Morgunblaðið - 22.10.1996, Page 1
I-
Vinnings-
vinnlngi
upphæð
Hcitóarvinningsupphaið: A ísiamb:
110.807.208 2.583.278
UPPLÝSINGAR
• Miöinn sem 1. vinníngur kom á í
lottóinu um heigina var seldur í
Hóiagaró i « Reykjavik. Mióinn meö
bónusvinningnum var seidur í
Stjörnunni, einnig i Reykjavík. Fyrstí
vinníngurinn í Víkingalottóinu á
morgun er einfaldur, íiðlega 40
mílljónir króna.
AKSTURSIÞROTTIR
BONUSTOLUR
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
I 1 . 611,6 2 54.112.000
1 O 5 af 6 0 1.300.458
3. 5a'6 8 69.110
4. 4af6 273 1.880
I F7 3 af 6 U. + bónus 985 220
ISamtals: 1.268 110.807.278
19
10
1996
Vinningar
3.704.560
385.620
3.48,5
11.870
670
3 af 5
303.270
Samið um tíu heimsbikar-
mót í torfæru í Portúgal
LANDSSAMBAND íslenskra akstursíþróttamanna og aksturs-
íþróttafélag á Algarve í Portúgal ásamt ferðamálayf irvöldum
staðarins hafa skrifað undir fimm ára samning um að fram fari
tvö torfærumót í Portúgal í apríl á ári hverju. Mótin verða liður
í heimsbikarmóti í torfæru, en tvær aðrar umferðir munu fara
fram hérlendis í ágúst. Þá hefur LÍA undirritað tveggja ára samn-
ing við Eurosport sjónvarpsstöðina um einkarétt á sýningum á
torfærunni í Evrópu.
Olafur Guðmundsson, forseti LÍA
skoðaði aðstæður um helgina
í Portúgal og í framhaldi af því skrif-
aði hann undir samning við væntan-
lega skipuleggjendur
torfærunnar. I samn-
ingnum er m.a. kveð-
ið á um að allir kepp-
endur, allt að 25 tals-
ins ásamt ökutækjum, varahlutum
og aðstoðarmönnum verði fluttir sér
að kostnaðarlausu til Algarve og
Gunnlaugur
Rögnvaldsson
skrlfar
gisting útveguð. Talið er að allt að
150 manns fari frá íslandi vegna
mótsins, þ.á m. dómarar og aðrir
eftirlitsmenn. Mun allur hópurinn
dvelja á Algarve í 10 daga og verð-
ur keppt í tvígang, sitthvora helg-
ina, fyrst 12. apríl og síðan þann 19.
„Okkar hugmynd er að íslensk
torfæra verði alþjóðleg mótaröð og
keppnin í Portúgal er fyrsta skrefið.
Núna þurfum við að fá staðfest hjá
íslenskum ökumönnum hvort þeir
vilji keppa. Þeir verða ekki á laun-
um, en geta hinsvegar samið betur
við auglýsingaaðila eða fengið erlend
stórfyrirtæki í lið með sér. Við höfum
fengið fyrirspurnir frá öðrum lönd-
um og næstu skref gætu orðið mót
á Spáni og í Frakkland, en sýning '
á torfærunni í Eurosport hefur vak-
ið mikla athygli á þessari íþrótt. Við
gerðum nýlega tveggja ára samning
við Eurosport og þeir tóku að sér
að selja sýningarréttinn til annarra
landa og hafa einkarétt á sýningum
í Evrópu,“ sagði Bragi Bragason
framkvæmdarstjóri LIA í samtali við
Morgunblaðið. „Mér fínnst það ansi
skondið að ferðamálayfírvöld í öðru
landi, Portúgal, semji við okkur um
torfæruna á meðan við höfum talað
fyrir frekar daufum eyrum við ís-
lensk ferðamálayfirvöld og aðila í
ferðaþjónustunni hérlendis varðandi
möguleikana sem torfæran býður
upp á. Sannast það fornkveðna að
enginn verður spámaður í eigin föð-
urlandi.“
„Líklega mun þessi för íslenskra
keppenda til Portúgal færa þjóðar-
búinu 70 milljónir í gjaldeyristekjur,
þar sem Portúgalir verða að kaupa
þjónustu frá íslenskum ferða- og
flutningsaðilum. Þá er að koma hóp-
ur manna frá Bretlandi sem vill
smíða torfærujeppa og keppa hér-
lendis á næsta ári. Vonandi munu
þeir kaupa íslenska vinnu í þetta
verk. Framtíðin er því björt hvað
torfæruna varðar, en þessi íþrótt
hefur verið stunduð hérlendis í aldar-
fjórðung. Og nú virðist nú ætla að
blómstra erlendis líka,“ sagði Bragi
Bragason.
STÆRSTA TAP M ANCHESTER UNITED í TÓLF ÁR/C4
1996
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER
BLAD
Herbert til Hollands
HERBERT Arnarson landsliðsmaður
í körfuknattleik og einn aðalburðar-
stólpi ÍR-inga undanfarin tvö ár er
á förum frá félaginu, en hann hefur
gert samning við hollenska liðið Don-
ar sem er frá Groningen. Herbert
heldur utan í bítið i dag og beint á
æfingu hjá liðinu en búið er að skrifa
undir samning og því Ijóst að hann
verður í Hollandi til vors að minnsta
kosti. „Þetta gerðist allt mjög hratt.
Ég veit ekkert um þetta lið og ég
efast um að forráðamenn þess viti
nokkuð um mig, allavega hef ég
ekki sent þeim myndbandsspólu með
mér eða neitt,“ sagði Herbert í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Donar varð í sjöunda sæti í hol-
lensku deildinni í fyrra og er eina
félagið frá Groningen sem leikur í
fyrstu deildinni í körfubolta. Herbert
hefur leikið hér á landi í tvö ár eftir
að hann kom frá Bandaríkjunum úr
námi. Fyrra árið var hann valinn
besti maður mótsins og sá efnileg-
asti einnig, en það var fyrsta árið
hans í úrvalsdeildinni. Þá var Her-
bert næst stigahæstur í deildinni með
862 stig og auk þess með bestu víta-
nýtinguna.
Örn Ævar sigraði
ÖRN Ævar Hjartarson úr Golfklúbbi Suðurnesja sigraði á sterku
unglingamóti í golfi sem lauk í Frakklandi á laugardaginn. Örn
Ævar lék fyrsta hringinn á 72 höggum og þann næsta á 69 högg-
um, þremur höggum undir pari vallarins. Þriðji hringurinn var
leikinn á öðrum velli, Biaritz sem er par 69, og þann hring lék
Örn Ævar á 74 höggum og síðasta hringinn á parinu þannig að
hann lauk leik á 284 höggum, þremur höggum færra en sá sem
varð í öðru sæti. Birgir Haraldsson náði næstbestum árangri ís-
lendinganna, lék á 305 höggum, Þorkell Snorri Sigurðsson lék á
310 höggum og Pétur Óskar Sigurðsson lék á 330 höggum.
HERBERT Arnarson, landsliðsmaður úr ÍR, fer utan í dag.
KORFUKNATTLEIKUR
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA