Morgunblaðið - 22.11.1996, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 B 7
DAGLEGT LÍF
HÚSGAGNASÝNINGAR
Heimilið
og nútímaskrifstofa í öndvegi
Leiðandi fyrirtæki á sviði húsgagnaframleiðslu
sýndu nýlega nýjungar á sýningum í Belgíu og
Þýskalandi. Sigríður Heimisdóttir skoðaði þar
húsgögn fyrir heimili og húsgögn.
ANNAÐ hvert ár hópast leiðandi
fyrirtæki á sviði húsgagnafram-
leiðslu, til Belgíu til þess að taka
þátt í skemmtilegri hönnunarsýn-
ingu sem þar er haldin annað
hvert ár; Interieur. Sýningin er
haldin í bænum Kortrijk og var í
fimmtánda skipti í lok október.
Fyrirtæki þurfa að standast
ströng inntökuskilyrði til þess að
öðlast þátttökurétt á Interieur, en
þar er sýndar helstu nýjungar og
áhersla er lögð á heimilið og fram-
leiðsluvörur tengdar því. Innrétt-
ingar, húsgögn, ljós, vefnaðar-
vara, rafmagnstæki og smávörur
nutu sín vel á skemmtilega upp-
settu sýningarsvæðinu.
Interieur ’96 bauð líka upp á
hvern hönnunarviðburðinn á fæt-
ur öðrum. Á hverri sýningu er
heimsfrægum hönnuði boðið að
vera sérstakur gestur sýningar-
innar. í ár var það franski arki-
tektinn Jean Nouvel og voru verk
hans sýnd í máli og myndum auk
þess sem hann hélt fyrirlestur sem
færri komust á en vildu. Einnig
var sérstök sýning á verkum port-
úgalskra hönnuða og yfirlitssýn-
ing á borðum tuttugustu aldarinn-
ar.
Mestu athyglina á sýningunni
vakti samkeppni sem haldin er
meðal hönnuða víðsvegar úr heim-
inum. Dómnefnd, skipuð heims-
frægum hönnuðum, valdi síðan
bestu hugmyndirnar. Meðfylgj-
andi myndir sýna nokkrar verð-
launahugmyndirnar, en veitt voru
verðlaun í mismunandi flokkum.
Skrifstofan
Nýjungar á sviði skrifstofuhús-
gagna voru áberandi á Orcatec
hönnunarsýningunni sem haldin
var í Köln í Þýskalandi í lok októ-
ber. Um er að ræða eina stærstu
ELDRI stólar fá and-
litslyftingu, ný áklæði
og litríka arma.
og yfirgripsmestu sýningu á þessu
sviði. I ár voru kynntar margar
áhugaverðar nýjungar og vakti
mikla athygli hversu mikið um-
hverfi skrifstofunnar hefur breyst,
frá hinu formlega og nær um-
hverfi heimilisins.
Framleiðendur gera sér grein
fyrir því að með aukinni tækni er
skrifstofa og bókhaldsvinna fjöl-
skyldunnar komin inn á heimilin.
Samræmi ætti að vera milli hús-
gagna fyrir heimili og skrifstofur
og af hveiju ekki að nota sömu
húsgögn fyrir þessa tvo staði?
Þessari hugmynd voru gerð góð
skil á sýningunni og sýndi Vitra
fyrirtækið snjallar og skemmtileg-
ar lausnir. Möguleikar á breyting-
um húsgagnanna; uppröðun, nýt-
ing og skipulag, voru fróðlegir og
athyglisverðir.
Vinnuaðstaða er orðin önnur en
var. I stað stóru skrifborðanna eru
komin minni og handhægari vinnu-
borð sem henta betur tækjakosti
og starfsfólki. Snúrur og kaplar
sjást ekki því þeim er haganlega
komið fyrir úr augsýn. Öll tæknileg
atriði eru falin, einnig á nýju skrif-
borðsstólunum. Umhverfið er
þannig einfaldara og aðgengilegra
fyrir alla og heimilislegra. Það eru
ánægjulegar og þægilegar breyt-
ingar sem eiga sér stað í heimi
skrifstofuhúsgagna í dag og góð
þróun að tveir helstu íverustaðir
mannsins séu að tengjast. ■
VALDIMAR Harðarson
arkitekt FAÍ.
