Morgunblaðið - 22.10.1996, Page 5
4 C ÞRIÐJURDAGUR 22. OKTÓBER 1996
KNATTSPYRIMA
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1996 C 5
+
KNATTSPYRIMA
Stærsta tap
Manchester
United í tólf ár
LEIKMENN Manchester Un-
ited voru kjöldregnir á St. Jam-
es’ Park, þar sem leikmenn
Newcastle fóru á kostum og
unnu stórsigur, 5:0. Þetta var
stærsti ósigur Man. Utd. ítólf
ár, eða síðan liðið tapaði fyrir
Everton 27. október 1984,0:5.
Darren Peacock, David Ginola,
Les Ferdinand, Alan Shearer
og Philippe Albert skoruðu mörkin
og þá átti Shearer skot sem hafn-
aði í stöng. Þetta var stærsti sigur
Newcastle á Manchester United
síðan 1929 og „Rauðu djöflarnir"
hafa ekki þurft að hirða knöttinn
úr netinu hjá sér fimm sinnum síð-
an Manchester City skellti United
5:1 í september 1989. Þess má
geta að þegar Man. Utd. og Newc-
astle léku um Góðgerðarskjöldinn
á Wembley í ágúst, lauk viðureign-
inni með stórsigri United, 4:0.
Leikmenn Newcastle fóru á kost-
um og á tólftu mín. skoruðu þeir
fyrsta markið. Peter Beardsley tók
þá homspyrnu og sendi knöttinn
fyrir markið, þar sem Shearer
skallaði knöttinn til Peacock, sem
skallaði - Denis Irwin reyndi að
bjarga, en knötturinn var kominn
inn fyrir marklínu þegar hann
spyrnti honum frá. Dómari leiksins
var ekki viss, en annar línuvörður-
inn var vel á verði og gaf dómaran-
um merki um að knötturinn hefði
farið inn fyrir marklínu.
Ginola skoraði annað markið,
sem var glæsilegt - fékk knöttinn
yst í vítateignum vinstra megin,
snéri sér snöggt við og þrumaði
honum í hliðametið fjær, óveijandi
fyrir Peter Schmeichel. Ferdinand
skoraði þriðja markið með skalla,
eftir sendingu frá Shearer - knött-
urinn hafnaði á þverslánni og síðan
í netinu. Shearer skoraði fjórða
markið eftir að Schmeichel hafði
varið tvisvar - fyrst skot frá Be-
ardsley og síðan frá Ferdinand.
Belgíumaðurinn Albert skoraði
fimmta markið og var það afar
glæsilegt - hann lék að marki og
þegar hann sá að Schmeichel var
kominn langt út úr markinu, vipp-
aði hann knettinum af 25 m færi
yfir hann í netið.
„Þetta var sætur sigur. Þrátt
fyrir mótlætið gáfust ieikmenn
United ekki upp,“ sagði Alan
Shearer. „Ég trúi þessu varla,“
sagði Albert. Það var nokkur hiti
í leikmönnum og vom sex áminntir.
Arsenal náði
ekki að skora
Arsenal var á toppnum í sólar-
hring, eftir að leikmenn liðsins urðu
að sætta sig við jafntefli við Co-
ventry á Highbury, 0:0. Steve
Ogrizovic, markvörður Coventry,
nefbrotnaði fimm mín. fyrir leiks-
lok, þegar hann kastaði sér niður
til að góma knöttinn um leið og Ian
Wright reyndi að spyrna knettinum
í netið - spyrnti í andlit Ogrizovic.
Coventry lék sterkan varnarleik og
átti Ogrizovic mjög góðan leik í
markinu. Mótspyrnan fór greini-
lega í taugarnar á leikmönnum
Arsenal, þrír þeirra voru bókaðir -
Wright, Martin Keown og John
Hartson, sem hefur verið áminntur
sjö sinnum á keppnistímabilinu.
