Morgunblaðið - 21.01.1997, Qupperneq 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ásdís
ÓLAFUR H. Pálsson múrarameistari og Ingileifur Einarsson fast-
eignasali. í baksýn eru raðhúsin, sem Olafur hefur byggt við Star-
engi, en þau eru á einni hæð og um 150 ferm. með bílskúr. Húsin
eru seld fuilfrágengin að utan og með jafnaðri lóð en fokheld að
innan. Asett verð er 8 millj. kr., en húsin eru til sölu hjá Ásbyrgi.
GOTT útsýni er yflr sundin og til Esjunnar. Golfvöllurinn við Korpúlfsstaði verður í næsta nágrenni
og aðeins stutt að fara niður í fjöru.
Jaðarsvæðin hafa
meira aðdráttar-
afl en áður
FJÖLBÝLISHÚSIÐ Meistaravellir 9-13. Þetta hús byggðu þeir Ólaf-
ur H. Pálsson og Indriði Níelsson í kringum 1965. Það var fyrsta
húsið hérlendis, þar sem forsteyptar holplötur voru notaðar í loft.
ÞAÐ má sjá mikinn mun á nýju
hverfunum í Grafarvogi með hveiju
árinu, sem líður. Uppbygging Borga-
hverfis er vel á veg komin og í Víkur-
hverfi var flutt inn í fyrstu húsin í
fyrra. Lengst er uppbyggingin þó
komin í Engjahverfi. Framundan er
lóðaúthlutun í Staðahverfi fyrir neð-
an Korpúlfsstaði, sem verður vafa-
laust mjög eftirsótt vegna legu
sinnar meðfram sjónum.
Að sögn fasteignasala hafa jað-
arsvæðin mun meira aðdráttarafl á
markaðnum en áður. Verð á nýjum
íbúðum hefur lækkað töluvert á und-
anfömum árum og verðmunurinn á
nýjum og notuðum íbúðum er orðinn
það lítill, að fólk leitar frekar í nýjar
íbúðir nema þeir, sem eru tengdir
ákveðnum svæðum.
Ólafur H. Pálsson múrarameistari
er einn þeirra byggingaraðila, sem
haslað hafa sér völl í Engjaverfí.
Við Starengi 94-100 hefur hann
byggt fjögur raðhús. Sjálfur býr
hann í einu þeirra, en hin þrjú eru
til sölu hjá fasteignasölunni Ás-
byrgi. Húsin eru 150 ferm. með bíl-
skúr. Þau eru á einni hæð og hönn-
uð af Halldóri Guðmundssyni arki-
tekt.
Ólafur er vafalítið á meðal reynd-
ustu byggingamanna hér á landi nú.
Hann er fæddur 1926 í Sauðanesi í
Austur-Húnavatnssýslu og alinn þar
upp ásamt ellefu systkinum. Ólafur
lærði múrverk og hóf fljótt að byggja
og selja á höfuðborgarsvæðinu.
— Eg hef samt enn sterkar taug-
ar til sveitarinnar minnar, þó að ég
hafi verið búsettur hér fyrir sunnan
og hestar eru mitt yndi, segir Ólaf-
ur, sem er kunnur hestamaður.
Hesta sína hefur hann í Víðidal og
hirðir þá sjálfur. Ólafur er jafnframt
mikill laxveiðimaður og á hlut í þeirri
fengsælu á, Laxá í Ásum.
Raðhúsin eftirsótt
— Ég réðst í að byggja þessi rað-
hús, af því að ég taldi, að þau hæfðu
markaðnum bezt, enda nýbúinn að
byggja sjö raðhús í Tindaseli, sem
seldust fljótt, heldur Ólafur áfram.
— Þessi hús eru öll einingahús,
byggð úr svokölluðum samloku-
veggjum, en þeir eru úr steini bæði
að utan og innan en með einangrun
á milli. Burðarvirkið er að innan-
verðu en svo er hlífðarsvunta utan
á einangruninni. Loftorka útvegar
einingarnar tilbúnar og uppsettar á
staðnum.
Það munar afar miklu að hafa
hlífðarlag utan á húsunum. Það er
afar varanleg hlíf, sem á að tryggja
mikla endingu og lítið viðhald. Ein-
ingamar eru framleiddar í upphitaðri
verksmiðju óháð veðri og vindum, en
af þeim sökum verður eftirlit með
Mikil uppbygging á sér
stað í nýju hverfunum í
Grafarvogi. Hér ræðir
Magnús Sigurðsson
við Ólaf H. Pálsson
múrarameistara, sem
byggt hefur ^ögur rað-
hús við Starengi og
Ingileif Einarsson, fast-
eignasala í Ásbyrgi, þar
sem húsin eru til sölu.
framleiðslu og efnisgæðum auðveld-
ara. Meðferð steypunnar getur því
vart orðið betri og það á ekki að
vera hætta á frostskemmdum eða
steypusprungum. sem hér hafa verið
svo áberandi í mörgum húsum.
