Morgunblaðið - 05.11.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.11.1996, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ + KÖRFUKNATTLEIKUR Þórenn án stiga ÞÓRSARAR eru enn án stiga í úrvalsdeildinni eftir 102:83 tap gegn KR-ingum á Seltjarnar- nesi á sunnudaginn. Akur- eyringarnir náðu að halda í við Vesturbæingana lengi framan af en misstu af þeim á loka- sprettinum. „Okkur tókst ekki að stinga þá af því einhvern veginn slökuðum við alltaf á þegar við vorum komnir í þægi- lega stöðu f staðinn fyrir að ganga frá þeim,“ sagði Bene- dikt Guðmundsson þjálfari KR eftir leikinn. „Þórsarar eru ekta lið sem þú nærð ekki að stinga af, þeir reyna að svæfa leik- menn og ná að koma mönnum niður á sitt plan en það er mjög skynsamlegt af þeim.“ Fred Williams fór mikinn í upp- hafi leiks þegar hann gerði níu fyrstu stig Þórs og tók öll fráköst í fimm mínútur. En Stefán KR-ingar náðu átt- StlfTnsson +"1 °S ,f°ryst!inuni. en skrifar tokst ekki að hnsta norðanmenn af sér. Það var ekki fyrr en leið á síðari hálfleik, þegar þrír lykilmenn Þórs voru komnir með fjórar villur og Fred orðinn þreyttur, að KR-ingar loks gerðu út um leikinn. Vesturbæingar voru með betra lið- ið en slökuðu stundum fullmikið á þó að sigurinn hafi aldrei verið í hættu. Þó að David Edwards, nýi útlendingurinn, sé ekki hár í loftinu, skilar hann miklu til liðsins, átti til dæmis 14 stoðsendingar og nýtti skotin sín vel. Jónatan Bow, sem tók 13 fráköst, var einnig sterkur þó að hann ætti lengst af í vandræðum með Fred. Hermann Hauksson var einnig góður. „Við höfum tapað öllum leikjum okkar í deildinni með litlum mun en strákarnir verða að fara að skilja að það er ekki nóg,“ sagði Gunnar Sverrisson aðstoðarþjálfari Þórs eftir leikinn. „Við erum með ungt lið og strákarnir leggja mikið á sig auk þess sem við erum líka með einn besta útlendinginn en erum að læra inn á hann. Við ætlum að blása á spá Torfa Magnússonar fyrrum landsliðsþjálfara, sem segir að við munum falla - stigin koma.“ Liðinu tókst bærilega upp við að ná að sveigja leikinn að sínum stíl - að halda leiknum niðri - en þar sem liðið þarf að keyra að mestu á nokkr- Herbert með 22 stig HERBERT Arnarson byrjar vel með hoilenska liðinu Donar. Hann hefur nú Ieikið þrjá leiki með liðinu, á miðvikudaginn var leikið gegn 2. deildar liði í bikarkeppninni og gerði Her- bert 23 stig 129 stiga sigri Donar. Á sunnudaginn fékk Donar lið Dunckers í heimsókn og sigraði 87:66 og gerði Her- bert 22 stig. „Ég leik aðallega sem skotbakvörður og síðan sem þristur en ég hef líka ver- ið loikstjórriandi í smátíma í hveijum leik,“ sagði Herbert í samtali við Morgunbjaðið á sunnudagskvöldið. „Ég hef hitt ágætlega í þessum leikjum, var til dæmis með 62% nýtingu í leiknum við Dunckers. Ég hef verið í byjunarliðinu í síðustu tveimur leikjum og lék í 36 mínútur í dag,“ sagði Herbert á sunnudaginn. Donar er nú í 2. - 4. sæti. um mönnum, kom að því að þreytan segði til sín og liðið tapaði boltanum 27 sinnum. Fred var drjúgur til að byrja með og tók 20 fráköst en nýt- ing hans var ekki nógu góð. Hafþór Lúðvíksson, Konráð Óskarsson og Böðvar Kristjánsson stóðu sig vel. Hrikaleg nýting Skagamenn unnu öruggan sigur í úrvalsdeildinni á sunnudaginn er þeir fengu KFI í heimsókn. Eftir ■■■■ jafnan fyrri hálfleik, Jóhannes þar sem hittni beggja