Morgunblaðið - 04.10.1996, Síða 4
~N
HNEFALEIKAR
Eric Cantona
ætlar að enda
ferilinn í Englandi
Eric Cantona, fyrirliði Manchester
United, var í París í vikunni,
þar sem hann sagði í sjónvarpsvið-
tali að hann ætlaði sér að enda knatt-
spyrnuferil sinn í Englandi, jafnvel
að snúa sér að þjálfun. „Ég mun
ekki leika aftur með liði í Frakk-
landi. Ég ætla að enda knattspymu-
feril í Englandi og það gæti vel far-
ið að ég settist þar að,“ sagði Can-
tona.
Cantona sagðist vera tilbúinn að
Jeika á ný með franska landsliðinu.
„Þeir sem hafa deilt á mig hafa átt
þá ósk, að ég myndi segja að ég
gæfi ekki kost á mér framar í lands-
liðið. Þeim verður ekki að ósk sinni.
Ég er tilbúinn að leika ef eftir því
verður leitað."
Þessi umdeildi knattspyrnumaður,
sem hefur leikið 45 landsleiki fyrir
Frakkland, síðustu leikina sem fyrir-
liði, sagðist hafa áhyggjur af þróun
knattspyrnunnar í Frakklandi, þar
sem heimsmeistarakeppnin fer fram
1998. „Það er eins komið fyrir okk-
ur og Dönum og Norðmönnum, að
bestu leikmenn okkar leika með lið-
um utan Frakklands. Áhorfendur
mæta á völlinn til að sjá einn til tvo
mjög góða leikmenn leika, enda er
það hluti af leiknum að lið séu með
snjalla leikmenn. Flestir landsliðs-
mann Frakklands leika með liðum á
Ítalíu og Spáni, þannig að þeir gleðja
ekki augu knattspyrnuunnenda í
Frakklandi, sem mæta á völlinn,"
sagði Cantona.
FOLK
■ GUÐMUNDUR Benediktsson
og Kristján Finnbogason, knatt-
spymumenn úr KR, eru í búnir að
stofna keilulið ásamt tveimur öðr-
um. Þeir kalla liðið C-lið KR og
leikur það í 3. deild íslandsmóts-
ins í vetur.
■ BOBBY Robson, þjálfari Barc-
elona, er ekki ánægður með hugs-
unarhátt sinna leikmanna, sem urðu
að sætta sig við jafntefli við Tene-
rife, 1:1. Robson sagði að það
væri eins og leikmennirnir treystu
á að Ronaldo gerði út um leikina
fyrir þá.
■ „RONALDO er aðeins tuttugu
ára. Þó að hann sé góður, á hann
ekki einn að vera lykilinn að
velgengni liðsins," sagði Robson.
■ RONALDO fékk mann á sig
strax í upphafi leiksins og náði ekki
að skora, eins og hann hefur gert
í þremur fyrstu leikjum Barcelona.
■ JOHANN Cruyff, fyrrum þjálf-
ari Barcelona, sem var rekinn sl.
keppnistímabil, hefur verið að setja
út á leik liðsins. Joan Gaspart,
varaforseti Barcelona, ver Robson
og segir að það sýni hve Cruyff sé
lítill persónuleiki, að vera með stöð-
ugar árásir á sitt gamla lið.
■ MARK Fish, landsliðsmaður
Suður-Afríku, sem leikur með
Lazíó á Ítalíu, fær fá tækifæri með
liðinu. Hann kemst ekki að fyrir
Alessandro Nesta og Jose Cha-
mot, sem eru miðheijapar liðsins.
„Nesta og Chamot eru mjög góðir
íeikmenn. Deildarkeppnin hér er
sterk. Ég er ekki nema 22 ára og
er hér til að læra,“ segðir Fish.
■ FISH lék frábærlega þegar S-
Afríka vann Afríku-keppnina sl.
sumar og þá höfðu lið eins og Man.
Utd., Everton og Bordeaux áhuga
á að fá hann, Fish valdi Lazíó.
■ MANUEL Amoros, fyrrum
landsliðsmaður Frakklands, hefur
lagt skóna á hilluna, þar sem hann
er með liðagigt. Amoros, sem lék
82 landsleiki — fleiri en nokkur
annar Frakki, er 34 ára, leikmaður
með Marseille.
