Morgunblaðið - 05.11.1996, Side 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
íslendingar í Evrópukeppninni i handknattleik
KA - Herstal Liege
Leika á Akureyri 10. nóv.
og í Liége í Belgíu 17. nóv.
KA-menn lljúa lil Lúxemborgar
á laugardegi, aka lil Belgiu
og koma heim á mánudegi
Rússland
Moskva
Stjarnan - Sparkasse Bruck
Leika báða leikina í Austurríki
Flug til Lúx. miðvikudaginn 6. nóv. og a.m.k. 12 tíma rútuferð til Bruck. Leika 8. og 10. nóv., aka til Lúxem- borgar slrax að leik loknum og ná tlugi heim mánudaginn 11. nóv.
Leika 9. nóvember í París
en í Hafnarfirði 16/17. nóv.
Haukarnir fljúa lil Lúxemborgar
á föstudegi, taka rúlu til Parisar
og koma heim á sunnudegi
Montpellier - CSKA Moskva
Geir Sveinsson og félagar
leika í Frakklandi 9/10. nóv.
og í Rússlandi 16/17. nóv.
&
*!
■ MARTHA Ernstsdóttir hlaupa-
kona úr ÍR varð önnur í Amster-
dam maraþoninu um helgina, kom
í mark á 2:39.33 klst.
■ JASON Ólafsson handknatt-
leiksmaður og leikmaður Leuters-
hausen í Þýskalandi var á ferð og
flugi síðustu daga. Hann kom til
landsins á þriðjudaginn og æfði með
landsliðinu í_ tvo daga en sökum
þess að HSÍ átti ekki rétt á að
nota hann í landsleikjunum gegn
Eistlendingum fór Jason til
Þýskalands á fimmtudag. Þar lék
hann með sínu liði á föstudag og
kom á ný til íslands á laugardag
og fylgdist með landsleiknum á
sunnudagskvöld. Því næst fór hann
aftur til Þýskalands.
■ TVEIR íslenskir knattspyrnu-
menn hafa verið við æfíngar hjá
skoska 2. deildarliðinu Ayr, sem
er efst í deildinni. Það eru þeir
Jakob Jónharðsson og Grétar
Hjartarson. Það er umboðsmaður-
inn Kake Duncan sem sér um að
koma þeim að hjá skoskum liðum.
■ WILLUM Þór Þórsson hefur
verið ráðinn þjálfari 2. deildarliðs
Þróttar í knattspyrnu. Hann tekur
við starfi Ágústs Haukssonar, sem
er á förum til Noregs til að þjálfa.
ftrimiR
FOLX
■ HARALDUR Ingólfsson kom
inná sem varamaður hjá Aberdeen,
er liðið lék gegn Celtic í Glasgow.
Heimamenn unnu 1:0.
■ JÓN HELGI Bragason varð
sigurvegari í Freyjumótinu í keilu
og keppir í heimsbikarkeppni ein-
staklinga, sem verður á N-írlandi
eftir tvær vikur. Jón Helgi vann
Halldór Ragnar Halldórsson í
úrslitaleik.
■ AÐALSTEINN Aðalsteinsson
hefur verið ráðinn þjálfari Sindra
frá Höfn í Hornafirði fyrir næstu
leiktíð í knattspyrnunni. Sindri
vann sig upp í 3. deild í sumar og
er stefnan sett á að vera þar í eitt
til tvö ár áður en haldið verður í
2. deild. Aðalsteinn þjálfaði lið
Víkings í Reykjavík framan af
síðasta sumri.
■ TVEIR rúmenskir knattspyrnu-
menn létust um helgina þegar bíll
sem þeir óku lenti í árekstri. Bíllinn
hentist útaf veginum við árekstur-
inn, rakst á tré og við það kviknaði
í bílnum. Cristian Igescu var 23
ára en Bodgan Lita tvítugur.
■ ÞAÐ gekk mikið á á Maracana-
leikvanginum í Rio de Janeiro á
sunnudaginn en þar mættust lið
Vascos da Gama og Botafogo.
Síðarnefnda liðið komst í 1:0 og
þá rauk forseti Vasco útá völlinn
og hundskammaði dómarann í einar
tíu mínútur. Það var Eurico Mir-
anda sem þetta gerði, en hann er
stjórnarmeðlimur og þingmaður.
Vasco skoraði því næst tvívegis og
við það rauk forseti Botafogo inná
og skammaði dómarann í aðrar tíu
mínútur.
