Morgunblaðið - 21.01.1997, Page 5
4 B ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Haukar svífa
vængjum þöndum
HAUKAR voru í miklum vígahug í Mosfellsbænum á laugardaginn
- reyttu skrautfjaðrirnar af „kjúklingunum" og fóru með bæði stig-
in heim til Hafnarfjarðar eftir 27:21 sigur og tylltu sér um leið á
efsta tind deiidarinnar. „Kjúkiingabændur" hafa líklega verið með
leikmenn sína á of þungu fóðri yfir jólin og áramótin ef marka má
tvo síðustu leiki Aftureldingar sem báðir hafa tapast. Haukar svífa
hins vegar vængjum þöndum og hafa ekki misst flugið í 15 síð-
ustu leikjum sínum. Fátt virðist geta stöðvað Hauka á leið þeirra að
deildarmeistaratitlinum.
Það var ljóst hvert stefndi strax
á upphafsmínútunum því
Haukar voru mun ákveðnari í öllum
aðgerðum sínum á
I meðan taugaspenn-
an var ailsráðandi
hjá Aftureldingu.
Sigurður Gunnars-
son sýndi hversu
klókur þjálfari hann er þegar hann
lét minni spámenn byija sóknarleik-
inn í skyttuhlutverkunum, Sigurð
Þórðarson og Einar Gunnarsson, en
Valur B.
Jónatansson
skrifar
FOLK
■ ÞORKELL Guðbrandsson og
Ingimundur Helgason, leikmenn
Aftureldingar, fengu afhent gullúr
fyrir leikinn á móti Haukum í Mos-
fellsbæ á laugardaginn. Ástæðan
var sú að þeir voru báðir búnir að
leika 200 leiki með meistaraflokki
félagsins. Það var Jóhann Guðjóns-
son, formaður handknattleiksdeildar
UMFA, sem afhenti gullúrin.
■ BERGSVEINN Bergsveinsson
fann sig ekki í markinu hjá Aftureld-
ingu. Hann varði aðeins eitt skot á
þeim 23 mínútum sem hann stóð í
markinu í fyrri hálfleik.
■ SIGURJÓN Bjarnason hefur
verið meiddur og ekkert getað æft
með Aftureldingu að undanfömu og
hefur aðeins leikið með liðinu.
■ EINAR Gunnar Sigurðsson
gerði tvö mörk fyrir Aftureldingu,
en hann átti auk þess fjögur skot í
stöng.
■ IR-INGAR hafa nú leikið tvo leiki
í röð í 1. deild karla án þess að einn
einasti leikmaður þeirra sé rekinn
út af í 2 mínútur.
■ LEIKMENN ÍR eru höfðingjar
heim að sækja því eftir hvem heima-
leik bjóða þeir andstæðingum sínum
í kaffi og hlaðborð með kökum og
brauði í félagsheimili sínu við Skóg-
arsel. Þetta fengu KA-menn að reyna
áður en þeir héldu norður í land eft-
ir viðureign liðanna í Seljaskóla á
sunnudagskvöldið.
■ MEIRA af leikmönnum IR, þeir
fóru í 23 sóknir í síðari hálfleik í
leiknum við KA og skoruðu úr 19
þeirra, þetta gerir 82,6% sóknarnýt-
ingu.
■ EGILL MÁR Markússon dómari
var á þönum á sunnudaginn. Um
daginn dæmdi hann fimm leiki á ís-
landsmótinu í knattspymu, þar á
meðal úrslitaleikinn, og um kvöldið
flautaði hann þegar FH fékk Stjörn-
una í heimsókn í 1. deildinni í hand-
knattleik. Eftir leikinn dreif hann sig
vinnuna.
■ FH-INGAR léku með sorgarbönd
gegn Sljörnunni til að minnast Við-
ars Vilhjálmssonar, sem lést í fyrri
viku. Hann var áður gjaldkeri hand-
knattleiksdeildar og aðalstjórnar FH.