Wimbledon
gefur ekkert eftir
Leikmenn Wimbledon, sem töp-
uðu þremur fyrstu leikjum sínum,
héldu áfram sigurgöngu sinni á
Stamford Bridge í London, þar sem
þeir unnu Chelsea örugglega, 2:4
- sjöundi sigur þeirra í röð. „Ég
er mjög hrifinn af leik Wimbledon,
leikmenn liðsins leika mjög vel og
skynsamlega. Þeir leika knettinum
vel á milli sín, eru fljótir og vinna
vel saman,“ sagði Ruud Gullit,
knattspyrnustjóri Chelsea, sem
kom inná sem varamaður, lék sinn
fyrsta leik eftir hnéuppskurð.
Wimbledon lék mjög vel og skoruðu
þeir Robbie Erle, eftir fjórar mínút-
Reuter
ALAN Shearer, númer 9, átti stórleik með Newcastle gegn Manchester United. Hér er hann í baráttu
um knöttinn við Nicky Butt og myndln táknræn fyrir leikinn; Newcastle hafði mikla yfirburði.
ur, Neil Ardley (16.), Marcus Ga-
yle (64.) og Efan Ekoku (78.)
mörkin. Scott Minto skoraði fyrra
mark Chelsea, hans fyrsta mark
fyrir liðið, á níundu mín. og
Gianluca Vialli skoraði það seinna
úr vítaspyrnu.
Aston Villa, sem hafði ekki fagn-
að sigri í sjö leikjum, vann Leeds,
2:0, með mörkum Dwight Yorke
og Tommy Johnson, sem tók' stöðu
Júgóslavans Savo Milosevic.
Tony Coton, markvörður
Sunderland, meiddist eftir samstuð
við Norðmanninn Egil Ostenstad á
29. mín. og varð að fara af lei-
kvelli. „Þetta var mikil blóðtaka
fyrir okkur, þar sem Coton verður
frá keppni í mánuð,“ sagði Peter
Reid, knattspyrnustjóri Sunder-
land, sem tapaði 0:3 fyrir Sout-
hampton á The Dell.
Teddy Sheringham skoraði tvö
mörk og Ruel Fox eitt, þegar Tott-
enham vann Middlesbrough á úti-
velli, 0:3.
Gerðu upp skuld
við stuðningsmenn
KEVIN Keegan, knattspyrnustjóri Newcastle,
var ánægður eftir sigurinn á Manchester Un-
ited. „Ég minnti mína menn á það fyrir leik-
inn, að við skulduðum stuðningsmönnum okk-
ar, eftir að þeir mættu á Wembley og sáu
okkur tapa fyrir United í leiknum um Góð-
gerðarskjöldinn 0:4. Leikmenn mínir gerðu svo
sannarlega upp við stuðningsmennina, því ég
trúi því ekki að United eigi eftir að tapa svona
stórt á næstunni," sagði Keegan.
Þetta var fyrsti sigur hans á Manchester
United í deildinni eftir að hann tók við stjóm
Newcastle. En hann var jarðbundinn sem endra-
nær og lagði áherslu á að leikmenn hans og
stuðningsmenn félagsins héldu sig á jörðinni:
„Við höfum ekki unnið neina titla ennþá. Þessi
sigur gefur okkur ekkert meira en þijú stig.
Juventus tætti Inter í sig
Mm
FOLK
■ ÞORVALDUR Örlygsson skor-
aði mark Oldham gegn Reading
úr vítaspymu, er liðin gerðu jafn-
tefli 1:1 í ensku 1. deildarkeppn-
inni.
■ RONALD Waterreus, mark-
vörður Eindhoven, og fyrirliðinn
Arthur Numan leika ekki með lið-
inu seinni Evrópuleikinn gegn
Brann, þar sem þeir verða í leik-
banni.
■ PATRICK Kluivert lék á ný
með Ajax þegar liðið gerði jafn-
tefli við Volendam, 1:1 á nýja
Arena-leikvellinum.
■ PAUL Gascoigne skoraði
stórglæsilegt mark úr aukaspymu,
þegar Glasgow Rangers gerði
jafntefli við Aberdeen, 2:2.
■ JÖRGEN Kohler segist vilja
framlengja samningi sinum við
Dortmund til ársins 2000; segist
vera í góðri æfingu og tilbúinn til
að halda áfram.
