Morgunblaðið - 24.12.1996, Síða 4
4 D ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ - AUGLÝSING
+
Hljóðkerfí Kringlubíós
Öllu stýrt
gegnum
tölvu
Allir kvikmyndahúsagestir
vita, hversu geysileg fram-
þróun hefur orðið á hljóm-
gæðum kvikmyndahúsa á
undanfömum árum. Dolby og
THX kerfm eru sífellt að þróa
nýja staðla og það, sem þótti
góður hljómur fyrir nokkrum
árum, þætti vart boðlegt í dag.
Þetta er, ekki síst, sökum þess
að framleiðendur og höfundar
kvikmynda, hafa í auknum
mæli tekið að fullnýta mögu-
leika hljóðrásarinnar. Nú er
alþekkt að hljóð kvikmynda
berist til áhorf-enda úr öllum
homum salarins og geri kvik-
myndirnar því raunverulegri
fyrir áhorfendur.
í Kringlubíóinu er að finna
nýjustu kynslóð hljóðkerfa
fyrir kvikmyndahús. Það
besta í THX og Dolby Digital
eru þar samankomið og sömu
hljómgæði er að finna í öllum
sölum, hvort sem er salur eitt,
tvö eða þrjú.
Sigurjón Jóhannsson hefur
haft yfirumsjón með upp-
seningu hljóðkerfisins. Hann
segir að hvergi hafi verið til
sparað við hönnun þess og
byggingu. „THX fyrirtækið
hefur sett okkur ströng
skilyrði og kappkostað hefur
verið að uppfylla þau“ segir
hann. „Kerfinu er öllu
stjórnað í gegnum tölvu, iðn-
tölvur stjórna sýningar-
vélunum og nemar hljóð-
kerfisins vinna eins og tölvur.
Þetta er því eins nútímalegt
og hægt er, enda öll framset-
ningin kerfisins hönnuð eftir
forskrift frá THX“.
Sigurjón segir að þau séu ófá
tonnin sem komin séu í
hljóðveggjum og tækjum
bíósins. „Þetta eru allt þung
tæki og þurfa styrkar undir-
stöður. Sem dæmi má nefna
að hljóðveggurinn í sal 1,
vegur alls um átta tonn og eru
þá hátalarar ekki taldir með“.
Kringlubíó er ekki bara glæsilegt kvikmyndahús:
Fullkomin tækni,
gagngerar nýjungar og
aukin þjónusta
Starfsfólk Sambíóanna, til Jijónustu reiðubúið.
Fullkomin tækni
Öll hönnun Kringlubíósins
tckur mið af ströngustu kröfum
scm gerðar eru til kvikmynda-
húsa nútímans. Lögð cr
mikil áhcrsla á að sem best fari
um áhorfendur, rými milli
áhorfcndahckkja sé nægilcgt
og að gólflialli mæti breyttri
mcðalhæð sýningargesta. Þá er
og lögð sérstök áhersla á
aðgcngi fatlaðra að hinu nýja
kvikmyndahúsi og þannig rcynt
að koma til móts við þarfir
sem flestra.
Þröstur Arnason sýningarstjóri
Sambíóanna segir tæki Kringlu-
bíósins vera þau fullkomnustu
sem völ er á í heiminum um
þessar mundir. „Meðal eigin-
leika þeirra má nefna að hægt er
að sýna sömu myndina sam-
tímis í öllum sölum bíósins"
segir hann. „Þetta er einkar
hentugt á háannatímum þegar
uppselt er í einstaka sali og mikil
eftirspurn eftir miðum. Þá búa
sýningarvélarnar einnig yfir
sérstökum nemum sem lesa
hvorttveggja línulegt og stafrænt
hljóð myndarinnar". Þröstur
segir að einnig sé mikilvægt að
allir þrír salir bíósins búi yfir
sömu hljóð- og myndgæðum.
„Allir salir eru með hágæða
THX Dolby CP 500 Processor
sem gera það að verkum að
hljóðrás myndarinnar verður
nákvæmlega eins og höfundur
hennar vill hverju sinni. Hvert
einasta hljóð skilar sér tært og
vel til áhorfenda".
Greiður aðgangur
fatlaðra
Óhætt er að segja, að rösklega sé
komið til móts við þarfir fatlaðra
bíógesta í hönnun Kringlu-
bíósins. Aðgengi bíósins miðast
við að gestir geti lagt bifreiðum
sínum undir þaki og komist
þaðan með lyftum að kvik-
Það fer vel um þennan
Forðist óþægindin
myndahúsinu. Þegar þangað er
komið tekur við nægilegt rými
fyrir hjólastóla og m.a. er
sérstaklega gert ráð fyrir fjölda
slíkra á hverri sýningu.
Vonast forráðamenn Sam-
bíóanna til þess að þessar
ráðstafanir geri það að verkum,
að fatlaðir gestir njóti nú í enn
ríkari mæli þeirra mannréttinda
að sækja kvikmyndahús að
staðaldri og gleyma sér um
stund í töfraheimi kvikmynd-
anna.
Barnasetur -
kærkomin nýjung
Það hefur stundum reynst erfitt
fyrir litla hálsa að gægjast upp
fyrir sætisbak stólsins fyrir
framan þegar farið er í bíó.
Fyrir vikið hafa foreldrar oft
þurft að bregða á það ráð að sitja
undir börnum sínum svo þau
geti séð það sem fram fer á hvíta
tjaldinu.
Ein af nýjungum Kringlubíósins
leysir þennan vanda. í afgreiðslu
bíósins er boðið upp á sérstakar
hækkunarsetur fyrir þessa yngstu
bíógesti. Seturnar eru sérstaklega
hannaðar til að falla ofan í venju-
leg bíósæti og hækka þannig þá
sem í þeim sitja umtalsvert.
Er ekki að efa, að yngsta
kynslóðin á eftir að fagna þessari
nýjung og njóta töfra kvikmynd-
anna enn frekar í kjölfarið.
Að sjálfsögðu verða barna-
seturnar einnig í öðrum kvik-
myndahúsum Sambíóanna og
verða þær teknar í notkun um
miðjan janúar á nýju ári.
Breytingar á miðaverði Sambíóanna
Breytingar á miðaverði Sambíóanna miðast við þartir
fjölskyldufólks og þeirra sem sækja kvikmyndahús að jafnaði.
Tökum dæmi um þessa kjarabót:
Fjögurra manna fjölskylda (2 fullorðnir, 2 börn) fer í bíó kl. 5
á sunnudegi að sjá Hringjarann í Notre Dame.
Fyrir breytingar; 4 x 550 = 2200 kr.
Eftir breytingar; 2 x 500 + 2 x 300 = 1600 kr.
Samfara breytingum falla niður tilboð á þriðjudögum.
Þessi tilboð hafa verið í gangi á þær myndir sem lengst hafa verið í
sýningu átt fáa sýningardaga eftir. Nú gildir sama verð alla daga, á
nýjar myndir jafnt sem gamlar.