■ SJÖTTI flokkur handknattleiks-
kvenna FH og Sljörnunnar hitaði
upp fyrir karlaleikinn í Kaplakrika á
sunnudaginn. Hafnarfjarðarstúlk-
urnar gáfu körlunum tóninn og
unnu, 4:3. í vetur hafa FH-ingar
reynt að leyfa yngri krökkunum að
spreyta sig fyrir karlaleikina - við
mikla ánægju yngri sem eldri.
hvíldi þess í stað Petr Baumruk og
Rúnar Sigtryggsson.
Leikurinn hélst í jafnvægi upp í
5:5 en þá komu fimm mörk í röð hjá
Haukum á meðan Mosfellsbæingar
voru að gera hver mistökin á fætur
öðrum. Þegar flautað var til hálfleiks
var staðan orðin 12:8 fyrir Hauka.
Afturelding náði að skora úr fyrstu
sjö sóknum sínum í síðari hálfleik
eftir að sóknamýting í fyrri hálfleik
hafði aðeins verið 29% á móti 44%
hjá Haukum. Allt í einu var komin
spenna í leikinn, 15:15, en Haukar
létu ekki slá sig út af laginu. Þeir
hækkuðu flugið jafnt og þétt án þess
að heimamenn næðu að fylgja þeim
eftir. Ekki bætti það úr skák fyrir
Mosfellsbæinga að Sigurður Sveins-
son fékk rauða spjaldið um miðjan
hálfleikinn. Eftir það var sigur
Hauka aldrei í hættu.
Haukar léku sem liðsheild á meðan
einstaklingarnir í Aftureldingu
reyndu að láta ljós sitt skína. Hafn-
arljarðarliðið hefur mun meiri breidd
en Mosfellsbæingar, alla vega treysti
Sigurður Gunnarsson þjálfari ungu
strákunum og var ávallt að skipta
inn á og bijóta upp leikinn. Leikur
liðsins var fjölbreyttur og alltaf komu
þeir heimamönnum jafn mikið á
óvart með hinum ýmsu stöðubreyt-
ingum í sókninni. Vörnin var einnig
mjög góð og eins var Bjarni góður
í markinu, sérstaklega í fyrri hálf-
leik. Aron vex með hveijum leik sem
leikstjórnandi, enda fær hann sjálf-
sagt góð ráð hjá fyrrum leikstjórn-
endum landsliðsins, Sigurði Gunn-
arssyni og Páli Ólafssyni. Rúnar og
Baumruk voru sterkir og Jón Freyr
í hægra horninu nýtti færin sín full-
komlega.
Afturelding hefur góðum einstakl-
ingum á að skipa, en það er ekki
nóg. Lið sem leikur ekki sem liðs-
heild getur aldrei náð langt. Sam-
vinnan var ekki til staðar. Sóknar-
leikurinn var því ósköp tilviljunar-
kenndur. Það vakti athygli að Einar
Þorvarðarson þjálfari gerði ekkert til
að fá vinstri sóknarvænginn til að
virka. Páll Þórólfsson var algjörlega
sveltur í hominu og ekkert var reynt
til að aðstoða Einar Gunnar. Eins
var keyrt nánast á sama liðinu alla
leikinn í stað þess að hrókera mönn-
um og koma þannig andstæðingnum
í opna skjöldu. Bjarki Sigurðsson var
eini leikmaður liðsins sem lék vel og
Þorkell Guðbrandsson komst ágæt-
lega frá síðari hálfleiknum.
GÚSTAF Bjarnason stóð oft í ströngu á línunni. Hér reynlr
hann að losa sig úr klóm Elnar Gunnars Slgurðssonar eftir
sendingu Arons Kristjánssonar. Gunnar Andrésson (t.v.) og
Alexej Trúfan (t.h.) fá engu ráðið og bíða því átekta.
