Morgunblaðið - 21.01.1997, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 C 19
Morgunblaðið/Ásdís
Tryggingar
og húsnæði
Markaðurinn
Hugmyndir um skuldatryggingu eru
allrar athygli verðar, segir Grétar J.
Guðmundsson, rekstrarstjóri Húsnæðis-
stofnunar ríkisins. Slíkt fyrirkomulag
leysir þó ekki allan vanda.
Almennt ríkir bjartsýni á fast-
eignamarkaði nú í upphafi
árs. Það á jafnt við um viðskipti
með eldra húsnæði og nýjar íbúðir.
Fasteignasalar segja flestir þá
sögu, að eftirspurn eftir íbúðarhús-
næði sé mikil. Fasteignaviðskipti
voru mikil á síðasta ári, eftir nokk-
ur rýr ár þar á undan, og flest
bendir til að viðskiptin verði lífleg
áfram. Enn sem fyrr á þetta hins
vegar því miður ekki við um alla
staði á landinu. Allt of víða á
smærri stöðum er ekki unnt að
tala um nokkurn fasteignamarkað.
Eflaust eru margar skýringar á
því að fasteignaviðskpti eru al-
mennt lífleg nú. Oftast er vísað til
þess að meiri bjartsýni ríki í þjóðfé-
laginu, en fleira kemur eflaust til.
Húsbréfakerfið hefur öðlast fastan
sess og það hefur jafnframt sannað
sig. Kerfið gengur greiðlega fyrir
sig. Það er auðvelt að fá húsbréfa-
lán ef greiðslugeta er fyrir hendi.
Greiðslubyrði af húsbréfalánum er
tiltölulega lítil. Þetta stuðlar allt
að öryggi á fasteignamarkaði.
Nýjar hugmyndir
Það er alltaf gaman þegar brydd-
að er upp á nýjungum og þegar
djörfum hugmyndum er skellt inn
í almenna umræðu. Það nýjasta
sem til umfjöllunar hefur verið í
fjölmiðlum varðandi húsnæðismál
eru hugsanlegar tryggingar fyrir
afborgunum húsnæðislána og öðr-
um lánum.
Þetta er hugmynd sem öðru
hvetju hefur verið nefnd hér á landi
á undanförnum áratug eða svo.
Hún gengur út á það að íbúðar-
kaupendur og húsbyggjendur
greiði ákveðið iðgjald í sjóð með
afborgunum af lánum sínum. Sá
sjóður, hverju nafni sem hann ann-
ars nefnist, sér um að standa skil
á greiðslum af lánum lántakenda,
ef eitthvað kemur fyrir hjá þeim
sem kemur í veg fyrir að þeir geti
staðið í skilum. Þetta er eins konar
skuldatrygging, sem segja má að
samsvari bifreiðatryggingum,
brunatryggingum, líftryggingum
o.fl. Kveikjan að umræðum um
þessi mál virðist vera þeir miklu
greiðsluerfiðleikar, sem verið hafa
hér á landi á undanfömum árum.
Skuldatryggingar eru ekki alveg
eins einfalt mál og ætla mætti af
lauslegri umfjöllun í fjölmiðlum.
Talað hefur verið um að iðgjöld
þyrftu ekki að vera nema nokkur
hundruð krónur á mánuði, ef um
nægjanlega sterkan bakhjarl væri
að ræða, eins og t.d. sjóði Hús-
næðisstofnunar. Það er gott og
blessað en á móti kemur að flesta
íbúðarkaupendur og húsbyggjend-
ur munar um nokkur hundruð
króna hækkun á greiðslubyrði á
mánuði. Slíku er ekki hægt að
kippa í lag með því að færa ein-
daga húsbréfalána framyfir mán-
aðamót eins og nefnt hefur verið.
Dráttarvextir
Gjalddagi húsbréfalána §r 15.
hvers mánaðar, eða á þriggja mán-
aða fresti. Eindagi lánanna er hins
vegar hálfum mánuði eftir gjald-
daga. Dráttarvextir leggjast því á
greiðslur ef ekki er greitt af lánum
fyrr en á mánaðamótum. Bent hef-
ur verið á að margir lenda í því
að þurfa að fresta greiðslum af
húsbréfalánum framyfir mánaða-
mót og greiða því dráttarvexti,
margir nánast í hvert skipti.
