Morgunblaðið - 24.10.1996, Síða 1
itHf
1996
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER
BLAÐ
KNATTSPYRNA
Landsliðsmaðurinn leikur á Highbury eins og hann óskaði sér
BJARNI Guðjónsson, sem fór til 1. deildar liðsins
LASK í Austurríki í liðinni viku, fór þaðan í gær.
Bjami, sem var útnefndur efnilegasti Ieikmaður
íslandsmótsins í lokahófi knattspyrnumanna um
helgina, mætti á fimm æfingar ly'á liðinu og Fried-
el Rausch, þjálfari þess, vildi hafa Skagamanninn
í vetur en tilboðið var ekki viðunandi.
Bjarni er hjá Þórði bróður sínum í Bochum í
Þýskalandi og hyggst æfa með félaginu næstu
daga en gerir ráð fyrir að koma fljótlega heim.
Kæru Grind-
víkinga vísað frá
DÓMSTÓLL ÍBH vísaði frá kæru Grindvíkinga á
hendur Haukum vegna meints ólöglegs leikmanns
í liði hinna síðarnefndu í viðureign félaganna í
1. umferð úrvalsdeildarinnar i körfuknattleik, þar
sem hún barst of seint. Eins og greint var frá um
miðjan mánuðinn kærðu Grindvikingar Hauka
þegar þeim varð ljóst að bandaríski leikmaðurinn
Shawn Smith var ekki kominn með leikheimild
þegar leikur liðanna fór fram, en kærufrestur var
útrunninn og fór dómstóllinn eftir því. Grindvík-
ingar ætla samt ekki að gefast upp og hafa ákveð-
ið að áfrýja til dómstóls Körfuknattieikssambands-
ins.
Glímukóngurinn
til Víkverja
GLÍMUKÓNGUR íslands, Ingibergur Sigurðsson,
hefur ákveðið að ganga á ný til liðs við Ungmenna-
félagið Yíkverja, eftir að hafa keppt fyrir Armann
sl. fjögur ár. Ingibergur keppir fyrir Víkveija á
fyrstu Landsglímu Glímusambands íslands, sem
verður að Laugarvatni á laugardagiim. Það leiða
saman hesta sína sterkustu glímumenn landsins í
karla og unglingaflokki. Meðal keppenda í karla-
flokki eru m.a. Orri Björnsson, fyrrum glímukóng-
ur úr KR, og Þingeyingurinn Arngeir Friðriksson.
Beckenbauer
hræddur við
þensluna
FRANZ Beckenbauer, formaður Bayem Mlinchen,
óttast að aukið peningafiæði i ensku knattspyrn-
unni geti eyðilagt alþjóða markaðinn fyrir knatt-
spyrnumenn. Hann sagði í viðtali við þýska blaðið
Sport Bild&ð ensk félög gætu boðið leikmönnura
meira en félög annarra landa vegna þess að þau
væru úti á fijáisum hlutabréfamarkaði og hefðu
því meira fé á milli handanna en td. þýsk félög
sem treystu alfarið á stuðningsmenn, auglýsendur
og sjónvarpssamninga í sambandi við fjáröflun.
Leikmenn færu þangað sem þeir gætu fengið
mest fyrir að spila og ítölsk félög kæmu til með
að feta í fótspor eusku félaganna. Spánn og Þýska-
land fylgdu á eftir. „Verðið hækkar alls staðar
og að þvi kemur að markaðurinn hrynur,“ sagði
Beckenbauer.
Tombaúr leik
að sinni
ÍTALSKI óiyrapíu- og heimsmeistarinn í alpa-
greinum skíðaíþrótta, Alberto Tomba, hefur verið
skipað að taka sér 20 daga hvíld frá æfingum.
Ástæðan er sú að hann meiddist í hægra hné og
rist á æfingu í fyrradag. „Tomba verður að hvil-
ast í fimmtán til tuttugu daga áður en hann getur
tekið upp þráðinn að nýju,“ sagði forráðamaður , í
ítalska skiðasambandsins í gær.