SigurðurGunnarsson, þjálfari Hauka
Reynum að veija toppsætið
„VIÐ áttum góðan dag, spiluðum
vel bæði í vörn og sókn. Við erum
á toppnum núna og reynum auð-
vitað að verja það sæti,“ sagði
Sigurður Gunnarsson, þjálfari
Hauka, eftir sigurinn á Aftureld-
ingu á laugardaginn. „Við erum
með góða breidd. Það fer ekkert
lið í gegnum heilt mót án þess að
nota meira en sjö til átta leik-
menn. Yngri strákarnir þurfa líka
að fá að spreyta sig, fá reynslu
og gera sín mistök og læra af
þeim. Það hefur hver einasti leik-
maður í liðinu ákveðið hlutverk,
sama hvort hann spilar í eina mín-
útu eða allan leikinn."
Sigurður sagðist hafa undirbúið liðið
vel fyrir leikinn gegn Aftureld-
ingu og m.a. verið búinn að skoða síð-
asta tapleik liðsins á móti Fram. „Við
vissum hvað við þurftum að gera, bæði
í vöm og sókn, og gerðum það mestan
hluta leiksins. Við höfum verið að spila
vel allt mótið og við erum að vinna
þessa leiki og það er styrkur. Við und-
irbúum okkur fyrir einn leik í einu og
spyrjum síðan að leikslokum. Við erum
ekki að gæla við eitt eða neitt. Við eig-
um marga erfiða leiki eftir og þurfum
því að koma okkur aftur niður á jörðina
eftir þennan sigur.“
„Það var auðvitað mikilvægt að vinna
Aftureldingu, en ef við hefðum tapað
vissum við það líka að Afturelding á
eftir að spila marga erfiða leiki. Við
unnum Mosfellsbæinga í bikarnum, en
ég held að við höfum lært mest af því
sem við gerðum vitlaust á móti þeim í
deildarleiknum í haust sem við töpuð-
um.“
Hvernig finnst þér handboltinn hafa
verið hér í vetur?
„Mér finnst handboltinn góður. Það
eru mörg góð lið í deildinni. Margir
góðir þjálfarar og nokkrir efnilegir
handboltamenn. Þó svo að margir
landsliðsmenn hafi farið í erlend lið
fyrir þetta tímabil get ég ekki séð að
handboltinn sé á niðurleið. Auðvitað er
sjónarsviptir að leikmönnum eins og
Degi Sigurðssyni, Ólafi Stefánssyni og
Patreki Jóhannessyni úr deildinni. Þeir
þrír halda þó ekki uppi heilli deild. Það
koma bara aðrir í staðinn. Mér finnst
of neikvæð umræða hafa verið í gangi
varðandi deildina í vetur. Bestu liðin
hér gætu staðið sig vel í hvaða deild
sem væri í Evrópu,“ sagði Sigurður.
Spennustigið
meira hjá okkur
Einar Þorvarðarson, þjálfari Aftur-
eldingar, var ekki ánægður með leik
sinna manna. „Ég er ekki sáttur við
svona stórt tap. Munurinn á liðunum
var sá að markvarslan og sóknarleik-
urinn var betri hjá Haukum. Við feng-
um lítið af mörkum utan af velli. Það
er aðeins Bjarki sem var að skora utan
af velli. Meðan ástandið er þannig verð-
ur þetta erfitt. Spennustigið hjá okkur
virðist hafa verið mun meira en hjá
Haukum. Eins og þessi vetur er búinn
að þróast hjá okkur, höfum verið meira
og minna í efsta sætinu. Við höfum
stöðugt átt á brattann að sækja, sér-
staklega vegna þess að stöðugt er tugg-
ið á því að við séum að spila illa. Við
erum búnir að tapa tveimur leikjum í
röð og erum komnir með Haukana upp
að hliðinni á okkur. Það eru margir
leikir eftir af mótinu og við höfum ekki
gefið upp vonina um deildarmeistaratit-
ilinn.“
Þú notaðir meira ogminna sömu leik-
mennina allan leikinn þrátt fyrir að
flestir þeirra væru að leika illa. Hefði
ekki verið betra að skipta meira inná?