■ ENZO Scifo, miðvallarleikmað-
ur hjá Mónakó, og fyrirliði belgíska
landsliðsins, mun ekki leika með lið-
inu gegn San Marínó í næstu viku,
vegna meiðsla á fæti.
■ CARLOS Alberto Silva var í
gær ráðinn þjálfari brasilíska liðs-
ins Guarani. Það er kannski ekki í
frásögur færandi, en aftur á móti
er ráðning hans söguleg, því hann
er tíundi þjálfari liðsins á árinu.
„ÉG mun ekkl lelka aftur meö liði í Frakklandi. Ég ætla að enda knattspyrnuferilinn í Englandl
og það gæti vel farið svo að ég settlst þar að,“ sagðl Eric Cantona, sem hér er í barðttu um
boltann vlð Dean Saunders, IMottingham Forest.
Hoddle
setur nýj-
ar reglur
Glenn Hoddle, landsliðsþjálfari
Englands, hefur ákveðið að
setja sínum mönnum nýjar starfs-
reglur fyrir landsleiki. Hann hefur
tilkynnt leikmönnum að þeir fái ekki
frí til að fara heim um helgar fyrir
leiki og þeim sé bannað að tjá sig
við fréttamenn fyrir leiki. Þetta ger-
ir hann til þess að leikmenn geti
einbeitt sér að verkefninu. Undir
stjórn Terry Venables, fengu leik-
menn helgarfrí og þá mátti oft sjá
ýmis ummæli þeirra um væntanlega
landsleiki í blöðum.
Eins og menn muna þá endaði
ferð enska landsliðsins til Kína og
Hong Kong, fyrir EM í Englandi, á
sögulegan hátt. Leikmenn voru
myndaðir í næturklúbbi með ölkrús-
ir í hendi og unnu síðan skemmdir
á flugvél á leiðinni heim.
Hoddle er nú með landsliðið í
æfingabúðum fyrir leikinn á móti
Pólveijum sem verður á Wembley á
miðvikudaginn. „Ég veit að sumir
eru ekki ánægðir með þessa ákvörð-
un mína, en ég tel að þessar reglur
komi á réttum tíma fyrir okkur. Við
höfum verk að vinna og þurfum að
einbeita okkur að einu, það er að
leggja Pólveija að velli," sagði
Hoddle.
Þeir mætast í hringnum 9. nóvember
MIKE Tyson (t.v.) og Evander Holyfleld mætast í hnefalelkahringnum í Las Vegas 9. nóvem-
ber. Don Klng umboðsmaður stendur hér é milll hnefalelkakappanna á blaðamannafundl þar
sem hann tllkynnti bardagann sem marglr bíða eftlr. Tyson mun fá 1.600 mllljénlr króna í
slnn hlut fyrlr bardagann en Holyfíeld 780 mllljónlr króna.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNUSAMBAND
Evrópu, UEFA, tílkynnti á fundi
sínum í Antalya í Tyrkiandi í
gær, að búið væri að ákveða að
fjölga liðum í Meistaradeild Evr-
ópu úr 16 i 24, frá og með næstu
leiktíð, 1997-1998. Þessi hug-
mynd kom fyrstfram þjá UEFA
í maí sl. og sett á laggirnar sér-
stðk nefnd tíl að koma hug-
myndinni í framkvæmd.
liða riðlum. Efsta liðið í hverjum
riðli kemst áfram i 8-lÍða úrsiit
árangri í öðru sæti komast í
útsláttarkeppnina. Meistara-
keppnin var sett á stofn 1992-
1993 og þá voru aðeins átta lið
þetta nýja fyrirkomulag komi
mein
ía, Spánn, Holland, England,
Frakkland,
þjóðum í forkeppni Evrópu-
mótsins þurfa að fara fram í
júfi. Þau 16 iið sem komast í
möguleika á að koma tveiraur
liðum inn í deildina með breyttu
fyrirkomulagi.
ír og fara þau beint í Meistara-
fyrrgreindum þjóðum sem yálf-
krafa ððlast keppnisrétt.