Morgunblaðið - 21.01.1997, Side 20
20 C ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ií Símar 551-9540 & 551-9191 - fax 551-8585 f
EIGNASALAN
INGÓLFSSTRÆT112-101 REYKJAVÍK.
Yfir 35 ára reynsla tryggir öryggi þjónustunnar.
Magnús Einarsson, löggiitur fasteignasali.
Sölum. Svavar Jónss., hs. 553-3363, og Eggert Elíass., hs. 557-7789.
SAMTENGD
SÖSKRÁ a
ÁSBYRGi ^
Opið á iaugardögum
frákl. 11-14.
Einbýli/raðhús
ÖLDUGATA 16
Þetta virðulega eldra stelnhús, sem er
staðsett á góðum stað í gamla vesturb.
er tll sölu. í húsinu eru 2 íbúðir auk
rúmg. bllskúrs. Tíl afh. strax. Við sýnum
eignina.
BRÖNDUKVÍSL M. TVÖF.
BÍLSKÚR
Glæsil. 320 fm einbhús á frábærum út-
sýnisstað. Tvöf. bílskúr fylgir. Frág.
ræktuð lóð. Sala eða skipti á minni eign.
Góð eign á eftirsóttum stað.
FOSSVOGUR - ENDARAÐ-
HÚS
Tæpi. 200 fm endaraðh. á góðum stað
v. Brúnaland. 4 svefnherb. m.m. Vel
staðsett hús. Bílskúr fylgir.
MELBÆR - RAÐHÚS
Mjög gott 268 fm raðhús á góðum stað.
I húsinu eru 6 svefnherb. og stofur m.m.
Innb. bílskúr. Húsið er allt í góðu
ástandi. Falleg ræktuð lóð. Bein sala
eða skipti á góðri 110-120 fm hæð.
4-6 herbergja
HLÍÐAR - HÆÐ OG RIS
Efri hæð og ris við Barmahlíð. Á hæðinni
eru rúmg. stofur, 2 svefnherb., eldh. og
bað. í risi eru 2 herb. og sjónvhol. Auka-
herb. í kj. Sérinng. Stór bílskúr.
í MIÐBORGINNI
Rúmg. og skemmtil. I40 fm „penthou-
se”-lb. í nýlegu húsi neðarl. við Skóla-
vöröustig. Til afh. strax rúml. tilb. u. trév.
m. frág sameign. Sérl. gott útsýni.
ÞINGHOLTIN
Glæsil. nýendurb. 4ra herb. íbúðarhæð i
steinh. Glæsil. útsýni. Góðar suðursv.
Allt nýtt f hólf og gólf. Til afh. strax. Við
sýnum.
í VESTURBORGINNI
Góð 3-4ra herb. íbúð á 2. hæð i
skemmtil. fjölbýlishúsi. (búðin skiptist í
stofur og tvö rúmg. svefnherb. Sérhiti.
Bein saia eða skipti á minni íbúð.
3ja herbergja
MÁVAHLÍÐ - LAUS
3ja herb. tæpl. 90 fm kjíb. í fjórbhúsi á
góðum stað. íbúðin er öll í mjög góðu
ástandi. Stór stofa og 2 svefnherb.
m.m. Sérinng. Til afh. strax.
KEILUGRANDI - LAUS
Mjög góð 3ja herb. íb. (fjölbhúsi. Parket
á öllum gólfum. Tvennar svalir. Mikið út-
sýni. Bílskýli. Til afh. strax.
LEIRUBAKKI - LAUS
3ja herb. íbúð í fjölb. á góðum stað. Ib.
fylgir herb. í kj. Sérþvhús innaf eldh. Til
afh. strax. Hagst. verð 5,9 millj.
HRÍSRIMI - M. BILSKÝLI
Sérl. glæsileg og vönduð 3-4ra herb. íb.
í nýl. fjölb. Sérsmíðaðar innróttingar.
Gegnheilt merbau parket á gólfum.
Stæði i bilskýli fylgir. Til afh. fljótlega.