■ TRAPATONI, þjálfari Bayern
Miinchen er sagður vilja fá fleiri
ítalska leikmenn til liðsins og nýj-
asta nafnið sem nefnt hefur verið
er Roberto Baggio.
■ GREGORIO Perez, þjálfari
Cagliari á Ítalíu, var rekinn í gær
eftir slæmt gengi liðsins. Cagliari
tapaið fyrir Lazíó á sunnudaginn,
en þess má geta að Lazíó lék nær
allan leikinn með aðeins tíu menn,
eða eftir að markvörðurinn Luca
Marchegiani var rekinn af leikvelli
eftir fimm mín. fýrir að handleika
knöttinn fyrir utan vítateig.
■ ROY Keane mun koma á ný í
lið Manchester Utd., þegar liðið
leikur við Swindon í deildarbikar-
keppninni á morgun á Old Traf-
ford.
■ KEANE lék síðast Evrópuleik
gegn austurríska liðinu Rapid Vín
25. september. Hann hefur verið
meiddur á fæti.
■ PHILIP Neville, sem hefur ekki
leikið með Man. Utd. síðan í ág-
úst, vegna meiðsla á ökkla, er orð-
inn góður og tilbúinn í slaginn.
■ ÞÁ er Ryan Giggs, sem lék
ekki með Evrópuleikinn gegn Fen-
erbahce og hinn sögufræga leik
gegn Newcastle, að verða góður
af meiðslum á kálfa.
■ STEVE Ogrizovic, markvörður
Coventry, hefur hug á að kæra
miðheija Arsenal, Ian Wright, fyr-
ir brot, sem varð til þess að
Ogrizovic nefbrotnaði. Hann telur
að Wright hafí brotið viljandi á sér.
■ SAVO Milosevic, miðheiji hjá
Aston ViIIa, er líklega á förum til
Italíu. Perugia hefur áhuga að fá
hann. Brian Little, knattspyrnu-
stjóri Aston Villa, keypti Júgósla-
vann fyrir fimmtán mánuðum á 3,5
millj. pund, eftir að hafa séð upptök-
ur af leikjum sem Milosevic lék.
Hann hefur aðeins skorað sextán
mörk í 57 leikjum fyrir Villa.
■ ASTON Villa hefur áhuga á að
fá Stan Collymore frá Liverpool.
Parma hafði áhuga á að kaupa
Milosevic áður en Aston Villa
keypti hann og þá hafði Roma einn-
ig áhuga.
JUVENTUS hafði sætaskipti við
Inter Milan og fór á toppinn, eftir
öruggan sigur á Inter á heima-
velli, 2:0. Juventus hefur eins
stigs forskot á Ítalíu. Frakkinn
Zinedine Zidane og Júgóslavinn
Vladimir Jugovic skoruðu mörkin.
Inter hafði ekki tapað leik síðan í
maí í deildarkeppninni en leikmenn
liðsins réðu ekki við Juvenus. Leiksins
■■■I var beðið með mikilli
Frá eftirvætningu, enda
EinariLoga fyrsti risaslagurinn í
áTaHu'H' haust, og ekki síst var
beðið eftir einvígi
„franska kvartettsins" Zidane og
Deschamps hjá Juve og Djorkaeff og
Angloma hjá Inter. Skemmst er frá
því að segja að þeir tveir fyrrnefndu
áttu stórleik og réðu gangi leiksins á
miðju vallarins algerlega, vel studdir
af Jugovic og Di Livio. Miðja Inter
var afar slök og saknaði Paul Ince
til að vinna boltann en hann var í
leikbanni.
Juventus náði forystu með þrumu-
skoti frá Jugovic skömmu fyrir hálf-
leik eftir að hafa þjarmað hressilega
að marki Inter og var Alen Boksic
þar iðulega að verki. I síðari hálfleik
gerði síðan Zinedine Zidane út um
leikinn með stórkostlegu marki, tók
boltann viðstöðulaust með vinstri og
þrumaði honum eftir í markhornið af
20 metra færi framhjá Pagliuca. Yfír-
burðir Juve voru algerir, Montero átti
skalla í stöng, Ferrara skot í slá og
Boksic var síógnandi, besti maður
vallarins, en náði ekki að setja mark.
