Morgunblaðið - 29.08.1996, Qupperneq 8
ÓLYMPÍUMÓT FATLAÐRA
Hlýjar móttökur í Leifsstöð
ÍSLENSKA íþróttafólkið sem stóð sig svo frá-
bærlega vel á nýafstöðnu Ólympíumóti fatlaðra
í Atlanta í Bandarikjunum fékk hlýjar móttök-
ur við komuna tii landsins í bitið
Björn í gærmorgun. Meðal þeirra sem
Blöndal gerðu sér ferð suður í flugstöð
skrifarfrá af þessu tilefni voru herrapiafur
Keflavík Ragnar Grímsson forseti íslands
sem við þetta tækifæri mælti
nokkur hlý orð og bauð hópnum að sækja
Bessastaði heim og Björn Bjarnason íþrótta-
málaráðherra sem einnig hélt stutta tölu.
íslensku keppendurnir tíu unnu til 14 verð-
launa. Þar af voru fimm gullverðlaun og hafn-
aði íslenska liðið í 28. sæti af 117 þjóðum á
verðlaunalistanum. Sveinn Aki Lúðvíksson,
aðalfararsljóri hópsins, þakkaði hinar hlýju
móttölur og gat þess að ekki aðeins hefðu ís-
lensku keppendurnir staðið sig vel í sjálfri
keppninni heldur hefði framganga þeirra öll
verið til slíkrar fyrirmyndar að eftir hefði
verið tekið.
Arangur Krist-
ínar Rósar Hákon-
ardóttur bar hæst
meðal íslensku
keppendanna, en
hún setti heims-
met í þremur
sundgreinum af
fjórum. Fram kom
að íþróttafólkið
hefði æft ákaflega
markvisst fyrir
leikana eftir áætl-
un sem gerð var
fyrir 4 árum og að
árangurinn væri
einnig hvatning og
öðrum fötluðum til
eftirbreytni.
Morgunblaðiö/öjom Biondal
ÓLAFUR Ragnar Grimsson for-
seti íslands og Björn Bjarna-
son íþróttamálaráðherra tóku
á móti ólympíullði íslands sem
stóð slg svo vel á ólympíumóti
fatlaðra sem lauk í Atlanta á
sunnudag. Á efri myndinni
ræðir Ólafur Ragnar m.a. við
Ólaf Eiríksson, Pálmar Guð-
mundsson, Hauk Gunnarsson
og Gunnar Þór Gunnarsson. Á
myndinni hér tll hllðar óska
Björn Bjarnason og eiginkona
hans, Rut Ingólfsdóttír, Báru
B. Erlingsdóttur, Birki Rúnari
Gunnarssyni og Sigrúnu Huld
Hrafnsdóttur til hamingju með
árangurinn í Atlanta. A mynd-
inni hér fyrir neðan er ólympíu-
hópurinn saman kominn.
MARKUS Babbel og félagar
í Bayern lögðu Carsten Ra-
melov og liðsmenn Lever-
kusen í gærkvöldi.
Bayemá
toppinn
Snotur mörk frá Thomas Helmer
og Jiirgen Klinsmann innsigl-
uðu sigur Bayern Miinchen á Bayer
Leverkusen í gærkvöldi og leið efsta
sætið í þýsku 1. deildinni. Miinchenl-
iðið hefur nú tíu stig að loknum §ór-
um leikjum, einu stigi fleira en
Stuttgart sem á leik inni.
Það var skammt stórra högga á
milli í leik Bayern og Leverkusen því
á 25. mínútu kom Paulo Sergio gest-
unum yfir en réttri mínútu síðar jafn-
aði Aiexander Zickler metin fyrir
heimamenn eftir glæsilegan undir-
búning Klinsmanns. Helmer kom
Bayern yfir með fallegu skallamarki
og Klinsmann bætti um betur fyrir
leikhlé með marki af stuttu færi eft-
ir að hann hafði hirt frákast eftir
sláarskot. Snemma í síðari hálfleik
gulltiyggði Ítalinn Ruggiero Rizzit-
elli sigurinn með stórglæsilegu marki
eftir að hafa leikið á þijá varnar-
menn Leverkusen í miðjum vítateing-
um áður en hann skaut í nærhornið.
Það var síðan Markus Feldhoff sem
minnkaði muninn fyrir gestina með
marki með skalla nokkru fyrir leiks-
lok. Markið var fallegt og kennslu-
bókardæmi um það hvernig skal
skalla knöttinn í netið eftir fyrirgjöf.
