Morgunblaðið - 04.02.1997, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
11
'iif
§fc
6h
prguttMMtfö
B
1997
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR
BLAD
HANDKNATTLEIKUR
Rögnvald og Stefán í verkfall
Dómararnir Rögnvald Erlings-
son og Stefán Arnaldsson
hafa tilkynnt dómaranefnd HSÍ að
þeir taki ekki við boðunum á leiki
fyrr en búið sé að ganga frá pen:
ingamálum milli þeirra og HSÍ. í
handknattleiknum háttar svo til að
viðkomandi samband greiðir dóm-
urum dagpeninga þegar þeir dæma
erlendis og þeir félagar hafa verið
mikið á ferðinni undanfarin ár, en
ekki hefur enn verið gert upp við þá.
Rögnvald sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að keppnis-
tímabilið 1994 til 1995 hafi þeir
félagar verið 44 vinnudaga erlendis
við að dæma og HSÍ hafi gefið
dagpeninga þeirra upp sem laun.
„Þetta var einhver handvömm og
náðist ekki að leiðrétta það þannig
að við greiddum skatt af þessu, en
höfum séð afskaplega lítið af pen-
ingunum. Fyrir ári fengum við
raunar hluta af þessu en ekkert
síðan og keppnistímabilið á eftir
vorum við erlendis í 32 virka daga,
en ég hef ekki einu sinni sent dag-
peningaskýrskur fyrir það tímabil
og þetta sem nú stendur yfir,“ sagði
Rögnvald.
Hann sagði að þeir félagar væru
orðnir langþreyttir því það væri
alltaf verið að nefna einhvetja daga,
en síðan kæmi aldrei greiðsla. „Við
höfum ekki gengið manna harðast
fram í að rukka enda vissum við
að fjárhagsstaðan væri erfið eftir
HM. Það hefur hins vegar liðkast
um hjá HSÍ og því viljum við sjá
eitthvað af því sem við erum þegar
búnir að greiða skatt af. Ég veit
að við erum ekki efstir á forgangs-
listanum, en við erum ósáttir við
að dagpeningarnir hafi verið settir
á okkur sem laun og við þurft að
greiða skatt af því. Við viljum fara
að sjá þá peninga," sagði Rögnvald.
Gunnar Kjartansson, formaður
dómaranefndar HSÍ, sagði í gær-
kvöldi að nokkrir dómarar ættu
óuppgerð laun og dagpeninga frá
fyrri árum og biðlund þeirra væri
því miður á þrotum. „Auðvitað er
það slæmt að missa besta dómara-
par okkar í frí. Það eru fleiri milli-
ríkjadómarar sem ekki hefur verið
gert upp við enn og þeir gætu hugs-
anlega fylgt í kjölfarið, en ég vona
þó ekki,“ sagði Gunnar. Hann sagði
að þeir Rögnvald og Stefán hefðu
átt að dæma leik annað kvöld en
ef málið yrði ekki leyst þá, yrði
hann að fara neðar á listann og
finna aðra dómara í þeirra stað.
Dómara í stein-
inn fyrir afglöp
TYRKNESKA knattspyrnuliðið Besiktas - sem lands-
Iiðsmaðurinn Eyjólfur Sverrisson lék með veturinn
1994 til 95 - hefur krafist þess fyrir tyrkneskum
dómstóli að knattspymudómari einn verði dæmdur í
þriggja ára fangelsi fyrir að sleppa „augtfósri víta-
spymu“ í viðureign Besiktas og Vanspor um fyrri
helgi, sem endaði með markalausu jafntefli. Besiktas
á í harðri baráttu um tyrkneska meistaratitilinn en
Vanspor er í neðri hlutanum. Þetta er fyrsta mál
sinnar tegundar sem kemur fyrir tyrkneskan dómstól.
Necati Toker, lögfræðingur Besiktas, sagði á laug-
ardaginn að dómarinn sem um ræðir, Metin Tokat,
hefði sýnt fádæma afglöp í starfi með því að sleppa
augljósri vitaspyrnu er einn leikmanna Vanspor
„stöðvaði knöttinn augsýnilega með höndum innan
eigin vítateigs“ eftir aukaspyrnu, eins og haft var
eftir lögfræðingnum í tyrkneskum fjölmiðlum. Toker
sagði ennfremur að sér þætti hæfileg refsing vera
þijú ár fyrir þessi afglöp þar sem dómarinn hefði
greinilega misnotað aðstöðu sina. Hann hefði alls
ekki staðið sig í stykkinu sem hlutlaus starfsmaður.
Kristján fer
til Drammen
FORRÁÐAMENN norska handboltaliðsins Drammen
hafa sett sig í samband við Kristján Arason og boðið
honum að þjálfa liðið. „Norðmennirnir hafa boðið mér
að koma til Noregs til að horfa á einn heimaleik liðs-
ins og skoða aðstæður hjá félaginu. Eg reikna með
að fara til Noregs síðar í vikunni," sagði Kristján.
Hann sagði að nokkur félög hafi haft samband við
sig eftir að hann var rekinn frá Wallau Massenheim.
„Eg hef engan áhuga á því að vera einhver slökkviliðs-
stjóri, en loka ekki á neitt fyrirfram. Á þessari stundu
er mér þó efst í huga að flytjast heim til Islands."
SKIÐI
Reuter
Skárdal heimsmeistari
NORÐMAÐURINN Atle Skárdal varð fyrstur til að fagna sigri á heimsmeistaramótinu í
alpagreinum skíðaíþrótta, sem hófst í Sestriere á Ítalíu í gær. Hann sigraði í risasvigi
og landi hans Lasse Kjus varð annar. Sigurvegarinn hampar hér gullinu í gær.
■ Aftur tók / B12
KEFLVÍKIIMGAR BIKARMEISTARAR KARLA OG KVENIMA / B5
Vinnings-
upphæð
Vinningar
vinninga
Vinnings-
Vinningar
vinnlnga
upphæð
3 af 6
bónus
Vertu viðbúin(n) vínningi
\\ miktis að vlnn®
1. vinningur er áoctlaður 100 milljónir kr.
Á isinndc
UPPLYSINGAR