„Sáuð þið Zidane?" spurði Lippi
þjálfari Juve kátur eftir leikinn.
„Hann getur hluti sem mjög fáir
knattspyrnumenn í heiminum eru
færir um, en það verður að gefa hon-
um tíma. Ef ég hefði látið hann leika
í Evrópukeppninni í vikunni eins og
blöðin heimtuðu hefði hann ekki verið
í jafn glimrandi formi í dag.“ Um-
berto Agnelli forseti Juventus var
einnig ánægður með sína menn: „Zid-
ane á eftir að verða enn betri og
Boksic er búinn að vera hreint stór-
kostlegur í haust, með sama áfram-
haldi verður vart gengið framhjá hon-
um þegar kemur að kosningu knatt-
spymumanns ársins.“ George Weah
skoraði tvö mörk og Roberto Baggio
eitt þegar AC Milan vann Napolí 3:1
á San Siro-leikvanginum í Mílanó.
Marco Simone kom aftur inn í lið
Milan eftir meiðsli. Samvinna hans
og Weah er rómuð og hún skilaði
fallegasta marki leiksins; Simone lék
glæsilega á hvern varnarmanna Na-
polí á fætur öðrum áður en hann lagði
boltann hárfínt fyrir fætur meistara
Weah sem þrumaði honum umsvifa-
laust í markið utan við teig. Hann er
nú markahæstur í deildinni með 7
mörk.
Nokkuð er um meiðsli hjá Milan,
Desailly leikur í vörninni í fjarveru
Baresis og leysir hinn ungi Ambrosini
hann af á miðjunni og við hlið hans
gegn Napoli var Coco, sem kom inná
eftir að Albertini meiddist snemma í
leiknum. Berlusconi forseti Milan var
afar ánægður með þá félaga: „í þess-
um leik sáum við framtíð Milan í
tvennum skilningi. Annars vegar nán-
ustu framtíð - ég held að liðið sé að
jafna sig eftir skrykkjótta byijun —
og hins vegar ef litið er til lengri tíma
erum við með sannkallaðan gullforða
í þeim Ambrosini og Coco.“
Weah skoraði fyrstu tvö mörkin
áður en Brasilíumaðurinn Andre Cruz
skoraði fyrir gestina með góðu skoti
af 20 m færi. Það var svo Baggio sem
gulltryggði sigur AC Milan með skoti
úr vítateig.
Parma tapaði sínum fyrsta heima-
leik í vetur, þegar Perugia kom í heim-
sókn, 1:2. Gestirnir skoruðu mörkin
sín á fjórum mín. - fyrst Federico
Giunti á 21. mín. og þá Cármine
Gautieri með skalla á 25. mín. Enrico
Chiesa skoraði fyrir heimamenn á síð-
ustu mín. leiksins.
Veróna vann sinn fyrsta sigur á
keppnistímabilinu og leikmenn Róma
máttu sætta sig við annan ósigur sinn
á viku, 1:2. Salvatore Giunta skoraði
fyrst fyrir Veróna, Marco Delvecchio
náði að jafna á 51. mín. Pierluigi
Orlandini var hetja Veróna, skoraði
sigurmarkið á 80. mín.
Leikmenn Fiorentína fögnuðu sigri
á nágrönnunum hjá Bologna, 0:2.
Gabriel Batistuta skoraði fyrra mark-
ið með langskoti af 30 m færi.
Við ætlum ekki að fara að fagna
neinu, það er langur vegur framund-
an. Við lærðum mikið síðastliðið
keppnistímabil, þegar við misstum
niður tólf stiga forskot og meistara-
titilinn til United,“ sagði Keegan.
„Leikmenn United brotna ekki
þrátt fyrir þetta tap,“ sagði Keegan,
en hann og fleiri muna hvemig lið
United brást við stórtapi gegn Tott-
enham á Nýársdag á þessu ári; í
kjölfarið fýlgdi aðeins eitt tap í 33
leikjum í deildinni og bikarkeppninni
og United sigraði í báðum mótum.