2ja herbergja
ÓDÝR EINSTAKL. IBÚÐ
Kj. íbúð við Barónsstíg. Sérhiti. Laus
fljótlega. V. 1,9 millj.
JÖKLASEL
Tæpl. 80 fm góð ibúð á 1. hæð í fjölb-
húsi. Sérþvherb. i íbúðinni. Mjög góð
sameign. Væg útb., aðeins um 1,5 millj.
ÁSGARÐUR-LAUS
2ja herb. mjög góð tæpl. 60 fm ibúð f
nýlegu húsi. Parket á öllum gólfum.
Stórar suðursvalir. Gott útsýni. Sérinng.
Áhv. hagst. langtimalán frá veðdeild 3,6
millj. Til afh. strax. Við sýnum.
Atvinnuhúsnæði
STRANDGATA HF.
220 fm atvinnuhúsnæði á 2. hæð í góðu
eldra steinh. (Drafnarhúsið) Hægt að
stúka niður í nokkur herb. Til afh. strax.
Traustum aöila boðin góð greiðslukjör.
BÍLDSHÖFÐI - VERZL.
LAGERHÚSN.
150 fm verzl. og lagerhúsnasði við
Bíldshöfða. Allt í mjög góðu ástandi.
Eignarhaldsfélagið Kringlan 4-6 ehf.
auglýsir neðangreindar eignir til sölu:
Smárarimi 104 Reykjavík
Einbýlishús á einni hæð 156 fm auk 24 fm
bílsk. á mjög góðum stað. Húsið er hraun-
að að utan, fokhelt að innan, áhv. húsbréf
kr. 6.281.000,-. Til afh. strax. Verð 8.950
þús. (348).
Hlaðbrekka 1 Kópavogi -
Nýtt þríbýlishús í grónu
hverfi á besta stað
Þrjár íbúðir, allar með sérinng. Húsið er tii-
búið að utan til málningar, ibúðir tilbúnar
undir tréverk. Á 1. hæð er um 111 fm
íbúð. Á 2. hæð eru tvaer íbúðir tilbúnar
undir tréverk. Áhv. húsbréf á hverri ibúð
um kr. 5,5 millj. Tveir bílskúrar. Verð frá
7,8 millj. til 8,5 millj. með bílskúr. (442).
Fjallalind 36 Kópavogi
Um 123 fm fokhelt endaraðhús á einni
hæð auk bflskúrs. Húsið er hraunað að ut-
an, fokhelt að innan. Áhv. húsbr. kr.
3.990.000. Verð kr. 7.950.000,-. (434).
Lyngás 10 A Garðabæ,
iðnaðarhúsnæði. Einstakt
verð
Um er að ræða þrjá eignarhluta og er
hver þeirra 101 fm og tvo eignarhluta og
er hvor 189 fm eða samtals um 696 fm. Á
hverri einingu eru stórar innkeyrsluhurðir.
Eignirnar seljast ( núverandi ástandi þ.e.
tilbúnar að utan, en fokheldar að innan.
Möguleiki er að selja einstaka eignarhluti
eða eignina f einu lagi. Sameiginlegt
bílaplan. Seljandi lánar til allt að 15 ára.
Einstakt tækifæri til þess að eignast bjart
og gott húsnæði. Verð kr. 35.000.- pr. fm.
Til afh. strax. (1009).
Sumarbústaður
Nýlegur um 50 fm bústaður á eignariandi
i landi Reynifells í Hvolhreppi. Til greina
kemur að selja bústaðinn til flutnings.
Seljandi lánar allt að helming söluverðs til
10 ára gegn veði í fasteign á höfuðborg-
arsvæðinu.
Allar nánari upplýsingar veitir:
EIGNABORG
Fasteignasala
Hamraborg 12, Kópavogi.
Sími 564-1500. Fax 554-2030.