Tomba hafði áður fundið fyrir litilsháttar
meiðslum og því ekki gert ráð fyrir að vera þátt-
takandi á opnunarmóti heimsbikarsins í Solden í
Austurríki um næstu helgi.
Lánis Orri frábær
á móli Arsenal
Eg er svekktur með jafnteflið því við áttum svo sannar-
lega að sigra, sárabótin er hins vegar sú að fá að leika
á Highbury eftir tvær vikur,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson
leikmaður Stoke eftir 1:1 jafntefli gegn Arsenal á Victoria
Ground í ensku deildarbikarkeppninni í gærkvöldi. Lárus
þótti standa sig frábærlega í leiknum og í umsögn BBC
að leikslokum var frammistaða hans í vörninni sögð framúr-
skarandi og líkleg til að auka enn á áhuga úrvalsdeildarliða
á honum. Var hann eini leikmaður liðsins sem fékk sér-
staka umsögn.
Lárus fékk þar með þá ósk sína uppfyllta að fá að leika
á Highbury, heimavelli Arsenal, en eins og fram kom í
viðtali við hann í Morgunblaðinu í gær, hefur hann verið
aðdáandi Lundúnaliðsins lengi.
„Það var auðvitað frábært að leika gegn Dennis Berg-
kamp og Ian Wright og það var ekki eins erfitt og ég hélt
að það yrði og sýnir að þeir eru bara menn eins og ég,“
sagði Lárus og kvaðst vera ánægður með framgöngu sína
í leiknum. Hann hefði ekki verið í hringiðunni þegar Wright
skoraði jöfnunarmarkið þrettán mínútum fyrir leikslok.
„Þetta mark var dæmigert fyrir Wright. Hann hafði ekki
sést í leiknum þangað til hann fékk knöttinn í miðjum teign-
um, sneri af sér einn varnarmann og þrumaði í netið. Það
sem hann gerði, því er hann bestur í og fær líka borgað
vel fyrir.“
Stoke komst yfir um miðjan fyrri háifleik með marki frá
Mike Sheron. „Við lékum skynsamlega, vorum með einn
frammi, fimm á miðjunni og fjóra í vörn og gáfum hvergi
eftir. í síðari hálfleik bökkuðum við meira en þeir voru
ekkert að gera fyrr en markið kom.“ Lárus sagði Arsenal-
liðið hafa verið meira með knöttinn í síðari hálfleik en
ekki náð að vera nægilega skapandi í aðgerðum sínum.
„Mér gekk mjög vel allan leikinn og það segir eflaust
meira en mörg orð að maður er svekktur með jafntefli
gegn jafnsterku Iiðið og Arsenal." Síðari leikur liðanna
verður eftir tvær vikur. „Það verður erfiður leikur, mun
erfiðari en þessi, en allt getur gerst. I kvöld voru áhorfenda-
stæðin þétt skipuð, 26.000 manns voru þar, stemmningin
var einstök og virkilega gaman að vera á meðal þátttak-
enda.“
Knattspyrnustjóri Stoke, Lou Macari, var ánægður með
frammistöðu sinna manna að sögn Lárusar og hrósaði öll-
um leikmönnum sínum inni í klefa að leikslokum, nokkuð
sem ekki er daglegur viðburður á þeim bæ. Jafnframt
minnti hann á að menn mættu ekki gleyma sér því framund-
an væri erfiður leikur í deildinni á laugardaginn í Ports-
mouth.
Um það hvort frábær frammistaða hans yrði til þess að
auka áhuga úrvalsdeildarliðanna á honum vildi Lárus lítið
segja. „Vonandi, það væri mjög gaman að leika í hverri
viku gegn snillingum eins og Bergkamp og Wright. Ef það
gerist þá verður það uppbót, en annars gæti það líka gerst
á næsta vetri með Stoke að við náum að vera í hópi þeirra
bestu. Ég er ánægður hjá félaginu og vildi gjarnan vera
með því í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. En hvað framtíð-
in ber í skauti sér veit enginn.“
LÁRUS Orri Slgurðsson fékk mjög góða
dóma í gærkvöldi.
SAMEINING NORSKU ÍÞRÓTTAHREYFINGARINNAR / C8
Bjarni farinn frá
Lask í Austurríki