Keegan sagði leikinn á sunnudag
þann besta hjá liðinu síðan hann
tók við stjóminni. „Það er pening-
anna virði að borga sig inn á leiki
okkar,“ sagði hann, en Keegan hef-
ur lengi lagt áherslu á að leika sókn-
arknattspyrnu, þó það sé á kostnað
varnarinnar, til að skemmta áhorf-
endum en segja má að það hafi
komið honum í koll í fýrra þegar
Newcastle missti niður 12 stiga
forskot og Manchester United fagn-
aði meistaratitlinum.
Hristo Stoichkov og Brasilíu-
mennirnir Ronaldo og Gio-
vanni voru í essinu sínu þegar
Barcelona vann stórsigur á Logro-
nes, 8:0 í spænsku 1. deildinni.
Þeir félagar skoruðu tvö mörk
hver í leiknum. Leikmenn Logrones
átti aldrei möguleika á Nou Camp
og undir lokin léku þeir með aðeins
níu leikmenn, þar sem tveimur var
vísað af leikvelli. Barcelona er á
toppnum á Spáni, tevimru sigum
á undan Real Madrid.
Eitt af mörkum Barcelona var
sjálfsmark og þá skoraði Juan
Pizzi. Barcelona hefur ekki unnið
með svo miklum mun síðan 1968.
Sigurinn gat hæglega orðið stærri,
en frábær markvarsla Andoni
Kios
frábær
gegn
Bayem
Snilldartaktar hjá markverði
Dortmund, Stefan Klos, ein-
um minnsta markverðinum (1,82
m) í þýsku 1. deildarkeppninni,
kom í veg fyrir að leikmenn Bay-
ern Múnchen skoruðu á Ólympíu-
leikvanginum í Múnchen, þar sem
liðin gerðu stórmeistarajafntefli
0:0. Klos varði hvað eftir annað
glæsilega. Bæjarar réðu gangi
leiksins, en náðu ekki að koma
knettinum framhjá Klos - þar var
Júrgen Klinsmann fremstur í
flokki, fékk mörg góð tækifæri
sem hann nýtti ekki. „Við ætluðum
okkur að sigur, sem hefði verið
gott vegarnesti í meistarabarátt-
unni,“ sagði Klinsmann.
„Klos hefur verið að leika mjög
vel að undanförnu, sýnt mark-
vörslu á heimsmælikvarða. Ég
vona að hann fái tækifæri með
landsliðinu,“ sagði Andy Möller,
félagi Klos, sem átti góðan leik og
hefur náð sér fullkomlega eftir
meiðslum á fæti. „Við getum ekki
annað en verið ánægðir með úrslit-
in hér.“
Karlsruhe varð að sætta sig við
tap fyrir Werder Bremen á heima-
velli, 1:3. Thomas Hássler skoraði
fyrst fyrir heimamenn, en Bruno
Labbadia og Austurríkismennirnir
Heimo Pfeifenberger og Andreas
Herzog svöruðu fyrir Bremen.
„Varnarleikurinn var góður í fyrri
hálfleik, en í þeim síðari fóru mín-
ir menn á kostum,“ sagði Hans-
Júrgen Doerner, þjálfari Bremen.
Hollenski þjálfarinn Huub Ste-
vens fagnaði sínum fyrsta sigri
með Schalke, síðan hann tók við
liðinu fyrir mánuði - fórnarlömbin
voru leikmenn Hamburger og úr-
slitin 2:0. „Þó að við hefðum leikið
allan daginn, er ég viss um að við
hefðum ekki náð að skora,“ sagði
Felix Magath hjá Hamburger.
Borussia Mönchengladbach
vann Hansa Rostock, 2:0. Thomas
Kasternmaeier skoraði fyrra mark-
ið eftir mikinn einleik á 57. mín.
og síðan bætti Marco Villa marki
með skalla við. Bernd Krauss,
þjálfari Mönchengladbach, sem
hefur verið undir pressu eftir tapið
í Evrópukeppninni gegn Mónakó,
2:4, var mjög ánægður með fram-
göngu hins 18 ára Villa. „Þó svo
að hann hafi ekki skorað, lék Villa
mjög vel. Það var mjög mikilvægt
fyrir okkur að vinna,“ sagði
Krauss.
