Morgunblaðið - 05.11.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996 B 3
ÍÞRÓTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Baráttusigur Hauka
HAUKAR komust í gærkvöldi i annað sæti úrvalsdeildarinnar í
körfuknattleik er þeir báru sigurorð af Keflavík í hröðum og
iengst af skemmtilegum leik f íþróttahúsinu við Strandgötu,
lokatölur 88:81. Þar með eru Haukar með tíu stig að loknum
sex umferðum ásamt ÍR og og UMFIM en Keflvíkingar sem voru
vonsviknir að leikslokum verða að sætta sig við að vera einni
skör lægra ítöflunni.
Strax á upphafsmínútunum var
ljóst hvaða stefnu leikurinn
ætlaði að taka. Báðar fylkingar
sóttu fast og um
tíma virtist sem
Benediktsson baráttan væri að
skrifar fara ur bondunum.
Hraðinn var alls-
ráðandi beggja vegna og talsvert
var um mistök. Þá var hittnin upp
og ofan. Eftir að Keflvíkingar
höfðu verið heldur skarpari á upp-
hafsmínútnum náðu Haukar frum-
kvæðinu en forystan varð aldrei
meiri en sex stig. En Keflvíkingar
með Guðjón Skúlason fremstan í
flokki náðu að komast fram úr á
ný. Haukum gekk illa að ráða við
Guðjón og tókst honum að skora
13 stig í leikhlutanum. Vörn Kefla-
víkur náði einnig betur saman er
á leið og oft á tíðum virkaði sókn-
arleikur Hauka hálfvandræðaleg-
ur. Pétur Ingvarsson sem hafði
ekki fundið sig framan af kom inn
á undir lokin og hrifsaði félaga
sína með sér í baráttugleði sinni
og mikilvæg stig hans fleyttu
Haukum fram úr fyrir hlé, en þá
stóð 43:41.
Haukar breyttu til í byijun síð-
ari hálfleiks og settu Sigfús
Gizurarson til höfuðs Guðjóni og
það hreif og nægði til að slá
skarpasta vopn gestanna úr hönd-
um þeirra. Auk þess lék Sigfús
vel í sókninni. Keflvíkingar áttu
fá svör í sókninni og varnarleikur-
inn varð þeim erfiður eftir að
Haukar höfðu komist á bragðið.
í stöðunni 54:53 gerðu Haukar
10 stig í röð þannig að þegar leik-
hlutinn var hálfnaður var staðan
64:53 og fimm mínútum síðar
77:63 og eftir það var formsatriði
að ljúka leiknum.
Sigfús var bestur Hauka, þá
var Shawn Smith sterkur en mik-
ið mæddi á honum. Bræðurnir
Pétur og Jón Arnar Ingvarssynir
urðu betri eftir því sem á leikinn
leið. Hjá Keflavík var áður getið
um frammistöðu Guðjóns en auk
hans barðist Albert Óskarsson vel
en mátti sín lítils. Þá átti Damon
Johnson prýðisleik í sókninni síð-
ustu 10 mínúturnar og virtist
vakna af þyrnirósarsvefni, skor-
aði 18 af síðustu 28 stigum liðs-
ins.
Barkley
stal senunni
Charles Barkley, sem nú leikur
með Houston, stal senunni
fyrstu leikhelgina í NBA-deiIdinni í
körfuknattleik. Kappinn gerði 20 stig
í sínum fyrsta leik með nýju liði og
tók 33 fráköst, sem er persónulegt
met. Shaquille O’Neal var með 35
stig þegar LA Lakers vann Min-
nesota og Kobe Bryant, sem leikur
með Lakers, varð yngstur til að leika
í NBA, aðeins 18 ára gamall.
Barkley var í banni þegar Houston
lék fyrsta leikinn á föstudagskvöldið.
En kappinn var ekki í banni þegar
Houston hélt til Phoenix og þar kunni
Barkley við sig enda á móti sínum
fyrri félögum. Hann barðist eins og
ljón allan leikinn og tók hvorki fleiri
né færri en 33 fráköst sem er það
mesta í NBA síðan í mars 1993.
Barkley lék í 45 mínútur af þeim 48
sem leikurinn stendur og átti stórleik.
Barkley vildi ekki láta hafa mikið
eftir sér eftir leikinn, sagði aðeins:
„Fólk fær það sem það á skilið," og
vísaði til þess að stjómarmenn Phoen-
ix létu hann fara í ágúst.
En það voru fleiri sem ætluðu að
eiga stórleik til að sýna stjórnar-
mönnum að þeir væru ekki alvitrir.
Anthony Mason ætlaði að leika eins
og hann gerir best þegar New York
Knicks fékk Charlotte í heimsókn,
en hann var látinn fara frá heima-
borg sinni til Charlotte í sumar.