Harðarson liða var slæm, náðu skrifar frá Akumesingar að Akranesi sigla. fram úr í þeim síðari og lokatölur urðu 76:58. Jafnræði var með liðunum allan fyrri hálfleikinn en Skagamenn voru þó alltaf skrefinu á undan. Það sem einkenndi fyrri hálfleikinn var lélegur sóknarleikur beggja liða og engu lík- ara en leikmenn hefðu sleppt upphit- un fyrir leikinn því skotnýtingin var ótrúlega slök og þess má geta að Skagamenn hittu aðeins úr einu af þrettán þriggja stiga skoti fyrir hlé. Það kom því ekki á óvart að hálfleiks- tölurnar voru lágar, 28:27! í síðari hálfleik var allt annað að sjá til Skagaliðsins en ísfirðingar áttu enn við sama vandamálið að stríða, Iélega skotnýtingu. Skaga- menn tóku að beijast í vörn og sókn og sýndu oft og tíðum skemmtilegan körfubolta við hrifningu áhorfenda. Það var góður endir á góðum seinni hálfleik heimamanna að Bayless skoraði síðustu körfuna frá miðju um leið og leiktíminn rann út. Bayless var sem fyrr mjög sterkur hjá ÍA og Brynjar Karl átti góðan seinni hálfleik ásamt Haraldi, sem spilaði skínandi vörn og hirti mörg fráköst. Derrick Bryant var sá eini sem eitthvað kvað að hjá gestunum. Grindvíkingar á góðu skriði Grindvíkingar eru komnir á gott skrið eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í úrvalsdeild- ■■■^^■■■l inni og hafa unnið Frimann ííóra > röð- löSðu Ólafsson Tindastól, 93:75, á skrifar frá sunnudaginn. Þótt Grindavik munurinn hafi verið 18 stig í leikslok áttu íslandsmeistar- arnir í mesta basli með lið Tinda- stóls. Gestirnir voru yfír mestallan fyiTÍ hálfleikinn. Herman Myers varð reyndar að vera á bekknum seinni- hluta hálfleiksins þar sem hann var kominn með 3 villur. Heimamönnum tókst þó að jafna fyrir hálfleik þann- ig að liðin stóðu jöfn í leikhléi. Tindastóll byijuði seinni hálfleikinn með látum og skoruðu fyrstu 6 stigin og eftir 5 mínútna leik voru þeir yfir, 54:47, eftir þriggja stiga körfu Am- ars Kárasonar. Þá tók stórskotalið Grindvíkinga, sem öll lið deildarinnar óttast, við sér og fór að hitta úr þriggja stiga skotunum. Á aðeins fjór- um mínútum skoruðu þeir 19 stig gegn 4 stigum Tindastólsmanna og gerðu út um leikinn. Helgi Jónas og Herman Myers voru bestir heima- manna. Jeffrey Johnson átti frábæran fyrri hálfleik fyrir Tindastól, en hvarf í þeim seinni í höndum Páls Axels sem spilaði góða vöm á hann. Auðveldur sigur hjá Njarðvíkingum Njarðvíkingar unnu fremur auð- veldan sigur á Borgnesingum þegar liðin mættust í Ljónagryfjunni ■■■^■m í Njarðvík á sunnu- g'jörn dagskvöldið. Loka- Blöndal tölur urðu 87:66 eftir skrifar frá ■ að staðan í hálfleik Njarðvík hafði verið 42:30. Leikurinn bauð ekki upp á mikla spennu þvf Njarðvíkingar tóku öll völd þegar í upphafi og eftir 10 mín- Guðmundur með fimm stig í röð GUÐMUNDUR Bragason og félagar hjá PCJ Hamborg unnu góðan útisigur á Farbo Pader- born í 2. deildarkeppninni f körfuknattleik í Þýskalandi um helgina, 75:82. Hamborgai'liðið var í fyrsta sæti fyrir leikinn og heimamenn í öðru sæti. Guð- mundur, sem hefur verið veikur og æfði ekkert í sl. viku, byrj- aði ekki leikinn, en kom inná þegar tíu mín. voru búnar og lék það sem eftir var leiks. Hann kom mikið við sögu á lo- kakaflanum, skoraði fimm stig í röð þegar staðan var 72:76 og gulltryggði sigur sinna manna. Guðmundur skoraði 12 stig, tók átta fráköst og fékk þrjár villur