„Jú, það má kannski segja það. En
ég er svolítið bundinn af þessum leik-
mönnum. Það sem ég hef til skiptanna
eru fyrst og fremst hornamenn. Ég er
illa staddur með stöðuna á línunnni.
Siguijón er meiddur og æfir því ekk-
ert, spilar bara. Við erum heldur ekki
ofsalega ríkir af útispilurum."
Það kom lítil ógnun frá vinstri
vængnum. Var ekki hægt að gera eitt-
hvað til að breyta því?
„Það verður að segjast eins og er
að leikstjórnandinn náði ekki að vinna
boltann nægilega vel út á vinstri væng-
inn. Leikmenn sneru baki við þessum
væng og við vorum að spila nánast á
öðrum helmingi vallarins nær allan fyrri
hálfleikinn. Við vorum ekki að nýta
völlinn og því var auðveldara að veijast
okkur. Við fórum yfir þetta atriði fyrir
leikinn en því miður virkaði það ekki í
leiknum.“
Þrumufleygur Duran
ona skipti sköpum
Ivar
Benediktsson
skrifar
IR-ingar voru klaufar að missa
bæði stigin í leiknum við KA úr
höndum sér á lokakaflanum er liðin
áttust við í Seljaskóla
á sunnudagskvöldið.
Eftir að hafa staðið
höllum fæti framan
af leik tóku Breið-
hyltingar sig saman í andlitinu í síð-
ari hálfleik, unnu upp 5 marka for-
skot KA og komust 2 mörkum yfir
þegar 4 mínútur voru eftir, 28:26.
En reynsla KA vóg þungt og þeir
voru ekki tilbúnir að gefa sinn hlut
átakalaust. Þeir gerðu þijú mörk í röð
og komust yfir, 29:28, áður en Rang-
ar Óskarsson jafnaði leikinn 10 sek-
úndum fyrir leikslok. Þær sekúndur
sem eftir voru nægðu KA til sigurs.
Julian Duranona innsiglaði sigur
norðanmanna með ótrúlegu þrumu-
skoti af 13 metra færi rétt áður en
lokaflautið gall.
„Það var grátlegt að tapa þessum
leik en skot Duranona var einstakt
og alls ekki létt að veija það,“ sagði
Matthías Matthiasson, þjálfari lR, í
leikslok. „Skortur á einbeitingu var
þess valdandi að við töpuðum leikn-
um, en þetta leggst inn í reynslu-
banka strákanna og það kemur að
því að þeir fara að taka út úr honum
og vinna leiki. Við höfum tapað of
mörgum leikjum í vetur með litlum
mun,“ bætti Matthías við.
KA-menn voru mun sterkari í fyrri
hálfleik og náðu fljótlega nokkurri
forystu. Asamt góðri markvörslu
Hermanns Karlssonar í marki KA var
sóknarleikurinn allgóður en að sama
skapi dapur hjá heimapiltum. Staðan
í hálfleik 15:10 KA í vil.
Leikur ÍR breyttist til betri vegar
í síðari hálfleik, vömin lagaðist stór-
um og sóknarleikurinn varð íjöl-
breyttari við innkomu Ragnars Ósk-
arssonar sem einhverra hluta vegna
hvíldi allan fyrri hálfleik. Það kostaði
mikia baráttu og kraft að brúa það
bil sem var á milli félaganna en ÍR-
ingum tókst það og gott betur. Óvand-
aður leikur þeirra á síðustu mínútun-
um varð hins vegar dýrkeyptur.
Félögin eigast við að nýju í und-
anúrslitum bikarkeppninnar á
fimmtudaginn norðan heiða og ef
þetta er forsmekkurinn að því sem
þar verður upp á boðið mega áhorf-
endur eiga von á skemmtilegum leik.
„Það kemur ekki til greina að tapa
fyrir þeim tvisvar í röð,“ sagði Ragn-
ar ÍR-ingur um leikinn sem framund-
an er.
