Morgunblaðið - 22.10.1996, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.10.1996, Qupperneq 8
fllmgtintfyfafeift HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN Meistarar Vals úr leik Valur er úr leik í Evrópukeppni meistaraliða, eftir _tvo tap- leiki fyrir Donetsk frá Úkraníu í Bochum í Þýskalandi. „Við lékum ágætlega í fyrri leiknum og vorum klaufar að vinna hann ekki. Úkra- ínumennimir skomðu sigurmark- ið, 19:20, rétt fyrir leikslok. Við lékum mjög agað og náðum að halda knettinum vel, en í seinni leiknum áttum við ekki möguleika eftir að Donetsk komst sex mörk- um yfír, 3:9. Á þessum leikkafla misstum við leikmenn af velli og fengum mörg mörk á okkur eftir hraðaupphlaup. Eftir þetta var á brattann að sækja, við urðum að stytta sóknir okkar og réðum ekki við stóra leikmenn Donetsk, sem náðu að þétta vörn sína vel,“ sagði Jón Kristjánsson, þjálfari Vals- manna, sem töpuðu seinni leikn- um 16:27. „Við reiknuðum ekki með nein- um stórafrekum þegar við dróg- umst gegn Donetsk, sem lék til úrslita í Evrópukeppni borgarliða síðastliðið keppnistímabil. Liðið er mjög gott,“ sagði Jón. Um 200 áhorfendur voru á leikj- unum, sem fóru fram í Bochum, vinarbæ Donetsk í Þýskalandi. Dýrt, en mikilvægt OFT er sagt að sæti í Evrópu- keppni í handknattleik sé alls ekki kostur heldur kvöð þar sem mörg lið frá gömlu Sovétríkjunum taka þátt í keppninni, kostnaður við ferðalög þangað er mikill og sigur engan veginn tryggur. „Það var dýrt að spila báða leikina hér heima en þó ódýrara en að fara til þeirra, þangað er fímm daga ferðalag. Ég vona að við sleppum fjárhagslega frá þessum leikjum með mikilli sjálfboðaliðsvinnu og styrkjum," sagði Þorgeir Haraldsson formaður handknattleiksdeildar Hauka. „Varðandi næstu umferð held ég að það séu helmingslíkur á að fara í langt ferðalag en það er algert happdrætti hvaða lið maður fær. Hinsvegar er þessi reynsla mikil- væg fyrir okkur stjórnendur liðsins, ég vildi ekki sleppa henni og strák- arnir ekki heldur því miðað við stöðu okkar i deildinni hér heima var mjög gott að fá þessa leiki. Við fórum ekki utan í æfingaferð í vor þar sem við erum í þessari Evrópu- keppni, höfðum ekki peninga til þess. Þess vegna hefur okkur fund- ist við vera aðeins á eftir í spili svo að þessir leikir eru kærkomnir. Ég veit hvað Haukaliðið getur og það er að koma í ljós - við sáum mikl- ar framfarir núna. Það var líka að byija nýr þjálfari og hann þarf sinn tíma. Við vissum ekki neitt um þetta lið, við reyndum en það er vonlaust að fá upplýsingar að aust- an. Þeir fengu samt upplýsingar um okkur í gegnum vini sína í Danmörku. En miðað við hvað við höfum heyrt þaðan áttum við annað hvort von á svona liði eða mjög sterku." faérmt FOLK ■ PETR Baumruk Haukamaður lék sinn fimmtugasta Evrópuleik á laugardaginn og fékk að launum blóm frá Haukum. ■ HALLDÓR Ingólfsson félagi Baumruks lék þá einnig merkan leik - sinn fyrsta Evrópuleik. ■ GEORGÍUMENNIRNIR hafa ekki úr miklu fjármagni að spila. Búningarnir sem þeir spiluðu í á sunnudaginn fengu þeir gefíns hjá makedónísku liði sem þeir spiluðu við fyrir skömmu. Búningarnir pössuðu ekki alveg en þeir gerðu gott úr því og létu laga þá til. 300 mörk í Evrópukeppni Morgunblaðið/Golli ARON Kristjánsson ðtti góðan leik fyrir Hauka um helgina þegar HafnflrAlngar mættu georg- íska IIAinu Martve og unnu auAvelda sigra. Hér stekkur Aron inn af línu og skorar en hann skoraAi þrjú hundraAasta mark Hauka í Evrópukeppni. Aldrei spurning HAUKAR frá Hafnarfirði áttu ekki neinum vandræðum með sigra lið Martve frá Georgíu í Borgarkeppni Evrópu ef frá eru skildar fyrstu tíu mínúturnar í fyrri leik liðanna í Hafnarfirði á laugardaginn. Báðir leikirnir voru leiknir þar, sá fyrri endaði 36:16 og sá síðari, sem var „útileikur" Hauka, lauk með 15 marka sigri, 20:35. Þar sem Haukar höfðu litla möguleika á að afla sér upplýs- inga um keppinauta sína, urðu þeir bara að taka því sem að höndum bar. Fyrstu mínúturnar í fyrri leik liðanna á laugardaginn voru þeim því erfiðar en síðan var aldrei spurning um lokatölur - heldur hve stórir sigramir yrðu. Leikmenn Hauka fengu því að láta Ijós sitt skína og vörnin kom sérstaklega vel út er leið á leikina en liðið á skilið að fá klapp á bakið fyrir að tapa Stefán Stefánsson skrifar ekki niður einbeitingu þrátt fyrir mikinn markamun. „Við vissum ekki neitt um þetta lið