Fowler
úr leik gegn Moldóvum
STEVE McManaman og Robbie Fowler, leikmenn Liverpool,
missa af fyrsta leik Englendinga í undankeppni HM gegn Moldav-
íu á sunnudag vegna meiðsla. Þetta tilkynnti Glenn Hoddle,
landsliðsþjálfari Englendinga, í gær. Þeir hafa báðir verið
meiddir en reyndu að vera með á æfingu í gær en varð fljót-
lega ljóst að það var ekki til nokkurs.
„Þeir fóru í skoðun í gær og eftir hana kom fram að þeir
verða heima,“ sagði Hoddle en leikurinn fer fram í Kishinev í
Moldavíu. „Þrátt fyrir þetta þá var nvjög gott að hitta þá til
þess að ræða ýmis atriði," bætti Hoddle við. Einnig leikur vafi
á Paul Gascoigne, Les Ferdinand og David Batty geti verið með
vegna meiösla. Hoddle tilkynnti ekki hverja hann liefði valið í
stað þeirra McManamans og Fowlers.
FABIO Capello stýrði AC
Milan til glæstra sigra.
Hvað gerir hann hjá Real?
ROIMALDO, Brasilíumaðurinn frábæri sem keyptur var fyrir
tæpa 1,3 milljarða króna frá PSV í Holiandi í sumar. Hann
er talinn einn alefnilegasti framherji í heiminum og á örugg-
lega eftir að skora mikið fyrlr katalónska stórveldið.
keppnistímabili. Portúgalski lands-
liðsmarkvörðurinn Vitor Baia kom
í kjölfar þjálfarans frá Porto og
Luis Enrique Martinez, sem getur
nánast leikið í hvaða stöðu sem er,
var keyptur frá Real Madrid.
í framlínunni verða væntanlega
saman Brasilíumaðurinn Giovanni,
sem lék í treyju númer 10 hjá Sant-
os í heimalandinu (sem talin er nán-
ast heilög síðan Pele var með sama
númer á bakinu í eina tíð) og landi
hans Ronaldo, sem er aðeins 19 ára
og keyptur var frá PSV Eindhoven
í Hollandi fyrir hvorki meira né
minna en tæpa 1,3 milljarða króna.
(Alan Shearer var keyptur til New-
castle frá Blackburn á 15 milljónir
sterlingspunda en til samanburðar
má geta að kaupverð Ronaldos í
þeim gjaldmiðli voru 12,5 miljónir
punda. Hann er nú næst dýrasti
leikmaður knattspymusögunnar).
Brasilíumennirnir eru þegar byij-
aðir að hrella varnarmenn og mark-
verði í sameiningu og gerðu mót-
heijunum í meistaraliði Atletico
Madrid t.d. lífið leitt um síðustu
helgi í fyrri leik liðanna í meistara-
keppni Spánar. 5:2 sigur Barcelona
gegn meisturunum gaf til kynna,
að margra mati, að liðið frá höfuð-
borginni sé ekki nógu sterkt í vetur
tit að veija titlana tvo frá því í vor,
en það varð Spánarmeistari sem
fyrr segir, og sigraði einnig í bikar-
keppninni.
Júgóslavinn Radomir Antic, þjálf-
ari Atletico, treystir á þá 13 leik-
menn sem báru hitann og þungann
af erfiðinu síðastliðinn vetur og
keypti aðeins tvo nýja. Argentínska
framheijann Juan Esnaider og
tékkneska miðjumanninn Radek
Bejbl.
Koma aðrir til greina?
Gömlu risarnir tveir eru taldir
lang líklegastir til sigurs, enginn
afskrifar Atletico en þá er líka nán-
ast upptalið. Nokkur lið eru reyndar
nefnd sem hugsanlegir kandídatar,
þar á meðal Valencia, sem varð í
öðru sæti deildarinnar í vor og hef-
ur nú fengið brasilíska framheijann
Romario. Hann átti stóran þátt í
velgengni Barcelona á tímabili, fór
síðan heim til Brasilíu en kemur nú
aftur. Deportivo varð í öðru sæti í
fyrra og hittifyrra en náði einungis
níunda sæti í vor og á þeim bæ
vonast menn eftir betri árangri í
vetur. Real Betis gæti einnig gert
stórliðunum skráveifu að sumra
mati en þangað eru kominn hol-
lenski framheijinn Finidi George,
frá Ajax, og nágrannarnir í Sevilla
fengu þjálfarann Jose Antonio
Camacho. Hann er álitinn mjög
góður í sínu fagi og reiknað er með
að hann geti hleypt lífi í leikmenn
liðsins.
Hvergi er keppnistímabilið jafn
langt og strangt og á Spáni. Þegar
upp verður staðið í vor á hvert lið
að baki 42 leiki í deildinni og því
kemur stærð leikmannahóps hvers
og eins liðs að skipta verulega máli.
Þess vegna er líklegt að þeir sem
eiga mesta peningana og hafa efni
á mestum mannskap séu sigur-
stranglegastir. Eins og svo oft áður
eru það Real Madrid og Barcelona.
Næsta vetur verður liðum aftur
fækkað í 20 í deildinni; fjögur falla
i vor en aðeins tvö koma upp úr
2. deildinni.
LAURENT Blanc, franski varnarmaðurinn snjalli, sem keypt-
ur var frá Auxerre, þar sem hann varð franskur meistarl sl.
vor. Það var Johan Cruyff sem bað um Blanc en var síðar
rekinn.
Bobby Robson fetar í fótspor Jo-
hans Cruyff hjá Barcelona, og telja
margir að það verði jafnvel erfið-
asti þáttur starfsins, að minnsta
kosti til að byija með. Cruyff var
nánast álitinn dýrlingur í Barcelona
og náði frábærum árangri en var
síðan rekinn á síðasta keppnistíma-
bili.
Robson „erfir“ íjóra menn úr öft-
ustu varnarlínu spænska landsliðs-
ins frá Cruyff en að öðru leyti verð-
ur liðið, sem mætir Real Oviedo á
útivelli, gjörbreytt frá því á síðasta
Real hefur keppni í vetur - bat'-
áttuna fyrir 27. meistaratitli félags-
ins - á útivelli gegn Deportivo Cor-
una.
í fótspor Cruyffs
„Gömlu“ risamir
taldir bestir aftur