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Halldór
MARGRÉT Ólafsdóttir, lefkmaður
Breiðabliks, er hér með sigurlaunin.
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 B 5
HANDKNATTLEIKUR
I. i'i linn
Morgunoiaoio/ liaiidor
Langþráður
Gróttusigur
Gróttumenn fögnuðu vel og
innilega í leikslok eftir mikil-
vægan sigur á HK, 29:24.
Þetta var sanngjarn sigur í slök-
um leik, þar sem
Hörður ™rg mistök litu
Magnússon dagsins ljos. big-
skrifar tryggur Alberts-
son, markvörður
Gróttu, var maðurinn á bakvið
þennan sigur, varði 24 skot. HK
var yfir 0:1 og 1:2, síðan ekki
söguna meir. Gróttumenn voru
yfir það sem eftir lifði af leiknum.
HK-menn voru sjálfum sér verstir
í þessum leik, misnotuðu mörg
dauðafæri m.a. tvö vítaköst sem
Sigurður Sveinsson lét varamark-
vörð Gróttunnar, Ólaf Finnboga-
son, veija frá sér. Allur leikur
gestanna í HK var lengst af í
molum, vörnin hriplek og mar-
kvarslan oftast eftir því þó svo
að Hlynur Jóhannsson hafi varið
ágætlega á kafla í síðari hálfleik.
Þá var sóknin vandræðaleg,
Gunnleifur Gunnleifsson var sá
eini sem lék af einhveiju viti,
aðrir voru úti á þekju.
Gróttumenn sýndu góða bar-
áttu en oft á tíðum var leikur
þeirra losaralegur. Þessi sigur
gefur þeim byr undir báða vængi
fyrir komandi átök í fallbaráttu
deildarinnar sem harðnar stöðugt.
Davíð B. Gíslason var bestur úti-
leikmanna liðsins og þeir Róbert
Þór Rafnsson og Júrí Sadovski
áttu sína spretti. Annars verður
þessi leikur ekki minnisstæður þó
ekki nema fyrir það að Grótta
vann sinn fyrsta sigur í háa herr-
ans tíð.
„Hlerinn“
kominn
„HLERINN" er kominn, sögðu FH-ingar íleikhléi gegn Stjörn-
unni í Kaplakrika á sunnudaginn. Áttu þeir við að Sun Hyung
Lee markvörður Hafnfirðinga væri loks búinn að finna fjölina
sína en hann lagði einmitt grunninn að 34:27 sigri á Garðbæ-
ingum - varði 29 skot og átti ófáar sendingar fram völlinn í
hraðaupphlaupum, sem gáfu mörk. Frammistaða hans hleypti
lífi ívörnina og sama má segja um sóknarleikinn. Leikurinn
var hraður og skemmtilegur og áttu áhorfendur fullt f fangi
með að fylgjast með því mörkin urðu alls 61 og markverðir
vörðu samtals 46 skot.
Hafnfirðingar byijuðu með
þremur mörkum á einni og
hálfri mínútu en Garðbæingar
komust ekki á blað fyrr en eftir
rúmar fimm mínút-
Stefán ur í stöðunni 4:0
Stefánsson en þá hafði Sun
skrifar Hyung Lee varið
sex skot og tvíveg-
is gefið boltann í hraðaupphlaup
sem skiluðu marki. FH-ingar
héldu síðan góðu skriði en undir
lok fyrri hálfleiks tókst Stjörnu-
mönnum með harðfylgi að jafna
en það tók sinn toll og þeir misstu
flugið á ný. FH-ingar fylgdu eftir
góðum fyrri hálfleik og höfðu öll
völd á vellinum í þeim síðari þann-
ig að sigurinn var aldrei í hættu.
Stuðningsmenn FH gengu
dreymandi um sali Kaplakrika að
leikslokum, himinlifandi yfir að
liðið sé að ná sér upp úr öldudal
eftir slakan fyrri hluta mótsins.