Þessi hús hafa líka reynzt mjög
vel. Ég er búinn að byggja 50-60
hús af þessu tagi og það hafa aldrei
komið fram steypuskemmdir í þeim.
Þessi einingahús hafa líka þann
stóra kost, að hitakostnaður í þeim
er miklu minni en ella vegna betri
einangrunar. Þar sem hún er utan
á, skapast engir kuldaleiðarar.
Húsin eru seld fullfrágengin að
utan og með jafnaðri lóð. Að innan
eru gólfin vélslípuð og útveggir til-
búnir undir sandspörslun eða máln-
ingu. Verð á þessum húsum er 8
millj. kr. og segir Ólafur það hag-
stætt verð miðað við markaðinn nú.
Áhugi á þessum húsum er líka tölu-
verður og kveðst Ólafur álíta sölu-
horfur á þeim góðar. Húsin eru til-
búin til afhendingar nú þegar.
Ólafur víkur næst að umhverfinu
og segir: — Frá húsunum er gott
útsýni yfir sundin, eyjamar og til
Esju og rétt fyrir austan þau verður
golfvöllurinn við Korpúlfsstaði, sem
á að verða einn sá bezti á landinu.
Að auki er aðeins stutt að fara niður
í Qöru og ekki löng leið upp að Úlf-
arsfelli. Það er því stutt í góðar
gönguleiðir og útivistarmöguleikar
eru miklir.
Á löngum ferli sínum sem bygg-
ingarmaður hefur Ólafur upplifað
margar breytingar. — Þegar ég fór
að byggja var að byija að losna um
fjárfestingarleyfln, segir hann. —
Það var á árunum 1953-1954 og
fram að því hafði allt verið háð fjár-
festingarleyfum. Allt í einu var allt
gefið fijálst. Sjálfur fékk ég blokk
í Hlíðunum og tók að byggja af
kappi. Sala á þessum íbúðum gekk
afar vel, því að þá seldust íbúðir að
kalla um leið og byijað var að grafa.
— En tímamir hafa breytzt og
ég tel, að húsagerð íslendinga hafi
farið mikið fram, enda eru húsin
alltaf að verða vandaðri og vand:
aðri, segir Ólafur ennfremur. — í
fyrstu húsunum, sem ég byggði,
þótti ágætt að hafa 11/2-2 tommu
kork eða plast í einangrun og ein-
falt gler. Nú er notuð 4 tommu pla-
steinangrun og engum dytti í huga
að hafa einfalt gler. Margir eru með
þrefalt gler. Þetta eru því ekki sam-
bærileg hús. Það sama á við um
allt tréverk, einkum glugga og ann-
að af því tagi.
Einn af frumkvöðlum
húseininganna
Ólafur var einn af fmmkvöðlum
húseininga hér á landi, en hann
stofnaði Byggingariðjuna árið 1959
ásamt þeim Helga Ámassyni og
Stefáni Ólafsson og var lengi hlut-
hafi í því fyrirtæki. — Við byijuðum
á því að framleiða hluta í verksmiðju-
hús og síðan lofteiningar, segir
hann. — Þessi framleiðsla fór þó
hægt framan af og það var ekki
fyrr en upp úr 1970, að við fórum
að framleiða tilbúin hús.
Markaðurinn tók húseiningunum
vel, þó að byggingamenn hafa ekki
tekið þeim opnum örmum. Að mínu
mati em íslenzkir byggingamenn
þröngsýnir og tregir til þess að taka
upp nýjungar. Ef þeir hafa einu sinni
náð að tileinka sér einhveijar aðferð-
ir, em þeir seinir til þess að breyta til.
Þeir sem nota kerfismótin, halda
fast við þau og enn er til fjöldi bygg-
ingamanna, sem notast við gömlu
uppsláttarmótin og þeir þrífast jafnt
fyrir það. Þetta stafar af því, að
nýjungamar hafa ekki skilað sér sem
skyldi í peningum, enda þótt verð á
nýsmíðinni hafi lækkað á undanförn-
um ámm. En húsin eru betri en áður.
Ólafur átti dijúgan þátt í starf-
semi byggingafyrirtækisins Einham-
ars á áttunda áratugnum, en að því
stóðu fjórtán byggingaraðilar. —
Einhamar byggði á annað hundrað
íbúðir og var stofnaður til mótvægis
við Framkvæmdanefndina, sem
byggði eingöngu félagslegar íbúðir,
segir hann. — íbúðir Einhamars
voru seldar fullbúnar, það er með
gólfefnum og öllu tilheyrandi.
Markaðurinn tók mjög vel við
þessum íbúðum og þær seldust jafn-
óðum og jafnvel fyrirfram. Erfiðleik-
arnir fólust helzt í því, að það vant-
aði mannskap. íbúðirnar voru
byggðar með hefðbundnum upp-
slætti en á sem hagkvæmastan hátt.
Smíði þeirra tók því talsverðan tíma.