Cedrun kom í veg fyrir það. Króat-
inn Davor Suker skoraði þijú mörk
þegar Real Madrid vann stórsigur
á Real Sociedad, 6:1. Júgóslavinn
Predrag Mijatovic skoraði tvö
mörk, hann lagði upp eitt mark
fyrir Suker og fiskaði vítaspyrnu,
sem Suker skoraði úr.
Deportivo La Coruna vann
Espanyol, 2:0. Brasilíumaðurinn
Rivaldo skoraði fyrra markið og
Frakkinn Mikael Madar bætti
marki við.
Leikmenn Zaragoza, sem hafa
ekki náð að fagna sigri þegar sjö
umferðir eru búnar, máttu þola tap
fyrir nýliðinum hjá Extremadura,
1:2. Victor Fernandez, þjálari
Zaragoza, er orðinn valtur í sessi.
Stórskotahríð
KÖRFUKIMATTLEIKUR
Atta úrvalsdeildarlið áfram
ÁTTA úrvalsdeildarlið eru kom-
in áfram í Lengjubikarkeppn-
inni í körfuknattleik og átta liða
úrslitin verða ieikin 7. til 10.
nóvember. Grindvíkingar mæta
þá Tindastóli, Haukar og KR
mætast, Njarðvíkingar og
Skallagrímsmenn og Keflvík-
ingar og iR-ingar. FVrst er leik-
ið á heimavelli liðsins sem nefnt
er á undan en samanlögð úrslit
í tveimur leikjum ræður því
hvort kemst áfram. Undanúr-
slitaleikir keppninnar verða síð-
an í LaugardalshÖllinni fimmtu-
daginn 21. nóvember og úrslita-
leikurinn á sama stað laugar-
daginn 23. nóvember.
Morgunblaðið/Golli
JONATAN Bow, leikmaður KR, skorar gegn Akurneslngum. Hann fékk fimmtu villuna nokkrum
mínútum fyrlr leikslok en félagar hans héldu uppi merkinu og komust áfram í keppninnl.
Oruggt
hjá Borg-
nesingum
KR-ingar
höfðuþað
KR-ingar unnu Akurnesinga í
síðari leik liðanna i Lengju-
bikarkeppninni í körfuknattleik á
laugardaginn, 82:79 og þar sem
■■■■■ fyrri leik liðanna
Skúli Unnar lyktaði með jafntefli
Sveinsson komast KR-ingar
skrifar áfram. Leikurinn
var jafn og spenn-
andi svo til allan tímann, rétt í
upphafi síðari hálfleik virtist sem
KR ætlaði að stinga af en Skga-
menn náðu að bita frá sér og kom-
ast yfir.
Lokamínúturnar voru spennandi.
Skaginn hafði þriggja stiga for-
ystu, 69:72, er fimm mínútur voru
eftir, en KR jafnaði og Bow fékk
sína fimmtu villu. Er rúmar tvær
mínútur voru eftir hafði ÍA enn
forystu, 74:76 en þá setti Ingvar
þriggja stiga skot niður, náði siðan
boltanum af Bayless og kom KR í
79:76. Sigurður Elvar lék sem leik-
stjórnandi síðustu mínúturnar hjá
ÍA og honum voru mislagðar hend-
ur, sendi boltann útaf og Ingvar
þakkaði fyrir með tveimur stigum
og þar með var björninn unninn.
Öruggt hjá ÍR
Leikmenn ÍR tryggðu sér sæti í
8-liða úrslitum Lengjubikar-
keppninnar með öruggum sigri,
H2-87, á Þór frá
Arnaldur Akureyri í Selja-
Loftsson skóla á sunnudag-
skrifar inn. ÍR-ingar sigr-
uðu í fyrri leiknum
á Akureyri með 6 stiga mun svo
ljóst var að róðurinn yrði Þórsurum
þungur.
ÍR-ingar byijuðu leikinn af mikl-
um krafti og voru komnir með 10
stiga forskot eftir sex mín. leik.