ÞÓRDÍS Zoega húsgagna-
hönnuður FHI.
KÓR Menntaskólans að Laugarvatni í Langholtskirkju.
Morgunblaðið/Golli
spjalla um kórinn í safnaðarheimil-
inu, kórinn sem stofnaður var af
Hilmari Erni Agnarssyni, fyrrver-
andi Þeysara og núverandi organ-
ista í Skálholtsdómskirkju.
Gildi þess aö vera í kór
Hafsteinn reiknar: „Það eru
215 nemendur í skólanum, 65 í
kómum sem er næstum þriðjungur
nemenda.“
Jóhanna: „Kórinn er virkasta
aflið í félagslífi skólans. Sam-
heldnin er mikil og við förum oft
í ferðalög og á böll saman.“
Hafsteinn: „Allur kórinn æfir
einu sinni í viku og svo eru raddæf-
ingar fyrir tiltekna hópa einu sinni
í viku.“
Sjöfn: „Kórinn fer í æfíngabúð-
ir í Skálholt á hverju ári og heldur
tónleika tvisvar ári, á aðventunni
og á vorin.“
Hafsteinn: „Fyrsta desember
næstkomandi verða tónleikar í
Skálholti og mun Sigrún Hjálm-
týsdóttir (Diddú) að öllum líkind-
um syngja með okkur.“
GUÐRÚN Margrét og Oddgeir húsgagna og innanhúsarkitektar FHÍ.
íslenskir
hönnuðir
Jóhanná: „Menntaskólinn að
Laugarvatni sá um að halda síð-
asta kóramót framhaldsskólanna.
Við héldum svo lokatónleika í
Vestmannaeyjum."
Sjöfn: „Kórinn er okkur nauð-
synlegur. Hann þjappar nemend-
um skólans saman og þeir verða
vinir. Það eru allir á sama báti og
bekkjardeildirnar blandast saman.
Það skiptir engu hvort nemandi
er á fyrsta ári eða Qórða.“
Gott aö vera upptekinn í kór
Eftir að hafa fylgst með kór
Menntaskólans að Laugarvatni og
hlustað á Hafstein, Jóhönnu og
Sjöfn er auðvelt að draga þá álykt-
un að vænlegt sé fyrir nemendur
að vera í kór. Gott að vera upptek-
inn í kór, kynnast öðrum og vinna
að listinni, jafnvel semja Ijóð eins
og Sjöfn Þór gerði og lag við það
eins og Hreiðar Ingi Þorsteinsson
tónskáld skólans, lag sem frum-
flutt var í Langholtskirkju á laug-
ardaginn. ■
Gunnar Hersveinn
SIGURJÓN Pálsson hús-
gagnahönnuður FHÍ.
HÖNNUÐIR úr íslensku fagfé-
lögunum voru áberandi á bæði
Orcatec og Interieur. Það var
skemmtilegt að sjá íslenska
hönnun á erlendri grund og
mega íslendingar vera stoltir af
árangri síns fagfólks. Á Orcatec
sáust verk eftir húsgagnahönn-
uðina Sigurjón Pálsson, Þórdísi
Zoega og Pétur B. Lúthers-
son sem eru í fjöldafram-
leiðslu í Evrópu. Einnig
sást húsgagn eftir
Valdimar Harðar-
son arkitekt. Á Int
erieur gaf á að
líta borð eftir
húsgagna-
hönnuðina
Guðrúnu
Margréti og
Oddgeir.
PÉTUR B. Lúthersson
húsgagnahönnuður
FHÍ.