Búist var við mikilli rimmu milli hans
og Larry Johnsons, sem tók stöðu
hans hjá Knicks. Af þessu einvígi
varð aldrei því Knicks rúllaði yfir
Charlotte og framheijarnir höfðu sig
lítið í frammi, Johnson gerði 12 stig
og Mason 10.
Lakers byijar vel, vann tvo leiki
um helgina, og hefur ekki gert slíkt
síðan í upphafi móts 1987 en þá vann
liðið í fyrstu átta leikjunum. Á sunnu-
daginn tók liðið á móti Minnesota og
O’Neal var í stuðij gerði 35 stig og
tók 19 fráköst. Atján ára táningur,
Kobe Bryant, lék sinn fyrsta leik i
NBA-deildinni en Lakers bindur mikl-
ar vonir við þennan unga bakvörð.
Hann lék í sex mínútur, brenndi af
eina skotinu sem hann tók í leiknum
og tók eitt frákast. Bryant er alinn
upp á Ítalíu þar sem faðir hans lék
körfuknattleik og sagði áður en mót-
ið hófst að hann hafi alltaf stefnt að
því að leika í NBA og það hafi í raun-
inni alltaf verið Ijóst að hann myndi
fara beint þangað, án þess að leika
í háskóladeildinni fyrst.
Pat Riley, hinn sigursæli þjálfari,
sem nú stjórnar liði Miami Heat,
náði enn einum merkisáfanga á þjálf-
araferlinum. Miami vann 97:95 í
Indiana og var þetta 800. sigurleikur
Rileys sem þjálfara. Hann hefur
stjórnað liðum í 1.139 leikjum í NBA
og því aðeins tapað 339 leikjum í
deildinni. Enginn þjáKari hefur náð
800 sigurleikjum í svo fáum leikjum.
Það gengur illa hjá Spurs enda
er David Robinson meiddur. Liðið
tapaði heima fyrir Denver og gerði
aðeins níu körfur í fyrri hálfleik.
Morgunblaðið/Golli
ERLA Þosteinsdóttir úr Keflavík skorar hér án þess að KR-lngarnir Elísa Vilbergsdóttlr, til
hægri, og Sóley Sigurþórsdóttir, til vinstrl, komi nokkrum vörnum við.
KR-stúlkur áhugalausar
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Keflavíkurstúlkur áttu ekki í
nokkrum erfiðleikum þegar
þær heimsóttu KR á laugardaginn.
Gestirnir voru miklu
ákveðnari og
áhugalausar KR-
stúlkur voru eins og
leir í höndum Kefl-
víkinga sem sigr-
uðu, 64:49 - ótrúlega mikill munur
á tveimur af bestu liðunum í deild-
inni.
KR var aðeins inni í myndinni
fyrstu tíu mínúturnar en eftir það
áttu stúlkurnar aldrei möguleika.
Vesturbæjarstúlkur voru seinar í
vörnina og í sókninni virtust þær
alls ekki kunna þau leikkerfi sem
leika átti, alla vega var ekki að sjá
skynsamleg kerfi í sóknarleik
þeirra. Keflvíkingar voru á sama
tíma hrópandi og öskrandi um allan
völl. Hraðaupphlaupin voru vel nýtt
og sigurviljinn var greinilegur.
KR reyndi svæðisvörn í upphafi
síðari hálfleiks en greinilegt að
stúlkurnar vissu ekki allar hvernig
á að leika slíka vörn. Keflvíkingar
hefðu átt að sigra með miklu meiri
mun en létu 15 stig duga.
Elísa Vilbergsdóttir má skjóta
meira, hún byijaði ekki á þvi fyrr
en í síðari hálfleik og það var allt
of seint. Reyndar fékk hún ekki
boltann oft í fyrri hálfleiknum og
gat því ekki skotið mikið. Guðbjörg
Norðfjörð lék þokkalega hjá KR
og Kristín Magnúsdóttir átti ágæta
innkomu, sérstaklega í fyrri hálf-
leik.
Þær stöllur í Keflavík, Anna
María Sveinsdóttir og Björg Haf-
steinsdóttir, geta greinilega farið
að hægja á sér því komnar eru
ungar og góðar stelpur sem munu
halda merki félagsins á lofti á
næstu árum. Þar fara fremstar
nöfnurnar Erla Þorsteinsdóttir og
Reynisdóttir og Birna Valgarðs-
dóttir er einnig öflug, sérstaklega
í vörninni.
ÞRJÁR kærur hafa borist skrif-
stofu KKÍ síðustu sólarhringa.
Sú fyrsta var frá Einari Einars-
syni dómara, en hann var annar
dómari leiks Keflvíkinga og KR
í úrvalsdeildinni á fimmtudaginn
var. Einar kærir heimaliðið þar
sem áhorfandi æddi inná völlinn,
tók fast í handlegg hans svo á
sá og lét ljót orð falla að auki.
