Morgunblaðið - 30.08.1996, Blaðsíða 4
4 B FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1996 B 5
DAGLEGT LIF
DAGLEGT LIF
Hve lengi þarf að
ganga til sálfræðings?
ER nóg að fara nokkrum sinnum
til sálfræðingsins til að fá allra
meina bót?
Nei!!! Samkvæmt nýjum rann-
sóknum sem tryggingarfélög fengu
sérfræðinga til að framkvæma er
svarið 58 vikur.
Rannsóknarhópur undir stjórn
Mark Kopta við Evansville háskól-
ann vann könnunina. Reynt var
að meta hversu oft meirihluti sjúkl-
inga þyrfti að koma til meðferðar
til að ná viðunandi árangri. Mælt
var hversu fljótt sextíu og fjögur
mismunandi einkenni hurfu með
vikulegum meðferðartímum.
Sum vandamálin leystust að
sjálfsögðu mun fyrr en önnur og
nokkur geðræn vandamál voru lítið
breytt, jafnvel að ári liðnu. Á heild-
ina litið hafa samt 75% einkenna
horfið innan þessara 58 vikna. Haft
er eftir Kopta að vert sé að hafa
þessa tölu bak við eyrað þegar hug-
að er að eðlilegum meðferðartíma.
Psyehology Today.
TRIMFORM er rafnudd, upprunnið frá Danmörku, en hefur verið
þekkt hérlendis í tíu ár við alls kyns kvillum/óþægindum.
HÆGT er að velja um yfir tvö hundruð ilmolíur fyrir nudd og
eru þær blandaðar í grunnkrem eftir þörfum hvers og eins.
PÓLUNARFRÆÐINGURINN Scott Zamurut, beitir líkamsvinnu
með pólun og heldur um sama staðinn í nokkrar mínútur.
- -----------------— --------— J—----------''te
sem meðferð við vöðvabólgu og lélegri blóðrás.
FÆTUR nuddaðir með svæðanuddi, en þá eru nudduð ákveðin
viðbragðssvæði sem tengjast öllum likamanum.
Eilíf æska
Er Q-10 lykillinn að eilífri æsku
Frumur líkamans
þurfa á Kóensími
Q-10 að halda til
ið umbreyta í orku þeirri
íæringu sem að þeim
)erst. Þær þurfa Q-10 til
ið geta skilað sínu hlut-
'erki. Eitt hæsta hlutfall Q-10 í
ramum líkamans er í hjartanu.
Jpp úr miðjum aldri minnkar
ramleiðsla þess, sem getur leitt
til minni mótstöðukrafts,
skerts starfsþreks og ótíma-
bærrar öldrunar.
Q-10 fyllir líkamann nýrri
orku, starfsemi frumanna
eflist og þær sjá íyrir auknu
þreki til ffekari dáða.
Eilsuhúsið
Kringlunni & Skólavörðustíg
GULI MIÐINN TRYGGIR GÆÐINS
SHIATSU byggistá
sama punktakerfi
og kínverska nála;
stunguaðferðin. í
shiatsu er þrýst á
punktana með
höndum og olnbog-
um í staðinn fyrir að
stinga í þá nálum.
NUDDFLÓRAN hérlendis hefur verið í miklum
blóma undanfarið og skjóta sífellt nýjar nuddtegund-
ir upp kollinum sem bera nýstárleg og spennandi
nöfn, eins og shiatsu, pólunarmeðferð og ilmolínudd.
Líkt og í mörgu öðru hefur orðið í nuddinu e.k.
menningarleg blöndun en svipuð alþjóðaáhrif má sjá
í matargerð, fatatísku og bókmenntum. Nuddið sæk-
ir nýjungar sínar í ýmsar gamlar og nýjar kenningar
bæði í austurlenska og vestræna hefð. Nuddarar
aðhyllast nú mmjög að blanda saman mörgum nudd-
aðferðum sem henta hvequm og einum. Auk hefð-
Nuddið á sífellt meiri vinsældum að fagna
og ríkir þar mikil gölbreytni sem á rót
að rekja til menningarlegrar blöndunar.
Þórdís Hadda Yngvadóttir forvitnaðist
um fáeinar nuddtegundir og komst að
því að fleiri tegundir eru í þann veginn
að nema hér land.
bundins nudds, s.s. íþróttanudds, sjúkranudds og
sænsks vöðvanudds er hægt að velja um kínverskt
nudd og nálastungumeðferð, japanskt meðferðar-
nudd, heildrænt nudd, svæðanudd, sogæðanudd, shi-
atsu, ilmolíunudd, pólunarmeðferð eða trimform.
Fleiri nuddtegundir eru í þann veginn að nema hér
land en það eru m.a. trager og hawaii nudd. Trager
byggist á hristingi en hawaii nuddið byggist á hreyf-
ingum og er þróað út frá aldagamalli hefð í Hawaii.