Af þessu tilefni hefur því verið
haldið fram, að með því að færa
eindaga húsbréfalána framyfir
mánaðamót væri unnt að gera fólki
kleift að greiða nokkur hundruð
krónur í tryggingariðgjöld í stað
dráttarvaxta. Þessi röksemda-
færsla er út í hött. Fólk, sem þarf
að fresta greiðslum af húsbréfalán-
um framyfir mánaðamót, þarf þess
ekki vegna þess að það vanti nokk-
ur hundruð krónur, sem það gæti
ella greitt í tryggingariðgjöld.
Ástæðurnar eru allt aðrar. Fólk á
að sjálfsögðu að greiða af lánum á
gjalddaga, hvort sem hann er 1.
eða 15. hvers mánaðar.
Um nokkurt skeið hafa bankar
og sparisjóðir boðið viðskiptavinum
sínum upp á þjónustu sem nefnd
hefur verið greiðsludreifing. Þeir
sem fara í greiðsludreifingu fara
yfir það með fulltrúa síns banka
hve mikið þeir geta notað í fram-
færslu en bankinn sér síðan um
að greiða af lánum og öðrum föst-
um útgjöldum. Ef greiðslur eru
meiri einn mánuðinn en annan,
hleypur bankinn undir bagga með
viðskiptavininum og dreifir greiðsl-
unum. Greiðsludreifing kemur ekki
stað skuldatryggingar en hún er
hins vegar fyrirkomulag sem hent-
ar mörgum og getur reynst vel í
að fyrirbyggja greiðsluerfiðleika.
Aðstoð vegna
greiðsluerfiðleika
Húsnæðisstofnun hefur veitt
íbúðareigendum aðstoð vegna
greiðsluerfiðleika í rúman áratug.
Sú aðstoð samsvarar á vissan hátt
skuldatryggingu þó í öðru formi
sé, því markmiðið er það sama,
þ.e. að aðstoða fólk sem verður
fyrir hremmingum af ýmsu tagi.
Þjóðfélagið stendur undir þessari
aðstoð í raun á svipaðan hátt og
það stendur að almennum trygging-
um. Það eru skattborgarar þessa
lands sem standa straum af þessari
aðstoð, ekki bara lántakendur eins
og hugmyndir eru uppi um með
sérstöku skuldatryggingarkerfí. Það
er rangt, sem haldið hefur verið
fram, að einungis fáir þeirra sem
sótt hafa um aðstoð vegna greiðslu-
erfiðleika hjá Húsnæðisstofnun fái
úrlausn sinna mála því um 70%
umsækjenda hafa fengið fyrirgre-
iðslu í einu eða öðru formi.
Hvað sem öðni líður eru hug-
myndir um skuldatryggingu allrar
athygli verðar. Hins vegar er vert
að fara varlega í sakirnar og halda
sig á jörðinni en fara ekki að gera
ráð fyrir að slíkt fyrirkomulag leysi
allan vanda. Málið er það að hér á
landi hefur líklega verið gert meira
í því að aðstoða fólk vegna greiðslu-
erfíðleika en víðast hvar annars
staðar í nágrannalöndum okkar.
Fullyrða má að þær aðgerðir, sem
gripið hefur verið til í því skyni að
aðstoða fólk í greiðsluerfiðleikum,
ásamt húsbréfakerfinu, hafi átt
sinn þátt í að viðhalda stöðugleika
á húsnæðismarkaði.
Hús með verð-
launagarði
í Mosfellsbæ
HJÁ fasteignamiðluninni Bergi er
til sölu húseignina Markholt 7 í
Mosfellsbæ. Þetta er 210 ferm. hús
ásamt 60 ferm. sambyggðum bíl-
skúr. Nýrri hluti hússins er byggður
1980 en sá eldri 1960. Eigninni
fylgir lítið gróðurhús.
„Þetta er hús í mjög góðu
ástandi," sagði Sæberg Þórðarson
hjá Bergi. „Það skiptist í fimm
svefnherbergi, stóra stofu og borð-
stofu. Húsið stendur í miðbæ Mos-
fellsbæjar. Mjög fallegur garður er
í kringum það og hefur hann feng-
ið verðlaun. Ásett verð er 14,5 millj.
kr. og möguleiki á að taka upp í
kaupverðið minni eign.“
„Markaðurinn fyrir fasteignir í
Mosfellsbæ hefur verið mjög góður
og mikil ásókn í eignir þar og þá
sérstaklega í sérbýli, bæði einbýli
og raðhús,“ sagði Sæberg ennfrem-
ur. „Verð á eignum í Mosfellsbæ
hefur ekki lækkað nema síður sé
og markaðurinn hefur verið mjög
stöðugur síðastliðið ár en ekki
sveiflukenndur eins og var áður.