„Lee hrekkur í gang og það hefur
áhrif á allt liðið,“ sagði Hálfdán
Þórðarson, sem átti ekki síðri dag
en markvörðurinn, var sterkur í
vörninni og fór hamförum á lín-
unni hinum megin. „Við vorum
slakir í fyrri umferðinni, vorum
að reyna of mikið sjálfir svo að
við töluðum saman og nú fær
boltinn að ganga auk þess sem
vörnin er betri. Hugarfarið hefur
breyst til batnaðar eftir að við
litum í eigin barm, við erum með
ágætis lið en neistann hefur vant-
að og nú er hann að koma. Nú
erum við tilbúnir fyrir bikarleik-
inn gegn Haukum á miðvikudag-
inn, hann ætlum við að vinna því
bikarúrslitaleikir eru það
skemmtilegasta,“ bætti Hálfdán
við. Valur Arnarson, Guðmundur
Pedersen og Knútur Sigurðsson
áttu einnig góðan dag en liðið fær
í heild sinni lof fyrir frábæra bar-
áttu - sýndi hvað það kann og
getur. Sigurinn var sá stærsti í
vetur og liðið hefur ekki skorað
jafn mörg mörk í leik.
Garðbæingar voru heillum
horfnir, sýndu að vísu dug með
því að jafna en vantaði allan bar-
áttuanda til að fylgja því eftir.
Vörnin var ekki tilbúin fyrir FH-
inga í ham og þó að liðið hafi
skorað 27 mörk, sem oft hefur
dugað til sigurs, skorti alla leik-
gleði og það verður að vera eitt-
hvað af henni til staðar ef ná skal
í stig. Ingvar markvörður Ragn-
arsson var bestur í liðinu og
Magnús A. Magnússon vann mjög
vel.
Gamla stórveldið
lagði nýliðana
Valsmenn tóku á móti Frömur-
um að Hlíðarenda á sunnu-
dagskvöld og var gestrisnin af
frekar skornum skammti. Heima-
menn tóku forystu
strax á fyrstu mín-
útu og nýliðarnir
bláklæddu náðu
aldrei að jafna áður
en flautað var til leiksloka, en þá
höfðu Valsmenn skorað tuttugu
mörk gegn aðeins sextán mörkum
gestanna.
Edwin
Rögnvaldsson
skrifar
Skúli Gunnsteinsson var öflug-
ur í upphafi leiksins og gerði fjög-
ur af fyrstu fimm mörkum Vals.
Heimamenn skoruðu fjögur fyrstu
mörk sín án þess að Framararnir
næðu að koma knettinum framhjá
Guðmundi Hrafnkelssyni, en þeir
skoruðu ekki fyrr en rúmar átta
mínútur voru liðnar. Valsmenn
léku varnarleikinn framarlega á
vellinum og sóknarleikur gest-
anna var ráðleysislegur.
Safamýrarpiltar minnkuðu
muninn í eitt mark þegar rúmar
fjórar mínútur lifðu eftir af fyrri
hálfleik. Reynir Þór Reynisson tók
að veija af kappi, en mörg skot
heimamanna voru um tíma óvönd-
uð og ótímabær. Valsmenn skor-
uðu ekki mark í þrettán mínútur
og hleyptu þannig Frömurum inn
í leikinn. Heimamenn höfðu þó
tveggja marka forystu í leikhléi,
9:7.
Jón Kristjánsson var iðinn við
kolann í upphafi síðari hálfleiks
og skoraði tvö af fyrstu þremur
mörkum heimamanna, en hann
skoraði líka tvö síðustu mörkin í
fyrri hálfleik. Munurinn var tvö
mörk lengst af, en það breyttist
þegar síðari hálfleikurinn var
hálfnaður. Þá fékk Framarinn
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
tveggja mínútna brottvísun og
Ingi Rafn Jónsson gekk þá á lag-
ið - skoraði tvö mörk í röð. Val-
garð Thoroddsen og besti maður
Valsmanna í leiknum, Skúli
Gunnsteinsson, stráðu salti í sár
gestanna áður en yfir lauk.