Borgarstjóri,
taktu fram
kústinn
Lagnafréttir
Lagnaefni sem uppfyllir öll skilyrði í
Hafnarfírði, er stimplað óhæft í Reykjavík,
segir Sigurður Grétar Guðmundsson,
og spyr: hvað er að gerast?
að gerðist í Hlíðunum nýlega
að hitakerfið „hrundi“ og aug-
Ijóst var að ekki var um annað að
ræða en leggja nýtt kerfi. Eins og
alltaf í slíkum tilfellum lá mikið á,
ekki hægt að hafa íbúðina hitalausa
til langframa. Pípulagningameistari
brást hratt og vel við, nýtt kerfi
var lagt utan á liggjandí, gamla
kerfinu „gleymt“ og tærð og léleg
rörin látin liggja á sínum stað eng-
um til skaða.
Aftur var kominn ylur á alla ofna
og ætla mætti að allir væru ánægð-
ir. En svo er margt sinnið sem
skinnið og við eigendaskipti á íbúð-
inni skömmu seinna fór að bera á
reimleikum, þó að ekki sé átt þar
við gamaldags drauga samvæmt
þjóðtrúnni, svo sem Þorgeirsbola
og Miklabæjar-Solveigu. Hinn nýi
eigandi fór að kanna hvaða gögn
væru fyrirliggjandi hjá byggingar-
fulltrúanum í Reykjavík um nýju
lögnina. Þar reyndist engin teikning
vera finnanleg og þaraf leiðandi
engin úttekt gerð af þar til ráðnum
embættismönnum, en að vísu var
lögnin öllum sýnileg og með öllu
óhulin.
Rétt er að skýra frá því að hús-
eigandinn og pípulagningameistar-
inn höfðu valið þunnveggja stálrör,
nælonhúðuð, hvít að lit með króm-
uðum tengjum frá Wirsbo-verk-
smiðjunum í Svíþjóð, lagnaefni sem
hefur verið notað þar og víða um
lönd, þar með talið Island, um ára-
bil.
Ábúðarmikið bréf
Skemmst er frá þvi að segja að
seljandi íbúðarinnar fékk ábúð-
armikið bréf frá embætti bygging-
arfulltrúans í Reykjavík. Var þar
ekkert jákvætt að finna, engin
teikning lögð inn hjá embættinu,
engin úttekt gerð af embættis-
mönnum, og það sem alvarlegast
var, þessi „mjúku“ rör sem notuð
hefðu verið í lögnina upfylltu ekki
kröfur og voru þar með óleyfileg í
hitalagnir hérlendis.
í hjarta Hafnarfjarðar er reisu-
legt hús, reist af fengsælum skip-
stjóra fyrir um sjötíu árum. Þetta
hús hefur verið félagsheimili
merkra félagssamtaka undanfarna
áratugi og á árinu 1994 ákváðu
þau að leggja nýja hitalögn í hús-
ið, þar sem þar var bein rafhitun
sem aldrei hafði verið ánægja með.
Samið var við pípulagningameist-
ara um verkið og hann fenginn til
ráðuneytis um að velja snyrtilegt
lagnaefni sem ekki yrði til lýta á
innréttingu hússins en uppfyllti
samt gæðakröfur. Er ekki að orð-
lengja það að valið var efnið frá
Wirsbo, sama efnið og var lagt í
íbúðina í Hlíðunum og þar dæmt
óhæft með öllu.
Sagan varð öðruvísi í Hafnar-
firði, húseigandi var að verki loknu
ánægður með útkomuna og útlitið
og það sem meira var, byggingar-
fulltrúinn í Hafnarfirði stimplaði
allar teikningar, tók út verkið og
gaf vottorð þar að lútandi án nokk-
urra athugasemda. Því má bæta
við söguna úr Hafnarfirði að pípu-
lagningameistarinn sem verkið
vann fékk fyrir það viðurkenningu
Lagnafélags íslands og getur í kom-
andi elli yljað sér við að horfa á
viðurkenningaskjöldinn hangandi á
vegg, a.m.k. svo lengi sem sjónin
endist.
Hvað er að gerast?
Það er spumingin sem brennur
á lagnamönnum á höfuðborgar-
svæðinu, hvað er að gerast?