Einnig er hægt að fara á námskeið til að læra að
nudda sjálfan sig eða börnin sín.
ÞÓRGUNNA Þórarinsdóttir kennir foreldrum,
ömmum og öfum og öðrum forráðamönnum
ungbarna sem til hennar leita ungbarnanudd.
„Ungbarnanudd hefur reynst vel við ungbarna-
kveisu og lofti í __________
þörmum. Flestir
sem hafa tekið
þátt í námskeið-
um um ungbarna-
nudd segja, að
börnin verði
styrkari og sofi
betur með reglu-
legu nuddi. Rann-
sóknir í Bandaríkjunm og Svíþjóð hafa bent til
þess að fyrirburar sem nuddaðir eru með þess-
ari aðferð sýni örari framfarir eftir ákveðinn
tíma. Auk þess er þetta kjörið til að auka tengsl
milli foreldris og barns og fullnægja snertiþörf
barnsins. Ungbarnanuddið einkennist af þéttum
Kennir foreldrum
ungbarnanudd
og rólegum strokum. Það eru nuddaðar mjólkur-
strokur og_ skrúfustrokur og hver tá er nudduð
fyrir sig. Á maganum eru gerðar sól og mána
strokur með léttum hringlaga hreyfíngum, en
það er mjög ró-
andi fyrir börnin.
Ungbarnanuddið
er rekið til sæn-
skra og ind-
verskra nudd-
aðferða og var
fyrst kynnt um
miðjan áttunda
áratuginn. Nám-
skeiðið tekur einn mánuð og kennt er einn dag
í viku, samtals í fjögur skipti. Foreldrarnir æfa
sig heima þess á milli að nudda börnin. Fólk
hefur mikinn áhuga á ungbarnanuddi og ég
kenni allt að þremur hópum á mánuði,“ segir
Þórgunna.
HEILDRÆNT nudd á miklum vinsældum að fagna um þessar mundir. Allur líkaminn
er nuddaðiir með mismunandi tækni úr ýmsum nuddtegundum. Mæðgunar Lilja Þorm-
ar og Ásdís B. Þormar reka nuddstofuna „Heil og sæl“ og bjóða meðal annars upp á
heildræna nuddmeðferð þar sem blandað er saman, til dæmis klassísku nuddi, shiatsu,
svæðanuddi, íþróttanuddi, ilmolíunuddi, við-
bragðspunkta meðferð, nuddi við vöðvabólgu
og pólunarmeðferð eftir því sem við á hverju
sinni. „Við látum hvern og einn sem leitar til
okkar fylla út eyðublað um heilsufar sem að-
stoðar okkur að meta ástand og hvað ber að
varast. Við bjóðum einnig upp á nuddmeðferð-
ir einstaka nuddtegunda til dæmis svæðanudd eða ilmolíunudd ef við á. En ég tel að
heildræna meðferðin sé yfirleitt áhrifaríkust en það er auðvitað einstaklingsbundið hvað
hentar hverjum og einum,“ segir Lilja Þormar.
„Snertingin er ein af frumþörfum mannsins," segir Lilja. „Eitt af þeim meginlögmál-
unum sem nuddarar þurfa að fara eftir er að snerta manneskjuna með fullri athygli.
SELMA Júlíusdóttir heldur námskeið um sogæða-
nudd. Hún segir að margar aðferðir séu til í so-
gæðanuddi, en markmiðið sé að ná sem mestri
örvun í húðinni svo að sogæðarnar sinni sínu
hlutverki. „Þar
liggur hreinsi-
kerfi líkamans.
Með sogæða-
nuddinu er blóð-
rásin örvuð og
nuddað er í átt að
eitlum, þangað
sem sogæðarnar
liggja,“ segir
Selma. Ef sogæðarnar eru í ólagi, t.d. stíflaðar
eða hægvirkar, bitnar það á ónæmiskerfinu, t.d.
getur myndast bjúgur og bólga út frá því. Dæmi
um slæmra virkni sogæðakerfisins er appelsínu-
húð, þar sem úrgangsefni safnast saman í húð-
inni vegna lélegrar blóðrásar. Einnig getur so-
gæðanudd verið áhrifaríkt fyrir fólk sem á sterk-
um lyfjum þar sem sogæðarnar losa líkamann
við aukaefni. Ilmolíunuddið er samtengt sogæða-
nuddi. Þar er reynt að örva blóðrásarkerfið þann-
ig að líkamsvess-
ar eigi greiðari
leið um sogæð-
arnar. Unnið er í
átt að eitlakerfinu
og hafa olíumar
hin ýmsu áhrif.