Ég er því bjartsýnn á þetta ný-
byijaða ár. Ég tel að það verði
aukning í sölu en hvort verðið
hækkar á eftir að sjást,“ sagði
Sæberg að lokum.
FASTEIGN ER FRAMTID
FASTEIGNA
Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík,
fax 568 7072
SIMI 568 77 68
MIÐLUN
Sverrir Kristjánsson j£Z
lögg. fasteignasali II
Þór Þorgeirsson, sölum. Kristín Benediktsdóttir, ritari,
Kristjana Lind, riari
Stærri eignir
ÁRTÚNSHOLT 200 fm~ einbýlis-
hús sem hæð og ris ásamt 32 frrf bíl-
skúr á fallegum útsýnisstað. Húsið er
m.a. rúmgóöar stofur, 5 svefnherb.,
flísalagt baö. Parket. Áhv. 4,6 m.
húsbréf. Verð: 16,3 m.
ÁLFASKEIÐ-HF. EINKAS., 134
fm raöhús á einni hæö ásamt 30 fm
bílskúr. Húsiö er m.a. tvær stofur, 4
svefnh., nýlegt eldhús. ofl. Parket á
gólfum. Nýtt þak og gler, hús nýviö-
gert aö utan. Verð: 12,9 m.
Verð 10-12 millj.
VÍÐIMELUR 5 herbergja 127 fm
íbúö á 1. hæð í þríbýlishúsi. íbúðin
er m.a. tvær rúmgóöar stofur, 3
herb., mjög rúmgott eldhús meö
nýlegri innréttingu, sjónvarpshol.
Parket. Suöursvalir. Áhv. 4,4 m.
húsbréf og byggsj. Verö: 10,6 m.
DIGRANESVEGUR-SÉRHÆÐ
140 fm neöri sérhæö ásamt 27 fm
bílskúr. Mikið útsýni. Hæöin er teikn-
uö af Kjartani Sveinssyni og er 3-4.
svefnherbergi, stórar stofur ofl. Verð
10,1 millj. Góö eign. Laus fljótt.
ÞINGHÓLSBRAUT-KÓP. Mjög
góö 152 fm efri sérhæö ásamt 27 fm
bílskúr. í íbúöinni eru m.a. 4 herb.
stór stofa, nýlegt eldhús. Mikiö út-
sýni. Áhv. 2,4 m. byggsj. V: 10,9 m.
Verð 8-10 millj.
FROSTAFOLD-GÓÐ LÁN 4ra
herbergja íbúö á 5. hæð í lyftuhúsi.
íbúöin er m.a. falleg stofa meö suð-
ursvölum, 3 herb., flísalagt baö, fal-
legt eldhús. Þvottaherb. í íbúö. Áhv.
5,2 m. byggsj. Verð: 8,5 m.
TJARNARSTÍGUR-1 SÉR-
HÆÐ+BÍLSKÚR Vel skipulögð
104 fm~ neðri sérhæö, forst, gangur
þrjú svefnh, st. saml. stofur, eldh.
og baö. 32 fm jeppabílskúr. Skipti á
3ja herb. koma til greina. Áhv. 5,3
m. húsbr.+byggsj. V: 9,9 m.
FLUÐASEL-LAUS Falleg og
björt 103 fm 5 herb. endaíbúð á 1.
hæð. íbúðin er í mjög góöu ástandi.
Rúmgóð stofa, fjögur svefnh. fallegt
eldhús og baö. Yfirb. svalir. Mikið út-
sýni. Bílskýli.
Verð 6-8 millj.
KARSN ESBR AUT-LAUS-
ÚTSÝNI Góö 2ja til 3ja herbergja
íbúð á 1. hæö í fjórbýlishúsi ásamt
20 fm bílskúr. íbúöin er m.a. tvær
stofur með miklu útsýni. Rúmgóöar
svalir í suöur og vestur. Þvottahús í
íbúö. Verö: 6,3 m.
HÁTEIGSVEGUR-SKIPTI Á
DÝRARI 3ja herbergja íbúö á 1. hæð
ásamt aukaherbergi í kjallara. íbúðin er
tvær stofur, svefnherbergl, gott eldhús
og baðherbengi. Verð: 6,5 m.