í leiknum. „Við höf- um sett stefnuna á 1. deild, erum með sterkasta liðið í 2. deildinni,“ sagði Guðmundur. útna leik var staðan orðin 24:10. Eftir það tókst Borgnesingum að halda í við heimamenn og með góðri baráttu í síðari hálfleik tókst þeim að minnka muninn niður í 7 stig, 54:47. En þá tóku Njarðvíkingar við sér aftur og innbyrtu öruggan sigur með góðum endaspretti. „Njarðvíkingar eru með gott lið, sóknarleikurinn hjá þeim var mjög góður á meðan lítið gekk hjá okkur. Mér fannst þeir fá að leika full fast og það kom niður á leik okkar. En þrátt fyrir þetta tap finnst mér liðið vera á réttri leið en það er samt ljóst að við þurfum að bæta okkur enn frekar," sagði Terry Robert Upshaw, þjálfari Borgnesinga, eftir leikinn. Bestir í liði UMFN voru þeir Torr- ey John og Friðrik Ragnarsson sem saman settu 50 stig og þar af voru 10 þriggja stiga körfur. Páll Kristins- son lék einnig mjög vel. Hjá Borgnes- ingum var Curtis Raymond sá eini sem eitthvað hafði að gera í Njarð- víkinga að þessu sinni. Blikar skotnir í kaf Stefán Stefánsson skrifar IR-ingar skutu Blika í kaf með þriggja stiga skotum í Smáranum á sunnudaginn og eftir 76:95 signr heldur ÍR sig í öðru sæti deildarinnar á meðan Blikar hafa enn ekki nælt sér í stig nú þegar sex umferðum er lokið. Andre Bowain fór hamförum í upphafi með tólf fyrstu stig Blika á fimm mínútum en þá náðu ÍR-ingar að hægja á honum. Blikar börðust vel og voru yfir nær allan fyrri hálfleik en fjögur þriggja stiga skot Márusar Arnarsonar, rétt fyrir hálfleik, dugðu til að jafna 40:40. Eftir hlé komst Andre aftur í ham en nú voru gestirnir viðbúnir, léku stíft og tókst að þreyta Blika og þá var ekki að spyija að leikslokum. „Við gáfum allt í fyrri hálfleikinn og lékum vel en síðan urðum við þreyttir. Við erum samt alltaf að lengja þann tíma sem við spilum vel og stigin fara að koma,“ sagði Pálini Sigurgeirsson, sem átti góðan leik hjá Breiðabliki. Andre sýndi góð til- þrif en þreyttist eins og reyndar flest- ir samheijar hans. Erlingur S. Erl- ingsson átti góða kafla. Breiðhyltingum tókst ætlunarverk sitt; að halda pressu og þreyta bráð- ina. Liðið spilaði vel saman, boltinn gekk vel, stoðsendingar voru fjörutíu og á köflum var vörnin mjög þétt. Atli H. Þorbjörnsson, Tito Baker, Eiríkur Onundarson voru góðir og Márus Amarson dijúgur. Að auki bauð liðið upp á þriggja stiga skot- sýningu þar sem 15 af 27 skotum rötuðu í körfuna og þar hitti Márus úr fimm af sjö skotum. „Við spiluðum maður á mann vörn fyrir hlé til að sjá hvort við gætum stöðvað Bowain en hann er mjög góður. Eftir hlé einbeittum við okkur að því að stöðva aðeins Bowain og það reyndist lykill- inn að sigrinum því hann varð mjög þreyttur. Þetta var góður sigur og við höldum okkur við toppinn, en nú eru erfiðir leikir framundan," sagði Antonio Vallejo þjálfari ÍR. HANDKNATTLEIKUR \ JÚLÍUS Jónasson gerði usla í vörn E hér reyna tveir þeirra að stöðva hanr albúinn að fá boltann ge SOKNAR- NÝTING Laugardalshöll, sunnud. 