Morgunblaðið - 25.10.1996, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.10.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996 B 3 vandamáí? SOO'OlI Fæst í apótekum. v.rtr'- a og bæði niðurgangi og harðlífi. Silicol hentar öllum! smco KISELGEL Silicol hjáipar Vinsælasta heilsuefnið i Þýskalandi, Sviþjóð og Bretlandil Silicol er hrein nóttúruafurð ón hliðarverkana. Morgunblaðið/Halldór FRÁ vinstri: Pálmi Blængsson, Sigurbjörn Jónsson og Sigurður William Brynjarsson. F imm keppendur fyrir valinu hjá dómnefndinni FIMM keppendur fá samninga við erlendar umboðsskrifstofur í kjöl- far keppninnar, þeir Pálmi Blængsson, átján ára framhalds- skólanemi, Sigurbjörn Jónsson 21 árs lyfjafræðinemi, Sigurður Will- iam Brynjarsson 21 árs barþjónn, ívan Kári Sveinsson átján ára starfsmaður Plús-Film og Guð- mundur Ari Jensson, 22ja ára starfsmaður á bílaverkstæði. Dómnefndina skipuðu þrír full- trúar frá umboðsskrifstofunum Boss í Lundúnum, Suceess í París og Next í New York. Allar um- boðsskrifstofurnar hafa áhuga að gera samninga við þá Pálma, Sig- urbjörn og Sigurð, en auk þess hefur Boss í Lundúnum lýst yfir vilja sínum til að gera samning við þá ívan Kára og Guðmund Ara. Að sögn Kolbrúnar Aðalsteins- dóttur skólastjóra þýðir þetta að þeir fari allir út í prufumyndatök- ur og fái með aðstoð viðkomandi umboðsskrifstofa tækifæri til að kynna sig og spreyta í tískuheim- inum á erlendum vettvangi. „Þetta er mikil viðurkenning fyrir þá, því ÞÁTTAGERÐARMENN frá sjónvarpsstöðinni BBC hafa ver- ið hér á landi undanfarna viku til að taka upp efni í tískuþáttinn „ Clothes Show“. Af því tilefni tóku þeir upp fyrirsætukeppnina „Herra Model Look ’96“ sem haldin var í Tunglinu síðastliðið föstudagskvöld og ræddu auk þess við nokkra keppendur. Caryn Franklin umsjónarmað- ur tískuþáttanna á BBC sagði í samtali við blaðamann Daglegs lífs eftir keppnina að hún hefði verið mjög hrifin af tískusýning- unni; fundist hún skemmtileg og leikræn og að þar hefði greini- lega komið til sögunnar mikið af hæfileikaríku fólki. „Það hefði hins vegar ekki verið hægt að fá breska karlmenn til að taka þátt í svona sýningu," sagði hún. „Þeir hefðu neitað að hoppa og dansa eins og íslensku kepp- endurnir gerðu.“ Caryn sagðist vera nokkuð undrandi yfir því hvaða kepp- endur hefðu orðið fyrir valinu og fengið samninga við erlendu umboðsskrifstofurnar. „Éghefði haldið að þeir væru að leita að fyrirsætum sem væru ljósari yf- umboðsskrifstofurnar myndu ekki bjóða þeim samning nema þær hefðu trú á þeim,“ segir hún. Draumurinn verður að veruleika Þegar blaðamaður Daglegs lífs 4? ræddi við þá Sigurð, Sigurbjörn og Pálma síðastliðið föstudags- kvöld voru þeir að vonum spennt- ir, en höfðu ekki enn hugmynd um að þeir myndu sigra, því úrslit- in voru ekki kunngerð fyrr en í dag, föstudag. Þeir voru allir sam- mála um það að draumurinn væri að komast út og á samning hjá einhverri umboðsskrifstofunni. Það er því óhætt að segja að sá sf draumur sé um það bil að verða g að veruleika. 5 „Undirbúningstíminn fyrir > keppnina hefur verið mjög skemmtilegur, þótt hann hafí tekið nær allan okkar tíma síðustu vik- urnar. Það hefur verið gaman að kynnast öllum þessum strákum og að fá tækifæri til þess að vera í sérþjálfun hjá Magnúsi Scheving þolfimikennara," sögðu þeir. Morgunblaðið/Halldór CARYN Franklin á Tunglinu. Island og tíska á BBC irlitum og með íslenskara útlit,“ sagði hún, en bætti því við að kannski væri ekki hægt að tala um dæmigert íslenskt útlit, því þeir væru reyndar allir frá Is- landi. Caryn sagði að síðustu að þátturinn sem BBC væri að gera á íslandi ætti að fjalla um ís- lenska tísku; hvernig fötum fs- lendingar væru í og hvar þeir keyptu þau. „Þá höfum við tekið viðtöl við fjölda manns, meðal annars íslenska fatahönnuðinn Sigríði Sunnevu og Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur, forset- afrú. Þátturinn verður sýndur í vetur og mun ná til 150 milljóna manna víða um heim.“ RpC LÁCMARKS OFNÆMI ENGINILMEFNI Hafðu varann á með Yarex! Varex er lyf við veirusýkingu sem vinnur gegn frunsumyndun með virka efninu acíklóvír. Mikilvxgt er að byrja að nota kremið um leið og fyrstu einkenni koma í Ijós, þ.e.a.s. strax og þú finnur sting, fiðring eða kláða. Berið kremið á sýkt svxði fimm sinnum á dag í 5 daga. Varex, krem 2 g, f<est í apótekum án lyfseðils. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.