Olíurnar eru unn-
ar úr lækninga-
jurtum og virku
efnin felast oftast í ilminum. Þessar olíur geta
verið mjög sterkar og er t.d. ein fmgurbjörg af
olíu appelsínublóma unnin úr tíu fötum af blóm-
um. Mismunandi tegundir olíu eru notaðar í nudd-
inu, allt eftir því hveiju á að ná fram og eru þær
blandaðar eftir þörfurn," segir Selma.
Heildrænt nudd
Með nuddinu snerta þeir alla manneskjuna, ekki aðeins líkamann heldur einnig andann
og tilfinningarnar. Gæði snertingar er misjöfn, hún getur verið óþægileg ef athygli
nuddarans og kærleikann vantar,“ segir hún.
„Shiatsu er út af fyrir sig heildræn aðferð sem byggist á sama punktakerfi og
kínverska nálastunguaðferðin. Skjólstæðing-
urinn liggur á dýnu á gólfinu og nuddarinn
notar hendur og olnboga. Þetta er líkamsvinna
sem byggist á þrýstipunktanuddi. Viðbragðs-
punktanudd er hluti af sjúkranuddi og er beitt
sem meðferð við vöðvabólgu. Punktarnir gefa
til kynna ákveðin svæði í vöðvum þar sem er
léleg blóðrás og uppsöfnuð úrgangsefni. Punktarnir leiða frá sér verki á aðra staði í
líkamanum og hægt er að finna út frá þeim hvað amar að. í svæðanuddi eru ákveð-
in viðbraðgssvæði á fótum nudduð en þau tengjast öllum líkamanum. Svæðanudd er
einnig hægt að gera á eyrum og höndum. Algengast er þó að vinna með fætur,“
segir Lilja.
SCOTT Zamurut er bandarískur
pólunarfræðingur sem kennir hér
fyrsta áfanga af viðurkenndu pól-
unarnámi en það mun vera ein af
nýju aðferðunum sem eru að ryðja
sér til rúms hér á landi.
„Pólunarmeðferð byggir á
fornum indverskum og kínversk-
um kenningum um líf og heilsu
ásamt nýrri vestrænum kenning-
um um líkamann og efnið,“ segir
Scott.
Hann leggur ríka áherslu á að
pólunarmeðferð sé ekki læknis-
meðferð. „Þetta er heilsubótarað-
ferð og beinist að því að hjálpa
líkamanum að bregðast sjálfur við
því sem betur má fara. Markmið
Pólunar-
meðferð
pólunar er að koma líkamanum til
bestu mögulegu heilsu og leiða
orku líkamans á rétta braut.
Pólunarmeðferðin felst í líkams-
vinnu með misdjúpri snertingu á
orkusvæðum til að koma orku-
flæði líkamans í jafnvægi. Þetta
er byggt m.a. á kenningum Ein-
steins um efni og orku. En til
þess að ná varanlegum árangri
þarf viðkomandi að temja sér holla
lífshætti, t.d. rétt mataræði og
hreyfa sig reglulega. Þá er mikil-
vægt að kenna fólki að bera
ábyrgð á eigin heilsu. Það þarf
að hugsa um líkamann sem heild
og halda sér þannig í jafnvægi og
formi.
„TRIMFORM er rafnudd og hefur
verið þekkt hér á landi í tíu ár
en það er upprunnið í Dan-
mörku,“ segir Berglind Ásgeirs-
dóttir sem rekur „Trimform Berg-
lindar. “ „Trimform sendir frá sér
rafboð í vöðva, áþekk boðum frá
heila, nema að rafboðin eru öflugri
og því næst skjótari árangur t.d.
í grenningu en í leikfimi. Trim-
formið er m.a. notað til að vinna
á vöðvabóigu. Þá fara boðin djúpt
inn í vöðvana og teygja þá og
nudda til skiptis og þannig losnar
um úrgangsefni. Árangur eftir
einn tíma er sambærilegur við
marga tíma í handnuddi. Einnig
er hægt að þjálfa upp vöðva og
Trimform
- rafnudd
losna við bjúg og bólgur með so-
gæðanuddi. Þá er hægt að fara í
nokkurra tíma meðferð til að losna
við appelsínuhúð, en hún er mjög
erfið viðureignar. Einnig er hægt
að strekkja á húð, vinna á mí-
greni, bijósklosi og þjálfa grindar-
botnsvöðva. Síðast en ekki síst er
hægt að nota trimformið til að
grennast og minnka ummálið.
Rafnuddið á ekki að valda sárs-
auka. Viðskiptavinimir stjóma
sjálfír styrk tækjanna, en þeir eiga
að finna kröftuglega fyrir nuddinu.
Flest allir geta farið í trimform
nema bamshafandi konur og fólk
sem er á blóðþynningarlyfjum,"
segir Berglind.
SNERTING MEÐ NUDDI
vekur upp andlega og líkamlega tilfinningu