Mest náðu þeir 17 stiga forskoti í
hálfleiknum, 38:21, og spiluðu þá
mjög vel. Boltinn gekk hratt manna
á milli í sókninni, varnarleikurinn
var grimmur og hraðaupphlaupin
vel útfærð. Þórsarar gáfust ekki
upp og náðu að minnka muninn í
tvö stig, 45:43, þegar ein mín. var
eftir af hálfleiknum. Þá tók Tito
Baker til sinna ráða og skoraði tíu
stig með frábærum leikkafla en
alls skoraði hann 20 stig í fyrri
hálfleik. ÍR-ingar geta þakkað hon-
um að þeir höfðu 12 stiga forskot
í hálfleik, 55:43.
Segja má að vonir Þórsara hafi
endanlega slökknað þegar Fred
Williams, þjálfari og besti leikmað-
ur Þórs, fékk sína fimmtu villu á
4. mín. seinni hálfleiks en þá hafði
hann skorað 21 stig og verið lan-
gatkvæðamestur sinna manna. ÍR-
ingar juku forskotið jafnt og þétt
og þurftu engan stjörnuleik til að
vinna 25 stiga sigur.
Tito Baker var yfirburðarmaður
á vellinum, hitti úr 14 af 19 skotum
og skoraði alls 36 stig í öllum regn-
bogans litum. Herbert hitti illa fyr-
ir utan teig en skoraði samt 19
stig og átti 11 stoðsendingar. Eirík-
ur Onundarson var Þórsurum einn-
ig erfíður; stal boltanum sjö sinnum
og skoraði 17 stig.
Þórsarar áttu aldrei möguleika
eftir að Fred Williams fór útaf.
Þeir voru miklir klaufar í sókninni
og töpuðu boltanum hvorki meira
né minna en 31 sinni. Auk Williams
var Hafsteinn Lúðvíksson atkvæða-
mestur með 18 stig og 14 fráköst.
Liðsmenn Skallagríms unnu ísfirð-
inga örugglega 93:75 í síðari
leik liðanna í Lengjubikarkeppninni
en leikið var í Borg-
Theodór arnesi. ísfirðingar
Þórðarson sigruðu 72:69 í fyrri
skrifarfrá leiknum en á sunnu-
Borgarnesi daginn tryggðu
Borgnesingar sér sæti í 8-liða úrslit-
unum.
Þjálfari Skallagríms, Terry Robert
Upshaw, var mjög ánægður með leik
sinna manna, sérstaklega í síðari
hálfleik. „Ég ræddi við mína menn
í leikhléi og lagði mikla áherslu á
að ná upp hraðanum og það gekk
eftir,“ sagði hann. Guðni Guðnason,
þjálfari KFÍ, sagði að Borgnesingar
hefðu komið sterkir til leiks eftir
hlé. „Vömin hjá þeim var feikna
sterk og við réðum ekki við hana,“
sagði Guðni.
Gestirnir voru öruggari með sig í
fyrri hálfleiknum, sem var annars
jafn, og höfðu 43:40 yfír í leikhléi.
Það var eins og nýtt lið kæmi inná
hjá heimamönnum eftir hlé. Vörninni
var lokað og hraðinn aukinn í sókn-
inni. Tómas Holton fór þar fremstur
í flokki og átti stórgóðan leik. Segja
má að allt, sem fór úrskeiðis í fyrri
hálfleik hjá Skallagrími, hafi gegnið
upp hjá eftir hlé. KFÍ átti ekkert
svar við eldmóði heimamanna og
náðu ekki að komast inn í ieikinn á
ný. Skallagrímur koms yfir og jók
forskot sitt jafnt og þétt.
Tómas Holton, Bragi Magnússon,
Curtis Raymond og Wayne Mulgrave
voru bestu menn Skallagríms en hjá
KFÍ var Guðni þjálfari mjög góður
og einnig léku Andrew Valcjo og
Friðrik Stefánsson vel. Áhorfendur
voru 358 og aþr af um 50 gallharðir
stuðningsmenn KFÍ sem létu sig
ekki muna um að koma með rútu
alla leið frá ísafírði til að styðja sína
menn.
■
I