Morgunblaðið - 21.01.1997, Page 28
28 C ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
-!!V-
SKRÁÐU EIGNINA HJÁ HÓLI NÚNA!
ÞAR SEM FASTEIGNIRNAR FUÚGA ÚT
‘Barfy elálu’iida
GÓÐAR ÁSTÆDUR
HVERS VEGNA ÞU ÁTT ERINDI
VH> HÓL HAFNARFIRÐI!
Skipholti 50b -105 - Reykjavík Reykjavíkurvegi 60 - 220 Hafnarfirði
S. 55 100 90 - Fax 562-9091 S. 565-5522 - Fax 565-4744
eða Hafnarfirði og tekur
þátt í laufléttum leik.
Þú lætur skrá eignina þína
hjá okkur. Um leið ferð
þú sjálfkrafa í drauma-
pottinn, þar sem dregin
verður út um páskana
glæsileg helgarferð fyrir 2
til Parísar
Já fasteignirnar
sannarlega fljúga út hjá
Hóli.
Hjá okkur er eitt fuilkomnasta töluukerfi landsins sem
býður upp á ótrúlega möguleika við að sýna eignir og leita að
réttu eigninni fyrir pig.
Hóil er kraftmikil fasteignasala og við leggjum alft í
sölurnar tif að pjóna þínum hagsmunum. Traustir og ábyrgir
1 sem hafa áralanga reynshi í söhi fasteigna.
Þegar þú skráir eign hjá okkur færð pú skráningu á tveimur
stöðum p.e. í Rvk. og Hafnarf. ....
tfOlL
Óvenjulegur stóll
ÞESSI stóll er mjög sérkennilegur í útliti, en hann leynir á sér. Hægt
er að spenna bakið á honum upp svo að hann verður fyrirtaks hvíla
og hann þolir vatn og alls kyns hnjask. Hann er framleiddur í Þýska-
landi og heitir Splatt.
Glasgow verður
borg hönnunarog
arkitektúrs 1999
„YFIRVÖLD í Glasgow hafa kom-
ið auga á að hugvit og hönnun eru
grundvöllur áframhaldandi verð-
mætasköpunar og í því liggur
framtíðin. Þess vegna á að leggja
áherslu á að skapa ný störf á þess-
um sviðum fremur en að ýta undir
stóriðju og hefur Glasgow verið
tilnefnd hönnunar- og arkitekta-
borg Bretlands árið 1999,“ segir
Dennis Jóhannesson, íslenzkur
arkitekt, sem var nýlega á ferð í
Glasgow og kynnti sér undirbúning
þessa átaks.
Dennis nam arkitektúr við
Strathclyde-háskóla og var meðal
20 fyrrum nemenda skólans sem
beðnir voru að koma með verk á
sýningu nú fyrir áramótin sem
haldin var til að minnast 200 ára
afmælis skólans sem er elsti tækni-
háskóli Bretlands.
Sýningin var einn af mörgum
viðburðum þar sem minnst var
þessara tímamóta og stóð hún síð-
ustu tvær vikur desembermánaðar.
„Þeir höfðu frétt af tölvuborði sem
ég hannaði og sýnt var í Design
Museum í London fyrir nokkrum
árum og sýndi ég það ásamt öðrum
húsgögnum sem ég hef hannað,"
segir Dennis aðspurður um sýning-
una.
„Við vorum einir 20 fyrrverandi
nemendur sem fengnir voru til að
sýna ýmis verk svo byggingar,
skipulag, innréttingar og alls konar
hönnun. Glasgow stendur á göml-
um merg sem iðnaðarborg og við
þennan háskóla hafa ýmsir þekktir
menn stundað nám, meðal annars
James Watts sem fann upp gufu-
vélina.“
Hverfa frá þungaiðnaði
Dennis segir að yfirvöld í
Glasgow stefni að því að hverfa
sem mest frá þungaiðnaði, eins og
skipasmíðum og öðru slíku sem
hafi verið á undanhaldi síðustu
áratugina og að léttum hátækni-
iðnaði og hafi þessi þróun raunar
hafist fyrir allmörgum árum og sé
þegar orðin gjörbreyting á borg-
inni.