3. nóv. 1996, ÍSLAND / EISTLAND Mðrk Sóknir % / Mðrk Sóknir % 17 28 61 F.h 11 27 41 13 29 45 S.h 11 30 37 30 57 53 Alls 22 57 39 Langskot Gegnumbrot Hraðaupphlaup Horn Lína Víti Voname EFTIR fremur tilburðalítinn fyrri leik gegn Eistlendingum á föstudags- kvöldið náði íslenska landsliðið loks að hrista af sér slenið í síðari hálf- leik í síðari leiknum á sunnudags- kvöldið og sýna hvað íþvíbýr. Sterk- ur varnarleikur og frábær mark- varsla Bergsveins Bergsveinssonar ásamt vel útfærðum hraðaupp- hlaupum sýndu svo um munar að það er vonarglæta fái yfirvegun og leikgleði ráðið ferðinni við úrlausn á síðustu verkefnum undankeppn- innar - leikjunum tveimur gegn Dön- um um næstu mánaðamót. Lokatöl- ur 30:22 sem sýna ekki rétta mynd af yfirburðum Islendinga, einkum í síðari hálfleik. Fyrir fullu húsi áhorfenda gaf Konráð Olavson tóninn eftir aðeins tuttugu sekúndur með laglegu marki úr horninu. ■■■■■■I Margus Varik svaraði um I hæl fyrir gestina með Benediktsson marki ur hæKra horninu skrifar en íslenska liðið svaraði með tveimur mörkum, fyrst Konráð á ný og síðan Patrekur Jó- hannesson úr hraðaupphlaupi. Rífandi stémmning var í húsinu á meðal áhorf- enda en fljótlega datt hún niður er í ljós kom að einhvern neista vantaði í heima- menn. Vörnin var leikin 3-2-1 og gekk ekki sem best því Eistar léku sóknarleik- inn af mikill skynsemi. Léku kerfisbund- inn handknattleik með löngum sóknum og fengu þannig varnarmenn íslands nið- ur á hælana og náðu þá að finna smugur til að halda í við gestgjafana fram eftir leikhlutanum. Guðmundur Hrafnkelsson markvörður átti erfitt uppdráttar við þessi skilyrði og varði sitt fyrsta skot í leikhlutanum eftir níu mínútur en stóð aðeins fyrir fjórum skotum í leikhlutan- um. Sóknarmenn íslands náðu sér ekki á strik framan af, Konráð var að vísu frísk- ur, en Dagur Sigurðsson virðist ekki vera orðinn heill eftir meiðsli. Patrekur var tekinn úr umferð frá fyrstu sókn og fékk fá tækifæri. Ólafur Stefánsson var ragur svo og Bjarki. Geir fékk úr litlu að moða. Nokkuð var um ónákvæmar sendingar og leiklgeði var lítil. En Þorbjörn Jensson landsliðsþj álfari sá að við svo búið mátti ekki standa og eftir tíu mínútur, er stað- an var 4:3, skipti hann Júlíusi Jónassyni inn á í sóknina fyrir Dag og við það kom sú ógnun sem þurfti tH að brjóta ísinn og hrista gestina af sér. íslendingar náðu fljótlega fjögurra marka forsytu sem auk- in var í sex mörk fyrir leikhlé en þá var staðan 17:11. í byijun síðari hálfleiks var þráðurinn tekinn upp með því að leika 6-0 varnar- leik sem aðeins hafði verið reyndur í fyrri hlutanum. Bergsveinn skipti við Guðmund í markinu. Það var sem við manninn mælt, Eistlendingar lentu í vanda við ókleifan íslenskan varnarmúr þar sem járnabindingin var Bergsveinn í markinu sem fór hamförum og varði fjórtán skot í leikhlutanum. íslenska liðið sveif áfram og náði 11 marka forystu, 29:18, þegar níu mínútur voru til leiksloka. Þegar þarna var komið sögu slakaði það á klónni, Þorbjörn dró bit úr sókninni með breytingum og gestirnir klóruðu örlítið í bakkann. Næsta verkefni íslenska liðsins verður erfiðara en þetta var, það má öllum vera ljóst. Danir leika ólíkan og betri hand- knattleik en Eistar auk þess sem undir- búningur fyrir leikina við Dani verður skemmri en nú. Með það í huga verður að skoða þennaii leik við Eista þar sem Þorbjörn var að reyna ýmislegt sem gæti komið í góðar þarfir er frændur vorir koma í heimsókn og í kjölfarið sóttir heim. Þar mun reyna á hreysti kappanna, þar verða þeir að vera kvikari, agaðri og glað- beittari. Þegar allt verður lagt undir duga 30 mínútur ekki. +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.