HRAUNBÆR-FRÁBÆRT
VERÐ 4ra herbergja 105 fm íbúö á
3. hæö ásamt aukaherbergi í kjallara.
íbúöin er m.a. stofa, þrjú svefnher-
bergi. Tvennar svalir. Verö: 6,9 m.
VÍKURÁS-BÍLSKÝLI 4ra her-
bergja íbúð á 4. hæð ásamt stæöi í
bílskýli. Stofa meö vestursvölum út
.af, 3 sv.herb. Parket. Áhv. 1,7 m.
veðdeild. Verö: 6,9 m.
TJARNARBÓL-SELTJ.-LÁN
3ja herb. 73 fm íbúð á 1. hæö í
fjölb. Stofa með parketi, flísalagt
bað, suðursvalir. Áhv. 3.4 m. bygg-
sj. V: 6.3 m.
Verð 2-6 millj.
REYKÁS Rúmgóö 2ja herbergja
ca. 70 fm íbúö á 1. hæö í litlu fjöl-
býlishúsi. íbúðin er m.a. flísalögð
stofa með suöaustursvölum út af
og góðu útsýni, nýlegt baö og eld-
hús. Þvottahús í íbúð. Áhv. 1,9 m.
Verö: 5,9 m.
VESTURBÆR-GÓÐ LÁN-
LAUS 2ja herbergja íbúð á 4. hæö í
nýlegu húsi í vesturbænum. íbúöin er
m.a. stofa meö rúmgóðum suö-
ursvölum út af, fallegt baö og eldhús.
Áhv. 3,4 m. byggsj. Verö: 5.450 þ(3.
SÓLVALLAGATA 3ja herbergja
íbúö á 3. hæö á þessum vinsæla stað
í vesturbænum. íbúðin er m.a. góö
stofa, tvö herbergi, eldhús og baö.
Áhv. 3,0 m. húsbréf. Verð: 5,1 m.
KEILUGRANDI Rúmgóð 2ja
herbergja 67 fm íbúð á jaröhæð.
íbúðin er stofa með útgangi í suö-
urgarö, hjónaherb., gott eldhús og
bað. Parket, flísar. Áhv. 1,1 m.
byggsj. Verö: 5,9 m.
ENGIHJALLI-LAUS Rúmgóö ca.
90 fm 3ja herb. endaíb á efstu hæö
(8.h.) í fjölb. íbúöin er stofa ofl. stórar
suðursvalir. Mikið útsýni, Verö: 5,75
m. Þú getur flutt inn strax.
NYBYLAVEGUR 2ja herbergja
53 fm íbúö á 1. hæö ásamt inn-
byggðum 28 fm bílskúr á jarðhæð.
íbúöin er m.a. stofa meö parketi,
herbergi með suðursvölum út af,
flísalagt baö. Verð: 5,8 m.
VINDÁS-SELÁS-SKIPTI Á
BIFR. 2ja herbergja Ibúð á 4. hæð I
fjölbýlishúsi. Húsiö er nýklætt aö ut-
an. Skipti möguleg á bifreiö. Áhv. 2,9
m. veödeild og húsbréf. Verö: 4,9 m.
Nýbyggingar
MOSARIMI-RAÐHUS 132 fm
mjög fallegt raöhús á einni hæö
ásamt 25 fm bílskúr. Húsið er teiknaö
af Kjartani Sv. Húsiö er tilbúið til afh. í
dag, fullbúiö aö utan og tilbúiö til inn-
réttingar aö innan. Áhv. 5,3 m. hús-
bréf. Verö: 10,5 m.
Atvinnutækifæri
HÓTEL EYJAFERÐIR Til sölu er Hótel Eyjaferöir ( Stykkishólmi sem í
eru 14 gistiherbergi, flest meö baði. Hóteliö er á einum vinsælasta feröa-
mannastað landsins og er mikiö bókað fyrir næsta sumar. Öll viöskiptasam-
bönd fylgja meö í sölu, auk þess sem Eyjaferðir bjóða kaupanda sérsamn-
inga í siglingum sínum, en fyrirtækiö hefur stóraukiö skipakost sinn nýlega.
Lóð gistihússins býöur upp á mikla stækkunarmöguleika. Nýlega hefur fund-
ist mikiö magn af heitu vatni viö Stykkishólm, sem á eftir aö auka vinsældir
staðarins til mikilla muna í framtíðinni. Upplýsingar gefur Sverrir Kristjánsson.