Morgunblaðið - 22.11.1996, Síða 6
6 B FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
MEÐ AUGUM LANDANS
Hrekkjavaka
að haustlagi
Q
Rúna Guðmundsdóttir býr í Hull á
austurströnd Englands, þar sem
hún stundar fyrirtækjarekstur.
f NU ER haustið í
hámarki hér í Eng-
landi með öllum
J þeim fallegu og sér-
stöku litum sem
einkenna það.
Gróðurinn hér er
w ótrúlega fjölbreytt-
1 ur og þótt ýmsar
tegundir trjáa og
runna keppist um
Ofyrir veturinn að
losa sig við laufin,
semfalla nútiljarð-
ar hvert á fætur
öðru, þá eru greinar
L»i..vy annarra tegunda
sligaðar af þunga
^ j rauðra berja. í
gegnum gluggann
W-sé ég íkornana
skjótast til og frá í
garðinum, upp-
tekna við að byggja
upp forðabúr fyrir
veturinn. Einstaka broddgeiti
bregður fyrir, svona rétt til að
minna á fjölbreytileika dýralífs-
ins.
Það virðist eiga svo sérstak-
lega vel við á þessum árstíma
að halda uppá Halloween eða
Hrekkjavöku. Hrekkjavakan er
ávallt haldin 31. október ár
hvert, eða kvöldið fyrir allra
heilagamessu, en þessi dagur
var sá síðasti á ári Kelta og
Engilsaxa. Margir siðir
Hrekkjavöku eiga einmitt upp-
runa sinn í heiðni. Þá snúa and-
ar framliðinna til fyrrverandi
heimkynna sinna og nornir og
púkar ku vera á kreiki um nótt-
ina.
Svo Hrekkjavakan heppnist
vel er góður undirbúningur
nauðsynlegur. Auðvitað er mis-
munandi hvað fólk leggur mikið
á sig en mikill munur er á því
frá einu landi til annars. Eng-
lendingar taka Hrekkjavökuna
ekki eins hátíðlega og Banda-
ríkjamenn, en siðimir eru engu
að síður mjög svipaðir. T.d. eru
graskerin í aðalhlutverkum hér
sem þar, en þau má telja helsta
tákn þessarar hátíðar. Grasker
em seld hér í öllum matvöru-
verslunum í tilefni dagsins, sem
og sérstök verkfæri til útskurð-
ar. Til gamans má geta þess
að grasker er notað sem græn-
meti með mat og það má einnig
vinna úr því ýmsa rétti eins og
t.d. súpur eða graskerskökur.
Ég ákvað að prófa nú að
upplifa Hrekkjavöku sem ég
hafði áður aðeins lesið um eða
séð í bíómyndum. Til að kvöldið
yrði sem eftirminnilegast varð
ég að verða mér úti um sem
mest af þeim hlutum sem þurfti
til skreytinga á Hrekkjavök-
unni. Það reyndist hinsvegar
ekki eins auðvelt og ég hafði
hugsað mér. Margir þeirra hluta
sem til þurfti voru uppseldir í
búðunum, en mér tókst að lok-
um að næla í grasker. Vinsæld-
ir Hrekkjavöku hér í Englandi
eru greinilega miklar.
Eftir að hafa þrætt búðirnar
og kannað hvort ekki leyndist
eins og ein beinagrind eða kóng-
uló einhverstaðar, var ljóst að
það eina sem virtist eftir var
vampírublóð og ég varð því að
gera mér þau að góðu. Það
gæti svo sem komið sér vel að
eiga smávegis vampírublóð í
pokahorninu. Eftir mikla leit
reyndist heppnin loks með mér
og þegar ég hafði náð í allt sem
ég taldi mig þurfa var þetta
niðurstaðan: tvö graskerskerti,
tvær beinagrindur, ein stór
kónguló, tvær leðurblökur, tvær
hauskúpur, nornagrímur og
nornahattar. Og svo auðvitað
tvö stór grasker.
Þá hófst það sem ég hafði
kviðið mest en það var útskurð-
urinn á graskerinu. Ég hafði
ekki einu sinni snert það fyrr,
hvað þá séð inn í það. Þegar
ég opnaði það blasti við mér hin
undarlegasta sjón. Það verður
að segjast eins og er að grasker-
ið er alveg í samræmi við hátíð-
ina sjálfa og hefur verið vel
valið, með tilliti til útlits, bæði
að innan og utan. Að innan er
ávöxturinn fullur af einhvers-
konar tefjum, sem iíta út einsog
appelsínugulur kóngulóarvefur
með fjölda af fræjum. Alveg
ótrúlega draugalegt!