Framarar náðu sér ekki á strik
eftir rispuna sem þeir tóku í fyrri
hálfleik. Oleg Titov skoraði aðeins
eitt mark af línunni, en hann gerði
fimm mörk úr vítaköstum. Tólf
sinnum lauk sóknum Framara án
þess að þeir næðu skoti á mark
Vals, sem getur ekki talist ás-
ættanlegt.
Jón Kristjánsson, spilandi þjálf-
ari Vals, var glaðbeittur í leiks-
lok. „Þetta hefur verið brokk-
gengt hjá okkur í vetur, en leiðin
hefur legið upp á við eftir desemb-
erhléið. Við lékum grimma vörn
í kvöld og skoruðum líka falleg
mörk á köflum,“ sagði Jón.
Páll Einarsson, fyrirliði íslandsmeistara Þróttar
Vonanai merki
umþaðsem
koma skal
ÞAÐ voru liðsmenn karlaliðs
Þróttar og kvennaliðs Breiða-
bliks sem urðu á sunnudaginn
íslandsmeistarar í innanhúss-
knattspyrnu, en keppnin fór
fram í Laugardalshöll að
vanda. Þróttur, sem varð síð-
ast íslandsmeistari innanhúss
árið 1984, lagði ÍA að velli 5:3
í úrslitum, en Blikar vörðu titil
sinn með 5:4 sigri á Val.
að ríkti mikil gleði í herbúðum
Þróttar eftir leikinn enda ekki
á hveijum degi sem Akurnesingar
bíða lægri hlut í
I knattspyrnumótum.
Benediktsson -Þessi sigur er sæt'
skrifar ur og byggðist fyrst
og fremst á góðri
stemmningu í liðinu alla keppnina
í bland við frábæran stuðning
áhorfenda í úrslitaleiknum," sagði
Páll Einarsson fyrirliði eftir að hann
hafði tekið við íslandsbikarnum úr
hendi Eggerts Magnússonar for-
manns KSÍ. „Vonandi er þetta
merki um það sem koma skal hjá
okkur í sumar og loks takist að
vinna sæti í fyrstu deild utanhúss,
en það munaði sáralitlu í fyrra,“
bætti Páll við.
Úrslitaleikurinn var nokkuð
harður en Skagamenn höfðu frum-
kvæðið í fyrri hálfleik og voru 2:1
yfir þegar skipt var um vallarhelm-
ing í hálfleik. Vel studdir komu
Þróttarar til leiks í síðari hálfleik
og tókst að snúa taflinu sér í vil
og komast í 5:2 áður en leikmenn
ÍA klóruðu í bakkann rétt fyrir
leikslok. „í síðari hálfleik reyndum
við að leysa leikinn upp í baráttu
og það tókst, við vorum betri,“ sagði
Páll fyrirliði ennfremur.
Valur veitti mótspymu
„Það er alltaf ánægjulegt að
vinna og það var gaman að gera
það í skemmtilegum úrslitaleik,“
sagði Sigrún Óttarsdóttir, fyrirliði
Breiðabliks, kampakát að loknum
skemmtilegum úrslitaleik í kvenna-
flokki, þar sem Breiðablik sigraði
Val 5:4. Valsstúlkur veittu Blikum
verðuga mótspymu í úrslitaleikn-
um, einkum í fyrri hálfleik. ,',Við
stefnum á að vinna öll mót sem við
tökum þátt í á þessu ári og sigurinn
í þessu móti er því ágæt byijun á
árinu. Ég reikna hins vegar með
því að mótspyrnan verði meiri í
sumar en á síðasta sumri og KR
verði okkar aðalkeppinautur,“ sagði
Sigrún, fyrirliði Breiðabliks.
FJALAR Þorgeirsson, mark-
vörður Þróttar, er hér með
bikarinn sem félagið hlaut
fyrir sigurinn.
i