„En með þessu sérstaka átaki á
að stíga ákveðnari skref og er til-
gangurinn sá að efla vitund al-
mennings og skilning á nauðsyn
hönnunar og arkitektúrs, skapa
ný störf á þessum sviðum og gera
Glasgow og nágrenni hennar að-
laðandi. Er þá ekki síst verið að
horfa til ferðaþjónustunnar og
aukinna möguleika hennar, segir
Dennis ennfremur."
í tengslum við átakið Glasgow,
borg arkitektúrs og hönnunar í
Bretlandi 1999 hefur verið
stofnaður þróunarsjóður upp á sjö
milljónir punda sem ýta á undir
nýsköpun í hönnun á öllum sviðum,
koma á alþjóðlegri samkeppni um
teikningu á nýbyggingum við lista-
háskólann í Glasgow, koma upp
nútíma listiðnaðar- og listasafni,
skapa 400 ný störf fyrir hönnuði
í fyrirtækjum í hönnun, virkja um
10 þúsund nemendur í þúsund
skólum á Strathclyde svæðinu og
opna „Vitann", miðstöð arkitekt-
úrs og hönnunar í miðri borginni
og margt fleira. Verður boðið upp
á heilsárs hátíð, nokkurs konar lif-
andi heimssýningu þar sem öll
borgin verður eitt sýningarsvæði.
„Skotar horfa í auknum mæli
til Evrópu, miklu meira en Eng-
lendingar og fengu þeir styrk frá
Evrópusambandinu til að koma
þessu átaki af stað,“ segir Dennis.
„Þeir ætla sér mjög ákveðið að
vinna að nýsköpun í hvers konar
hönnun og með átakinu ætla þeir
að breyta Glasgow og atvinnulífi
DENNIS Jóhannesson arkitekt hannaði þetta tölvuborð, sem sýnt
var á afmælissýningu Strathclyde-háskóla í Glasgow.
hennar með góðri
hönnun og gera borg-
ina að miðstöð hönn-
unar í Bretlandi. Þeir
taka umhverfis- og
skipulagsmál með til
þess að auka veg
ferðaþjónustunnar og
í þessum undirbúningi
hafa þeir gert sér
grein fyrir því að það
verða mjög margir
aðilar að koma að
þessum málum. Þar
má nefna félög arki-
tekta og listamanna,
nefndir og ráð borgar-
innar og nágranna-
byggða sem fara með
þróunar- og skipulags-
mál og fulltrúa arki-
tekta- og listaskóla
svo nokkuð sé nefnt.“
Nýr
hugsunarháttur
Dennis segir að
grunnurinn að átaki
sem þessu sé í raun
nýr hugsunarháttur
hvað varðar umhverf-
is- og skipulagsmál:
„Nú er farið að ganga
út frá því að allir eigi
rétt á vandaðri hönnun
og upplýsingum um
gildi hennar og að-
gang að ákvarðana-
töku um hönnun og
skipulag. Þarna er
arkitektúr settur í svo-
lítið annað og víðara
samhengi en verið hef-
ur. Það mætti í fram-
haldi af þessu spyrja
hvað yfirvöld Reykja-
víkur hyggjast fyrir
með borgina sem
menningarborg Evr-
ópu árið 2000, verða
arkitektúr og hönnun
meðal dagskrárat-
riða?“
TURN sem reisa á sem
minnismerki um alda-
mótin hefur þegar ver-
ið teiknaður og var það
Richard Horden arki-
tekt sem vann sam-
keppni um hann. Turn-
inn verður tákn um þá
áherslu sem Glasgow
ætlar að leggja á arki-
tektúr og hönnun á
nýrri öld.