Keflvíkingar hafa einnig lagt
fram kæru vegna umrædds leiks.
Þeir kæra Óskar Kristjánsson,
leikmann KR, fyrir óprúðmann-
lega framkomu, en Óskar inun,
að því er heimamenn telja, hafa
hrækt að áhorfendum.
Ekkert
kæruleysi
í körfunni
Þriðja kæran barst KKÍ í gær
og kom hún frá ísafirði. KFI
kærir lið Grindvíkinga fyrir að
hafa verið með ólöglega skipað
lið í leik liðanna á Isafirði á
föstudagskvöldið. Dagbjartur
Willardsson, liðsstjóri Grindvík-
inga lék þá með Iiðinu, en hann
mun vera skráður félagi i körfu-
knattleiksliði Golfklúbbs
Grindavíkur (GG). „Það er hvert
stig dýrmætt fyrir okkur og við
látum reyna á þetta,“ sagði
Guðni Guðnason, þjálfari KFÍ,
við Morgunblaðið í gær. Hann
sagði að mönnum bæri ekki sam-
an um það í hvaða liði Dagbjart-
ur væri. „Mér skilst að einhver
hafi falsað undirskrift hans á
félagaskiptablaðið í fyrra, en
engu að síður hefur Dagbjartur
leikið með GG. „Við látum reyna
á þetta,“ sagði Guðni.
Árni Ingi
til Fram
EINN efnilegasti knatt-
spyrnumaður Iandsins, Árni
Ingi Pjetursson, sem hefur
leikið 38 leiki með yngri
landsliðum íslands, er geng-
inn til liðs við Fram. Árni
Ingi var leikmaður með KR,
lék fimm leiki sl. keppnis-
tímabil i 1. deild og skoraði
eitt mark. Hann skrifaði um
helgina undir tveggja ára
samning við Fram.
Árni Ingi, sem er 17 ára
sóknarleikmaður, bætist í
stóran hóp unglingalands-
liðsmanna hjá Fram, sem
Ásgeir Elíasson, þjáífari,
hefur tU að byggja upp fram-
tíðarlið félagsins.
„Ég er nyög ánægður með
að Ánii Ingi er kominn. Hann
er einn af efnilegustu knatt-
spyrnumönnum okkar, sem á
eftir að láta mikið að sér
kveða í framtíðinni. Hann
mun styrkja hóp okkar. Ég
hef trú á að hann eigi eftir
að leggja sitt af mörkum til
að við getum teflt fram góðu
og skemmtilegu liði á næsta
keppnistimabili," sagði Ás-
geir.
Þá hefur unglingalands-
liðsmarkvörðurinn Stefán
Logi Magnússon, sem lék
með Víkingi, einnig gengið í
raðir Framara. Hann er 16
ára.
Tapí
fjórða leik
ÍSLENSKA landsUðið í snók-
er tapaði í gær síðasta leik
sínum á heimsmeistaramót-
inu í Tælandi. Að þessu sinni
voru það írar sem lögðu ís-
lenska Uðið 7:2. Þrátt fyrir
tapið er Ijósi punkturinn í
leiknum sá fyrir íslensku
sveitina að Kristján Helgason
sigraði í viðureign sinni við
Ken Doherty 81:46 en hann
er í 6. sæti heimslista atvinnu-
manna í greininni. Edward
Matthíasson hafði einnig bet-
ur í leik við Stephen Murphy
71:59.
Kristján náði bestum ár-
angri íslensku spUaranna í
mótinu, vann 8 ramma af tólf.
Hann heldur nú frá Tælandi
til N-Sjálands þar sem hann
keppir ásamt Jóhannesi R.
Jóhannessyni á heimsmeist-
aramóti áhugamanna.
Hammarby
féllá
marklínunni
PÉTRI Marteinssyi og félög-
um hans hjá StokkhólmsUð-
inu Hammarby tókst ekki að
vinna sér sæti í úrvalsdeiid-
inni í knattspyrnu í Svíþjóð.
Liðið tapaði öðrum leik sfn-
um við Trelleborg, 2:3, eftir
að hafa unnið heimaleik sinn
2:1. Oft munaði þó n\jóu að
Hammarby næði að bæta við
öðru marki, en einn varnar-
maður Trelleborg bjargaði
tvisvar skoti sóknarmanns
Hammarby, Hans Eskilsson,
á marklínu. Þar að auki átti
Hammarby að fá vítaspymu
í fyrri hálfleik, er Eskilsson
var felldur í dauðafæri eftir
frábæra stungusendiugu Pét-
urs, sem lék vel í leiknum í
stöðu miðvarðar.