Morgunblaðið - 20.12.1996, Qupperneq 1
FOSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
BLAÐ B
■ GRIMMSÆVINTÝRI/2 ■ VÆN GETNAÐARVÖRN/2 ■ GOTT SAM-
BAND FORELDRA OG UNGLINGA/4 ■ JÓLAPLATTAR/4 ■ AUGLÝSING-
NNU/6 ■ IJOLASNJO OG SKOTU/6 ■ MYNDASAGAN/8
Tólakjólarnir
u dökkir og síðir í ár
JÓLAUNDIRBUN-
INGURINN stendur
nú sem hæst hjá vel-
flestum, enda ekki
nema fjórir dagar til
jóla. Að ýmsum verald-
legum hlutum þarf að huga
áður en hátíðin gengur í
garð, svo sem jólagjöfunum, steik-
inni, bakstrinum og að sjálfsögðu
jólafötunum. En hvernigjólakjóiar
skyldu vera vinsælir í ár? Til að
leita svara við þessu fór Daglegt
líf á stúfana og ræddi við af-
greiðslufólk og versl- ___________
unarstjóra nokkurra
tískuvöruverslana í
Reykjavík.
Ekki gyllt og silfraö
Af mörgum helstu
tískublöðum erlendis
mætti ætla að gylltir eða
silfurlitaðir kjólar ættu einna helst
upp á pallborðið um þessi jól, en
svo virðist ekki vera, alltént ekki
í tískuborginni Reykjavík. Af-
greiðslufólk tískuvöruverslana
sem Daglegt líf ræddi við, var
sammála um það að kjólar í dökk-
um litum væru hvað vinsælastir.
„Síðir og svartir hlírakjólar úr
sléttu flauelsefni virðast vera
mest keyptir af konum yfir
tvítugt, en þær yngri kaupa
frekar stutta, en að öðru
Svartur, blár,
vínrauður og
grænn eru að-
al litirnir í
jólakjólunum.
leyti svipaða kjóla,“ sagði ein af-
greiðslustúlkan, og benti á að kjól-
amir væru umfram allt látlausir
og fallegir. Með öðrum orðum
klassískir. „Kjólamir eru flestir
mjög einfaldir í sniðinu og falla
þétt að líkamanum, þótt þeir séu
ekki alveg níðþröngir. Þeir em
sumir hveijir með smásilfurlituðu
eða gylltu skrauti, eins og til
dæmis silfurlituðum hlíram eða
litlum áföstum semelíusteinum,
en eru að öðru leyti einlitir,“ sagði
hún ennfremur. Aðrir vinsælir lit-
____ ir í jólakjólunum í ár eru
dökkbláir, rústrauðir og
grænir, en einnig er allt-
af eitthvað um
rauðajólakjóla.
Þá kom fram
í máli nokkurra
afgreiðslu-
stúlkna að
dökkir kjólar úr efni
með glansandi áferð
væru svolítið vinsælir,
ekki síst hjá yngri
konum.
Tvísklptlr kjólar
Nokkrir verslunarstjórar höfðu
á orði að kjólar samansettir úr
tveimur gerðum af efnum væra
einnig nokkuð vinsælir. „Til dæm-
is getur blússan verið úr flaueli,
en pilsið úr satíni og í mittinu
kannski stórt belti sem er hnýtt
með slaufu framarlega á hliðinni,“
sagði einn verslunarstjórinn. „Þá
er eitthvað um það að stuttir svo-
kallaðir skyrtukjólar séu keyptir,
en efri hlutinn minnir þá á skyrtu,
til dæmis með kraga og tölum
niður að mitti, en síðan kemur
áfast pils.“ ■