Annars var leikurinn bráðfjörugur
og skemmtilegur allan tímann og
bæði lið fengu fjölda marktækifæra.
Strandhögg þeirra smærri
Þijú stórlið, Parma, Roma og
Udinese, féllu öll úr leik í 2. umferð
ítölsku bikarkeppninnar fyrir félög-
um í 2. deild í gær.
Parma bytjar ekki vel undir stjórn
nýja þjálfarans Carlo Ancelotti. Það
mætti Pescara og lennti strax undir
3:0 áður en því tókst að minnka
muninn í tvö mörk áður en yfir lauk.
Einhver álög virðast vera á Parma
í bikarkeppninni því í fyrra lenntu
þeir í sömu stöðu er þeir voru slegn-
ir út í fyrstu umferð af minni spá-
mönnum.
Oscar Tabarez bjargaði meistar-
aliði AC Milan fyrir horn í viðureign-
inni við Empoli með því að jafna
metin, 1:1, og fá Milanmenn annað
tækifæri á heimavelli á sunnudag.
Fyrsti titillinn í
höfn hjá Robson
BARCELONA varð í gær meistari meistaranna á Spáni með því
að sigra Atletico Madrid samanlagt í tveimur leikjum, 6:5. Barce-
lona vann fyrri leikinn 5:2 en í síðari leiknum í gærkvöldi sótti
Madridariiðið án afláts og sigraði 3:1. Það má því segja að Bobby
Robson, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga, hafi byijað vel hjá
Börsungum.
Leikmenn Atletico gerðu allt sem þeir gátu síðustu 15 minútur
leiksins eftir að þeir höfðu komist í 3:1, því eitt mark í viðbót
hefði þýtt að þeir hefðu sigrað á fleiri mörkum skoruðum á úti-
velli. Juan Lopez kom Atletico í 1:0 um miðjan fyrri hálfleik, en
Búlgarinn Hristo Stoichkov jafnaði fyrir Barcelona I upphafi síð-
ari hálfleiks. Þá komu tvö mörk, fyrst frá nýliðanum Juan Edu-
ardo Esnaider og síðan Serbanum Pantic, sem skoraði beint úr
aukaspyrnu á 75. mínútu.
TENNIS / OPNA BANDARISKA MOTIÐ
Ivanisevíc komst áfram
rír þekktir tennismenn heltust
úr lestinni á Opna bandaríska
meistaramótinu í tennis strax í
fyrstu umferð. Það voru þeir Alberto
Costa frá Spáni, fyrrum ólympíu-
meistarinn frá Sviss, Marc Rosset,
Wimbledon-meistarinn í ár Richard
Krajicek. Það sem kom mest á óvart
var að Króatinn Goran Ivanisevic
komst áfram en hann hefur verið
afar lánlítill í mótinu.
„Mér líður einstaklega vel eftir
þennan erfiða leik,“ sagði Ivanisevic
eftir að hann hafði lagt Rússann
Andrei Tsjesnokov í fjórum settum,
1-6, 6-2, 6-4, 6-4. Hann hefur lengst
náð í fjórðu umferð árið 1991 og
árið eftir í 3. umferð en aðeins í
aðra umferð árið 1993. Fyrir tveim-
ur árum féll hann hins vegar úr leik
strax í fyrstu umferð. í fyrra meidd-
ist hann í fyrsta leik og varð að
gefast upp við svo búið án þess að
geta lokið leiknum. „í fyrra meiddist
ég í ökkla og árið þar áður lék ég
eins og kjáni," sagði Króatinn með
bros á vör. Það skondna atvik átti
sér stað fyrir tveimur árum þegar
hann var í sínum fyrsta og eina leik
að flugvél flaug yfir völlinn þar sem
hann var að leika og Ivanisevic sagði
stundarhátt. „Hvernig stendur á því
að ég er ekki farþegi með henni
þessari!"
Steffi Graf fékk óvænta mót-
spyrnu í sínum fyrsta leik í mótinu
en hún á titil að veija frá síðasta
ári. Graf lék við Yayuk Basuki frá
Indónesíu en hún var skráð 29. á
styrkleikalista mótsins. Eftir að hafa
borið sigur úr býtum í fyrra settinum
6-3, lenti þýska fljóðið í stappi með
þá indónesísku í öðru setti en náði
að kreista fram sigur 7-5. „Þegar
ég var 5-2 undir í öðru setti þá fannst
mér vonin orðin veik að geta snúið
taflinu við,“ sagði Graf að leikslok-
um og var létt.