Þær vom seldar á föstu verði fram-
an af á sama tíma og verðbólgan
var sem mest á árinum 1970-1980,
en þá var hún jafnvel 70-80% sum
árin.
Ef ekki gekk nógu fljótt að byggja
og afhenda, gat orðið tap, því að
verðbólgan át up söluverðið. Svo
skiptist þetta félag og eftir urðu
fimm byggingaraðilar. Við snemm
okkur þá að einingahúsunum og
byggðum ein 25 slík hús í Kögurseli.
— Mér lízt vel á markaðinn nú,
en frarnboðið er líka mjög mikið,
segir Ólafur ennfremur. — Tækni-
framfarirnar hafa leitt til þess að
hægt er að framleiða hús og íbúðir
á mjög skömmum tíma, þegar vel
er á haldið. Afköstin em orðin það
mikil og það er líka staðið mun bet-
ur að húsbyggingum nú en áður.
Sala að glæðast
í Grafarvogi
— Þessi raðhús Ólafs H. Pálsson-
ar við Starengi em hentug fyrir full-
orðið fólk, sem vill minnka við sig,
segir Ingileifur Einarsson, fast-
eignasali í Ásbyrgi, þar sem raðhús-
in em til sölu. — I þeim eru stórar
stofur, tvö-þijú svefnherbergi og
bílskúr. Þessi raðhús em mun lengra
komin, en oft er um hús, sem seld
eru fokheld. Útveggirnir em tilbúnir
til sandspörslunar og málningar að
innan og gólfín eru ílögð.
í húsin em komnar kraftsperrur,
þannig að hægt er að setja einangr-
unina upp án nokkurs frekar. Það
er því miklu ódýrara það sem eftir
er, heldur en margir gera sér grein
fyrir, þar sem svo miklu er þegar
lokið. Ásett verð, sem er 8 millj.
kr., verður því að teljast mjög hag-
stætt verð.
Ingileifur víkur síðan að nýju
hverfunum í Grafarvogi og segir: —
Sala í þeim er að glæðast. Þannig
hefur gengið mjög vel að selja nýjar
íbúðir við Breiðuvík í Víkurhverfi
að undanförnu.
Lindahverfið í Kópavogi hefur
samt verið hvað eftirsóttast á höf-
uðborgarsvæðinu að undanförnu
vegna legu sinnar, en það þykir
meira miðsvæðis. Af þeim sökum
hefur dregið úr sölu annars staðar
á meðan. Lindahverfið og nýbygg-
ingahverfin í Kópavogsdal fengu
samt vissulega að fínna fyrir sam-
drættinum, þegar hann varð og það
var fyrst á síðasta ári, sem sala jókst
þar til muna.
Sá ljóður er líka á Lindahverfi,
að gatnagerð þar hefur setið á hak-
anum og aðeins einn vegur var inn
í hverfið fyrir ofan hesthús Gusts.
Þetta stendur þó til bóta með fram:
lengingu Fífuhvammsvegar. I
Engjahverfi og Víkurhverfi voru
hins vegar allar götur malbikaðar,
áður en farið var að byggja. Á þessu
er mikill munur.
— Þegar fram í sækir eiga sam-
göngur milli hverfanna í Grafarvogi
og borgarinnar eftir að batna til
muna með svonefndri ósatengingu
yfir Elliðavog, heldur Ingileifur
áfram. — Þegar hún verður tekin í
notkun, verður greið leið úr borginni
upp í Grafarvog og síðan áfram með
frekari vegtengingum upp á Kjalar-
nes og að Hvalafjarðargöngunum.
Þá þarf ekki lengur að fara upp
Ár-túnsbrekku og áleiðis upp í Mos-
fellssveit til þess að komast í Grafar-
vog.
Umferð um Vesturlandsveg verð-
ur miklu minni en nú er og eflaust
á líka eftir að slakna til muna á
umferð um Höfðabrekkubrúna. Af
þessum sökum tel ég, að það hefði
mátt sleppa framkvæmdum við
Höfðabrekkubrú og í Ártúnsbrekku
og ráðast í staðinn strax í vegteng-
ingu yfir Elliðavog, þar sem hún er
áformuð hvort sem er samkvæmt
aðalskipulagi Reykjavíkur.
Meiri félagsleg
aðstaða
— Sú uppbygging á þjónustu og
félagslegri aðstöðu, sem nú er ýmist
lokið eða í gangi í Grafarvogi, er
farin að segja til sín í ríkum mæli,
segir Ingileifur Einarsson fasteigna-
sali að lokum. — Í fyrra var tekinn
þar í notkun nýr glæsilegur fjöl-
brautaskóli. í byggingu er barna-
skóli og framkvæmdir eru hafnar
við_ íþróttahús og sundlaug.
íbúunum fer stöðugt fjölgandi og
í framtíðinni verður þetta mjög fjöl-
menn byggð með afar sjálfstæðu
og aðlaðandi yfirbragði. Að mínu
mati verður þetta eitt bezt skipu-
lagða íbúðarsvæðið í allri Reykja-
vík.