■ FJÖRIÐ byijaði þó nokkuð fyrr
er þjálfari Vasco æddi inná völlinn
með halarófu af lögregluþjónum,
stjórnarmönnum og útvarpsmönn-
um á hælunum. Það tókst að stöðva
hann áður en hann náði til dómar-
ans.
■ GEORGE Foreman, 47 ára,
varð WBU-meistari (World Boxing
Union) í þungavikt, er hann
lumbraði á landa sínum, Crawford
Grimsley í Tókýó.
EINSDÆMI
|örgum hefur eflaust brugð-
ið þegar tilkynnt var að
frítt yrði á seinni landsleik íslands
og Eistlands í riðlakeppni heims-
meistaramótsins .í handknattleik,
sem fram fór í Laugardalshöli í
fyrrakvöld. Heims-
meistarakeppni þykir
almennt með meiri við-
burðum í íþróttum og
halda mætti að færri
kæmust að en vildu,
burtséð frá miðaverði,
en annað kom á daginn
um helgina. Sárafáir létu sjá sig
í Höilinni á föstudagskvöld en
fyrrnefnd ákvörðun Handknatt-
leikssambands íslands í kjölfarið
varð til þess að húsið fylltist
tveimur kvöldum síðar.
Þetta gefur augljóslega tvennt
til kynna. Í fyrsta lagi að fólk
borgar ekki fyrir að sjá íslenska
landsliðið í handknattieik í leik á
móti fyrirfram töldu lakara liði.
í öðru lagi mætir sama fólk þeg-
ar íslenska iandsliðið í handknatt-
leik tekur á móti fyrirfram töldu
lakara liði, sé því boðið á völlinn.
í sjálfu sér kemur þetta ekki á
óvart. íþróttasinnaður almenn-
ingfur kemst hvorki yfir né hefur
efni á að sækja alla viðburði sem
í boði eru. Hann verður að velja
og hafna - og oft er það buddan
sem á síðasta orðið.
Aðeins hörðustu stuðnings-
menn félagsliðs láta sig hafa það
að fylgja því eftir í blíðu sem
stríðu. AC Milan hefur t.d. teflt
fram einu besta liði heims i knatt-
spyrnu undanfarin ár og áhang-
endur þess hafa fyllt pallana. Að
undanfömu hefur árangurinn
ekki staðið undir væntingum og
þó liðið yrði að sigra mótheijana
frá Gautaborg í Svíþjóð á heima-
veili í Meistaradeild Evrópu í lið-
inni viku til að eiga möguleika á
að komast upp úr riðlakeppninni
sátu fylgjendur heima. „Aðeins"
um 30.000 manns mættu á völlinn
sem tekur um 86.000 í sæti og
er þekktur fyrir að vera þétt set-
inn.
Mikill metnaður hefur fylgt
Frítt inn á leik í heims-
meistarakeppni hlýtur
að koma við HSÍ
störfum HSI varðandi landsliðið
í rúman áratug og á þeim tíma
hefur stefnan ávallt verið að vera
í fremstu röð. Almenningur hefur
líka stutt vel við bakið á strákun-
um og vill sjá þá í keppni þeirra
bestu en skilaboð helgarinnar eru
þau að takmörk eru fyrir því hvað
hægt er að borga fyrir. Því skal
ekki gleymt að landsliðið gerði
jafntefli við gríska landsliðið í
öðrum leik liðanna fyrir mánuði.
Landsliðið þakkaði stuðninginn
á sunnudag en viðbrögð áhorf-
enda og ekki áhorfenda hljóta að
koma við HSÍ. Illa er komið fyrír
íþróttinni ef hún er ekki söluvara.
Það kemur ekki aðeins við rekst-
urinn heldur hiýtur að særa stoit
allra sem hlut eiga að máii, ekki
síst leikmanna og þjálfara, sem
eru þekktir fyrir að leggja mikið
á sig. Staðreyndin er sú að HSÍ
hefur ekki efni á að hafa opið hús
í heimsmeistarakeppni, hvemig
sem á það er litið. Slíkt gengur
einfaldlega ekki og sambandsins
vegna verður að vona að þetta
sé ekki fordæmi þess sem koma
skai heldur aðeins einangrað til-
felli til að skapa stemmningu fyr-
ir leikinn gegn Dönum eftir fjórar
vikur, leik sem skiptir öllu um
framhaldið.
