Morgunblaðið - 21.01.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 21.01.1997, Síða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Þriðjudagur 21. janúar 1997 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hlídar- dalsskóli HLÍÐARDALSSKÓLI í Ölfusi er nú til sölu hjá Kjöreign. Um er að ræða tvö skólahús með heimavist, leikfimihúsi, verk- stæðisbyggingum og nokkrum íbúðarhúsum. Skólinn er í landi Breiðabólsstaðar og er jörðin einnig til sölu. / 2 ► Skulda- tryggingar SKULD ATRY GGIN GAR fyrir íbúðarkaupendur og húsbyggj- endur hafa verið ofarlega á baugi að undanförnu. En skuldatryggingar eru ekki eins einfalt mál og sumir ætla, segir Grétar J. Guðmundsson í þætt- inum Markaðurinn. / 19 ► Ú T T E K T Raðhús í Engja- hverfi MIKIL uppbygging á sér nú stað í nýju hverfun- um í Grafarvogi. í Borgahverfi er þessi uppbygg- ing vel á veg komin og í Víkur- hverfi var flutt inn í fyrstu hús- in í fyrra. Lengst er uppbygg- ingin þó komin í Engjahverfi. Við Starengi hefur Ólafur H. Pálsson múrarameistari byggt Qögur raðhús og eru þijú þeirra nú til sölu hjá fasteigna- sölunni Ásbyrgi. í viðtalsgrein við þá Ólaf H. Pálsson og Ingi- leif Einarsson, fasteignasala í Ásbyrgi, er fjallað um þessi raðhús og uppbygginguna í Grafarvogi. - Þessi hús eru öll eininga- hús, byggð úr svokölluðum samlokuveggjum, en þeir eru úr steini bæði að utan og innan en með einangrun á milli, segir Ólafur. - Burðarvirkið er að innanverðu, en svo er hlífðar- svunta utan á einangruninni. Loftorka útvegar einingarnar tilbúnar og uppsettar á staðn- um. Ólafur, sem er á meðal reyndustu byggingamanna hér á landi, lítur yfir farinn veg. - Ég tel, að húsagerð íslendinga hafi farið mikið fram, enda eru húsin alltaf að verða vandaðri og vandaðri, segir hann. - Sú uppbygging á þjónustu og félagslegri aðstöðu, sem nú er ýmist lokið eða í gangi í Grafarvogi, er farin að segja til sín í ríkum mæli, segir Ingileif- ur Einarsson. / 18 ► Mun meiri lóðaút- hlutun í Reykjavík í fyrra en 1995 Á SÍÐASTA ári var úthlutað lóðum undir 293 íbúðir í Reykjavík, sem var mun meira en árið þar á undan, en þá var aðeins úthlutað lóðum undir 151 íbúð. Talsvert var um að lóðum væri skilað í fyrra eða alls 91 lóð, en þær lóðir eru ekki inni í framangreindri tölu. Lóðaúthlutanir áttu sér einkum stað í Borgahverfí í Grafarvogi og m. a. komu þá til úthlutunar lóðir við Vættaborgir. I desember var svo út- hlutað lóðum í Gautavík í Víkur- hverfi. Eins og áður var flestum lóð- um úthlutað til fjölbýlishúsa, en næst koma lóðir undir parhús, rað- hús og einbýlishús. Talsverðar sveiflur hafa verið á lóðaúthlutunum hjá borginni milli ára. Á árinu 1993 var úthlutað lóð- um undir 346 íbúðir. Á árinu 1994 voru úthlutanirnar hvað mestar, en þá var úthlutað lóðum undir 661 íbúð, sem er sennilega nærtækasta skýringin á því, hve mjög dró úr lóðaúthlutunum árið eftir. Að sjálfsögðu er erfitt að spá fyrir um lóðaúthlutanir á þessu ári, því að þar ræður bæði framboð og eftir- spurn. Sala á nýjum íbúðum gekk vel á síðasta ári á höfuðborgarsvæð- inu og því er spáð, að aukning verði í íbúðarbyggingum á þessu ári. Það kailar á meiri lóðaúthlutun. I vetur verður úthlutað lóðum í fyrsta áfanga Staðahverfis, sem verður austasta hverfi Reykjavíkur- borgar og verða þær lóðir bygging- arhæfar næsta sumar. Margir telja, að mikil ásókn verði í lóðir í þessu hverfi sökum legu þess. Staðahverfi mun liggja meðfram ströndinni fyrir neðan Korpúlfsstaði með miklu útsýni til sjávar og til fjalla. I Staðahverfi verður jafn- framt einstök útivistaraðstaða, en þar er fyrirhugaður einn sérstæð- asti golfvöllur landsins. Kynntu þér kosti Fasteignalána Fján’angs hjá ráðgjöfum Fjárvangs ísima 5 40 50 60 Dæmi um mánaðarlegar aíborganir af 1.000.000 kr. Fasteignaláni Fjárvangs* \fc\tir (%) 10 ár 15 ár 25 ár 7,0 11.610 8.990 7.070 7,5 11.900 9.270 7.500 8,0 12.100 9.560 7.700 Miðað cr við jafngrciðslulán. *Auk verðbóta FJÁRVANGUR 10GGILT VEROBRÉFAFYBIRTÆKI Laugavegi 170, 105 Reykjavík, sími 540 50 60, símbréf 540 50 61, www.fjarvangur.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.