Efni sem byggingaryfirvöld í
Hafnarfirði telja gott val og vand-
aða vöru, sem uppfylli öll skilyrði
til að nota þar í bæ, er stimplað
óhæft með öllu í Reykjavík.
Hér er komið að stóru vanda-
máli sem hefur kraumað undir niðri
árum saman en enginn viljað eða
þorað að taka á eða minnast á opin-
berlega. Það er rífandi gangur í
þróun lagnamála hvarvetna í Vest-
ur-Evrópu og raunar hvarvetna i
iðnþróuðum ríkjum, ekki síst í
Skandinavíu og einnig á íslandi.
Nýjum lagnakerfum er tekið fagn-
andi, ekki síður nýjum lagnaefnum
og þar er plastið í forystu.
Einn staður sker sig þó úr, höf-
uðborg íslands, Reykjavík. Þar eru
flestar nýjungar í lagnamálum
dauðadæmdar og sem dæmi má
nefna að strax fýrir sunnan Foss-
vogslæk eru viðhorfin allt önnur.
I öllum sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu er farið að leggja
hitakerfi og neysluvatnskerfi úr
pexplasti, rör-í-rör kerfið sem
talsvert hefur verið kynnt hér í
þessum pistlum. Wirsbo-lagnakerf-
ið hefur þar verið boðið velkomið
og fyrsta Mannesmann-kerfið var
lagt í Kópavogi fyrir 26 árum.
Reynslutíminn ekki
nógu Iangur?
Samt hafnaði byggingarfulltrú-
inn í Reykjavík Mannesmann-kerf-
inu fyrir stuttu, líklega af því
reynslutíminn hérlendis væri ekki
nógu langur, eða hvað? Það er ein-
mitt vegna þvergirðingsháttar
þessa embættisins sem upp koma
dæmi um að pípulagningmeistarar
hafa ekki lagt inn teikningar eða
látið taka út endurlagnaverk, þeir
hafa vitað sem var að það þýddi
ekkert að leggja inn teikningar
nema þar kæmi fram að leggja
ætti úr snittuðum, skrúfuðum rör-
um sem sannarlega eru ekki augna-
yndi til utaná liggjandi lagna eða
úr eirrörum sem vitað hefur verið
árum saman að er einmitt það efni
sem ekki á að nota á svæði Hita-
veitu Reykjavíkur.
Bilanir ber oft brátt að, það verð-
ur að taka ákvarðanir fljótt og fram-
kvæma fljótt. Undir þessum kring-
umstæðum hafa pípulagningameist-
arar fullan rétt til að ganga fram
hjá embættismönnum, sem halda að
þeir séu þýðingarmeiri en efni
standa til og hika ekki við að banna
skynsamlegustu lausnir.
Það heitir neyðarréttur.
Byggingarfulltrúaembættið í
Reykjavík telur sig finna stoð í
byggingareglugerð fyrir öllum sín-
um þvergirðingslegu ákvörðunum í
lagnamálum en á þeim bæ væri
mönnum hollara að kíkja á gr. 8.
1. 11. í VIII. kafla, bls.129 í bygg-
ingareglugerð, útgefinni 6. maí
1992, en þar stendur:
„Leiðslur og lagnir skulu þannig
hannaðar og fyrirkomið að ekki
komi til ónauðsynlegrar orkueyðslu,
en samt sé aðgangur til hreinsunar
og viðgerða án þess að bijóta þurfi
gólf eða veggi“.
Má ekki fullyrða að í flestum til-
fellum, sem teikning húsalagna
hefur verið samþykkt, hafi niðurlag
þessarar greinar byggingareglu-
gerðar verið brotið? Það verður
ekki undan því vikist að æðsta
stjórn Reykjavíkur taki á þessu
máli og hér með er skorað á borgar-
stjóra að taka fram kústinn, fara
inn í Borgartún og sópa burt
feysknum stofnum, þar innandyra
verður, þrátt fyrir það, nægilega
margir stofnar sem veigur er í.