Þegar ég hafði skafið tref-
jarnar burt, hófst útskurðurinn
sjálfur, en hann reyndist auð-
veldari en ég átti von á. Eftir
að ég skar út augu, nef og
munn og hafði þar með formað
andlit úr graskerinu, kom ég
kerti fyrir inni í því. Þar með
var það orðið að hinum fínasta
lampa. Eftir það skreytti ég
heimilið með beinagrindum og
leðurblökum og matarborðið
prýddi ég með svörtum dúk,
logandi graskerinu og hauskúp-
um, kóngulóm og öðrum viðeig-
andi kvikindum. Vakti borðið
mikla aðdáun og kátínu heima-
manna og gesta! Það eina sem
vantaði var gervikóngulóarvef-
ur. Verð að ná mér í svoleiðis
næsta ár! Þá var loks mál til
komið að skreyta sjálfan sig
með vampírublóðinu og klæða
börnin í skikkjur og hatta og
smella á þau nornagrímum útöt-
uðum í vörtum. Utan dyra log-
aði á öðru graskeri sem ég hafði
komið fyrir til að gefa utanað-
komandi börnum til kynna að
þeim væri óhætt að hringja
dyrabjöllunni og freista þess að
biðja um sælgæti. Börnin klæða
sig almennt upp eins og nornir,
drauga eða einhver skrímsli og
fara milli húsa og bjóða fólki
„trick or treat“ (grikk eða gott)
og yfirleitt fá þau nammi í poka.
Halloween eða Hrekkjavaka
er einn skemmtilegasti siður
sem ég hef upplifað og voru
börnin ekki síður ánægð, þegar
þau höfðu vanist skriðkvikind-
unum og beinagrindunum.
Þó að mörgum íslendingum
finnist nóg um eftiröpun hinna
ýmsu siða frá útlöndum, verður
að segja að það er í fínasta lagi
að velja þá sem mesta skemmt-
un veitir og láta arinað eiga sig.
Því það veitir svo sannarlega
ekki af að lífga upp á skamm-
degið.
Undirbúningurinn er óvenju-
legur en árangurinn er svo
sannarlega þess virði. ■
FYRSTU verðlaun á Interieur sýningunni hlaut borð eftir ungan
þýskan hönnuð Jakob Gebert en borðfæturnir spennast í sundur
og mynda þannig sterka undirstöðu fyrir borðplötuna.
VERÐLAUNAHUGMYND á TVÆR hugmyndir að lýsingu á Interieur.
Interieur af munstri í áklæði.
ÍTALSKUR sófi frá Moroso.
NÝJUNGAR ó sviði skrif-
stof uhúsgagna voru óber-
ondi á Orcatec hönnunar-
sýningunni sem haldin
var í Köln í Þýskalandi í
lok október. Um er að
raeða eina stærstu og yf-
irgripsmestu sýningu á
þessu sviði.
HUGMYND Vitra að nýtingu
vinnusvæðisins á Orcatec
sýningunni.
V ænlegt að syngja
í kór Menntaskólans að Laugarvatni
TRÍÓIÐ í stellingum, ungt fólk,
teygir úr handleggjum, kórstjórinn
gefur þagnarmerki og upptöku-
stjórinn merki um töku. Söngurinn
hefst: „Þú kveiktir von um veröld
betri, mín von hún óx með þér og
myrkrið svarta vék úr huga mér
um stund, loks fann ég frið með
sjálfum mér.“
Kór Menntaskólans að Laugar-
vatni syngur undir stjórn Hilmars
Amar Agnarssonar, Jasstríó Carls
Möllers leikur undir og í upptöku-
herberginu í Langholtskirkju er
Sigurður Rúnar Jónsson (Diddi
fiðla): „Þitt fyrsta bros“ festist á
bandi.
„Takk fyrir,“ segir upptöku-
stjórinn en tilkynnir jafnframt að
píp í tölvuúri hafí eyðilagt upptök-
una. Taka tvö: „Þitt fyrsta bros,
þín fyrstu skref, þitt fyrsta orð ...“
Upptakan tókst og söngurinn
kemur einhvern tímann á hljóm-
diski.
Laugardagurinn 16. nóvember
og söngvararnir fá matarhlé.
Klukkan fimm verða tónleikar í
tilefni af fímm ára afmæli kórs-
ins. Hafsteinn Þórólfsson for-
maður kórsins, Jóhanna Úrsúla
Leifsdóttir varaformaður og
Sjöfn Þór, fyrrverandi nemandi
í ML, hvíla fætur í hléinu og
SJÖFN, Hafsteinn
og Jóhanna.