Steinþór
Guðbjartsson
Erhandknattleiksmaðurinn GEIR SVEINSSOIM að hætta íatvinnumennsku?
Vill enda í
Þýskalandi
HANN hefur klæðst landsliðsbúningi íslands þrjú hundruð
sinnum á tólf ára ferli með landsliðinu, oftar en nokkur annar
íslenskur handknattleiksmaður. Á þessum tíma hefur hann
tekið þátt ífjórum heimsmeistaramótum, tvennum Ólympíu-
leikum, verið valinn í heimsliðið í handknattleik og svo mætti
lengi telja. Þá er hann atvinnumaður í íþrótt sinni og leikur nú
í Frakklandi með Montpellier. Maðurinn sem um er rætt er
Geir Sveinsson fyrirliði fslenska landsliðsins í handknattleik.
Eftir
Ivar
Benediktsson
Geir segir fyrsta landsleikinn
ekki vera minnisstæðan en
hann var gegn Dönum á Norður-
landamóti í Finn-
landi. „Ég fékk
ekkert að koma
inná,“ segir Geir.
Fyrsta keppnis-
ferðin er öllu minnisstæðari en hún
var til Tékkóslóvakíu og var mjög
erfið. „Ég fór alla þessa leið og
fékk ekki einu sinni að sitja á
bekknum. Það eina sem ég fékk
að gera var að bera boltapokann."
Nú leikur þú með Montpellier,
hvernig kom það til?
„Þegar ég kom heim frá Spáni
og fór að leika með Val, átti ég
alveg eins von á því að fara ekk-
ert út á ný. Síðan kom boð frá
nýkrýndum meisturum í Frakk-
landi og mér Ieist vel á það og sé
ekki eftir að hafa tekið því þó ég
sé ekki allskostar sáttur við
franskan handknattleik."
Að hvaða leyti?
„Það býr margt gott í frönskum
handknattleiksmönnum en mér
fínnst þá þó vanta meiri metnað.
Þetta kann eflaust að hljóma ein-
kennilega þar sem þeir eru heims-
meistarar en ástandið á landsliðinu
lýsir þessu eflaust best. Enginn
metnaður hefur verið til að halda
landsliðinu á toppnum síðan það
varð heimsmeistari. Slakur árang-
ur á Evrópumeistaramótinu og á
Ólympíuleikunum undirstrikar það.
Ég er að kynnast svipuðu ástandi
hjá mínu félagsliði eftir að það
varð franskur meistari árið 1995.“
Eru flestir bestu handknatt-
leiksmenn Frakka að leika í
Þýskalandi?
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
GLAÐBEITTUR fyrirllAI landsliAsins, Geir Sveinsson, að
loknum 300. landslefk sínum á sunnudagskvöldið.
„Það hefur orðið svipuð þróun
í Frakklandi og hér á landi. Flest-
ir þeir bestu fóru til Þýskalands.
Marseille-liðið, meistararnir í vor,
var leyst upp í sumar vegna fy'ár-
hagserfiðleika og góðir leikmenn
urðu samningslausir. Þeir dreifð-
ust á milli liða og þar með varð
deildin jafnari."
Eru fjárhagserfiðleikar hjá
frönskum liðum?
„Það eru vandræði hjá sumum
og nokkur hafa þurft að herða
ólina. En áhugi á handknattleik
hefur aukist og til marks um það
eru áhorfendur mun fleiri nú en á
sama tíma í fyrra, þannig að yfir
því er ekki hægt að kvarta."
Hvernig hefur ykkur vegnað?
„Við erum í sjöunda sæti af ijór-
tán liðum að loknum sjö umferðum
og það er nokkurn veginn það sem
við bjuggumst við. Eg væri hins
vegar nokkuð sáttur værum við i
fímmta sæti. Fyrir keppnistímabil-
ið misstum við átta leikmenn en
fengum fjóra í staðinn sem eru
ekki eins sterkir svo í heildina
erum við með slakara lið en í
fyrra.“
Hvert stefnir hugur þinn þegar
samningurinn rennur út í vor?
„Ég hef áhuga á að leika erlend-
is í tvö ár til viðbótar, en hvað
verður er óvíst. Ég neita því ekki
að mig hefur lengi dreymt um að
leika í Þýskalandi og mig langar
til að leika þar áður en ég legg
skóna á hilluna. Framtíðin með
landsliðinu er óráðin en ég vil
leggja mitt lóð á vogarskálina til
að við komumst í fremstu röð á
ný.“