en ég átti alveg eins von á því að vinna," sagði Sigurður Gunnars- son þjálfari Hauka eftir síðari leik- inn í íþróttahúsinu við Strandgötuna á sunnudagskvöldið. „Við höfum ekki verið að spila vel að undan- förnu en markmiðið_ er að bæta okkur í hveijum leik. í þessum leikj- um náðum við að bæta mörg atriði en hver einasti leikur sem liðið fær að spila saman er niikilvægur og þjappar því saman. Ég er sáttur við baráttu okkar og við vorum að gera hluti betur en venjulega þó að við höfum átt í basli fyrstu mínúturnar. Það er að hluta til út af pressu en ég vissi að þegar við kæmumst yfir hana myndum við spila vel. Við héldum einbeitingu ágætlega og duttum aldrei niður. Það verður dregið í næstu umferð á þriðjudag og veit að það eru ýmis sterk lið eftir en ég vil fara eins langt og hægt er í þessari keppni.“ Drengirnir frá Georgíu áttu aldrei möguleika, skorti reynslu og lík- amstyrk enda meðalaldur liðsins rúm 18 ár. Þó brá fyrir töktum hjá þeim en mótstaðan var alltaf of mikil. „Við vissum margt um ísland og liðið,“ sagði Zaur Dolidze þjálf- ari Martve eftir leikinn en þetta er í annað sinn sem hann kemur hing- að, kom áður 1972 þegar hann var einn af þjálfurum rússneska lands- liðsins. „Við vissum að íslendingar hafa verið að spila I Evrópu- og heimsmeistarakeppni og íþróttin sú önnur vinsælasta á íslandi. Við viss- um að Haukar væru með gott lið og áttum von á leik eins og þessum. Við bárum við virðingum fyrir þeim og áttum ekki von á sigri því við erum með marga unga leikmenn og Haukar hafa að auki til að bera mun meiri líkamstyrk. Bestir fannst mér Aron Kristánsson og Gústaf Bjarnason." Stærstu slgrar / C2 Stjörnu- menn áfram „VIÐ lékum ekki nægilega vel og misstum leikinn úr höndunum á okkur á lokasprettinum, þegar við nýttum ekki sjö til átta dauðafæri. Við töpuðum, en aðalatriðið er að við erum komnir áfram og draumur- inn er að mæta Geir Sveinssyni og félögum hans hjá Montpellier í næstu umferð," sagði Valdimar Grímsson, þjálfari Stjömunnar, sem tapaði seinni leik sínum gegn Hirsc- hmann í EHF-keppninni, 17:16, í Hollandi. Stjaman vann fyrri leik- inn 22:18. Stjörnumenn byijuðu betur en Hollendingamir, vom með fjögurra marka forskot í leikhléi, 6:10, og fýrstu tvö mörkin í seinni hálfleik vom Stjömunnar, 6:12. Eftir það datt botninn úr leik Stjörnumanna, sem skomðu ekki mark í tuttugu mín.. Leikmenn Hirschmann, sem fóm að leika varnarleik sinn framar og settu leikmenn Stjörnunnar út af laginu, minnkuðu muninn og tryggðu sér sigur með því að skora tvö síðustu mörk leiksins. Annar sigur lærisveina Kristjáns KRISTJÁN Arason þjálfari Wallau- Massenheim í þýsku 1. deildinni í handknattleik, leiddi lið sitt til sig- urs um helgina og var þetta annar sigur liðsins á timabilinu. Kristján og félagar léku á útivelli við Dor- magen, liðið sem Kristján þjálfaði í fyrra, og sigruðu 30:22. Samkvæmt þýskum blöðum var þetta fyrsti leik- urinn sem stjörnur Massenheim sýndu hvað þær geta. Schwalb gerði 11 mörk, Volle 10 og Torgavanov gerði fjögur mörk af linunni. Þeir félagar gerðu sem sagt 25 af 30 mörkum liðsins. Kristján og félagar fengu þarna tvö dýrmæt stig, en misstu á sama tíma hin tvö stigin sem þeir höfðu krækt í, um sinn að minnsta kosti. Massenheim vann Lemgo fyrr í haust, 30:29, en Lemgo kærði vegna þess að heimamenn tóku aðeins einn leikmann útaf þegar tveir menn af varamannabekknum voru reknir af bekknum. Um helgina var úrskurð- að að leikurinn skyldi leikinn á ný. Patrekur Jóhannesson gerði fjög- ur mörk þegar Essen gerði 21:21 jafntefli við Gummersbach og var þetta fyrsta stigið sem Essen tapar á heimavelli í vetur. Krautt gerði átta mörk og voru þeir tveir sagðir bestu menn liðsins. Róbert Sighvatsson gerði fjögur mörk fyrir Schutterwald er liðið vann sinn fyrsta sigur í deildinni í vetur, vann Hameln 28:20. Minden, lið Sigurðar Bjarnasonar, vann Reinhausen 26:25 á útivelli. í annarri deildinni vann Wupper- tal lið Bielefeld 33:19. Geir og fé- lagar áfram GEIR Sveinsson og félagar hans hjá franska liðinu Montpellier kom- ust áfram í EHF-keppninni í þegar þeir unnu Sporting Lissabon í vítakastkeppni í Montpellier, 4:1. Portúgalska liðið vann fyrri leikinn í Lissabon 22:16, en Geir og félag- ar unnu með sömu markatölu á heimavelli, eftir að vera yfír 22:13. Geir skoraði tvö mörk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.